Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1987, Qupperneq 4
4
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987.
Fréttir
DV
Akureyri 125 ára:
Vegleg hatiðarhold
allan laugardaginn
- forseti íslands verður heiðursgestur
Mikið verður um dýrðir á afmælisdaginn
Gjffi Kristjánsscm, DV, Akuieyri
Mjög vegleg hátíðarhöld verða á
Akureyri á laugardag í tilefhi af 125
ára afmæli bæjarins. Hátíðarhöldin
hefjast snemma dags því að kl. 8.20
kemur forseti íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, til Akureyrarflug-
vallar en hún verðui' í opinberri
heimsókn á Akureyri þennan dag.
Lúðrasveit leikur á flugvellinum og
bæjarstjóri og forseti bæjarstjómar
flytja ávörp.
Bæjarbúar eru hvattir til að fjöl-
menna á flugvöllinn og bjóða forset-
ann, sem er heiðursgestur
afmælishátíðarinnar, velkominn.
Klukkan 9.45 hefst hátíðarfundur
í bæjarstjóm Akureyrar og síðan
rekur hver viðburðurinn annan fram
yfir miðnætti. Vonast er eftir al-
mennri þátttöku bæjarbúa í hátíðar-
höldunum en dagskrá þeirra lítur í
stórum dráttum þannig út:
Hátíðardagskrá í Akureyrar-
kirkjuk 1.10.30
Þar flytur forseti Islands ávarp,
einnig forseti bæjarstjómar, bæjar-
stjóri, forsætisráðherra og félags-
málaráðherra. Tónlist verður flutt
en hátíðarræðu flytur Gísli Jónsson
kennari.
Skrúðgöngur kl. 14.00
Kl. 13.30 verður safnast saman á
tveimur stöðum í bænum, á Hamars-
kotstúni við Hamarsstíg og við
Undirhlíð norðan Veganestis. Þaðan
fara skrúðgöngur að Ráðhústorgi
kl. 14.00. Lúðrasveitir fara fyrir
göngunum, skátar mynda fánaborg,
sem afmarkar gönguleiðimar, og
hópar frá ýmsum félagasamtökum,
s.s. æskulýðsráði, íþrótta- og starfs-
mannafélögum, mynda ákveðna
kjama í göngunum sem gefa þeim
skrautlegt yfirbragð með búningum,
fánum o.fl. auk þess sem götuleikhús
Leikklúbbsins Sögu mun einnig
setja svip á göngumar.
Síðdegisdagskrá í göngugö-
tunni fyrir alla fjölskylduna
Kl. 15.30 hefst dagskrá í göngugöt-
unni, á leiksviði og í næsta nágrenni.
Á leiksviði verður ævintýraþáttur,
danssýning stúlkna frá Dansstúdíói
Alice, söngur og skemmtiþáttur á
vegum skáta, fimleikasýning Fim-
leikaráðs Akureyrar, kraftlyftinga-
keppni á vegum Kraftlyftingaráðs,
Blásarasveit Tónlistarskólans leikur
létt lög og á milii atriða leika Ingim-
ar Eydal og félagar létt lög.
Á flötinni við samkomuhúsið verð-
ur hesta- og reiðsýning á vegum
Hestamannafélagsins Léttis, stök-
kvarar úr Fallhlífaklúbbi Akureyrar
koma niður með nýja Akureyrarfán-
ann og við Torfunesbryggju verða
félagar úr Siglingaklúbbnum
Nökkva með fjölbreytta dagskrá.
f göngugötunni verða félagar úr
götuleikhúsi Sögu á ferð og flugi,
fimleikafólk fer á handahlaupum um
götuna og félagar úr Hjálparsveit
skáta og Flugbjörgunarsveitinni
munu sýna klifur á nálægum húsum
fyrir böm og unglinga. Allan tímann
verða í gangi ýmis leiktæki fyrir
böm og unglinga, bæði á Ráðhú-
storgi og neðan til í Skátagili.
Leikfélag Akureyrar í íþrótta-
skemmunni
Kl. 20.30 hefst dagskrá Leikfélags
Akureyrar í íþróttaskemmunni.
Verður hún samansett úr sönglög-
um, hljóðfæraslætti, leikjum,
myndum, sögum, vísum, kvæðum,
bröndurum, prakkaraskap, lýðhvetj-
andi hugvekjum, bulli og spakmæl-
um. Þessi dagskrá ber nafhið
„Afinælisveisla handa Eyrarrós" og
höfúndar em Óttar Einarsson og
Eyvindur Erlendsson ásamt Jóni
Hlöðver Áskelssyni sem útsetti og
samdi tónlistina. Auk fjölda leikara
taka hlómlistarfólk, söngvarar og
kórar þátt í sýningunni.
Fjör í göngugötunni
Kl. 21.00 hefst dansleikur í göngu-
götunni og er hann aðallega hugsað-
ur fyrir unglinga. Þar skemmta
Stuðkompaníið, Sniglabandið, Lát-
únsbarkinn og Nalhlausa hljóm-
sveitin fram á nótt.
Garðsamkoma í Lystigarðin-
um
Kl. 22.00 hefet garðsamkoma í Ly-
stigarðinum sem verður skrautlýst-
ur. Gestum verður boðið í kaffi og
með því að gömlum sið meðan tón-
listarfólk býður upp á fjölbreytta
dagskrá víðs vegar um garðinn. Þeir
sem sjá um tónlistina em harmón-
íkuleikarar, karlakórar, blásara-
sveit, strengjasveit og stórsveit
Tónlistarskólans.
Um kl. 23.00 munu forseti íslands
og aðrir gestir koma í garðinn og
taka þátt í hátíðarhöldunum en þeim
lýkur um miðnætti með veglegri
flugeldasýningu Hjálparsveitar
skáta.
Strætisvagnar Akureyrar aka all-
an daginn og er um ókeypis þjónustu
að ræða, öll söfri bæjarins verða
opin og minjagripasala verður í
göngugötunni og í Lystigarðinum.
iatriða, s.s. tískusýninga og tónlist-
arskemmtana og verða þær
auglýstar sérstaklega. Sem fyrr
sagði hefst sýningin nk. föstudag kl.
17. Hún verður opin kl. 14-22 um
helgar og kl. 17-22 virka daga og
henni lýkur sunnudaginn 6. sept-
ember.
Akureyri:
40 fyrirtæki
taka þátt
í iðnsýningu
Gyifi Kristjánssan, DV, Akureyii
Alls taka um 40 fyrirtæki þátt í iðn-
sýningu sem opnuð verður í íþrótta-
höllinni á Akureyri nk. föstudag.
Sýningin er haldin í tilefni af 125
ára afinæli Akureyrarbæjar sem
minnst verður með veglegum hátíðar-
höldum á laugardag. Sýningin verður
opnuð kl. 17 á föstudag af iðnaðarráð-
herra, Friðrik Sophussyni.
Að sögn Þorleifs Jónssonar, fram-
kvæmdastjóra sýningarinnar, eru
fyrirtækin, sem taka þátt í sýning-
unni, nær öll á Akureyri og eru þau
í mjög fjölbreyttri framleiðslu- og þjón-
ustustarfsemi. Þorleifur sagði að á
meðal þeirra væru mörg smærri fyrir-
tæki sem væru nú að stíga sín fyrstu
skref hvað varðar kynningu á fram-
leiðslu sinni.
í tengslum við sýninguna verður
fólki boðið upp á skoðunarferðir í fyr-
irtæki á Akureyri þar sem hægt verður
að fylgjast með framleiðslunni. Þessar
ferðir verða daglega á meðan á sýning-
unni stendur og verða auglýstar
sérstaklega.
í dag mælir Dagfari_______________
Bjartsýnisverðlaunin
í vikunni var bjartsýnisverðlaun-
um úthlutað. Það er danskt heild-
sölufyrirtæki sem hefur tekið að sér
að úthluta þessum verðlaunum til
íslendinga á ári hveiju. Þetta munu
að vísu vera einu verðlaunin sem
Danir heiðra okkur með ef frá er
talin Dannebrogsorðan sem var veitt
til þeirra íslendinga sem gættu þess
best að móðga ekki Dani þegar þeir
voru herraþjóð yfir okkur. Verð-
launahafamir voru kallaðir Dana-
sleikjur.
Nú heiðra þeir ekki lengur auð-
mýktina heldur bjartsýnina en
hvorutveggja verður óneitanlega að
teljast vafasamur heiður þegar þess
er gætt að óhófleg bjartsýni stafar
einkum af því að menn kunna sér
ekki hóf, vaða áfram í blindni og
reisa sér hurðarás um öxl. Þau eru
sem sagt stutt mörkin á milli bjart-
sýninnar og vitleysunnar.
Nú í ár fær Guðmundur Emilsson
bjartsýnisverðlaunin frá Bröste en
hann hefur verið frumkvöðull og
drifkraftur íslensku hljómsveitar-
innar sem hefur barist við það
undanfarin ár að halda bæði pening-
unum og lífinu. Hljómsveitinni hefúr
ennþá tekist að halda lífinu en pen-
ingamir em löngu famir og verða
aldrei til á bænum þeim. Fyrir
nokkrum árum fékk einn af forsvars-
mönnum íslensku óperunnar bjart-
sýnisverðlaun fyrir samskonar
frammistöðu og Guðmundur er
heiðraður fyrir núna og stóðst það
á endum, að skömmu eftir að hann
tók við verðlaununum, sagði Is-
lenska óperan sig á ríkissjóð og er
nú komin á jötuna eins og fleiri.
Vonandi hlýtur Guðmundur Emils-
son og íslenska hljómsveitin ekki
sömu örlög enda væri það slæmt til
afepumar fyrir dönsku heildsalana
ef viðurkenningar þeirra bæm þann
eina ávöxt að verðlaunahafamir
leggja bjartsýnina á hilluna en láta
tjóðra sig á ríkisjötunni í staðinn.
Annars er langur listi af mönnum
sem vissulega hefðu átt skilið að fá
bjartsýnisverðlaun um þessar mund-
ir. Sambandsforkólfamir eiga skilið
að fá bjartsýnisverðlaun fyrir að
halda að þeir gætu keypt Útvegs-
bankann og komist upp með það.
Kristján Ragnarsson á inni verðlaun
fyrir að halda að hann geti safhað
sjö hundmð milljónum hjá einka-
framtaksmönnum á miðju laxveiði-
tímabilinu og takast það. Þorsteinn
Pálsson á sérstakan heiður skilinn
fyrir að hringja í flokksráð sjálfetæð-
ismanna í þeirri trú að út úr því
geti komið skynsamleg ráðgjöf! Það
þarf mikla bjartsýni til að láta sér
detta slíka vitleysu í hug og er verð-
launa virði.
Jón Sigurðsson alþýðuflokksráð-
herra á að fá bjartsýnisverðlaun
fyrir að reyna að leysa bankadeiluna
sem samstarfaðilamir vilja ekki
leysa. Bjartsýni hans nær jafrivel svo
langt að honum dettur í hug að ríkis-
stjómin meini það sem hún segir í
stjómarsáttmála um að selja eigi
ríkisbankana alla. Það er tvímæla-
laust mesta bjartsýni ársins að trúa
samstarfeflokkum í ríkisstjóm.
Af öðrum bjartsýnismönnum má
nefha Skúla Álexandersson sem er
gæddur þeirri bjartsýni að halda að
hann geti selt meira af sjávarafla
heldur en hann veiðir upp úr sjón-
um.
Hvalfriðunarmenn virðast hafa þá
bjartsýni til að bera að geta snúið
ofan af Halldóri Ásgrímssyni í hval-
veiðideilunni og það heldur Banda-
ríkjastjóm líka. Þessir menn em á
mörkum bjartsýninnar og heimsk-
unnar og sennilega öfugum megin.
Þeir þekkja ekki Halldór.
Framkvæmdastjórar Kringlunnar
eiga að fá bjartsýnisverðlaun fyrir
að reisa hús, sem á að taka við fjöru-
tíu þúsund manns á degi hveijum
án þess að hafa bílastæði fyrir nema
þúsund bíla, og íbúar í Háaleitinu
og Safamýri eiga að fá bjartsýnis-
verðlaun fyrir að halda að þeir geti
fengið Davíð borgarstjóra til að
breyta um skoðun. Þeir em að reyna
mótmæla úthlutun byggingarlóðar á
grænu svæði, sem Davíð er búinn
að ákveða að sé ekki grænt svæði.
Allir Reykvikingar, nema fólkið í
Háaleitinu, vita að þeirri ákvörðun
verður ekki breytt.
Mesti bjartsýnismaðurinn af öllum
er þó Halldór þungavigtarmaður í
Henson, sem lagði af stað í skemmti-
skokkið og hélt að hann kæmist alla
leið. Og tókst það!
Dagfari