Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1987, Page 12
12
Neytendur
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987.
Bílamarkaðurinn:
Fer hann að mettast?
Eins og kunnugt er hefur bílainn-
flutningur stóraukist undanfarin
misseri. Þetta árið virðist aukningin
þó ætla að slá öll met því þótt mikið
hafi verið flutt inn í fyrra, þá er þeg-
ar búið að flytja inn nánast sama
fjölda bifreiða það sem af er þessu
ári og allt síðastliðið ár.
Þannig hafa verið fluttar inn 8.528
nýjar fólksbifreiðar, 2.450 fjórhjóla-
drifsbifreiðar og 1.711 notaðar bif-
reiðar frá ársbyrjun til júníloka.
Allt árið ’86 voru fluttar inn sam-
tals 10.852 nýjar bifreiðar, 2.777
fjórhjóladrifnar og 1.445 notaðar.
Við lok júnímánaðar höfðu þvi
verið fluttar inn alls 12.689 bifreiðar
og vantaði því aðeins 2.385 bifreiðar
til að fjölda ársins ’86 væri náð, en
það ár var metár.
Enn eru ekki komnar tölur fyrir
júlímánuð. Þó telja aðilar innan
bílabransans að innflutningurinn
hafi aldrei verið meiri en nú, ekki
hvað síst á notuðuðum glæsivögn-
um. Heyrst hafa tölur eins og 15-16
þúsund bifreiðar á þessu ári.
Gamlir bílar
Það mætti ætla að gamlar bifreiðar
hrúguðust upp þessa dagana hjá
bílasölum og það á spottprís en sú
virðist ekki raunin. Að vísu er mikil
hreyfing á bílasölum sem versla með
notaðar bifreiðar en því fer fjarri að
þær lækki í verði, endursöluverð
helst hátt, og hlýtur því eftirspum
að vera nokkuð mikil. Þetta á helst
við um bifreiðar sem framleiddar eru
eftir ’82, eldri bílar virðast illseljan-
legir og nota menn þá gjaman áfram
frekar en að selja þá fyrir slikk. Það
virðist því ekki óalgengt að það sé
fleiri en ein bifreið á fjölskyldu.
Til marks um mikla sölu þá em
bílasölur á höfúðborgarsvæðinu um
30 talsins og ef litið er í bílakálf ÐV
um helgar þá kemur í ljós að þar em
iðulega auglýstar um 350 bifreiðar
hverju sinni. Einnig taka umboðin
gamla bíla upp í nýja, en það gerðu
þau varla ef þau þyrftu svo að sitja
uppi með óseljanlega bíla.
2-3 bílar á fjölskyldu?
Þær raddir heyrast æ oftar sem
segja að þetta geti ekki gengið leng-
ur, nú sé hver fjölskylda komin með
2-3 bíla, einhvem tímann hljóti þörf-
inni að verða fullnægt. Og það er
margt sem bendir til þess að svo sé.
Um verslunarmannahelgina taldi
Umferðarráð að um 100 þúsund bif-
reiðar væm á ferðinni.
Það er því nokkuð líklegt að mark-
aðurinn fari að mettast og spá ýmsir
því að það geti gerst núna er ’88
árgerðimar em byrjaðar að streyma
inn á markaðinn.
DV hringdi í nokkra bílasala og
heyrði í þeim hljóðið.
Aðalbílasalan
Aðalbílasalan við Miklatorg er lík-
lega sú sem elst er. Þar hefur Halldór
Snorrason verslað með notaða bíla
í um 30 ár. DV náði tali af Halldóri.
„Það er ákaflega mikil hreyfing á
bílamarkaðnum þessa stundina.
Mestur hluti viðskiptanna er þó í
formi bílaskipta, þ.e. tekinn er bíll
upp í. Ástandið er orðið þannig að
þeir sem ekki vilja taka upp í geta
átt það á hættu að losna ekki við
bílinn. Þá em eldri árgerðir stöðugt
þyngri í sölu. Bifreiðar frá því '74
eða þar um bil em nánast alveg
dottnar út af markaðnum, nema um
alveg sérstakar tegundir sé að ræða
sem standast tímans tönn.“
Við spurðum Halldór hvort allur
þessi innflutningur gerði ekki sölu á
gömlum bílum erfiðari:
Margar dagsláttur
„Ef þú ferð um borgina sérðu
druslum í umferð og ekki vanþörf á
að endumýja eitthvað af þessu. Sal-
an er þó eitthvað að minnka núna
með tilkomu ’88 árgerðanna, en nú
er það að gerst sem ég hef aldrei
áður séð, að ársgamlir bílar standa
í nokkra daga í sölum áður en þeir
seljast. Þeir vom alltaf famir um
leið og þefr komu.
Það er náttúrlega kominn helling-
ur af bílum í umferð. Það em
bókstaflega allir komnir á nýja bíla,
jafnvel 17 ára strákar em famir að
mæta héma með 400 þúsund kall
upp á vasann til að kaupa sér bíl,
ég bara skil þetta ekki.
Það er líka mikið af druslum. Við
keyrðum aðeins um bæinn á dögun-
um og taldist til að það væri svona
þriðjungur bíia á götunum sem væri
í rauninni búið að leggja. Það þyrfti
bara að henda þessum bílum. Þetta
em bílar af árgerðum ’74—’77 og em
búnir að ganga sér til húðar.“
Viðskiptahættir breytast
„Menn em famir að taka mikið
upp í og kaupa mikið beint á bréfum.
Lánstíminn hefúr líka lengst mikið,
var áður 8-10 mánuðir, en er nú
orðinn 18 mánuðir.
Við vorum með útsölu á bílum
Gamlir bílar eru rifnir á bílaparta-
sölum og selt úr þeim allt nýtilegt..
margar dagsláttur af notuðum bif-
reiðum sem kannski eiga aldrei eftir
að seljast. Þetta em bílar sem standa
kannski svo mánuðum skiptir á bíla-
sölum en hverfa svo bara ofan í
jörðina. Málið er að endursöluverð
er allt of hátt. Ef allir lækkuðu jafnt,
s.s. 25%, þá kæmi það eins út hvort
sem verið væri að kaupa eða selja.
Menn em hins vegar að þráast við
og beija höfðinu við steininn. Þeir
gera sér ekki grein fyrir því að það
hlýtur að enda með því að höfuðið
klofnar en ekki steinninn. Það hefur
nefnilega verið þannig frá upphafi
að á haustin dregur úr sölu en á
vorin fer hún að glæðast, þetta er
bara spuming um framboð og eftir-
spum.“
En er þá ekki óhjákvæmilegt að
verðið fari að lækka?
Verðlækkun með hausti
„Bílar hafa lækkað og eiga eftir
að lækka enn meir með haustinu en
þegar byrjar að rigna og snjóa em
menn latari við að ganga milli bíla-
sala og skoða. Þeir skríða út á vorin,
tilbúnir til að kaupa, og þess vegna
hækkar verðið með meiri eftirspum.
Einnig kemur það inn í myndina að
margir em með lánsfé í höndum í
bílaviðskiptum og verða þeir að
standa skil á þvi, annað er ekki
hægt í landi þar sem vextir em orðn-
ir 30%. Menn em þá kannski með
bíl í sölu og reyna að fá fyrir hann
ákveðið verð. Þegar það gengur ekki
þá neyðast þeir til að lækka verðið
þar til einhver kaupir."
....eða fara bara beint á haugana
Bílum hent
„Ég hef nú ekki leitt hugann að
fjölda bifreiða í umferð, en það er
þó ljóst að þúsundir bifreiða em í
kyrrstöðu. Það em því verðmæti upp
á tugi milljóna á bílasölum og það
er ljóst að þau geta ekki staðið þar
um aldur og ævi. Þetta á þó eftir að
ganga vel því að þjóðin er hress og
kát og vel menntuð. Það hefur átt
sér stað mikil endumýjun á bílaflota
landsmanna, enda hefur trúlega
aldrei verið hent jafnmörgum bílum
og í ár. Þegar bílar verða fyrir tjóni
þá er bara keyptur nýr í stað þess
að lappa upp á þann gamla, en hon-
um er þá hent.“
Bílasalan Blik
Við töluðum næst við Jón Sigurðs-
son hjá Bílasölunni Bliki.
„Salan hefur aldrei verið meiri en
í sumar. Það var orðið rosamikið af
nýlega. Þar gafst mönnum kostur á
að selja gamla bíla á lágu verði og
og vom margir sem vildu losa sig
við bíla. Það vom margir sem eiga
kannski þijá bíla en hafa ekki not
fyrir nema tvo. Annars erum við með
um 120 bíla í sölu núna, og það fara
svona 6-8 á dag. Það virðist hver