Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1986, Page 27
DV. MÁNUDAGUR 12. MAÍ 1986.
27
Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir
Attundi titill PVS
og sex marka sigur
Lið Phillips-verksmiðjanna, PSV
Eindhoven, varð hollenskur meistari í
knattspyrnu á laugardag þegar liðið
vann stórsigur, 8-2, á Go Ahead Eagles
frá Deventer í Eindhoven. PSV hefur
tryggt sér sigurinn í hollensku úrvals-
deildinni þó það eigi tvo leiki eftir. Það
er í áttunda sinn sem PSV verður
Hollandsmeistari. í fyrsta skipti var
það 1978 en liðið hefur haft marga
heimsfræga leikmenn í sínum röðum
eins og Kerkhoff-tvíburana, Rene og
Wiffie.
Leikur liðsins breyttist mjög til hins
betra á þessu leiktímabili, þegar Ruud
Gullit var keyptur frá Feyenoord.
Hann er yfirburðamaður í hollenska
landsliðinu og hefur verið það undan-
farin ár. Síðan hann byrjaði að leika
með PSV hefur liðið verið það lang-
besta í Hollandi. Hefur það nú sigrað
- hlotið 57 stig í 32 leikjum en Ajax,
sem Johan Cruyff stjómar, er í öðm
sæti með 49 stig úr 31 leik. Feyenoord
er í þriðja sæti með 42 stig eí'tir 30
leiki. Leikimir í úrvalsdeildinni hol-
lensku em 34 á lið. Eftir leiktímabilið
fær PSV tvo landsliðsmenn frá Ajax,
Gerald Vanenburg og Ronald Koe-
man.
Norski landsliðsmaðurinn Hallvar
Thoresen hefur verið aðalmarkaskor-
ari PSV á þessu leiktímabili. Á
laugardag skoraði hann þrennu þegar
titillinn komst í höfn. Gullit, vamar-
maður (sweeper), bæði hjá PSV og
hollenska landsliðinu, skoraði tvívegis
og fögnuður 23.500 áhorfenda í Eind-
hoven var mikill. Liðið hefur aðeins
tapað einum leik í úrvalsdeildinni á
leiktímabilinu, skorað % mörk og
fengið á sig 19.
Þótt hollenski meistaratitillinn sé
nú úr sögunni hjá Johan Cruyff og
leikmönnum hans hjá Ajax reikna all-
ir með að Ajax verði bikarmeistari.
Leikur liðið þar til úrslita við RBC,
Roosendaal, sem leikur í 2. deild. Úr-
slitaleikurinn verður síðar í þessum
mánuði.
hsím
Derby County í 2. deild
Derby County, eitt af vinsæffi liðum upp fyrir Wigan og fylgir Reading og marga landsliðsmenn, mjög snjalla
enskrar knattspyrnu hér á landi, Plymouth upp. leikmenn. Síðan hallaði undan fæti og
tryggði sér sæti í 2. deild næsta leik- Á fyrstu árum íslenska sjónvarpsins liðið féll niður í þriðju deild. Derby
tímabil á föstudagskvöld þegar liðið var Derby mjög í sviðsljósinu. Varð County hefur einu sinni sigrað í ensku
sigraði Rotherham, 2-1, á heimaveffi liðið enskur meistari undir stjóm bikarkeppninni, 1946, í fyrsta úrslita-
sínum. Með sigrinum komst Derby Brian Clough 1971 og 1975 og átti þá leiknum eftir síðari heimsstyrjöldina.
Ruud Guffit, besti leikmaður Hol-
lands og nú meistari með PSV.
Heimsmet
í lyfHngum
Búlgarski lyftingamaðurinn Alex-
ander Varbanov setti heimsmet í
jafnhöttun i miffivigt, þegar hann varð
Evrópumeistari í Karl-Marx-Stadt í
A-Þýskalandi á föstudag. Hann lyfti
212.5 kg og bætti eigið heimsmet um
hálft kiló. Þá snaraði hann 160 kg og
varð Evrópumeistari samanlagt með
372.5 kg. Var hann í algjörum sér-
flokki. Hann er 22ja ára. Búlgarir
sigruðu í öllum léttari flokkunum. Það
var loks í léttþungavigt, sem sigur-
ganga þeirra var rofin, þegar Israil’
Arsamakov, Sovétríkjmium, sigraði.
Hann lyfti samtals 382,5 kg.
hsím
Oddur hljóp
á 46,70
Tölur vixluðust þegar skýrt var frá
góðum árangri Odds Sigurðssonar,
KR, á frjálsiþróttamóti í Austin 3.
mai. Oddur hljóp 400 metrana á 46,70
sek. Ekki 47,60 eins og misritaðist hér
í blaðinu. Þá hljóp Oddur 800 m á 1.51,
3 min. á sama móti.
hsim
Flugogskip.Flugútf skipheim, skipútogflugheim,
eðo eins og þú vilt.
Ferðaskrifstofa ríkisins og Flugleiðir bjóða nú enn
einn ferðamöguleikann, - flug og skip.
Við bjóðum þér að fljúga með Flugleiðum og sigla
með Norrænu, hvort heldur þú vilt heiman eða heim.
Þú gætir t.d. flogið innanlands, siglt út og flogið heim,
eða flogið út og siglt heim.
Möguleikarnir eru margir. Hafðu alla þína hentisemi.
Flugið er fljótlegra, en skemmtisigling með Norrænu
er óneitanlega freistandi.
Nota má „Flug og skip“ til þess að komast til og frá
Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Færeyjum og Skotlandi.
Flug og skip,
ánægjuleg tilbreyting á ferðamáta landsmanna.
, i ^ Leitið upplýsinga hjá Ferðaskrifstofu Ríkisins, Flugleiðum og ferðaskrifstofum.
f#?T Ferðaskrifstofa Ríkisins FLUGLEIÐIR
jlysingastofa Emst Backman