Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1987, Síða 7
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987.
7
dv Viðtalid
Fréttir
Sigurður Hallmarsson, nýskipaður
fræðslustjóri í Norðurlandsum-
dæmi eystra. Sigurður tekur við
nýja starfinu um mánaðamótin.
Sigurður Hallmarsson:
Tómstund-
um mínum
fækkar enn
„Ég lít á þessa ráðningu mína sem
sáttarskref hjá ráðherra. Ég er ráð-
inn til bráðabirgða og ég hvorki get
né hef áhuga á að h'ta á þetta sem
einhverja æviráðningu," sagði Sig-
urður Hallmarsson, skólastjóri á
Húsavík, og nýsettur fræðslustjóri í
Norðurlandsumdæmi eystra.
Sigurður tekur við aif Ólafi Guð-
mundssyni sem var skipaður
fræðslustjóri eftir að Sverrir Her-
mannsson, þáverandi menntamála-
ráðherra, vék Sturlu Kristjánssyni
úr embætti sem frægt varð. Frá því
Sturla var rekinn hefur verið ófrið-
legt í fræðsluumdæminu og kaus
Ólafur að láta af störfum. Margir
hafa litið á skipun Sigurðar sem
málamiðlun í stoðunni og að með
henni hafi menntamálaráðherra
lægt öldumar, allavega um hríð.
„Ég hef trú á því að einhverjar
sættir náist með ráðningu minni og
þess vegna féllst ég á að taka starfið
að mér til bráðabirgða. Ég vona bara
að þetta verði fræðslumálum í um-
dæminu til góðs og ég er því bjart-
sýnn.“
Sigurður sagðist ekki ætla að flytja
til Akureyrar með fjölskylduna þar
sem hann liti á þetta sem bráða-
birgðastarf. Hann ætlaði að fara til
Húsavíkur um helgar svo fremi sem
veður og færð leyfði.
„Ég er rétt að byrja að kynna mér
í hverju þetta starf felst en ég held
að það sé býsna fjölbreytt og um-
fangsmikið."
Sigurður Hallmarsson er 57 ára
gamall. Hann er kvæntur Herdísi
Birgisdóttur og eiga þau þrjú upp-
komin böm. Sigurður á sér mörg
áhugamál, svo sem leiklist, málara-
list, tónlist og hestamennsku.
„Ég hef ekki getað sinnt þessum
áhugamálum mínum sem skyldi
undanfarin ár vegna mikilla anna í
vinnunni og ég er hræddur um að
tómstundunum fækki enn eftir að
ég byrja í nýja starfinu," sagði Sig-
urður Hallmarsson. -ATA
Bílvelta í
Kjós
Tvær manneskjur vom fluttar á
slysadeild eftir að jeppa var ekið út
af Vesturlandsvegi, norðan við Kiða-
fell. Fólkið mun ekki vera alvarlega
slasað.
Jeppinn er töluvert skemmdur. Að
sögn lögreglunnar í Hafnarfirði fór
betur en á horfðist. Jeppinn stöðvaðist
á toppnum úti í skurði. Veltigrind, sem
var í jeppanum, gerði það að verkum
að ekki urðu alvarlegri slys á fólki.
-sme
Kvótalögreglan er
á leiðinni austur
- fimm sakbomingar fyrir vestan svara engu enn
Á næstu dögum fá stjómendur 7-8
fiskvinnslufyrirtækja á Austurlandi
heimsókn að sunnan. Kvótalögregla
sjávarútvegsráðuneytisins er á leið-
inni. Hún er búin að skoða fiskkaup
og fisksölu 29 fyrirtækja, aðallega á
vestanverðu landinu. I framhaldi af
því var tilkynnt upptaka 650 tonna
afla hjá fimm fyrirtækjum. Þau hafa
ekki borið af sér sakir ennþá en kæru-
frestur rennur út 7. september.
Að sögn Jóns B. Jónassonar, skrif-
stofustjóra ráðuneytisins, vinna þrír
menn aðallega að kvótamálunum.
Með þeim vinnur endurskoðandi sem
hefur sérhæft sig í yfirferð þeirra
gagna sem koma við sögu. Hlutverk
þessa liðs, kvótalögreglunnar, er að
upplýsa brot gegn þeim reglum og lög-
um sem gilda um kvótaskiptingu afla
á veiðiskipin. Jón segir að þeir ráðu-
neytismenn yrðu manna fegnastir ef
ekkert misjafnt kæmi í ljós og að at-
hugasemdir reyndust ástæðulausar.
Kvótalögreglan fer í öll opinber
gögn sem liggja fyrir um afla og ráð-
stöfun hans svo og sölu- og útflutn-
ingsskýrslur. Að sögn Þórðar
Eyþórssonar, deildarstjóra í sjávarút-
vegsráðuneytinu, er lagt mat á þessar
skýrslur með aðferðum sem hafa verið
þróaðar hjá Fiskifélaginu og sölusam-
tökum fiskvinnslunnar. Hvert tilvik
er metið sérstaklega og tekið tillit til
sérstakra aðstæðna þar sem um þær
er að ræða.
I langflestum tilfellum reynist ekki
ástæða til þess að gera athugasemdir.
En þegar um þær er að ræða fer kvóta-
lögreglan i viðkomandi fiskvinnslu og
leitar þar skýringa. Fáist þær ekki,
að mati ráðuneytismanna, er felldur
úrskurður um upptöku þess afla sem
þeir álíta að ekki hafi verið talinn upp
í kvóta viðkomandi veiðiskipa. Þannig
voru áðumefnd fimm fyrirtæki krafin
um rúmlega átta milljóna króna
greiðslu vegna 650 tonna af þorski.
Nöfn þessara fyrirtækja hafa ekki
verið gefin upp af hálfu ráðuneytisins.
Þó er vitað um eitt þeirra, Jökul hf. á
Hellissandi, sem Skúli Alexandersson
alþingismaður veitir forstöðu. Hann
hefúr greint frá 120 tonna upptökukr-
öfu á Jökul sem hann hefur mótmælt
harðlega eins og kunnugt er. Hann
hefur á móti krafið ráðuneytið um
afturköllun upptökunnar. Kæra þar
um er í vörslu Alþingis og að sögn
Skúla verður hún send ráðuneytinu
fyrir lok kærufrests sjái það ekki að
sér eins og hann orðar það.
Þórður Eyþórsson sagði um þetta
afmarkaða mál Jökuls að tekið hefði
verið tillit til allra sjáanlegra ástæðna
og vafaatriði reiknuð fyrirtækinu til
tekna. Þar á meðal hefði verið metin
góð nýting afla hjá Jökli sem færi þó
ekki fram úr nýtingu hjá best reknu
fiskvinnslufyrirtækjum á landinu. Jón
B. Jónasson sagði að aflaupptakan hjá
Jökli yrði endurskoðuð eða felld niður
ef fullnægjandi skýringar bærust
ráðuneytinu. Það sama gilti um aðra
í sömu sporum.
-HERB
Deilur um kirkjubyggingu á Ströndum:
Sýslumaður norður í sáttaferð
Enn standa deilur meðal sóknarbama
í Ámeshreppi á Ströndum vegna
kirkjubyggingarmála þar í sveit, en
svo sem kunnugt er em deilur um það
hvort byggja eigi nýja kirkju eða end-
urbyggja þá gömlu.
Er nú svo komið að unnið er við
nýju kirkjubygginguna og einnig em
áhugamenn um gömlu kirkjuna að
endurbæta hana. Kom sýslumaður
Strandamanna, Ríkharður Másson, í
hreppinn í gær til þess að reyna að
ná sáttum á milli hinna stríðandi hópa,
en án árangurs.
„Söfnuðurinn ákvað að byggja nýja
kirkju," sagði Gunnsteinn Gislason,
formaður sóknamefndar og oddviti í
Ámeshreppi í gær, en staðfesti jafh-
framt að deildar meiningar væm í
kirkjubyggingarmálum hreppsins.
„Þetta hefur verið hitamál hér í sveit-
inni og skiptast menn nokkuð i tvö
hom,“ sagði Gunnsteinn. Hann sagði
að þeir sem nú vinna að endurbygg-
ingu gömlu kirkjunnar væm á móti
byggingu þeirrar nýju. Ekki kvað
hann sættir fyrirsjáanlegar í málinu.
-ój
GLÆSIVAGNAR Á GÓÐU VERÐI
DAIHATSU CHARADE CS, ÁRG.
1987, ekinn aðeins 8 þ. km, 5 dyra,
4 gíra, litur vel út, litur d-grásans.
Bein sala. Verð 345.000.
SUBARU 1800 STATION 4X4, ÁRG.
1987, ekinn aðeins 8 þ. km, útvarp
og segulband, 5 gíra, vökvastýri,
rafm. I læsingum og í speglum.
Bein sala. Verð 650.000.
SUBARU JUSTY J10 4X4, ÁRG.
1987, ekinn aðeins 6 þ. km, 5 gira,
litur hvítur, 5 dyra. Bein sala. Verð
370.000.
MMC GALANT GLX DIESEL TURBO,
ÁRGERÐ 1986, ekinn 48 þ. km,
vökvastýri, 5 gíra, bíllinn hefur verið
til einkaafnota, útvarp og segulband
o.fl., litur hvítur. Skipti koma til
greina á ódýrari bifreið. Verð
620.000.
Opið laugardaga
kl. 10-17.30.
Opið laugardaga
kl. 10-17.30.
KAUPENDUR/SEUENDUR, ATHUGIÐ:
MIKIÐ ÚRVAL BIFREIÐA OG GREIÐSLUKJÖR VIÐ
FLESTRA HÆFI.
VÆNTANLEGIR KAUPENDUR ATH:
MIKIÐ ÚTVAL NÝLEGRA BIFREIÐA Á
SÖLUSKRÁ. VERÐ VIÐ FLESTRA HÆFI.
CITROEN 2CV BRAGGI, ÁRG. 1987,
ráðherrabíllinn í ár, sem nýr, ekinn
aðeins 1 þ. km, opnanlegur toppur,
litur grænn. Bein sala, má greiðast
með skuldabréfi. Verð 350.000.
HONDA ACCORD EX, ÁRG. 1987,
sem nýr, ekinn 16 þ. km, rafm. í
rúðum - læsingum - speglum, sjálf-
skiptur, útvarp og segulband,
vökvastýri, aflbremsur. Bein sala.
Verð 750.000.
CHEVROLET STARCRAFT, ARG.
1984, original innrétting, 8 manna,
svefnpláss fyrir þrjá, sjálfskiptur,
overdrive, 8 cyl., vökvastýri, útvarp,
glæsivagn. Ath. skipti á ódýrari, má
greiðast með skuldabréfi. Verð
1.350.000.
NISSAN SUNNY 1500SLX SEDAN
4X4, ÁRG. 1987, ekinn 12 þ. km,
útvarp, 5 gíra, vökvastýri, sumar-
og vetrardekk. Bein sala. Verð
530.000.
SUBARU 1800 COUPÉ 4X4, ÁRG.
1986, ekinn 22 þ. km, útvarp og
segulband, 5 gíra, vökvastýri, álfelg-
ur, dráttarkúla, sílsar, grjótgrind.
Bein sala. Verð 600.000.
FIAT PANDA 4X4, ARG. 1984, hinn
óviðjafnanlegi safarí- og hálendis-
bíll, ekinn 41 þ. km, útvarp og
segulband. Kjörinn fyrir veturinn.
Bein sala, góð kjör, má greiðast á
skuldabréfi. Verð 220.000.
NISSAN VANETTE, ARG. 1987, sem
nýr, ekinn aðeins 7 þ. km, gluggar,
sæti fyrir 7 manns, útvarp, 5 gíra.
Ath. skipti á ódýrari, má greiðast að
hluta með skuldabréfi. Verð
580.000.
MMC GALANT 2000GLS, ÁRG. 1985,
fallegur bíll, ekinn 45 þ. km, 5 gíra,
vökvastýri, topplúga, útvarp og seg-
ulband, rafm. læsingar, rafm. loftnet,
litur hvítur. Ath. skipti á ódýrari.
Verð 530.000.