Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1987, Page 13
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987.
13
Halldór Snorrason hjá Aðalbilasölunni
einasti bíll seljast, ég skil ekki alveg
hvemig, en það virðist alltaf vera
einhver sem getur notað gamlann
bíl.“
Endursöluverð
Við spurðum Jón hvemig stæði á
að endursöluverð héldist jalhhátt og
raun ber vitni.
„Endursöluverð fer eftir ákveðn-
um reglum. Yfirleitt er miðað við
vissar afskriftir, þetta 10-12% á ári.
Þetta gildir þó ekki um alla bíla,
margir tapa verðgildi sínu mun
hraðar. Þannig gætir engrar tregðu
í sölu á bílum framleiddum eftir ’82,
en árgerðir ’80, og ’81 em hins vegar
ekki jafn eftirsóttir. Það eru allir
krakkar komnir á nýja bíla og býst
ég við að fólk reyni að nota eldri
bílana sína í stað þess að setja þá í
sölu.“
P. Samúelsson
Við hringdum í bílasölu P. Samú-
elsson í Skeifunni en salan er í
tengslum við Toyota umboðið sem
tekur notaða bíla upp í nýja. Þar
varð fyrir svörum Ármann Jóhanns-
son.
„Salan hefur gengið þokkalega en
er aðeins farin að hægjast núna. Það
varð ekki svo mikil söluaukning hjá
okkur í sumar, salan er einfaldlega
ekki það gróin. Þrátt fyrir að sala
dragist alltaf saman á haustin og
vetuma gekk hún þó vel allan síð-
astliðinn vetur.
Umboðin taka ekki eldri bíla
Við höfum bundið okkur við ár-
gerðir yngri en frá ’82, þannig að
lítillar tregðu hefur gætt hjá okkur.
Það em aðallega ’80 módel og eldri
sem stoppa á sölunum. Það hefur
þó merkilega lítið borið á því að
þessir bílar lækki í verði, þetta virð-
ist allt seljast á endanum. Hvemig
framhaldið verður verður bara að
koma í ljós.
-PLP
_________________Neytendur
Hvað kosta
nýir bílar?
Nú em nýjar árgerðir bíla teknar
að streyma inn á markaðinn. Við
ákváðum að birta nokkur verð á
algengum gerðum mönnum til við-
miðunar. Ekki er þó farið út í neina
heildarkönnun, aðeins er tekið verð
nokkurra tegunda.
’88 árgerð af Mazda er komin að
hluta. Állar gerðir em hins vegar
væntanlegar í september. Dæmi ura
verð er að Mazda 929 Sedan 2,2 GLX
kostar um kr. 827 þúaund án ryð-
vamar og akráningar.
Citroen árgerð ’88 er kominn.
Citroen BX kostar kr. 498.500. Til
gamans má geta þess að Citroen
Charleston, betur þekktur sem
braggi kostar kr. 347.600. Hann er
að sjálfeögðu kynntur sem „ráð-
herrabfll“ í verðliata. Verð er án
ryðvamar og skráningar.
Volkswagen og Audi af árgerðum
’88 em einnig komnir. Dæmi um
verð er að VW Golf kostar kr. 471
þús. i sinni einfoldustu mynd og
Audi kostar kr. 858 þúsund. Bílamir
em raeð verksmiðjuryðvöm en verð-
ið er án skráningar.
Miteubishi er kominn af öllum
gerðum af árgerð ’88. Eitt stykki
Colt kostar kr. 361 þús. í sinni ein-
földustu mynd, án ryðvamar og
skráningar. -PLP
Raddir neytenda
Meira „slikkirí“ en venjulega
„Mér ofbauð alveg þegar ég var
búin að leggja saman matarliðinn. Að
vísu vorum við á ferðinni allan mán-
uðinn og keyptum sennilega meira
„slikkirí" en venjulega," segir m.a. í
bréfi frá Þórunni sem tekið hefúr þátt
í heimilisbókhaldinu með okkur mjög
lengi. Meðaltal þessarar fjölskyldu var
í júlímánuði kr. 7800 á mann. Bréfrit-
ari heldur áfram:
„Á móti kemur svo að við vorum
gestkomandi annars staðar og því
hefðu matarútgjöld átt að lækka eða
a.m.k. standa í stað. En hver sem skýr-
ingin er þá em þetta alltof háar tölur.
Liðurinn „annað“ er upp á 74 þúsund
kr. Helstu útgjöldin þar em: afborgun
af bíl 16 þúsund, húsnæðislán 12.900
kr„ brúðargjöf og skyrta kr. 5 þús.,
síminn 2200 kr„ rafmagn 1700 kr„ flug-
far 4 þúsund kr„ bensín 3 þúsund,
tívolí 3 þúsund, verslunarferð til
Reykjavíkur 6 þúsund og margt fleira.
Með bestu kveðjum,
Þórunn"
Kjötvörur með 50% afslætti á mánudögum
„Nú tók heimilishaldið góðan kipp
fyrir júlí. Ég önglaði saman í frysti-
kistu og kaupi kjötvömr í Hagkaupi
á mánudögum með 50% afelætti. Ég
hef gert þetta lengi og gefst það vel,“
segir í bréfi frá roskinni vinkonu okk-
ar, sem lengi hefur tekið þátt í
heimilisbókhaldinu, D.M. Hún er með
allra lægsta meðaltalið og tekst þann-
ig að halda vel á hlutunum og hafa
hemil á útgjöldum til heimilis-
ins.
Að þessu sinni var meðaltalið rétt
um 3500 kr. á mann en liðurinn „ann-
að“ var upp á tæpar 17 þúsund kr.
Inni í þeirri tölu var að þessu sinni
rafmagn og hiti, útvarp og ein afmælis-
gjöf. Síðan segir D.M.:
„Nú eflir hækkunina á brauðvörum
kaupi ég eitt brauð á viku og þá gam-
alt brauð á 35 kr.
Það er vel hægt að spara ef maður
vill og ég hef aldrei kunnað annað.
Kveðja, D.M.“
HAUSTTILBOÐ
SOLHUSIÐ
Sólbaðsstofa
Astu B. Vilhjálms,
Grettisgötu 18, sími 28705
Aftur er komið að okkar vinsæla tilboði sem
allir þekkja.
24tímar á aðeins
1800
kronur.
Hvar annars staðar er það betra og ódýrara?
Takmarkað upplag
tilboðskorta
á að seljast.
VEEIÐVELKOMIN
ÁVALLT HEITT Á
KÖNNUNNI