Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1986, Qupperneq 23
DV. MÁNUDAGUR13. JANÚAR1986.
23
Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir
fyrri hálfleik en Klemmi bjargaði og
tvívegis voru dæmd mörk af Forest
vegna rangstöðu. Ekkert mark í fyrri
hálfleiknum en á 47. min. skoraði
Davenport fyrsta mark leiksins. Þá
var ísinn brotinn. Colin Walsh og
Davenport skoruðu og lokakaflann
var Klemmi mjög í sviðsljósinu.
Bjargaði hvað eftir annað mjög vel.
Þess má geta að Ron Atkinson, stjóri
Man. Utd, hefur þverneitað að hafa
boðið Coventry 500 þúsund sterlings-
pund fyrir Terry Gibson, segist ekk-
ert hafa átt viðræður við- forráða-
menn Coventry um leikmanninn.
Hins vegar sé hann alltaf að leita
að áhugaverðum leikmönnum.
Enn tapar Birmingham, nú á
heimavelli fyrir Ipswich. Kevin Wil-
son skoraði eina mark leiksins á 35.
mín. eftir slaka markspyrnu Seaman,
markvarðar Birmingham. Frank
McAvennie skoraði eina markið í
leik Leicester og West Ham. Phil
Parkes, markvörður West Ham,
varði vítaspyrnu frá McAllister.
McAvennie hefur nú skorað 20
mörk í l.deild, Gary Bannister, QPR,
19 og Gary Lineker, Everton, 17.
David Phillips skoraði eina markið
á Maine Road fyrir Man. City. Peter
Shilton hafði lengi haldið Sout-
hampton á floti með snjallri mar-
kvörslu en réð ekki við spyrnu
Phillips fímm mínútum fyrir leikslok.
Kenny Wharton náði forustu fyrir
Newcastle í West Bromwich en Imre
Varadijafnaði.
í 2. deild lék Norwich áttunda sig-
urleik sinn í röð á heimavelli og er
það nýtt met hjá félaginu. Norwich
hefur nú tveggja stiga forustu í 2.
deild því Portsmouth náði aðeins
jafntefli á heimavelli gegn Fulham.
Mike Tate jafnaði í 1-1 þegar langt
var liðið á leikinn. Wimbledon, sem
er í þriðja sæti, tapaði í Oldham. Þó
misnotaði Ron Futcher vítaspyrnu
fyrir Oldham í leiknum en skoraði
hins vegar fyrsta mark leiksins.
- hsím
Mark Hughes skoraði eitt glæsilegasta markið á leikferli sínum í
Oxford - hreint stórkostlegt. Hann var bókaður í leiknum. Þær fréttir
ganga nú á Englandi að Barcelona á Spáni ætli að bjóða stórfé í
Hughes í lok leiktímabilsins.
Jafntefli
efstu liða
— í skosku úrvalsdeildinni í laugardag
Það voru tveir stórleikir í
skosku úrvalsdeildinni á laugar-
dag - innbyrðisleikir efstu lið-
anna - en staðan breyttist ekkert
því jafntefli varð hjá Hearts og
Dundee United í Edinborg og hjá
Celtic og Aberdeen í Glasgow.
Edinborgarliðið Hearts heldur
enn íjögurra stiga forskoti -
Skotar gefa tvö stig fyrir sigur en
ekki þrjú eins og á Englandi. Hins
vegar hefur Hearts leikið fleiri
leikien næstu lið.
Það var ekkert mark skorað í fyrri
hálfleiknum í Edinborg en á 62.
mínútu náði Hearts forustu með
marki Gary McKay við gífurlegan
fögnuð áhorfenda. Það stóð þó ekki
lengi því aðeins sjö mínútum síðar
tókst Dundee Utd. að jafna. Það var
framvörðurinn Eamon Banon sem
jafnaði en hann lék um tíma hér á
árum áður hjá Lundúnaliðinu
Chelsea.
Einnig jafntefli í Glasgow
Celtic eða Aberdeen tókst ekki að
nýta sér jafnteflið í Edinborg til að
draga á Hearts. Þar varð einnig jafn-
tefli, 1-1, á Parkhead í mjög jöfnum
og spennandi leik. Landsliðsmaður-
inn Willie Miller náði forustu fljótt
í leiknum fyrir Aberdeen. Það stóð
þó ekki lengi og Peter Grant jafnaði
fyrir Celtic. Ekkert mark skorað í
síðari hálfleik.
Úrslit í öðrum leikjum urðu þessi.
Rangers-Clydebank 4-2
St. Mirren-Motherwell 1-0
Dundec-Hibernian 3-1
Leikur Rangers og Clydebank átti
að vera á heimavelli síðarnefnda
liðsins. Ekki var hægt að leika þar
og leikurinn háður á leikvelli Rang-
ers, Ibrox, í Glasgow. Rangers vann
öruggan sigur með mörkum Craig
Paterson, David McPherson, Robert
Williamson og Ally McCoist. Lloyd
skoraði fyrir Clydebank auk þess
sem Paterson sendi knöttinn í eigið
mark. Frank McGarvey, áður Liver-
pool og Celtic, skoraði sigurmark St.
Mirren og Raymond Stephen skoraði
tvö af mörkum Dundee gegn Edin-
borgarliðinu Hibernian.
Staðan er nú þannig:
Hearts 24 12 7 5 38-25 31
Aberdeen 22 10 7 5 42-21 27
Dundee 21 10 7 4 32-19 27 •
Rangers 23 10 5 8 35-26 25
Celtic 21 10 5 6 31-24 25
Dundee 23 9 5 9 26-35 23
St. Mirren 21 9 2 10 29-33 20
Hibernian 21 6 5 10 30-40 17
Clydebank 24 5 5 14 22-44 15 **
Motherwell 20 3 4 13 17-35 10 hsím.
f SEPTEMBER
VOLVO 740 GLE
ÍJÚNÍ
PEUGEOT205GR
1986 verður spennandi ár hjá þeim
sem spila í happdrætti SÍBS.
Það hefur heldur betur færst fjör í leikinn.
Vinningshlutfallið hefur verið aukið
og aukavinningarnir fleiri og meiri en áður.
Eitt hundrað og tíu milljónir króna
verða í pottinum
- allt upp í 2 milljónir króna á einn miða.
Þess utan verður dregið um
3 aukavinninga -3 bifreiðar:
ÍFEBRÚAR
PAJERO SUPERWAGON