Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1986, Síða 46
46
MÁNUDAGUR 8. DESEMBER 1986.
Dægradvöl
Blessuð jólin í búðar-
gluggunum
Hér er það jólasveinahúfan sem er í aðalhlutverki í gluggaskreytingunni í
versluninni Bangsimon við Laugaveginn. DV-mynd Brynjar Gauti
Sumir taka jólin snemma en aðrir
seint ef svo má segja. Gera má ráð
fyrir að í byijun desember séu flestir
famir að huga eitthvað að jólunum
enda er að mörgu að hyggja. Það þarf
að gefa gjafir og flestir fá einhver ný
föt svo þeir fari nú ekki i jólaköttinn
og svo framvegis. Það er líklega ekki
hallað á neinn þó að sagt sé að jólin
komi einna fyrst í glugga hinna ýmsu
verslana. Til dæmis má nefha að jóla-
sveinamir í Rammagerðinni komu í
gluggann sinn 30. október sl. en flestir
miða við fyrsta dag desembermánaðar
þegar þeir skreyta glugga sína. Það
má líka segja að jólskreytingamar í
búðargluggunum setji sannkallaðan
jólasvip á bæinn og þess vegna skellt-
um við okkur í bæinn um miðja
síðustu viku til að skoða dýrðina.
Jólasveinarnir vinsælir
Það kenndi svo sannarlega ýmissa
grasa í gluggum verslananna. Jóla-
skreytingar vom reyndar ekki komnar
í þá alla en í allflestum mátti sjá eitt-
hvað sem minnti á hátíðina. Jólasvein-
ar af ýmsum stærðúm og gerðum eru
að sjálfsögðu vinsælir á þessum árs-
tíma enda em jólin alveg að koma.
Þessir jólasveinar eru í léttum leik á fjómm bíldekkjum. Þessi útstilling er I versluninni K. Einarsson og Bjömsson.
Vegfarendum er óskað gleðilegra jóla í gluggum verslunarinnar Karnabæjar.
Eins og við vitum em jólasveinar til
alls visir og í einum glugganum var
búið að skreyta sveininn með eyma-
lokkum, hálsfestum og fleiri skartgrip-
um, auk þess sem hann hafði ýlu í
munni sér. Aðrir hressir jólasveinar
vom í léttum leik á bfldekkjum í einum
glugganum og enn aðrir veltust um
innan um skó af ýmsum stærðum og
gerðum. Svona mætti lengi telja enda
fjöldi verslana við Laugaveginn tölu-
verður.
En það em ekki bara jólasveinar í
gluggunum, jólatréð er líka fastur lið-
ur á jólunum og það gleymist ekki í
gluggaskreytingunum. Það má jafnvel
sjá lifandi jólatré í sumum gluggum
með pökkum allt í kring. Brynja Pét-
ursdóttir, sem er lærð gluggaskreyt-
ingakona, notar jólatré sem hún
klippir úr hvítu filti í skreytingu sína
í glugga Máls og menningar. Jólakött-
urinn illræmdi sést ekki í mörgum
gluggum, enda kannski ekki viðeig-
andi. I einni verslun í Austurstrætinu
er samt köttur í glugganum en hann
er reyndar hvítur og góðlegur, and-
stætt hinum svarta jólaketti. Þetta var
í Gleraugnadeildinni í Austurstræti
og bmgðum við okkur þar inn og
spurðum Sigrúnu Sigurðardóttur
verslunarstjóra að því hvers vegna
hvíti kötturinn væri notaður í jóla-
skreytinguna í búðinni. „Þetta er
jólakötturinn okkar og hann hefur lík-
lega verið hér í ein tíu ár. Hann er
því fastur liður í skreytingunni og þó
glugginn breytist að sjálfeögðu frá ári
til árs er kötturinn alltaf með.“
Mikil vinna við skreytingarnar
En áfram með skrautið. Jólastjömur
af ýmsum stærðum og gerðum, jóla-
kúlur og margvíslegt jólaskraut prýddi
glugga bæjarins og má með sanni
segja að það var margt skemmtilegt
sem fyrir augu bar og greinilegt að
gluggaskreytingafólkið hafði lagt
töluverða vinnu í suma gluggana.
Það kom fram hjá nokkrum þeirra
sem við ræddum við að vinna við
gluggaútstillingu gæti tekið töluverð-
an tíma og fer það vitanlega eftir stærð
glugganna og umfangi skreytinganna.
Til dæmis má nefna gluggann í Sport-
vali við Hlemm sem Maríanna Frið-
riksdóttir afgreiðslustúlka skreytti en
þar setti hún upp heila baðstofu þar
sem afi og amma sitja umkringd
bamabömunum, jólasveinum og nátt-
úrlega pökkum. Maríanna sagðist
hafa byijað að hugsa um skreytinguna
upp úr miðjum nóvember og það gæti
tekið sinn tíma að finna alla þá hluti
sem hún vildi nota í skreytinguna.
Ásgerður Höskuldsdóttir innanhúss-
hönnuður tók í sama streng og sagðist
t.d. byrja að hugleiða sum verkefni sín
strax í lok október. Hún er með píanó
í einum glugga Vogue við Skólavörðu-
stíg og sagði hún að það hefði verið
Jólasveinum er greinilega margt til
lista lagt og í gluggum verslunarinnar
Rimu hefur Þuríður Bergmann leyft
þeim að leika sér innan um skó, hálm
og viðarbjálka.
mikil vinna að finna það og koma þvi
fyrir eins og hún vildi hafa það í út-
stillingunni.
„Ekki mikið af góðum gluggum
í bænum“
„Það getur tekið langan tíma að
undirbúa skreytingu í einn glugga, til
dæmis glugga Vogue sem ég byijaði
að hugleiða í lok október. Það tekur
sinn tíma að útvega ýmsa hluti, eins
og t.d. píanóið sem ég setti í gluggann
í Vogue,“ sagði Ásgerður Höskulds-
dóttir innanhússhönnuður sem á
heiðurinn af jólaskreytingum allnokk-
urra verslunarglugga í höfuðborginni
og nágrenni, auk þess sem hún hefur