Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1987, Side 19
18
FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1987.
fþróttir
Þarfaðsetja
heimsmet til
að sigra?
„Draumur minn er að setja nýtt
heimsmet og stökkva 2,12 metra.
Það er mín trú að til þess að sigra
í hástökkskeppninni þurfi sigur-
vegarinn að setja nýtt heimsmet,"
segir búlgarska stúlkan Stefka
Kostadinova en hún er talin einna
líklegust til að hreppa gullverð-
launin í hástökki kvenna á
heimsmeistaramótinu í frjálsum
íþróttum sem fram fer eftir nokkra
daga í Róm. Búist er við gífurlega
harðri keppni í hástökkinu eins
og raunar flestum öðrum greinum
í Róm. -SK
Kristiansen
er meidd
á káifa
„Ég er í góðum höndum lækna
og vonast til að verða orðin góð
af meiðslunum fyrir HM í Róm,“
segir norska hlaupakonan Ingrid
Kristiansen en hún á við meiðsli
að stríða í kálfa. Kristiansen stend-
ur fremst kvenna í heiminum í
5000 og 10000 metra hlaupum.
Kristiansen setti í fyrra heims-
met í 10000 metra hlaupi á Bislet
leikvanginum í Noregi og hljóp þá
á 30:13,74 mínútum. Hún er talin
sigurstranglegust í báðum framan-
greindum greinum og helsta von
Norðmanna um gullverðlaun á
heimsmeistaramótinu í Róm.
-SK
• Klaus Tafelmeier.
Tafelmeier
meidduríbaki
Evrópumeistarinn í spjótkasti,
V-Þjóðverjinn Klaus Tafelmeier,
sagði í gær að það væri óvíst hvort
hann keppti á heimsmeistaramót-
inu í Róm 29. ágúst. Tafelmeier á
við meiðsli að stríða í baki. Hann
gat aðeins kastað tvisvar á frjáls-
íþróttamóti í Köln á sunnudaginn
og varð að láta sér nægja sjötta
sætið með 76,38 m.
„Verkimir i bakinu voru of mikl-
ir til að ég gæti kastað oftar,“ sagði
Tafelmeier. -SOS
• Patrik Sjöberg sést hér fagna heimsmeti sínu.
Gladisch
Glaumgosinn Patrik Sjöbevg:
Byrjaði að reykja sex ára
- á heimsmet í hástökki
- ekur um í Porsche og líkar vel við næturlífið
hljóp 100 m
á 10,86 sek.
A-þýska stúlkan Silke Gladisch
hljóp 100 m hlaup á 10,86 sek. á a-
þýska meistaramótinu sem hófst í
gærkvöldi í Potsdam. Þetta er besti
árangurinn á vegalengdinni í ár, eða
sami tími og Anelia Nuneva frá Búlg-
aríu hljóp á fyrir stuttu.
Kúluvarparinn Ude Bayer, sem
missti heimsmet sitt til ítalans Andrei
(22,91 m) á dögunum, varð a-þýskur
meistari í ellefta sinn - kastaði kúl-
unni 22,31 m. -SOS
Hvað gerir
Everton í
Nottingham?
Everton verður í sviðsljósinu á
Country Ground í Nottingham á
morgun. Everton hefúr ekki náð að
vinna þar sigur yfir Nott. Forest síð-
ustu fjögur ár. Og það sem meira er,
félagið hefur ekki náð að skora mark
í þessum fjórum tapleikjum.
O Arsenal leikur gegn Q.P.R. á
gervigrasinu á Loftus Road. Arsenal
hefúr ekki tapað leik á gervigrasinu,
eða þeim tveimur leikjum sem félagið
hefur leikið á því.
O Steve Murray, 19 ára Skoti hjá
Forest, fór heim til Skotlands í vik-
unni - þoldi ekki að fá ekki tækifæri
til að spreyta sig. Murray fór til Celtic
sem verður að borga 50 þús. pund til
að fá hann lausan frá Forest.
Einn hávaxnasti afreksmaður í heimi
fijálsíþróttanna er sænski hástökkvarinn
Patrik Sjöberg en hann á heimsmetið í
hástökki karla. Það setti hann 30. júní
sl. á Grand Prix móti í Stokkhólmi og
stökk þá 2,42 metra sem er hreint ótrúleg-
ur árangur. Sjöberg er um tveir metrar á
hæð, reykir tuttugu sígarettur daglega,
líkar vel við næturklúbbalífið og ekur
um á Porsche. Þessi síðhærði Svíi er að-
eins 22 ára gamall og þeir eru margir sem
spá því að harrn eigi eftir að bæta heims-
metið enn frekar í hástökkinu.
Framundan er heimsmeistaramótið í
Róm í næstu viku og þegar velt er vöng-
um yfir hugsanlegum sigurvegara í
hástökki karla kemur nafii Sjöbergs jafn-
an fyrst í hugann. Hann eyðir gífurlegum
tíma í æfingar og yfirleitt eyðir hann fjór-
um til fimm klukkustundum á dag við
æfingar. Góður árangur og tekjur íþrótta-
manna haldast jafnan í hendur og Sjöberg
er engin undantekning. Hann mun hafa
um 12-15 milljónir króna í laun á þessu
ári og er hann einn hæst launaðasti fijáls-
íþróttamaður heims.
„Markmiðið að þéna sem mest“
„Það liggur ljóst fyrir að sá tími sem
fijálsíþróttamaður er á toppnum er stutt-
ur. Aðeins er um að ræða nokkur ár sem
hann getur verið í allra fremstu röð og
því hlýtur að vera aðalmarkmiðið hjá
hveijum og einum að ná í sem mest af
peningum," segir Sjöberg. Það vakti tölu-
verða athygli á blaðamannafundi með
Sjöberg á dögunum að hann reykti síga-
rettur á fundinum og eins vakti það
athygli á sínum tíma að eftir að hann
setti heimsmetið í Stokkhólmi hélt hann
á næturklúbb og skálaði í kampavíni. „Ég
er ekkert óvenjulegur maður. Það sem
fólk segir um mig og mitt líf kemur mér
ekkert við.“
Byrjaði að reykja sex ára gamall
Þótt Sjöberg sé einn besti og efhileg-
asti hástökkvari sem fram hefúr komið
er ekki hægt að segja að hann hafi lofað
góðu á sínum yngri árum. Sjöberg byij-
aði að reykja þegar hann var aðeins sex
ára gamall en foreldrar hans skildu þegar
hann var þriggja ára. Á unglingsárunum
stundaði hann sjoppumar og var með í
ráðum þegar félagamir frömdu smáglæpi.
Stökk 2,21 metra aðeins 16 ára
gamall
Það var Finninn Viljo Nousiainen sem
uppgötvaði Sjöberg en hann var nánast
bæði þjálfari hans og stjúpfaðir. Frami
Sjöbergs varð skjótur. Aðeins 16 ára gam-
all stökk Sjöberg 2,21 metra ög tveimur
árum síðar hafði hann vippað sér yfir 2,33
metra. Tvítugur hafði hann náð þvi marki
að stökkva yfir 2,38 metra og nú, tveimur
árum síðar, á hann heimsmetið, 2,42
metra. Sjöberg á einnig heimsmetið inn-
anhúss en það setti hann á HM innanhúss
í Aþenu á þessu ári er hann stökk 2,41
metra.
„Sjöberg er einfaldlega bestur“
Eins og fram hefúr komið hér að fram-
an veðja flestir á Sjöberg sem sigurvegara
á heimsmeistaramótinu í Róm í næstu
viku. Einn helsti keppinautur Sjöbergs
verður án efa Vestur-Þjóðveijinn Carlo
Thraenhardt. Hann segir eftirfarandi um
Patrik Sjöberg: „Hann er einfaldlega sá
besti í heiminum í dag og verður að telj-
ast líklegastur sigurvegari í Róm. Ég er
hræddur um að Sjöberg geti stokkið enn
hærra en hann hefur gert. Og það kæmi
mér ekki á óvart þó hann færi yfir 2,45
metra í Róm.“
íslandsmót í Skeet um helglna
fslandsmót í haglabyssuskotfimi,
Skeet, verður haldið á skotvelli
Skotfélags Reykjavíkur á æfinga-
svæðinu í Leirdal á laugardag og
sunnudag. Heldur Skotfélag Reykja-
víkur mótið fyrir hönd Skotsam-
bands íslands.
Mótið hefst klukkan 10 á laugar-
dagsmorgun og lýkur um miðjan dag
á sunnudag. Skotnar verða 200 skíf-
ur eða 8 hringir. Mótsstjóri verður
Egill J. Stardal en yfirdómari verður
Daninn Ib Sjölander sem er frægur
danskur þjálfari skotmanna og hefur
meðal annars þjálfað bæði heims-
meistara og ólympíumeistara í
skotfimi. Mun Daninn halda nám-
skeið í Skeet fyrir félagsmenn
Skotfélags Reykjavíkur í næstu
viku. -SK
-sos
-SK
FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1987.
31
íþróttir
Ámi neitaði
tilboði Bremen
- er of ungur til að takast á við svona dæmi, segir Ámi
Ami Friðleifsson handknattleiks-
kempa og Víkingur neitaði í vikunni
tilboði frá v-þýska fjórðu deildar lið-
inu Bremen.
Lið þetta er stutt af íjársterkum
aðilum og er markið sett hátt fyrir
komandi leikmisseri með sama lagi
og fyrir þau sem fylgja í kjölfarið.
Þess má geta að Björgvin Björg-
vinsson lék með liðinu fyrir fáeinum
árum.
f spjalli við DV sagði Ámi Frið-
leifeson, sem er af mörgum talinn
efnilegasti leikstjómandi landsins,
að margt hafi ráðið neitun sinni.
„Ég er einfaldlega of ungur til að
takast á við svona dæmi. Þótt tilboð-
ið hafi verið mjög freistandi fyrst á
litið treysti ég mér því einfaídlega
ekki til að taka því,“ sagði hann.
„Ég á eftir að ljúka mínu námi hér
heima og þar fyrir utan tel ég Víking
betri kost en þetta v-þýska félag. Þar
get ég öðlast frekari reynslu og vax-
ið af styrk. Mér líður ákaflega vel í
Víking og félagið hefur staðið vel
við bakið á mér. Við setjum markið
hátt fyrir komandi tímabil, stefiian
er tekin á sjálfan toppinn. Það hef
ég lært hjá Víkingum að vilja aldrei
annað en sigur og fara ekkert annað
en á toppinn."
Þá má geta þess að sá kvittur hef-
ur gengið fjöllunum hærra að þeir
fóstbræður Siggeir Magnússon og
Hilmar Sigurgíslason hafi ætlað úr
herbúðum Víkinga fyrir komandi
misseri.
Segir sagan að Siggeir stefiii á KR
en Hilmar á HK.
Þessi kviksaga er ekki á rökum
reist því báðir æfa nú af krafti með
Víkingum. Siggeir hefur verið lengi
að en Hilmar mætti á sína fyrstu
æfingu á þessu hausti í gærkvöldi.
-JÖG
tíx ciiiidiuic^ci ui uiigur ui ao en a Loppinn.
• Ami Friðleifsson.
Baráttan hefur magnast
með góðum sigri Víkinga
„Þetta var sanngjam sigur enda
lögðum við okkur alla fram. Að sjálf-
sögðu ræður heppni ávallt einhveiju
um úrslit - knattspyma er jú knatt-
spyma."
Þetta sagði Jóhann Þorvarðarson,
fyrirliði Víkinga, er lið hans hafði lagt
Þrótt að velli með þremur mörkum
gegn tveimur.
Með þessum úrslitum magnast enn
baráttan á tindi deildarinnar og em
afdrif allra félaga óljós ef frá er talið
lið ísafjarðar. Vestfirðingar em þegar
fallnir í þriðju deild.
Víkingar em nú efetir með 26 stig
en Þróttur fylgir á hæla þeirra með
25. Leiftur, Ólafsfirði, er síðan í þriðja
sæti með 24 stig.
Lífið er því bersýnilega undir í þeim
leikjum sem standa fyrir dyrum.
Nágrannaviðureign Víkings og
Þróttar í gærkvöldi var annars fjörleg
í fyrri hálfleik og litu þá margir áhorf-
endur fjögur ágæt mörk.
Þróttur hafði yfirhöndina í upphafi
og brá fyrir ágætum samleik af þeirra
hálfu. Tóku þeir enda forystuna á 9.
mínútu eftir afleit vamarmistök mót-
herjanna. Sigfús Kárason skoraði með
góðu skoti, 1-0.
Víkingar jöfnuðu skömmu síðar með
marki Atla Einarssonar sem hann
gerði af stuttu færi, 1-1.
Við mark hans óx Víkingum ásmeg-
in og sóttu þeir af nokkrum krafti.
Fengu þeir víti á 35. mínútu og úr
spymunni skoraði Trausti Ómarsson
af umtalsverðu öryggi, 2-1.
•'róttur jafnaði, nokkuð gegn gangi
ieiksins, á 40. mínútu með laglegu
lögðu Þrótt að velli í gærkvöldi, 3-2, í 2. deild
• Atli Einarsson sést hér (9) senda knöttinn í netið hjá Þrótturum.
DV-mynd Brynjar Gauti
marki Sigurðar Hallvarðssonar, 2-2,
og sat þar við í hléinu.
Síðari hálfleikur markaðist öðm
fremur af baráttu þar sem Víkingar
sóttu en Þróttarar vörðust af grimmd.
Vom þeir síðartöldu þó áræðnir og
beittir í skyndisóknum.
Sigurmark Víkinga kom á 44. mín-
útu úr víti. Brotið var á Trausta
Ómarssyni innan vítateigs Þróttar og
var úrskurður dómarans réttur.
Trausti skoraði sjálfúr úr vítinu -
skaut föstu skoti í stöng og inn. Þetta
var hans 12. mark í deildinni og er
hann nú hæstur áþeim lista jafnhliða
Heimi Karlssyni. IR.
Markverðir beggja liða áttu einna
bestan dag i gær- verða þeir síst sak-
aðir rnn mörkin.
JÍÖG
Eðvarð Þór for á kostum
- varð fjórði á nýju íslands- og Norðurlandameti
Jón K. Siyviöœan, DV, Strasbouig:
„Ég er í skýjunum.. .mér hefúr ekki
liðið svona vel í langan tíma. Þetta
er það stórkostlegasta sem gerst hefur
á mínurr ferli. Ég bjóst við að verða
áttundi en að hreppa síðan fjórða sæt-
ið er frábært."
Þetta sagði Eðvarð Þór Eðvarðsson,
ein fræknasta íþróttakempa okkar ís-
lendinga, er hann hafði sett nýtt
íslands- og Norðurlandamet í gær.
Hann synti í úrslitum í 200 metra bak-
sundi, varð fjórði og fór vegalengdina
á 2:02,79 mínútum.
Eldra metið átti Eðvarð sjálfur og
var það 2:03,03 mínútur. Þessi árangur
er stórkostlegur og því ekki óeðlilegt
að Eðvarð hafi verið nærri skýjum.
Friðrik Ólafeson, þjálfari Eðvarðs,
var ekki síður glaður.
„Þetta er toppurinn," sagði hann,
„Mér líður líklega betur en Eðvarð
sjálfúm. Þennan stórkostlega árangur
vil ég þakka þrotlausum æfingum.
Eðvarð hefur einstakan mann að
geyma og það er gríðarlega gott að
vinna með honum."
Það leikur ekki vafi á að Eðvarð
hefur nú skipað sér á meðal albestu
baksundsmanna heims. Þess bera að
geta að fremstu menn veraldar í grein-
inni eru frá Evrópu og því var sennan
í gær milli þeirra bestu.
„Ég er búinn að vera undir gífurlegu
álagi síðustu þijú árin,“ sagði Eðvarð
Þór Eðvarðsson, sigurreifur og nýstig-
inn úr lauginni.
„Það er ánægjulegt að hafa staðist
pressuna. Það hjálpaði mér að hugsa
heim en ég er nýtrúlofaður og það gaf
mér stvrk."
Fyrstur að bakka í nefiidu sundi var
Sergei Zabolotnov frá Sovétríkjunum
á tímanum 1:59,35 mínútur. Næstur
honum kom landi hans, stórstjaman
Igor Poliansky, með tímann 1:59,37
mínútur. Bronsið hreppti síðan Frank
Baltrusch, A-Þýskalandi, fór hann
vegalengdina á 2:02,22 mínútum.
-JÖG
Stefán úr FH í KR:
ÞaðvarViggó ,
sem réðfélaga-
skiptum
Stefán Kristjánsson handknatt-
leiksmaður er genginn úr röðum
FH-nga og mun leika með KR á
næsta keppnistímabili. Eftir því
sem blaðið kemst næst hafa félaga-
skipti verið lögð inn hjá Hand-
knattleikssambandinu.
„Ég er búinn að ganga yfir, það
er rétt,“ sagði Stefán Kristjánsson
í spjalli við DV seint í gærkvöldi.
„Ég æfi nú með KR og ætla að
leika með þeim í vetur. Mér líður
vel hjá félaginu og er ánægður að
hafa farið yfir.
Vitanlega á ég mjög góða félaga
i FH-liðinu og það er sárt að skilja
við þá. Ég er FH-ingur í hjartanu
en einbeiti mér engu að síður að
verkefiium með mínu nýja félagi -
hundrað prósent."
Aðspurður um hvað ráðið hefði
félagaskiptum kvaðst Stefán hafa
verið ósáttur við starfeaðferðir
Viggós Sigurðssonar þjálfara.
„Það var Viggó sem réð félaga-
skiptunum," sagði hann. Kvaðst
Stefan ekki hafa byijað æfingar
með Hafnfirðingum á settum tíma ;
vegna anna. í kjölfarið hefði Viggó
sagt að engin þörf væri fyrir hann
í þeim verkefnum sem framundan
væru í vetur.
„Það var því ekkert arrnað fyrir
mig að gera en að skipta,“ sagði
Stefan að lokum. -JÖG
FH-ingar til .
Barcelona
Meistaraflokkslið FH í hand-
knattleik mun keppa á stóru
handknattleiksmóti í Barcelona i
þessum mánuði. Halda Hafhfirð-
ingar utan annan föstudag.
Mun kempumar etja kappi við
jafningja sina í fyrstu deildar félög-
um á Spáni. Mótið er liður í
undirbúningi þátttókufélaga fyrir
komandi leikár. -JÖG
Franskur læknir
kallaður til
Marokkó
Ólympítuneistarinn í 5.000 m
hlaupi. Marokkómaðurinn Said
Aouita. sagði í gærkvöldi að hann
hefði mikinn hug á að keppa á EM
í Róm. Aouita hefur átt við meiösli
að stríða í kálfa á vinstri fæti.
Hassan. konungur Marokkó, lét
senda eftir kunnum lækai til
Frakklands til að gera að raeiðsl-
um Aouita. -SOS
Opna OLÍS/BP og
áfram stelpur
Opna Olis BP poli'mótið verður
haldið á Grafarholtsvelli nk. laugar-
dag og sunnudag. I karla- og kvenna-
flokki verda leiknar 36 holur án
forgjafar. 1 opnum flokki verða einnig
leiknar :)6 holur en med forgjöf. Bestu
þrír kylfingar fá eignabikaro frá OLÍS
og gjafapakka frá BP. Auk þess gefur
BP sigurvegurum i hveijum flokki.
regnhlíf. Þátttökutilkyimingar þurfa
að berast til GR fyrir kl. 18.00 á föstu-
dag. A laugardag verður ræst út sem
næst óskatíma kvlfinga og eftir forgjöf
en á sunnudag eftir tirangri án forgjaf-
ar, þó með tillliti til árangurs i opna
flokknum, eins og unnt verður. Keppn-
isgjald er kr. 1.000.
• Um helgina eða á sunnudag er á
dagskrá hjá Golfklúbbi Suðumesja
„áfram stelpur" golfmötið í öldunga-
flokki kvenna. Rétt til þátttöku hafa
allar konur sem orðnar eru 50 ára eða
verða það á þessu ári.
-SK
V;