Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1987, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987.
3
Auglýsing
HLJÓM-
TÆKJA-
FYRIR-
TÆKI
SAMEINAST
REKSTUR STERÍÓ HF.
SAMEINAÐUR
REKSTRI JAPIS HF.
Um mánaðamótin maí
- júní var rekstur
verslunarinnar Steríó
sameinaður rekstri
Japis hf. Astæðurnar
fyrir sameiningunni
eru meðal annars þær
að bæði fyrirtækin eru
í eigu sömu hluthafa
og þar sem Japis hf.
hefur opnað aðra versl-
un í Kringlunni mátti
ljóst vera að mikil
rekstrarhagræðing
yrði fyrir bæði fyrir-
tækin að sameinast í
eina sterka heild.
Framvegis verða því
allar vörur Steríó seld-
ar í Japis, Brautarholti
2 og í Kringlunni.
Opnunar-
tilboð 3.
1000 vatta
frá
Panasonic
PANASONIC kynnir
nýja áhrifamikla
ryksugu í baráttunni
við rykið.
1000 vött.
Tvískiptur veltihaus.
Hólf fyrir fylgihluti
í ryksugunni.
Inndraganleg snúra.
Stiglaus styrkstillir.
Rykmælir fyrir poka.
Og umfram allt
hljóðlát, nett og
meðfæranleg.
TILBOÐSVERÐ
AÐEIIMS KR. 6.980.
JAPISS
BRAUTARHOLT 2 KRINGLAN SiMI 2713
Fréttir
Fiskverð hefur stór-
hækkað með tilkomu
fiskmarkaðanna
- meðaltalshækkun á fiskinum er varla undir 25%
„Við höfum ekki gert nákvæma
úttekt á því hve mikið fiskverð hefur
hækkað með tilkomu fiskmarkað-
anna. Þó sýnist mér að miðað við
meðalverð hér hjá okkur í Hafhar-
firði sé hækkunin gróft reiknað 25%
eða jafhvel meira,“ sagði Einar
Sveinsson, framkvæmdastjóri Fisk-
markaðarins í Hafnarfirði.
Miðað við það meðalverð sem
Bjami Thors, framkvæmdastjóri
Faxamarkaðarins í Reykjavík, gaf
upp er um svipaða hækkun að ræða.
Mælikvarðinn sem notaður er þegar
rætt er um hækkunina er verðlags-
ráðsverðið sem var í gildi þegar
fiskverð var gefið frjálst í vor. Þess
ber þó að geta að víða var um yfir-
borganir að ræða á síðustu vertíð,
allt að 10% en það var þó alls ekki
almennt.
Á síðasta verðlagsráðsverði, áður
en fiskverðið var gefið frjálst, voru
greiddar 25 krónur fyrir kílóið af
þorski sem var 2 kíló að þyngd en
meirihluti þorskaflans er af þeirri
stærð. Fyrir stærsta þorskinn var
greitt mest eða á milli 33 til 34 krón-
ur fyrir kílóið með 10% kassauppbót.
Lítið hlutfall aflans var af þessari
stærð.
Frá því Fiskmarkaðurinn í Hafn-
arfirði byrjaði er meðalverð á þorski
33,24 krónur fyrir kílóið og er þar
um alla stærðarflokka að ræða. Á
Faxamarkaðnum er meðalverðið
33,72 krónur fyrir þorsk.
Hæsta verð sem fengist hefur fyrir
þorsk í Hafharfirði eru 48,40 krónur
fyrir kílóið og nú undanfama daga
hefur meðalverðið verið um 40 krón-
ur fyrir kílóið. Hæsta verð á
Faxamarkaðnum er mjög svipað.
Meðalverð á karfa í Hafnarfirði
er frá byijun 17,44 krónur fyrir kíló-
ið. Á Faxamarkaðnum er meðalverð-
ið 16,14 krónur. Verðlagsráðsverðið
í vor var 11,70 krónur fyrir kílóið
af karfa, hálft til eitt kíló, en 12,87
með kassauppbót. Fyrir karfa, eitt
kíló eða stærri, var verðið 13 krónur
og 14,30 með kassauppbót. -S.dór
Tilkoma fiskmarkaðanna i Reykja-
vík og Hafnarfirði hefur stórhækk-
að fiskverðið. DV-mynd KA
Bandaríkjamarkaður:
Verðhrun a
horpudiski
-verðið hefur lækkað úr 4,80 dollurum niður í 3,30 dollara frá í fyrra
Verð á hörpudiski hér á landi til sjó-
manna og útgerðarmanna hefur
verið lækkað um 30% og er óánægja
ríkjandi meðal sjómanna í Breiða-
firði vegna þess. Sjómenn í Stykkis-
hólmi héldu fund um málið í
fyrrakvöld og var þar ákveðið að
hafast ekki að vegna þess að stað-
reynd væri að verðhmn hefði átt sér
stað á Bandaríkjamarkaði.
„í fyrra fengust 4,60 til 4,80 dollar-
ar fyrir kílóið á Bandaríkjamarkaði
en nú er verðið 3,20 til 3,30 dollarar.
Ástæðan fyrir þessu verðhruni er
offiamboð á markaðnum. Bæði hefur
afli Bandaríkjamanna verið mikill
og eins hafa Norðmenn sent mikið
magn á markaðinn. Viðbótin nemur
svipuðu magni og öll okkar fram-
leiðsla. Ofan á þetta allt saman
bætist svo lækkun dollarans," sagði
Guðmundur Stefán Maríasson,
framkvæmdastjóri Félags skelfisk-
framleiðenda, í samtali við DV.
Guðmundur sagði að vinnsla á
hörpudiski stæði ekki undir sér á
þessu verði enda þótt 3,20 til 3,30
dollarar fyrir kflóið væri nálægt
meðalverði síðustu ára ef frá væri
talin hin mikla hækkun í fyrra.
Ellert Kristjánsson hjá Sigurði
Ágústssyni hf. í Stykkishólmi taldi
þó að vinnslan myndi sleppa ef ekki
yrði um frekari lækkun að ræða.
Hann sagðist trúa því að verðið færi
ekki neðar en það er nú, þetta hlyti
að vera botninn.
-S.dór