Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1987, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987.
5
Fréttir
Þessi grænlenski togari lét sér nægja að taka olíu á ytri höfninni í Reykja-
vík en hann kom annars hingað með veikan háseta. Þetta er sami togarinn
og lenti i vandræðum í Hafnarfjarðarhöfn fyrr í sumar.
DV-mynd S
Rykið hrist af gömlum reglum:
Erlend fiskiskip
þurfa hafnarleyfi
Húsgagnasyning
alla helgina og öll
kvöld til kl. 22
þessa og næstu viku
á medan á sýningunni
„ Veröldin ’87“
stendur.
TM-HUSGOGN
Síðumúla 30 — Sími 68-68-22
Hinn 19. maí 1922 gengu í gildi lög
þess efnis að erlend fiskiskip megi
ekki leggjast að bryggju í íslenskum
höfnum nema hafa til þess sérstakt
leyfi. Á þessu hefur mjög slaknað í
áranna rás og var undir það síðasta
hætt að fara eftir þeim.
Núheíurrykiðveriðhristaf þessum
reglum. I vor sendu yfirvöld bréf til
hafnaryfirvalda þar semþau eru beðin
að fara eftir þessum gömlu reglum og
að fiskiskipum vérði ekki hleypt upp
að nema þau hafi til þess leyfi yfir-
valda.
„Að sjálfsögðu förum við strangt eft-
ir þessu núna og þess eru dæmi að
skip verði að láta sér ytri höfnina
nægja,“ sagði Öm Ingimundarson,
hafnsögumaður í Reykjavík, í samtali
við DV.
Ástæðan fyrir því að lögin vom sett
á sínum tíma var sú að með því móti
vildu menn koma í veg fyrir að erlend
fiskiskip gætu gert út frá íslandi. Þar
er átt við að þau gætu fengið hér veið-
arfæraviðgerðir og aðra þjónustu til
að halda úti veiðiskap á Islandsmið-
um.
Öm sagði að í neyðartilfellum fengju
skip umsvifalaust að koma upp að.
Áfram geta skip fengið hér olíu og
kost þótt þau séu á ytri höfninni en
leyfi þarf til annarrar þjónustu.
-S.dór
ÁRGERÐ 1988
1
Kartöfluræktendur í Reykjavík á götunni:
Fá engar geymslur
„Því miður er útlit fyrir að okkur
takist ekki að útvega húsnæði fyrir
kartöflugeymslur til handa almenn-
ingi í haust þar sem það brást að við
fengjum húsnæði á Korpúlfsstöðum,"
sagði Ingvar Axelsson, eftirlitsmaður
matjurtagarða hjá Reykjavíkurborg, í
samtali við DV.
Á milli 1000 og 1100 aðilar em með
kartöflugarða í landi Reykjavíkur-
borgar, mest í Korpúlfsstaðalandi.
Eftir að Ágæti tók yfir húsnæði jarð-
húsanna í Ártúnsholti til svepparækt-
ar var ákveðið að koma upp
kartöflugeymslu fyrir almenning á
Korpúlfestöðum. Eins og Ingvar sagði
brást það og því má segja að kartöflur
Reykvíkinga séu á götunni.
Þar er ekki um neitt smámagn að
ræða. I fyrra var uppskeran 26 tonn
Áfengissalan:
Aukning
í krónum
- magnið Ifldega minna
Landsmenn eyddu rúmlega tvö
hundmð milljónum króna meira í
áfengi mánuðina apríl, maí og júní á
þessu ári en í sömu mánuðum í fyrra.
I áðumefhdum mánuðum keyptu
landsmenn áfengi fyrir tæpar 840 millj-
ónir í ár en hins vegar fyrir rúmlega
635 milljónir á sama tímabili í fyrra.
Mesta söluaukningin varð á Sel-
fossi, þar jókst salan um tæp 50% í
krónum talin. Það segir lítið um áfeng-
ismagnið. Því vitaskuld hefur áfengið
hækkað á milli ára en mismikið eftir
tegundum áfengis. Nsestmest varð
aukningin á Sauðárkróki, eða 47,5%,
en minnst á ísafirði, 25%.
Aukning í krónum talin, miðað við
tímabilið 1. janúar 1987 til 30. mars
1987, varð 36%. Áfengið hefiir hækkað
í maí að meðaltali um 16%.
Meðaltalshækkun á áfengi frá apríl í
fyrra til maí í ár er um 40% þannig
að landsmenn virðast hafa drukkið
heldur minna nú en á sama tíma í
fyrra. -sme
og er búist við að uppskeran í ár fari
hátt í 30 tonn enda kartöfluuppskera
í ár með eindæmum góð.
Ingvar sagði að eðlilega hefði fólk
áhyggjur vegna þessa enda væri það
ekki áhlaupaverk að koma upp
geymslu fyrir 30 lestir af kartöflum.
„Þótt ég sé ekki búinn að gefa upp
alla von sýnist mér útlitið heldur
dökkt með að fá húsnæði undir kanö-
flugeymslu úr þessu,“ sagði Ingvar
Axelsson. -S.dór
Wagoneer LTD,
kr. 1.626.000.
Cherokee LTD,
kr. 1.695.000.
Sérsmíðaðir fyrir ísland, m.a. aukabúnaður vegna blýs í bensíni en blýið
kemur í veg fyrir eðlilega virkni stýristölvu vélarinnar sem getur leitt til
skemmda.
n Jeep EGILL VILHJÁLMSSON HF.
EINKAUMBOÐ A ISLANDI
Smiðjuvegi 4. Kop . s. 7 72 00 - 7 72 02.
Hárles ?
ÁSTA KAREN VAR ORÐIN ÞREYTT
Á AÐ HAFA BURSTANN ALLTAF
FULLAN AF HÁRUM.
Hún gerði sér grein fyrir að þéttur og góður hár-
vöxtur krefst réttra næringarefna, sem stundum skort-
ir í fæðuna.
Þess vegna reyndi hún HÁRKÚR töflurnar. Hálfum
mánuði eftir að hún byrjaði að nota þær var hún laus
við hárlosið og hefur það ekki angrað hana síðan.
HÁRKÚR töflurnar innihalda næringarefni sem eru
nauðsynleg góðum hárvexti.
FÆST í HEILSUBÚÐUM, APÓTEKUM, HÁRSNYRTI-
STOFUM, HEILSUHILLUM MATVÖRUVERSLANA
OG HJÁ HÁRSKERUM.
Éh
iGÍIsuhúsiö
Skólavörðustíg 1 Sími 22966 • Kringlunni Sími 689266