Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1986, Síða 25
DV. MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 1986.
25
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
lögðu Sovétmenn að velli en margir höfðu
i i gærkvöldi, fagr.a Belgarnir áfanganum,
Símamynd/Reuter
„Ótrnleg spenna“
- sagði Guy Thys, þjálfari Belga, eftir sigurinn á Sovétmönnum
„Ég held að þetta hljóti að hafa ver-
ið æsilegasti leikur keppninnar fram
að þessu. Spennan var hreint ótrúleg.
Við reyndum ákveðið leikkerfi gegn
Sovétmönnum og það tök töluverðan
tíma að slípa það til. Eftir að það tókst
urðu skyndisóknir okkar mjög hættu-
legar,“ sagði Guy Thys, þjálfari
Belgíumanna, eftir leikinn við Sovét-
menn sem var án efa einn skemmtileg-
asti leikur sem sést hefur í heimsmeist-
arakeppni.
Þegar Thys var spurður hvort hann
hefði verið trúaður á það fyrirfram að
lið hans gæti sigrað Sovétmenn, sem
höfðu leikið mjög vel í keppninni,
sagði Thys svo hafa verið. „Þjálfarinn
verður alltaf að hafa trú á sigri ann-
ars ætti hann að fá sér annað starf,“
sagði Thys.
Belgar mæta sigurvegaranum úr leik
Dana og Spánveija í 8 liða úrslitum.
„Það er enginn leikur auðveldur af
þeim sem eftir eru í keppninni og það
er í raun sama hvort við mætum Dön-
um eða Spánverjum. Ég er hins vegar
sannfærður um að liðið mitt er fært
um að komast lengra i keppninni,"
sagði Thys. -SMJ
r J^**r*_.
„Svona eiga
leikiraðvera“
- sagði þjátfari Sovétmanna
„Áhorfendur þessa leiks, hvort sem
þeir sáu hann í sjónvarpi eða á leik-
vanginum sjálfum, hljóta að hafa verið
ánægðir með gæði leiksins. Að mínum
dómi bauð hann upp á allt það besta
sem knattspyma hefur upp á að bjóða
en bæði liðin spiluðu frábærlega vel.
Svona eiga leikir í heimsmeistara-
keppni að vera,“ sagði Lobanovsky,
þjálfari Sovétmanna, við blaðamenn
eftir leikinn en úrslitin hljóta að hafa
verið mikil vonbrigði fyrir Sovétmenn
sem léku í raun frábærlega i keppn-
inni.
„Betra liðið vann en leikmenn mínir
gerðu margar villur sem þeir eru ekki
vanir að gera,“ sagði Lobanovsky.
Þegar hann var spurður um annað
mark Belga, sem margir töldu ólög-
legt, sagði harrn: „Ég vil ekki segja
neitt um það en það verður að játast
að leikmenn mínir hættu áður en
markið var skorað."
-SMJ
•Guy Thys, þjálfari Belga. var án-
ægður í gærkvöldi.
Danir í „hótelslag“
- búa á sama hóteli og Spánverjar
áá
rmn
tu andstæðingar
Mikil rekistefna hefur verið í gangi
í Mexíkó undanfarna daga vegna
þess að Spánverjar og Danir búa á
sama hótelinu í Queretaro. Sem
kunnugt er leika þessar þjóðir sam-
an í 16 liða úrslitum HM og finnst
Dönum það í meira lagi undarlegt
að liðin skuli vera látin búa á sama
hóteli.
Danir hafa kvartað sáran undan
þessu fyrirkomulagi og þá sérstak-
lega undan ágangi blaðamanna en
margir slíkir búa á hótelinu og ekki
er hægt að vísa þeim i burtu að sögn
talsmanns FIFA. Hann sagði einnig
í gær að liðin yrðu að gera sér sam-
býlið að góðu og engin breyting þar
á væri í aðsigi. Ekki voru Danir
ánægðir með þessa ákvörðun FIFA
og Sepp Piontek, landsliðsþjálfari
Dana, sagði: „Vandamálið við FIFA
er að sambandið er of veikt til að
taka afstöðu í þessu máli. Sú staða
sem upp er komin er alls óviðunandi
þegar í hlut eiga tvö lið sem leika
saman í 16 liða úrslitum HM,“ sagði
Piontek. -SK.
Súlgaríu í gærkvöldi. Mexikaninn Manuel Negrele skorar eitt fallegasta mark heimsmeistarakeppninnar til þessa og þó víðar væri leitað. Knötturinn hafnaði i
ff, markvörður Belga, kæmi við nokkrum vömum. Negrete lét sér ekki nægja að skora þetta þýðingarmikla og glæsilega mark i leiknum. Hann lagði upp síðara
Simamynd/Reuter
• Bameer Shaker í ársbann. |
Hrækti á |
dómarann i
- dæmdur í ársbann I
I
I
I
Bameer Shaker, landsliðsmaður
í liði Iraks, getur tekið það rólega
varðandi landslið Iraks næsta árið
þvi í gær var hann dæmdur í eins
árs bann með landsliðinu vegna
þess að hann á.að hafa hrækt á
dómarann í leik íraks og Belgíu í
riðlakeppninni. írak tapaði leikn-
um, 1-2. Félagar Shakers, þeir
Basil Gourgies og Haris Mo-
hammed, voru einnig dæmdir í
leikbann. Hvor um sig fékk tveggja
leikja bann með landsliðinu.
-SK.
I
Bertelsen |
að koma til i
„Ég er mjög bjartsýnn á að ég |
verði orðinn góður af meiðslunum ■
í tæka tíð fyrir leikinn gegn Spán- I
verjum," segir Daninn Jens Jöm I
Bertelsen sem meiddist sem kunn- I
ugt er illa í leik Dana og Umguav I
sem Danir unnu á svo eftirminni- *
legan hátt 6-1. |
Ekki var Sepp Piontek jafribjart- _
sýnn á að hann gæti notað Bertels- |
en i leiknum gegn Spáni. Bertelsen ■
er farinn að hlaupa um ganga hót- I
elsins i Queretaro og er reiknað I
með því að hann fari á æfingu með ■
danska landsliðinu í dag. I
-SK ■
■
■ ■■■ ■■■■■■■ ■■■ mm mm mm
HRAUN
ÓTRÚLEG
ENDING
HRAUN - FINT
hefur mjög góða viðloöun við flest
byggingarefni og hleypir raka
auöveldlega í gegnum sig.
Mikið veörunarþol
ending.
stórgóð
hraun
vl
«,».v $ '' '
**■»'’í’í ‘j.t- :
SEM6NTSQRATT