Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1986, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1986, Síða 7
MÁNUDAGUR 8. DESEMBER 1986. 7 Atvinnumál „Enginn lifir á 26.500 krónum“ „Ríkisstjómin mun ekki standa við sinn hlut“ - segir Sigríður Dúna Kristmundsdóttir - segir Jón Baldvin Hannibalsson „Það ánægjulega við þessa samn- inga er að í þeim er dregið úr áhrifum bónusfyrirkomulagsins og að þar var lögð áhersla á að hækka lægstu laun- in sérstaklega. Kvennalistinn hefur lagt ríka áherslu á þetta atriði og flutt frumvarp á Alþingi um lögbindingu lágmarkslaima. Það lifir hins vegar enginn á 26.500 krónum á mánuði og ljóst er að þessi lágmarkslaun eru allt of lág. Áfram verður fólki því boðið upp á laun fyrir fulla vinnu sem ekki er hægt að framfleyta sér af,“ sagði Sigríður Dúna Kristmvmdsdóttir, þingkona Kvennalistans, þegar DV leitaði álits hennar á nýgerðum kjara- samningum. - Hvað finnst þér um hlut ríkis- stjómarinnar í þessum samningum? „Ríkisstjómin á ekki að taka við stefrrn frá aðilum vinnumarkaðarins í skattamálum né húsnæðismálum eins og hún gerði í febrúarsamningunum heldur á hún sjálf og Alþingi að móta þá stefnu. Ég get heldur ekki séð að þessi samningur geti orðið fyrirmynd sem ríkið geti notað i samningum við opinbera starfsmenn vegna þess að margar starfsstéttir, sem hafa verið að segja upp undanfarið vegna lélegra launa, em með laun fyrir ofan 26.500 krónur," sagði Sigríður Dúna að lok- um. -SJ I—•inammæ ......... ^ Ljósritunarvél Vinnuveitendasambandsins gerði samningamönnum í Garðastrætinu grikk þegar tjósrita átti kjara- samning ASÍ og VSÍ á laugardag. Þá festist bréfsnifsi í henni en eftir nokkurt bras tókst viðstöddum að ná miðanum þannig að vélin fengi þjónað hlutverki sínu. DV-mynd Brynjar Gauti „Meginniðurstaða samninganna er í rétta átt og em þeir i rökréttu fram- haldi af febrúarsamningunum sem vom umdeildir og nú geta menn ekki neitað því að þeir hafi skilað ár- angri,“ sagði Jón Baldvin Hannibals- son, formaður Alþýðuflokksins, þegar hann var spurður um álit hans á samn- ingum ASI og VSÍ. „Það em tvær spumingar sem þarf að svara varðandi samningana og sú fyrri snýr að svokallaðri ríkisstjóm en það er ljóst að það er mun meiri halli á fjárlögum en kemrn- fram í fjár- lagafrumvarpi stjómarinnar. Þetta er prófsteinn á það hvort ríkisstjómin muni nú spretta upp eigin fjárlögum og taka á þeim vanda sem við blasir. Ég slæ því föstu að ríkisstjómin muni ekki standa við sinn hlut. '171 þess þarf hún að gerbreyta fjárlagafrum- varpi og lánsfjárlögum í aðhaldsátt nú innan tveggja vikna. Síðari spum- ingin er hvort innan launþegahreyf- ingarinnar sé fyrir hendi sú félagslega samstaða að aðrir hópar sitji nú um kyrrt með það að sækiast eftir hækkun sem færi upp allan launastigann," sagði Jón Baldvin að lokum. -SJ „JOLATILBOÐ FJOUSKYLDUNNAR FRA PANASONIC biluðu minnst og entust best allra tækja. Þessar staðreyndir segja meira en hástemmt auglýsingaskrum. Jólatilboð á NV-G7 frá I 37.850,- m WJAPIS BRAUTARHOLT 1 SiMI 27153 Nú, þegar fjölskyldan slær saman í eina veglega jólagjöf, ermikið atriði að vanda valið. Á tímum gylliboða er nauðsynlegt að staldra við og hugsa sig vel um, því nóg er framboðið og ekki vantar hástemmdu lýsingarorðin. Við viljum þess vegna benda ykkur á Panasonic sem vænlegan kost, sérstaklega þegar það er haft í huga, að Panasonic myndbandstækin fara sigurför um heiminn og eru í dag lang-mest keyptu tækin. Einnig má minna á, að sem stærsti myndbands- tækjaframleiðandi heims, eyða þeir margfalt meiri peningum í rannsóknir og tilraunir en nokkur annar framleið- andi. Það þarf því engum að koma á óvart að samkvæmt umfangsmestu gæðakönnun sem framkvæmd hefur verið hjá neytendasamtökum i sjö V-Evrópulöndum varð niðurstaðan sú, að myndbandstækin frá Panasonic

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.