Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1987, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1987, Page 40
52 ÞRIÐJUDAGUR 21. APRIL 1987 Sviðsljós Ólyginn sagði... Úrsúla Andress er hin mesta mannæta og það er karlkynið sem hún leggur sér aðallega til munns. Sá kornungi Pausto Fagone er aðalrétturinn á matseðli kerlu um þessar mundir en fyrirrennarar hans eru kappar eins og James Dean, Marlon Brando, Daniel Gelin, John Derek, Jean-Paul Belmondo, Fabio Testi og Harry Plamlin. Úrs- úla segist bara vilja unga menn og óspjallaða - frá- skildir koma alls ekki til greina því þeir eru að hennar mati einn allsherjar vanda- málapakki með fyrrverandi eiginkonur og afkvæmi á bakinu. Sjálf er Úrsúla fimm- tug, á einn sex ára gamlan son og hefur losað sig fim- lega úr allnokkrum hjóna- böndum - að ótöldum sambúðunum á fyrri árum. Joanne Woodward segist ekkert skilja í því hvað konum finnst sexí við eigin- mann hennar - Paul Newman. Flann er í hennar augum fjögurra barna faðir á sjötugsaldri sem hrýtur herfilega á nóttunni og hefur gert það við hennar hlið síð- ustu tuttugu og átta árin. Þau hafa engin sameiginleg áhugamál en leysa þann vanda með samningi - hún fer með honum á þrjá kapp- akstra í mánuði gegn því að hann mæti í staðinn á bal- lettsýningar og í óperuna. Pljónabandið er sagt það allrabesta í glitbænum - Hollívúdd. Bruce Springsteen hefur hjartað á réttum stað þegar ferfætlingar eru ann- ars vegar. Plann var á götu í Parísarborg ásamt eigin- konunni Julianne þegar á vegi þeirra varð húsbónda- laus fjárhundur sem rölti í reiðileysi um götur og torg. Bruce rann til rifja umkomu- leysi hvutta svo hann tók hundinn með sér heim á hótel og gekk frá ættleiðing- arpappírum í einum grænum hvelli. Næst lá leiðin til Los Angeles þar sem hinn heppni flækingshundur er í skipulagðri fitun á heimili stjörnunnar og hann þarf víst hvorki að kvíða nánustu framtíð né hafa áhyggjur af elliárunum ef svo heldur fram sem horfir í forsjármál- unum. DV-mynd Brynjar Gauti Heiðursnefndin er hún kom saman í fyrsta sinn, Heimshandboltaiin hingað I bígerð er að Íslendingar fari þess á leit við stjórn Alþjóðahandknattleikssambandsins að A-heimsmeist- arakeppni karla árið 1994 verði haldin hér á landi - þetta ár verður lýðveldi islands fimmtugt. Þetta er gert að frumkvæði stjórnar HSÍ. Sérstök heiðursnefnd hefur verið skipuð til þess að vinna að málinu með HSÍ og hefur hún komið saman einu sinni. Nefndina skipa Matthías A. Mathiesen utan- ríkisráðherra, sem jafnframt er formaður nefndarinnar, Alfreð Þorsteinsson forstjóri, Birgir Þorgilsson fram- kvæmdastjóri Ferðamálaráðs, Gils Guðmundsson rithöf- undur, Gylfi Þ. Gislason prófessor, Júlíus Hafstein, formaður Íþróttaráðs Reykjavikur, Kristján Oddsson bankastjóri, Ólafur B. Thors forstjóri, Sigurður Helga- son, stjórnarformaður Flugleiða, Þráinn Þorvaldsson, framkvæmdastjóri Útflutningsráðs og Sveinn Björnsson, forseti ÍSÍ. Þóra Birgisdóttir, ungfrú Noröurland 1987. Þessir krakkar sýndu snilldartakta og unnu hug og hjarta allra í húsinu. Kennedy kjörin Sólveig Þorsteinsdóttir (Olafssonar knattspyrnumanns) var valin Ijósmynda- fyrirsæta Norðurlands. Jón G. Hauksson DV-Akureyri: Þóra Birgisdóttir, átján ára stúlka úr Menntaskólanum á Akureyri, var kjörin ungfrú Norðurland í Sjallan- um síðastliðið fimmtudagskvöld. Þóra er dóttir Birgis Ágústssonar, eins Kennedybróðurins á Akureyri. Vinsælasta stúlkan var kosin íris Guðmundsdóttir og fer hún ásamt Þóru í úrslitakeppnina um ungfrú Island í veitingahúsinu Broadway í maí. Mikið var um dýrðir í Sjallanum þetta kvöld, Eyjólfur Kristjánsson söngvari söng nokkur hugljúf lög og þeirra á meðal náttúrlega Norður- ljósin. Hópur níu til ellefu ára barna frá dansstúdíói Alís gerði mikla lukku og einnig var skemmtileg tískusýning. Klukkan var langt gengin í eitt þegar tilkynnt var um úrslitin, að Þóra Birgisdóttir hefði unnið. Gríð- arleg fagnaðarlæti urðu í húsinu. Hjólin snerust hjá tískusýningarfólk- inu. Sýningin gekk hressilega upp. Stórsöngvarinn Eyjólfur Kristjáns- son syngur hér lagiö Norðurljós. DV-myndir JGH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.