Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1987, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1987, Blaðsíða 22
22 MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 1987. íþróttir Lineker og Hughes á skotskónum - skoruðu sitt markið hvor í stórsigri Barcelona Þórður dreifir lopapeysum SleSn Kristjánssan, DV, Rcetodc Baltic Cup keppnin í handknatt- leik getur aldrei farið fram á íslandi af þeirri einföldu ástæðu að ísland er ekki Eystrasaltsþjóð. ísland er þó fyrsta varaþjóð ef engin hinna þjóðanna getur haldið keppnina. Það er að miklu leyti að þakka Þórði Sigurðssyni, gjald- kera HSl, að fsland fékk að vera með í keppninni i ár. Ástæðan er án efa mikil vinátta sem er á milli forráðamanna austur-þýskra og íslenskra handknattleiksmanna. Til gamans má geta þess að Þórður Sigurðsson mætti hingað með þrjár lopapeysur sem eigin- kona hans prjónaði handa Paul Tiedemann, þjálfara Austur- Þýskalands, lækni liðsins og bamabami hans. -JKS Stórmót í Osló Mikið stórmót í knattspymu verður í Osló dagana 19. til 26. júh'. Þama munu mæta til leiks lið frá fförum löndum auk heima- manna. FC Köln, PSV Eindhoven, Celtic, Nottingham Forest, Lil- leström, Mjöndalen og Tromsö munu keppa á þessu móti sem norska knattspymusambandið stendur fyrir. -SMJ Barcelona lék um helgina gegn At- hletic Bilbao og sóttu Baskamir vart gull í greipar þeirra Börsunga. Heima- menn sigmðu auðveldlega með fjómm mörkum gegn einu. Bresku leikmenn- imir, þeir Gaiy Lineker og Mark Hughes, fóru báðir á kostum og skor- uðu hvor sitt markið. Carrasco og Femandez vom einnig á skotskónum og skomðu þeir einnig sitt markið hvor. Iturbi náði hins vegar að svara fyrir gestina. Barcelona er nú eitt í efsta sæti fyrstu deildarinnar á Spáni með 35 Það er hægt að leika sér með margt í heimi tölfræðinnar. Nýlega gerðu danskir blaðamenn könnun á því hvað danskir leikmenn væm mikils virði. Við svona mat verður að taka margt til greina svo sem aldur, getu og hæfileika. Það kemur líklega faum á óvart að Michael Laudrup hjá Juventus skuli vera verðmætastur þeirra Dana en hann er metinn á 85 millj- ónir kr. Preben Elkjær Larsen, sem stig. Á hæla Barcelona kemur Real Madrid með 33 stig en þeir sigmðu „Víkingsbanana", Real Sociedad, með tveimur mörkum gegn engu á útivelli. Mörkin skomðu þeir Gordillo og Gal- lego. I þriðja sæti á Spáni er síðan Espan- ol með 30 stig, en Espanol tapaði um helgina á útivelli, 0-2, gegn Real Bet- is. Betis klífur nú upp stigatöfluna og er liðið um þessar mundir í sjötta sæti. -JÖG einnig er á Italíu, er metinn á 60 milljónir. Þess má geta að dýrasti leikmaður heims, Diego Armando Maradona, er metinn á 415 milljónir. Næstdýrasti leikmaður Dana er félagi Amórs Guðjohnsens hjá And- erlecht, Henrik Andersen. Andersen, sem er aðeins 21 árs, er geysilega efiiilegur og er hann metinn á 72 milljónir. Dýrasti leikmaður Belgíu, Enzo Seifo, er hins vegar metinn á 210 milljónir. -SMJ Michael Laudrup er dýrastur Dana SHAMTU HÁR LAGNINGAR FROÐA Hentar vel öllum geröum hár- greiðslu, ekki síst nýjustu straumunum í faginu. Heldur lögun hársins lengi án þess að það missi ferskleikann. Fáanlegt í ýmsum gerðum fyrir hvers kyns hár. LAUGAVEGI 25 SÍMAR: 27770 OG 27740 ALTERNAT0RAR STARTARAR NÝIR OG VERKSMIÐJUENDURBYGGÐIR í Chevrolet Nova, Blaser, Malibu, Oldsmobile dísil Ford Bronco, Fairmont, Maveric, Dodge Dart, Aspen, Ramcharger, Wagooner, Cherokee, Flornet, AMC, Toyota, Datsun, Mazda, Mitsub- ishi, Lada, Fiat, Land Rover, M. Benzo.fl. o.fl. Einnig tilheyrandi varahlutir. Mjög hagstætt verð. Póstsendum. BILARAF HF. Borgartúni19.Sími24700. Loksins sigraði Wasmeier í bruni • Lineker og Hughes voru á skotskónum um helgina. - Gaspos sigraði í stórsvigi Svisslendingurinn Joel Gaspos sigr- aði í stórsvigi karla í Wengen í Sviss nú um helgina. Það voru aðeins sautj- án skíðamenn sem luku keppni en færi var gríðarlega þungt og aðstæður erfiðar, bæði í svigi og bruni. Eftir keppnina sagði Gaspos að hann hefði aldrei átt von á sigri, fyrir mótið taldi hann sig hvorki hafa snerpu né tækni til að leggja heimsþekkta keppinauta sína að velli en annað kom á daginn. Þessir skíðamenn náðu bestum ár- angri í sviginu: 1. Joel Gaspos (Sviss) 1:36.86 2. Dietmar Koehlbichkler (Austurríki) 1:37.40 'i 3. Bojan Krizaj (Júgóslavíu) 1:37.44 Þess má geta að gamla skíðakempan Ingemar Stenmark varð 5. með tímann 1:37.72 Wasmeier sigraði í bruni Vestur-Þjóðverjinn Markus Was- meier sigraði í brunkeppninni í Wingen. Þetta er fyrsti sigur hans í bruni í heimsbikarkeppninni til þessa. Þessir brunmenn fóru hlíðamar í Wingen á skemmstum tíma: 1. Markus Wasmeier (V-Þýskalandi) 2:29.62 2. Karl Alpiger (Sviss) 2:30.71 3. Franz Heinzer (Sviss) 2:31.17 -JÖG Markus Wasmeier sigraði i bruni um helgina. Enn sigrar Walliser Svissneska skíðakonan Maria Walliser sigraði í stórsvigi í Bisc- hofswiesen í gær með miklum yfir- burðum. Athygli hefur vakið að gengi hennar hefur verið rysjótt í vetur í þeirri grein skíðaíþrótta sem telst sérgrein hennar, það ku vera brunið. Þessi sigur er sá 13. sem Walliser vinnur í heimsbikamum. Hún er nú efet kvenna í keppninni um þann eftirsótta bikar. Tími efstu kvenna í Bischofswiesen var sem hér segir: 1. Maria Walliser (Sviss)..2:19.24 2. Vreni Schneider (Sviss).2:21.40 3. Brigitte Oertli (Sviss).2:21.44 Staða efstu kvenna í heimsbikar- keppninni er nú sem hér segir: 1. Walliser...............229 stig. 2. Schneider..............201 stig. 3. Oertli..................170stig. 4. Hess....................128 stig. 5.Svet....................126 stig. -JÖG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.