Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1986, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1986, Qupperneq 19
DV. MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 1986. 19 Sigurður 8. Jönsson, 21 árs, vamarmaður Guðbjöm Tryggvason, 28 ára, miðvallarleikmaður Heimir GöAmundsson, 22 ára, varnarmaður Hafliði Guðjónsson, 20 ára, vamarmaður Birkir Kristinsson, 21 árs, markvörður Rúnar Sigriksson, 20 ára, markvörður Júiíus P. Ingóifsson, 27 ára, miðvaliarleikmaður Árni Sveinsson, 30éra, miðvallarleikmaður Sveinbjöm Hákonarson, 29ára, miðvallarleikmaður Vaigsir Barðaaon, 21 árs, framherji Óiafur Þórðarson, 21 árs, miðvallarleikmaður Sigurður Lárusson, 30 ára, varnarmaður Engiibert E. Jóhanness., 22 ára, vamarmaður • Lið Akraness sem leikur i 1. Aðaisteinn Vikingsson, 21 árs, miðvallarleikmaður deild i sumar. Jakob Halldórsson, 20 ára, miðvallarleikmaður Hörður Jöhannesson, 30ára,framherji Jim Barron, þjátfari. „Fólkið á Skaganum heimtar sigra“ - segir Jón Gunnlaugsson, fyrrum leikmaður ÍA „Mér líst ágætlega á Akranesliðið það sem af er. Það er aftur á móti al- gerlega undir mannskapnum komið hvemig íramhaldið verður. Ef menn eru samstilltir og ákveðnir í að standa sig liggur leiðin tvímælalaust upp á við. En það er líka stutt í að dæmið geti alveg snúist við,“ sagði Jón Gunn- laugsson, formaður knattspymuráðs Akraness. „Ég tel að Skagaliðið í dag sé hæfileg blanda af eldri og yngri leik- mönnum. Við höfum verið að yngja liðið upp smám saman og strákamir, sem komið hafa inn, hafa staðið sig mjög vel. Liðið er því til alls liklegt," sagði Jón. Meðalmennska í deildinni „Við erum mjög ánægðir með Jim Barron þjálfara. Hann vinnur feiki- lega vel og hefur sýnt að hann er góður þjálfari. Við gerum okkur vitaskuld grein fyrir að það er erfitt fyrir hann að taka við af Herði sem hefur náð frábærum árangri með liðið undan- farin ár. En þetta er í raun sama aðstaðan og Hörður var i á sínum tíma. Það hafa alltaf verið gerðar geysilegar kröfur til þjálfara á Akranesi og eins þeirra ungu leikmanna sem em að koma inn í meistaraflokkinn. Það er beinlínis ætlast til þess að allir standi sig vel og að sigur vinnist í mótum. Fólk hér á Akranesi hreinlega sættir sig ekki við neitt minna.“ Hvemig líst þér almennt á 1. deild- ina í ár? „Mér finnst deildin mjög svipuð og hún hefur verið undanfarin ár. Þó finnst mér meiri meðalmennska ríkj- andi en oft áður. Það er ekkert lið afgerandi í deildinni núna. Það sem kemur á óvart er að lið, sem ekki var reiknað með miklu af i upphafi, hafa byijað mótið ágætlega. Þetta sýnir að flest liðin era til alls líkleg." Upprennandi leikmenn - Nú hefur átt sér stað ákveðin end- umýjun í Akranesliðinu. Ná ungu strákamir að fylla í skörð sem menn eins og Karl Þórðar og Jón Áskels hafa skilið eftir sig? „Já, að mínu mati hafa ungu strák- amir staðið sig mjög vel. Þeir hafa fengið fleiri tækifæri nú en oft áður og leikið óaðfinnanlega. í mörgum til- fellum hafa þeir verið bestu menn liðsins. Við eigum marga upprennandi leik- menn hér á Akranesi og sumir þeirra hafa þegar sannað getu sína eins og til dæmis Ólafur Þórðarson. Ég álít- því að Skagaliðið í ár sé fullfært um að gera stóra hluti. Ef karakterinn verður í lagi getur allt gerst,“ sagði Jón Gunnlaugsson. Fimmtán markakóngar frá 1955 Skagamenn hafa verið á skotskón- um í gegnum árin og frá því árið 1955 hafa Skagamenn átt fimmtán markakónga í 1. deild. Keppnistímabilið árið 1955 verður lengi í minnum haft á Akranesi því þá urðu þrír leikmenn ÍA jafiiir í efsta sæti yfir markahæstu leikmenn 1. deildar. Það vom þeir Þórður Þórðarson, Ríkharður Jónsson og Þórður Jónsson. Allir skomðu þeir 7 mörk. Þórður Þórðarson varð marka- kóngur næstu þrjú ár. 1956 skoraði hann 6 mörk, aftur 6 mörk 1957 og 11 mörk 1958. Ingvar Elísson varð markakóngur 1. deildar árið 1960 en hann skoraði þá 15 mörk. Ingvar varð markakóngur 1962 og skoraði þá 11 mörk. Skúli Hákonarson varð markakóngur 1963 með 10 mörk og Eyleifur Hafsteinsson varð marka- kóngur 1964 með 10 mörk. Árið 1969 skoraði Matthías Hallgrímsson flest mörk allra í 1. deild, eða 9 talsins. Næsti markakóngur af Skaganum leit dagsins ljós árið 1974 en þá skor- aði Teitur Þórðarson 9 mörk. Matthías varð aftur markakóngur árið eftir, 1975, og skoraði þá 10 mörk. Pétur Pétursson varð markakóng- ur árið 1977, skoraði þá 16 mörk. Pétur var aftur á skotskónum árið eftir, 1978, en þá skoraði hann 19 mörk og enginn leikmaður í 1. deild hefur skorað fleiri mörk á einu keppnistímabili síðan árið 1955. •Jón Gunnlaugsson, fyrrum leikmaður með IA og núverandi formaður knattspymuráðs Akraness:,, Leiðin liggur upp á við.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.