Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1987, Blaðsíða 18
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987.
NY
STÓRSENDING!
SÖMU HAGSTÆÐU VERÐIN.
H BERG f
SKEI FUNN 1 5A, SÍMI: 91-8 47 88
i
STOLPI
vinsæli tölvuhugbúnaðurinn
Átla alsamhæfð tölvukerfi sem
ganga á yfir 20 tölvutegundir.
• FJÁRHAGSBÓKHALD •SKULDUNAUTAR
• LÁNARDROTTNAR •LAUNAKERFI
• BIRGÐAKERFI •VERKBÓKHALD
• SÖLUNÓTUKERFI •TILBOÐSKERFI
Þú getur byrjað smátt og bætt við kerfum og stækkað fyrirtækið
án þess að eiga það á hættu að „sprengja" kerfin því við bjóðum:
• LITLA STÓLPA FYRIR MINNSTU FYRIRTÆKIN
• STÓLPA FYRIR FLEST FYRIRTÆKI
• STÓRA STÓLPA FYRIR FJÖLNOTENDAVINNSLU
Látum allt fylgja með i „pakka" ef óskað er, s.s. tölvur, prentara,
pappír, disklinga, húsgögn, kennslu og góða þjónustu.
Sala
Markaðs- og söluráðgjöf,
Bjöm Viggósson,
Ármúla 38,108 Rvk,
sfmi 91-687466.
Hönnun hugbúnaðar
Kerfisþróun,
Kristján Gunnarsson,
Ármúla 38,108 Rvk,
sími 91-688055.
Ledurfatmiduv
AMARÖ
Aknrtfyri
IMINA
Akranesi
Hi’ililsala
10|>)ilt?ðtir
Hililshotða 14
Fréttir
Ólöf Jónsdóttir, verkstjóri hjá Hraðfrystistöðinni á Þórshöfn. Eins og sjá má er hún hörkudugleg í bilaþvotti líka.
DV-mynd JGH
^ DV á Þórshöfh:
Ólöf verkstjóri í bílaþvotti
Jón G. Hauksson, DV, Akureyri:
„Þeir vilja verða drullugir í rigning-
unni,“ sagði Ólöf Jónsdóttir, verkstjóri
í Hrað&ystistöðinni á Þórshöfn, þegar
hún þvoði Volvóinn sinn í sumarfrí-
inu, nýkomin frá Akureyri.
Hún sagðist hafa það gott í fríinu
eins og vera bæri og þegar hún var
spurð hvort hún færi oft til Akureyrar
sagði hún að það kæmi fyrir.
„Ég á marga ættingja á Húsavík sem
ég heimsæki reglulega og þegar ég er
komin til Húsavíkur skýst ég til Akur-
eyrar í leiðinni."
Þar með var pásunni á bílaþvotta-
planinu lokið.
Akureyri:
Bílvelta
á Hörgár-
braut
Gyifi Kristjánsaan, DV, Akureyii
Skodabifreið, sem ekið var suður
Hörgárbraut á Akureyri á þriðjudag,
tók skyndilega stefhu út af götunni
og hafhaði þar á ljósastaur. Við
áreksturinn hvolfdi bifreiðinni og valt
hún áfram eftir götunni en ljósastaur-
inn skekktist mjög og hrundi útbúnað-
urinn úr toppi hans á götuna.
ökumaðurinn var einn i bifreiðinni og slasaðist hann ótrúlega lítið, skarst lít-
ils háttar, en bifreiðin er sennilega ónýt.
~~I
1 S
Fáskrúðsfjörður:
Siglingamálastofn-
un opnar skrifstofu
Ægir Kristinssan, DV, Fáskrúðsfiröi:
Nýlega opnaði Siglingamálastofhun
ríkisins umdæmisskrifstofu á Fá-
skrúðsfirði. Albert Kemp umdæmis-
stjóri sagði að í lögum frá 1986 um
Siglingamálastofhun væri gert ráð fyr-
ir umdæmisskrifstofum í öllum
umdæmum landsins sem eru sex.
Umdæmisskrifstofúnni á Fáskrúðs-
firði, sem er í umdæmi 5, er ætlað að
þjóna svæðinu frá Vík í Mýrdal að
Langanesi. Fastráðnir starfsmenn
sloifstofunnar eru tveir. Auk Alberts
verður þar starfandi Skafti Skúlason
en einn lausráðinn starfsmaður verður
á Vopnafirði. Umdæmisskrifstofa Sigl-
ingamálastofriunar er í félagsheimil-
inu Skrúði og munu starfsmenn
hennar annast eftirlit og skoðun skipa
í umdæminu. Skrifstofan er opin frá
kl. 8 til 16 virka daga og síminn er
51455.
Albert Kemp, umdæmisstjóri Siglingamálastofnunar, á skrifstofu sinni.