Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1987, Síða 9
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987.
9
Tilboð Helmut Kohls, kanslara Vestur-Þýskalands, um að taka Reagan Bandaríkjaforseti hvetur nú Sovétríkin til
niður hinar umdeildu Pershing I eldflaugar kom mjög á óvart. að ganga fljótt að samningaborðinu.
Simamynd Reuter Simamynd Reuter
Skref í áttina
Reagan Bandaríkjaforseti lýsti í gær
yfir velþóknun sinni yfir tilboði Helm-
ut Kohls, kanslara Vestur-Þýskalands,
um að taka niður sjötíu og tvær Pers-
hing I eldflaugar ef stórveldin kæmust
að samkomulagi um eyðingu meðal-
drægra kjamavopna. Höfðu Sovétrík-
in krafist þess að væntanlegt
samkomulag næði til þessara flauga í
V-Þýskalandi og bandarísku kjama-
oddanna á þeim.
Hvatti Reagan Sovétríkin til að
ganga fljótt að samningaborðinu. Ef
Sovét vilji raunverulega samninga
muni þau ekki koma með nein við-
bótarskilyrði, sagði forsetinn.
Embættismaður í Hvíta húsinu sem
ekki vildi láta nafns síns getið sagði
að horfumar á samkomulagi um af-
vopnun væru nú góðar en tók jafn-
framt fram að Kohl hefði tekið þessa
ákvörðun upp á eigin spýtur. Ekki
hafi verið um að ræða neinn þrýsting
frá Bandaríkjunum.
Reagan skoraði einnig á Sovétríkin
að aflétta leyndinni sem h'/ílir yfir
stærð og samsetningu sovéska hersins.
Tilboð Kohls kanslara var meðal
annars bundið þeim skilyrðum að
ágreiningur um eftirlit með afvopnun-
inni yrði leystur, að báðir aðilar
staðfestu samkomulagið um afvopn-
unina og að báðir aðilar héldu sig við
tímatakmörk þau sem samið yrði um.
Kohl greindi frá þessu tilboði tveim-
ur vikum áður en Erich Honecker,
leiðtogi Auslur-Þýskalands, kemur í
heimsókn til Bonn. Árið 1984 var ráð-
gerðri heimsókn Honeckers til Vest-
ur-Þýskalands aflýst vegna þrýstings
frá Moskvu í kjölfar staðsetningar
meðaldrægra kjamavopna í Vestur-
Þýskalandi.
Viðbrögð Sovétríkjanna við tilboði
Kohls voru misjöfn. Tass-fréttastofan
sagði Kohl hafa neyðst til þess vegna
almenningsálitsins og að tilboðið væri
háð mörgum skilyrðum. Moskvuút-
varpið sagði hins vegar að það væri
skref fram á við sem þyrfti að athuga.
Á fundi með fréttamönnum neitaði
Kohl að tilboð hans ætti rót sína að
rekja til framboðs Manfröds Wömers,
vamarmálaráðherra, til embættis
framkvæmdastjóra Atlantshafsbanda-
lagsins sem losnar næsta ár.
I dag mun Reagan Bandaríkjaforseti
snúa sér að málefrium Mið-Ameríku-
ríkja og eiga fund með sjö leiðtogum
skæmliða í Nicaragua.
Glistrup ógnar róttækum vinstri
Haukur L. Haukssan, DV, Kaupmarmahö&i;
Róttæki vinstri flokkurinn, með
Nils Helveg Petersen í broddi fylk-
ingar, hefur lýst því yfir að fjögurra
flokka stjóm Schlúters geti undir
engum kringumstæðum stjómað á
grundvelli stuðnings frá Framfara-
flokki Glistmps.
Pólitísk þróun eftir kosningamar
8.september er á huldu vegna margra
óvissuþátta en Nils Helveg undir-
strikar að til þess að komast hjá
ógerlegum kringumstæðum eftir
kosningar sé aðalatriðið að ná kosn-
ingaúrslitum þar sem Framfara-
flokkurinn fær engin áhrif á
stjómarmyndun. Styður flokkurinn
alfarið Poul Schlúter sem áfram-
haldandi forsætisráðherra.
Núverandi kjörtímabil hefur ríkis-
stjómin starfað með stuðningi
Róttæka vinstri flokksins. í vamar-
og öryggismálum, menntamálum og
umhverfismálum hefur flokkurinn
þó kosið gegn stjóminni og komið
henni í minnihluta á þingi en þó
skapað nauðsynlegan pólítískan
stöðugleika að flestra áliti þar sem
flokkurinn hefur stutt efriahags-
stefhu stjómarinnar.
Endurkoma Framfaraflokksins og
Glistmps á vettvang stjómmálanna,
sem mögulegt ákvarðandi afl sam-
kvæmt skoðanakönnunum, ógnar
samvinnu róttækra vinstri manna
við ríkisstjómina. Auk þess sem
„hinn meirihlutinn" á þingi í fyrr-
nefndum málefnum mun ekki endi-
lega vera fyrir hendi eftir kosningar.
Þar með geta róttækir vinstri menn
misst lykilstöðu sína sem stuðnings-
flokkur ríkisstjómarinnar með
úrslitavald í ákveðnum málefnum
ef Framfaraflokkurinn vinnur á.
Uffe Elleman Jensen, utanríkis-
ráðherra og formaður Vinstri flokks-
ins, varar fólk við að kjósa
Framfaraflokkinn. Hafi Framfara-
flokkurinn gefið í skyn að borgara-
legri ríkisstjóm verði velt ef þess
gerist þörf að mati flokksins. Telur
Uffe Elleman að þar með yrði greið
gata fyrir Anker Jörgensen í forsæt-
isráðherrastólinn og hrun efhahags-
lífsins. Hvetur hann alla mögulega
kjósendur Framfaraflokksins til að
hengja mynd af Anker Jörgensen við
rúmgafl sinn svo þeir dag hvem sjái
mögulegar afleiðingar þess að kjósa
Framfaraflokkinn.
Útlönd
monniim
Ríkiastjóm Suður-Kóreu hefur fyr-
irskipað sérstakar aðgerðir til þess
að leita uppi áróðursraenn kommún-
ista, sem hún segir að hafi komist
inn í raðir verkalýðsleiðtoga lands-
ins og ástundi þar undirróður.
Vilja stjómvöld kenna þesaum
undiróðursmönnum um óróa þaxrn
sem ríkir meðal verkamanna í
landinu.
Verkfall að leysast upp
Verkfail bifreiðastjóra almenn-
ingsfarartækja í Manila á Fihpps-
eyjum leystist upp í nótt, eftir að
lögregla handtók nokkra leiðtoga
þeirra og sagði að þeir yrðu ákærðir
fyrir að ala á óánægju.
Verkalýðsfélög á eyjunum virtust
ekki ætía að sinna hvatningum
verkalýðsleiðtoga um áframhald-
andi mótmæli gegn ríkisstjóm
Corazon Aquino, forseta landsins.
Þau félög, sem studdu verkfall bíl-
stjórarma, sinntu mótmælakallinu
engu
Vilja fá konu lausa
Stjómvöld á Ítalíu, sem nú standa í samningaviðræðum við fanga á eyj-
uimi Elbu, þar sem tuttugu og einum starfsmanni fangelais er haldið í
gísimgu, segjast ekki ætla að ræða meira við fangana, fyrr en þeir hafa
sleppt úr haldi konu sera er meðal gíslanna.
Fangamir hafa krafist þess að fa þyrlu til umráða og hóta að myrða gísl-
ana ef ekki verði orðið við kröfum þeirra.
Fangamir létu einn fangavörð lauaan í gær og heimiluðu brottflutning
þriggja sjúkra fanga, sem vom á sjúkradeild fangelsins þegar uppreisnin
hófst.
Mengad nauiakjöt
Talið er að Bandaríkjamenn muni
herða eftirlit með innfluttu kjöti,
vegna þess að á þessu ári hefur hvað
eftir annað orðið vart mengimar af
völdum skordýTaeiturs í nautakjöti
frá Ástrahu.
Talsmaður matvælaeftirlits
Bandaríkjanna sagði í gær að meng-
un innllutts kjöts væri stjómvöldum
nokkuiT áhyggjuefni og yrði vænt-
anlega gripið til ráðstafana vegna
þess.
Bandarískir og ástralskir embættismenn funda nú í vikunni og reyna að
finna leiðir til þess að mengunarprófa kjöt frá Ástralíu og heimila flutning
þess, sem reynist ómengað, á markað.
í síðustu viku stöðvuðu Bandaríkjamenn innflutning á um fjórtán milljón-
um kflóa af áströlsku nautakjöti.
Laugavegi 8 9 - sími 22453
Dömu:
1.768,- nú 1.238,- Hvítt/
svart/grátt
Dömu:
1.488,- nú 1.042,- Mikið
úrval
Herra: Verð áður 2.150,-
nú 1.505,- Hvítt/svart
Herra: Verð áður 2.695,-
nú 1.886,- Hvítt/grátt
LA - 30-50% afsláttur
Herra: Verð áður 1.689,-
nú 1.189,- Hvítt/svart
Herra: Verð áður 2.729,
nú 1.910,- Hvítt/grátt
Dömu: Verð áður
3.805,- nú 2.263,-
Svart/grænt
Dömu: Verð áður
1.564,- nú 782,- Svart/
hvítt
SENDUM í
PÓSTKRÖFU
émWé&Mi