Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1987, Page 8
8
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987.
Utlönd
Samþykkja áhættuþöknun
Bandaríska vamarmálaráðuneytið
hefur samþykkt að greiða tíu þúsund
sjóliðum á Persaflóasvæðinu áhættu-
þóknun.
Ákvörðunin um að greiða áhættu-
þóknunina, sem nemur hundrað og tíu
dollurum á mánuði, þýddi ekki að
hætta á að Bandaríkin tækju þátt í
stríðinu væri yfirvofandi, var sagt í
tilkynningu frá ráðuneytinu.
Bandaríski flotinn hefur tvisvar lent
í útistöðum við írani eftir að herskipa-
vemd Bandaríkjamanna hófet.
Bandaríkin saka írani um að leggja
tundurdufl þar sem siglingaleiðir em
en íranir vísa á bug slíkum ásökunum.
Vamarmálaráðuneytið hafði frestað
að samþykkja áhættuþóknunina þar
sem slík ákvörðun kæmi sér vel fyrir
þingmenn demókrata sem hafa farið
fram á það við alríkisdómstól í Was-
hington að lýsa því yfir að hemaðar-
ástand ríki, að því er heimildarmenn
innan þingsins vilja meina.
BÍLASALAN
HLÍÐ
Borgartúni 25,
SÍMAR 17770 og 29977
Toyota Carina II, árg. 1984, ekinn 58.000
km. Verö 445.000.
Renault 20 TS, árg. 1984, ekinn 66.000
km. Verð 370.000.
Mazda 323 1300, árg. 1984, ekinn aðeins
22.000 km. Verð 280.000.
Toyota Hi-Lux, árg. 1982, ekinn 88.000
km, 33" dekk, læstur aftan og framan,
vökvastýri, rafmspil. Verð 675.000.
M. Benz 309, árg. 1986, ekinn 60.000 km.
Verö 1.350.000.
SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ
Toyota Tercel 4x4, árg. 1987.
Toyota Corolla 1600 DX, árg.
1985.
Fiat 127, árg. 1984, ekinn 37.000
km.
Nissan Sunny, árg. 1984, ekinn
41.000 km.
Ford Escort, árg. 1985, ekinn
42.000 km.
Toyota Corolla, árg. 1984, ekinn
48.000 km.
Volvo 240, árg. 1983, ekinn
80.000 km.
Lada Samara, árg. 1987, ekinn
14.000 km.
Mikið úrval sendibila.
Olíuflutningaskipið Bridgeton, sem siglir undir bandarískum fána, á leiö inn i Omanflóa ásamt sænsku flutningaskipi sem taka á við olíu frá Bridgeton.
Simamynd Reuter
Boðskapurinn pnvatísering
Haukur L. Hauksson, DV, Kaupmannahöfa:
f upphafi kosningabaráttunnar
lögðu stjómarflokkamir fjórir, fhalds-
flokkur, Vinstri flokkur, miðdemó-
kratar og Kristilegi þjóðarflokkurinn,
fram sameiginlegar hugmyndir sínar
um manneskjuna og viðhorfin til sam-
félagsins og hins einstaka borgara. Er
skjalið kallað Sameiginleg verðmæti.
Ábyrgð einstaklingsins er lykilorð
skjalsins. Segir þar að Danir séu orðn-
ir of krefjandi og sá hugsunarháttur
se á góðri leið með að gera alla að
félagslegum tilfellum í kerftnu. Sé
samfélagsþegnum nær skipað í bása
þar sem sinnuleysi, stífni, storknun og
flótti ásamt fleiri höftum sé allsráð-
andi.
í stað þess boða flokkamir til
ábyrgðar, opnunar, nýrra hugsana og
afnáms miðstýringar. Er lykilorðið
sjálfur eða sjálfshjálp, sjálfestjóm,
sjálfsvirðing og sjálfsálit og svo fram-
vegis.
Handrit af þessu skjali slapp út fyrir
opinberun þess og var það sýnu harð-
orðara eða tilvalið til að misskiljast
eins og höfundamir sögðu. Vegna
úlfaþyts var handritinu breytt þannig
að kaflar um flóttafólk, neytendagre-
iðslu (greiðslu borgaranna fyrir
þjónustu hins opinbera) og grasróta-
reinræði hurfii.
Við kynningu hugmyndanna var
lögð áhersla á að borgaramir ættu
rétt á betri opinberri þjónustu á sem
lægstu verði en um leið að þeim yrði
gerð grein fyrir hvað sú þjónusta í
raun kostaði. Var undirstrikað að
neytendagreiðsla á félags- og heil-
brigðissviðum væri ekki á dagskránni.
Anker Jörgensen kallaði skjal þetta
hugmyndafræðilegt skjal sem vari við
að héðan í frá verði fólk að sjá um sig
sjálft. Þrátt fyrir fagran hljóm boðaði
það prívatíseringu eða yfirfærslu opin-
bers hlutverks á einkahendur. Sósíal-
istar kalla þetta boðskap um prívatís-
eringu og neytendagreiðslu. Þama em
viðhorf á ferðinni er ekki fengju
hljómgrunn meðal sósíalista.
Deilur vegna Kaledóníu
Miklar deilur standa nú meðal
franskra stjómmálamanna, vegna
mótmæla Kanaka á Nýju-Kaledón-
íu, gegn þjóðaratkvæðagreiðslunni,
sem fyrirhuguð er um sjálfstæði
landsins í næsta mánuði.
Francois Mitterrand, forseti
Frakklands, hefur sakað lögregluna
á Nýju-Kaledóníu um að hafa beitt
óþarfa hörku við að dreifa mann-
Qölda sem safnast hafði saman til
mótmæla.
Forsætisráðherra Frakklands,
Jacques Chirac, hefur hafnað gagn-
lýni forsetans og sagt að sér þyki
það einkennilegt hversu mikla at-
hygli þetta smámál fái.
Nýja-Kaledónía er frönsk nýlenda
og búist er við að í þjóðaratkvæða-
greiðslunni muni meirihluti reynast
fyrir því að halda sama sambandi
áfram.
Handtóku nasista
Lögreglan í Wunsiedel í Vestur-
Þýskalandi handtók í gær nokkra
nasista sem safiiast höfðu saman við
kirkjugarð þann sem Hess fjölskyld-
an er grafin í og kröfðust þar
inngöngu.
Sex hinna handteknu em Austur-
ríkismenn.
Óeirðir í Pakistan
óeirðir breiðast nú út í Pakistan
og undanfama daga hafa ellefu
marrns látið lífið og meira en áttatíu
særst í götubardögum milli ólíkra
kynþáttahópa.
Lögregla og her landsins hafa gert
tilraunir til þess að hemja ólætin,
meðal annars með útgöngubanni, en
án verulegs árangurs. Óeirðimar
halda áfram með mannvígum,
íkveikjum og ránum.
Laxatt biankur
Paul Laxalt, fyrrum öldungadeild-
arþingmaður frá Nevada í Banda-
ríkjunum, tilkynnti í gær að hann
ætlaði að draga sig til baka úr
keppninni um útnefningu sem for-
setaefhi repúblikana fyrir forseta-
kosningamar á næsta ári.
Laxalt, sem er náinn vinur Ronald
Reagan, núverandi forseta, bar við
fjárskorti. Sagði hann fjölskyldu
sína ekki vera auðuga og því gæti
hann ekki hugsað sér að leggja út í
dýra baráttu sem gæti kostað erfið-
leika í mörg ár.
Fjáröflunarleiðir Laxalts hafa ekki
reynst eins og hann átti von á svo
nú hefur hann ákveðið að draga í
land áður en hann stofnar til skulda.
Höfnuðu friðartillögu
Námumenn í Suður-Afiíku, sem
nú hafa verið í verkfalli í átján daga,
höfhuðu í gær sáttatillögum frá eig-
endum námafélaga í landinu. Einn
leiðtoga námumanna sagði í gær að
um þrjú hundmð þúsund verkfalls-
menn hefðu greitt atkvæði um tillög-
ur námaeigenda og hefði yfirgnæf-
andi meirihluti þeirra verið
mótmallinn því að gengið yrði að
þeim.
Sagði leiðtoginn að verkfollin
héldu áfram þar til kröfum námu-
manna yrði mætt.
Talið er að verkfallið kosti náma-
fyrirtæki í S-Afríku um fimmtán
milljónir dollara á dag, eða um sex
hundruð milljónir íslenskra króna.
Konur mótmæla páfa
Tíu konur og tveir karlar voru
handtekin í Washington í gær þegar
þau efiidu til mótmæla gegn stefiiu-
málum rómversk kaþólsku kirkj-
unnar, við dyr sendiráðs páfagarðs
í Bandaríkjunum.
Einkum voru það viðhorf kirkj-
unnar til kvenna, fóstureyðinga,
getnaðarvama og kynvillu sem fólk-
ið var að mótmæla.
BADMINTON
VETRARSTARFIÐ HEFST 1 SEPTEMBER
TÍMALEIGA ER HAFIN
UNGLINGATÍMAR-FULLQRÐINSTÍMAR
NÁMSKEIÐ- þribjudags- og fimmtudagskvöld
Tennis- og badmintonfélag ^
^Reykjavíkur Gnoðarvogi i 3 82266,