Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1987, Qupperneq 22
22
ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1987.
Siðferði á hrakhólum
Er pólitískt siðferði til hér á landi?
Ég gæti trúað að margir félagar inn-
an BSRB spyrðu þessarar spurning-
ar nú begar kjarasamningar þeirra
liggja íyrir, samningar sem ollu því-
líkri þjáningu hjá þeim sem stjóma
þessu landi að það var átakanlegt
að sjá píslarvættissvipinn á forsætis-
ráðherranum okkar, svo ég tali nú
ekki um Ásmund Stefánsson, er þeir
útskýrðu hvílíkt hættuástand gæti
skapast ef þessi hópur fengi nú
mannsæmandi laun. Skítt með það
þótt sjúkrahús hafi ekki starfsmögu-
leika vegna þess að starfsfólkið getur
ekki lengur lifað af launum sínum.
Og hver eru svo þessi laun sem em
að sliga velferðarþjóðfélagið? Hverj-
ir eru það sem þurfa að vinna hvem
dag ársins þótt aðrir eigi frí? Þetta
er fólkið sem liggur á botninum í
launum, m.a. þeir sem vinna við
heilbrigðisþjónustuna, brunaverðir
og vagnstjórar SVR.
Það má nú ekki lögum samkvæmt
borga lægri laun en vagnstjórar SVR
fá fyrir sína vinnu.
Ég ætla að bregða hér upp sláandi
dæmi um laun sem em verðbólgu-
hvetjandi, það er að segja laun þeirra
sem þarf að verja með lögum. Svo
Kjallarmn
Hjalti Skaftason
vagnstjori SVR
em til laun sem hafa ekki hin
minnstu áhrif á þjóðarhag. En
hvemig hægt er að telja fólki trú
um að laun sem em innan við 40
þúsund kr. á mánuði séu hættulegri
en laun sem eru um 200 þús. kr. á
mánuði, það fæ ég ekki skilið.
Dæmi:
Steingrímur Hermannsson, laun á
mánuði 177.346,00
Lægstu laun BSRB 25.674,00 Mismunur 151.672,00
Hæstu laun BSRB 83.583,00 Mismunur 93.763,00
SVR, byriunarlaun 27.238,00 Mismunur 150.108,00
SVR, hæstu laun 35.468,00 Mismunur 141.878,00
Slökkvil., byrjunarl. 29.763,00 Mismunur 147.583,00
Slökkvil., hæstu laun 38.757,00 Mismunur 138.589,00
Sjúkraliði 34.250,00 Mismunur 143.096,00
Öryrki 100% 22.523,00 Mismunur 154.823,00
„Ekki hef ég séð neitt sem bannar vagn-
stjórum og brunavörðum að eiga fjöl-
skyldu nema ef væri launatafla BSRB
enda sýnist mér að það þurfi þrjá vagn-
stjóra eða brunaverði til að sjá fyrir einni
fjölskyldu.“
Maðkar í mysunni
Á þessu held ég að það sjáist að
einhvers staðar em það sem kallast
maðkar í mysunni. Óg þessu til við-
bótar er til fyrirbæri sem nefiiist
vísitölufjölskylda sem í em 3,66 ein-
staklingar.
Ég skil nú ekki þennan prósentu-
reikning með manngildi en tæpast
em þetta þeir sem taka lægstu laun-
in því þessi dularfulla fjölskylda þarf
þann 1. mars 1987 kr. 1.121.937,31 til
að lifa út árið.
Ekki hef ég séð neitt sem bannar
vagnstjómm og brunavörðum að
eiga fjölskyldu nema ef væri launa-
tafla BSRB enda sýnist mér að það
þurfi þijá vagnstjóra eða brunaverði
til að sjá fyrir einni ■fjölskyldu.
Gjör rétt þol ei órétt
Ungur gekk ég í félagsskap sem
hafði og hefur að kjörorði: Gjör rétt
þol ei órétt.
Stundum finnst mér þetta hljóma
sem öfugmæli eða grín nema hug-
takið sé orðið úrelt.
Nú er það svo að mig gmnar að
þessi laun forsætisráðherrans séu
kannski eitthvað hærri, smáaurar
fyrir nefndarstörf eða frír sími eða
bíll eða eins og ein utanlandsferð á
ári, en þetta er nú sjálfsagt ekkert
sem orð er á gerandi.
En til að vera alveg hreinskilinn
verð ég að segja frá þvi að ég fæ frítt
í vagna SVR og í sundlaugamar,
einnig fæ ég vaktaálag ef ég vinn á
kvöldin og um helgar svo get ég
fengið keyptan mat á góðu verði
fimm daga vikunnar í mötuneyti
borgarinnar. Læt ég svo lokið hug-
leiðingum um siðferði hinna pólit-
ísku landsfeðra. P.s. Ég gleymdi að
frænka mín á Vestfjörðum (83 ára)
hefur sent mér tvær dósir af grænum
baunum og epli á jólunum.
Kær kveðja
Hjalti Skaftason
Kosið um nauðungaruppboð
Nú nýlega hefur verið veitt hundr-
uðum milljóna til húsbyggjenda og
þeirra sem em að kaupa sér þak yfir
höfuðið. Sennilega er langt síðan svo
margt ungt fólk hefur farið í að
kaupa sér húsnæði, m.a. af þeim sök-
um að hér á landi hefur geisað
óðaverðbólga og allar skuldir hús-
byggjenda sem annarra hafa marg-
faldast á skömmum tíma þar til nú
að tekist hefur að miklu leyti að
ráða niðurlögum verðbólgunnar.
Nauðungaruppboðin
Seinustu ár, eða 1983-1986, hefur
verið mikii aukning á nauðungar-
uppboðum hér á landi bæði hjá
einstaklingum og fyrirtækjum.
Hvers vegna skyldi þetta nú annars
vera, hafa menn velt því fyrir sér?
Margir vinstrimenn hafa skellt
skuldinni á núverandi ríkisstjóm,
en er þetta svo?
Langstærsti hluti þess fólks sem
átt hefur eignir á nauðungampp-
boðum 1983-1986, húsbyggjendur
sem aðrir skuldarar, keyptu þær fyr-
ir óðaverðbólgutimabiíið 1982-1983.
Þetta fólk keypti íbúðir sínar í góðri
trú um lækkandi verðbólgu eins og
vinstri stjómin hafði lofað, en hvað
gerðist?
Þegar verst var og verðbólgan var
komin í 130% jukust skuldirnar að
sama skapi á ári hverju. Sá maður
sem skuldaði kannski 3,0 milljónir í
íbúð í upphafi ársins skuldaði litlar
6,9 milljónir í lok ái'sins. Á sama tíma
jukust launin einungis í takt við það
sem kostaði að lifa og ekki það einu
sinni. Mismuninn, 3,9 milljónir, varð
að brúa með nýj.um lánum sem ekki
varmöguleiki að standa undir. Síðan
gekk þetta koll af kolli. Með sama
verðbólguhraða hefðu þessar skuld-
ir, þ.e. 6,9 millj., orðið 15,9 milljónir
ári seinna hefði verðbólgan haldið
áfram með sama hraða.
Miðað við lánskjaravísitölu hækk-
aði höfuðstóll 3 milljón kr. skuldar
árið 1979 í 20 milljón kr. skuld árið
1983 eða tímabil vinstri stjómarinn-
ar. Höfuðstóllinn tæplega sjöfaldað-
ist fyrir utan vexti á tímabilinu.
Er síðan einhver undrandi á því
að nauðungaruppboðum hefur íjölg-
að? Auðvitað reynir fólk að bjarga
málunum einhvem veginn eins lengi
og hægt er eða þangað til allt er
komið í hnút, en sú þróun tekur tíma
og því kemur ekki að nauðungar-
uppboðum fyrr en eftir 1-5 ár frá því
að skuldimar skrúfuðust upp, sem
fer einnig eftir aðstæðum.
„Þegar verst var og verðbólgan var komin í 130% jukust skuldirnar að sama skapi á ári hverju. Sá maður sem skuldaði kannski 3,0 milljónir í íbúð
i upphafi ársins skuldaði litlar 6,9 milljónir i lok ársins.“
ann um leið og kjör fólksins í
landinu em bætt. Einungis ef Sjálf-
stæðisflokkurinn fær nægjanlegt
fylgi í þessum kosningum em líkur
á því að verðbólgan verði stöðvuð
og komið á svipað stig og í okkar
samkeppnislöndum, að öðrum kosti
mun verðbólgan fara á fulla ferð, það
hefur reynslan sýnt. Það gæti kostað
margan manninn aleiguna ef verð-
bólgan fer af stað á nýjan leik með
sama hraða og hjá fyrri vinstri
stjómum.
í komandi kosningum getur fólk
komið í veg fyrir að skuldirnar
skrúfist upp í óðaverðbólgu í fram-
tíðinni með afleiðingum nauðungar-
uppboða með því að kjósa Sjálfstæð-
isflokkinn í næstu kosningum. Það
hefur reynslan sýnt, hvort sem lært
er af henni eða ekki. Að öðrum kosti
er tekin áhættan á að skuldimar
skrúfist upp samhliða verðbólgu. Er
fólk tilbúið að leggja slíkt undir?
Baldur Pétursson
Þegar fólk hefur einu sinni lent í
slíkum málum er oftast ekki nema
ein leið til úr vandanum, þ.e. nauð-
ungamppboð og gjaldþrot, þar sem
ekki er möguleiki að borga þær við-
KjaUarinn
Baldur Pétursson
viðskiptafræðingur
bótar verðbólguskuldir sem til urðu.
Það er rétt að hafa í huga í þessu
sambandi að allan vinstri áratuginn,
þ.e. 1971-1983 þar sem Alþýðuflokk-
ur, Framsókn og Alþýðubandalag
fara með völdin (Sjálfstæðisflokkur-
inn einungis 1976-1978), er verð-
bólgan að meðaltali um 40% á ári
og endaði með 130% 1982. Á sama
tíma var verðbólga einungis 9% að
meðaltali í OECD ríkjunum.
Það er einnig rétt að hafa hugfast
að efsti maður á lista Borgaraflokks-
ins í Reykjavík studdi þá vinstri
stjórn sem mynduð var 1979 og um
leið þá efhahagsstefnu sem endaði
með 130% verðbólgu 1982.
Lærum af reynslunni
Sennilega hafa aldrei fleiri staðið
í húsnæðiskaupum en einmitt nú.
Það væri hörmulegt ef vinstri flokk-
amir fengju tækifæri til að mynda
stjóm eftir þessar kosningar vegna
þess að reynslan hefur sýnt að þá
fyrst fer verðbólguhjólið á fulla ferð
og skuldir húsbyggjenda um leið.
Sjálfstæðisflokkurinn er eini
flokkurinn sem hefur sýnt að mögu-
legt er að ráða við verðbólguvand-
„Það gæti kostað margan manninn aleig-
una ef verðbólgan fer af stað á nýjan
leik með sama hraða og hjá fyrri vinstri
stjórnum.“