Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1986, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1986, Qupperneq 11
DV. MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 1986. 11 Viðtalið Viðtalið Viðtalið Viðtalið Vilhjálmur Ketilsson, bæjarstjori Keflavíkur: Fyltti sælgætissjálf- sala á Keflavíkurvelli „Leitin að bæjarstjóra fór fram inn- an okkar raða og ég sló tilsagði Vilhjálmur Ketilsson, nýráðinn bæj- arstíóri í Keflavík. „Ég hef haft afskipti af pólitík síðan 1970, hef að vísu ekki starfað mikið en verið með í flokksstarfi Alþýðu- flokksins í kringum kosningar. Mér hafði aldrei dottið í hug að pólitísk störf yrðu mín aðalvinna. Fyrir kosn- ingamar núna duttu margir út af lista Alþýðuflokksins. Það var auglýst prófkjör og ég ákvað að taka þátt, sem endaði með því að ég lenti í öðru sæti.“ ATVINNUSAGA in, var aðeins 17 ára þegar hið fyrsta kom í heiminn, en konunni sinni kynntíst hann fimmtán ára gamall. „Við höfum haldið það út og erum ennþá ástfangin mörgum til undrunar. Ég reyni að taka mikinn þátt í heim- ilisstörfimum. Það veitir ekki af, heimilið er stórt. Ég hef lítinn tima til að sinna áhugamálum, en reyni að fylgjast sem mest með íþróttayiðburð- um,“ sagði Vilhjálmur. -KB Vilhjálmur Ketilsson, nýráðinn bæjarstjóri í Keflavík. Kunnugur bæjarlífinu Vilhjálmur er fæddur og uppalinn í Keflavík og er því vel kunnugur öllum hnútum bæjarlífsins þar. Undanfarin ár eða síðan 1978 heftir hann verið skólastjóri bamaskólans í Keflavík, Myllubakkaskóla. En Vilhjálmur hefur kynnst horgar- bragnum af eigin raun. Hann stundaði nám í Kennaraskólanum í Reykjavík og lauk stúdentsprófi og kennaraprófi árið 1974. Þá lá leiðin aftur til Kefla- víkur, hann fékk stöðu sem æskulýðs- fulltrúi bæjarins. „Líf bamanna í bænum er með nokkuð öðm sniði nú heldur en var þegar ég var strákur. f þá daga varð maður mun meira var við vem banda- ríska hersins en nú er, vinir manns og leikfélagar vom bandarískir og ís- lensku krakkamir töluðu mörg ensku. Þetta þekkist ekki lengur.“ Í70AR 1916 - 16. JÚNÍ - 1986 Af þeim 200 árum sem liðin eru frá því að Reykjavík fékk kaup- staðarréttindi hefur Ellingsen hf. verið þátttakandi í atvinnulíf- inu í höfuðborginni og um land allt í 70 ár. „Erum ennþá ástfangin“ Eins og margir Keflvíkingar hefur Vilhjálmur unnið á Keflavíkurflug- velli. Eftir gagnfræðaprófið vann hann í rúmt ár við að fylla sælgætissjálfsal- ana þar. Vilhjálmur er 36 ára gamall, giftur Sigrúnu Ólafsdóttur og eiga þau 5 böm. Hann byijaði snemma að eiga böm- Enn semur Hrafn við Hvrta- skáldið „Ég var búinn að skrifa handrit að sjónvarpsmynd um sund Guðlaugs í Vestmannaeyjum en það reyndist allt of dýrt í framkvæmd þannig að það var lagt til hliðar,“ sagði Ásgeir Hvíta- skáld í samtali við DV. Eins og greint var frá hér í blaðinu fyrir allnokkm réð Hrafh Gunnlaugsson Hvítaskáldið til að skrifa handrit að sjónvarpsmynd um sundafrek Guðlaugs Friðþórssonar og greiddi honum hluta höfundar- launa fyrirfram. „Það varð að samkomulagi milli mjn og Hrafns að þessi greiðsla gengi upp í nýtt verk sem ég er nú að leggja síð- ustu hönd á. Það heitir Synir og sjór og fjallar um síðasta útvegsbóndann i Reykjavík, baráttu hans við hafið og húsin sem alltaf færast nær,“ sagði Ásgeir og er tilbúinn að skila handriti til sjónvarpsins 1. júlí. „Eg er í sjálfu sér ánægður með þessi skipti. Kvikmyndun á sundafreki Guð- laugs var viðkvæmnismál í Vest> mannaeyjum og til dæmis þvertók Guðlaugur sjálfur fyrir að ég gerði þá mynd. Hitt skipti þó meiru að efnivið- urinn gaf mér ekki nægjanlegt svigr- úm til skáldlegs innblásturs." í Ánanaustum, Grandagarði 2 frá 1974 / tilefni dagsins höfum við heitt á könnmni fyrir viðskiptavini og velunnara, í dag, afmælisdaginn 16. júní. mmm® (amaMsaa ca? ÁNANAUSTUM, GRANDAGARÐI 2, SÍMAR 28855 -13605 -EIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.