Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1987, Síða 22
22
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987.
Erlendir fréttaritarar
Mótmæla
yfiwinnu líf-
varða Holmérs
Gunnlaugur A. Jónssan, DV, Lundi
Hans Holmér, lögreglustjóri í Stokk-
hólmi, hefur enn á ný hafriað í
sviðsljósinu. Samtök lögreglumanna
hafa nefhilega mótmælt þeirri gífur-
legu yfirvinnu sem lífverðir Holmérs
inna enn af hendi.
Þrír lögreglumenn hafa á hálfu ári
unnið meira en þrjú þúsund yfir-
vinnutíma við að gæta Holmérs sem
mikinn hluta þess tíma hefúr verið
í frii á sólarströnd. Mikill skortur
er á lífvörðum hjá Stokkhólmslög-
reglunni og hefur það því vakið reiði
margra að Holmér skuli með þessum
hætti misnota aðstöðu sína og láta
lífverðina vinna eins og um neyðar-
tilfelli væri að ræða.
Tekinn til starfa
Þá vakti mikla athygli frétt eins
sænsku dagblaðanna um að Holmér
væri nú mættur á nýjan leik til
starfa í lögreglustöðinni í Stokk-
hólmi. Þar situr hann í sínu gamla
herbergi og gefur fyrirskipanir. Tals-
menn dómsmálaráðuneytisins létu í
ljósi mikla undrun yfir þessum frétt-
um en það eru liðnir meira en fimm
mánuðir síðan Holmér sagði af sér
störfum bæði sem stjómandi leitar-
innar að morðingja Palmes og sem
lögreglustjóri. Þar með töldu flestir
að afskiptum hans af lögreglumálum
væri lokið fyrir fullt og allt.
Holmér fór huldu höfði en hafði
sjálíúr af og til samband við valda
fjölmiðla og skrifaði meðal annars
greinar í Expressen þar sem kom
fram að hann hélt sig á sólarströnd
á eyju í Kyrrahafinu.
Óheimilar ákvarðanir
Formlega heldur Holmér embætti
sínu þar til um miðjan næsta mán-
uð. Almennt var þó gengið út frá því
sem vísu að hann kæmi ekki lengur
nálægt lögreglustörfum. En það var
svo þegar samtök lögregluþjóna í
Stokkhólmi vöktu athygli á þeirri
gífurlegu yfirvinnu sem lífverðir
Holmérs inna enn af hendi að það
spurðist að Holmér sæti enn sem
fastast. Hann tekur ákvarðanir sem
talsmenn dómsmálaráðuneytisins
segja að honum sé i raun ekki heim-
ilt að gera. En þar sem Holmér á svo
skamman tíma eftir af uppsagnar-
tímanum er ekki talið að dómsmála-
ráðuneytið muni aðhafast neitt þó
að Holmér starfi eitthvað innan lög-
reglunnar þann tíma sem eftir er.
Hins vegar mun hann ekkert koma
nálægt rannsókn Palmemorðsins.
Hljótt um rannsókn
Palmemorðsins
Mun hljóðara hefur líka verið um
rannsókn þess máls eftir að Holmér
hætti enda var það yfirlýst stefna
hinna nýju stjómenda rannsóknar-
innar að hafa sem allra minnst
samskipti við fjölmiðla. Það er nú
almenn skoðun hér í Svíþjóð að úr
því sem komið er sé nær útilokað
að hafa uppi á morðingja Palmes eða
að minnsta kosti þurfi að koma til
hrein heppni ef Iögreglunni ætti að
takast að hafa hendur í hári hans.
Hans Holmér er mættur á nýjan leik til starfa í lögreglustöðinni í Stokk-
hólmi eftir að hafa farið huldu höfði í langan tima. Hann á þó skamman
tíma eftir af uppsagnartíma sínum.
Fangauppreisn
í Kanada
Guönin Hjartardótnr, DV, Otlawa;
Um það bil 150 fangar efndu til
óeirða í Joyceville-fangelsinu fyrir
síafbrotamenn nálægt Kingston í
Ontario á dögunum. Talið er að
óeirðimar hafi byijað er þrír fangar
réðust á fangaverði og yfirbuguðu
þar sem þeir vom á eftirlitsferð um
vistarverur fanganna. Óljóst er um
upphafóeirðanna.
Rétt áður en óeirðimar bmtust út
leit allt út fyrir að vera með kyrrum
kjörum í fangelsinu þar sem fangar
dvöldu ýmist í klefum sínum eða
léku þoltaleiki á lóð fangelsisins.
Óeirðimar bmtust út í tveim af
fjómm fangaklefabyggingum fang-
elsisins. Bmtu fangamir húsgögn og
kveiktu elda utan dyra. Óeirðimar
stóðu í nokkrar klukkustundir eða
þar til fangavörðum og aukastarfe-
liði, er til hafði verið kvatt, tókst að
yfirbuga fangana og koma þeim öll-
um í klefa sína á ný. Engin alvarleg
meiðsli urðu á föngum eða fanga-
vörðum en nokkrir vom þó fluttir
undir læknishendur.
Þessi uppreisn hefúr vakið mikla
athygli og umræðu í Kanada því
fangelsið í Joyceville hefur þótt með
þeim ömggari og betri í landinu og
er uppþot þetta hið mesta er orðið
hefur í sögu fangelsisins. Öll varsla
hefur nú verið aukin til muna og er
búist við að þetta verði til þess að
starfefólki muni fjölga í fangelsinu
og að öryggisgæsla verði aukin mjög
á næstu mánuðum.
Sadolin sett
eriendum aðila?
Haukur L. Haukaacn, DV, Kaupmannahcfri:
Áhugi óþekkts erlends fjárfestinga-
raðila á málningarfyrirtækinu
Sadolin og Holmblad hefúr komið
af stað sögusögnum um sölu fyrir-
tækisins.
Ársvelta fyrirtækÍBÍns er rúmlega
tveir milljarðar danskra króna og
starfa um tvö þúsund og þrjú hundr-
uð manns hjá því. Samkvæmt
upplýsingum stjómar fyrirtækisins
hefur hún fengið mjög hagstætt
kauptilboð frá erlendum aðila sem
nú þegar á hagsmuna að gæta í
dönsku viðskiptalífi. Mögulegur
kaupandi getur verið finnska ríkis-
fyrirtækið Kemira sem keypti
meirihluta Superfors-Gödning í vet-
ur. Hið breska ICI og þýsku fyrir-
tækin Bayer og Hoecht hafa einnig
verið nefnd.
Möguleg sala getur strandað á
dönskum launþegasjóðum sem eiga
þrjátíu prósent hlutabréfanna en
væntanlegur kaupandi verður að
sölsa hluta þeirra undir sig. Tals-
maður launþegasjóðanna sagði að
þeir hefðu hindrað sölu til erlends
fyrirtækis fyrir fjórum árum og
mundu gera það á ný.
Hið tvö hundruð og níu ára gamla
fyrirtæki á eignir er nema rúmlega
hálfum milljarði danskra króna en
síðastliðin þrjú ár hefúr fyrirtækið
orðið fyrir verulegu tekjutapi.
■ ■ ■ + ■ ■ ■
Framhjahald
á undanhaldi
Haukur L. Hautasan, DV, Kaupmannah£fti: , , .
..... ...... Frá 1955 hefúr meira en helmmgur
Fleiri Danir en áður eru á þeirri Dana verið á þeirri skoðun að eitt
skoðun að framhjáhald í eitt skipti tilfelH framhjáhalds væri ekki næg
sé nægileg ástæða til að krefjast skilnaðarorsök. í dag eru fimmtíu
skibaðar. Samkvæmt nýlegri könn- og þijú prósent Dana á öðru máli..
un er meira en helmingur Dana á Sextíu prósent þeirra nefiia eyðni
þessari skoðun og er orsakanna fyrir sem þungann á vogarskálunum.
strangari viðhorfúm að leita í óttan-_
Neysla
amfetamíns
stóraukist
Haukur L. Hauksson, DV, Kaupmaunahöfri;
Samkvæmt talsmanni fíkniefnalög-
reglunnar í Kaupmannahöfn hefur
neysla amfetamíns stóraukist síð-
asta eina og hálfa árið.
Nýlega lagði lögreglan hald á
stærsta skammt amfetamíns í einu
til þessa eða tuttugu kíló. Segir lög-
reglumaðurinn amfetamín vera
tískufyrirbæri sé þess neytt í stað
eða með alkóhóli. Megi sjá neyslu-
aukninguna á því að átta af hverjum
tíu einstaklingum, sem handteknir
eru vegna fíkniefna, hafi amfetamín
í fórum sínum.
Lögreglan í Kaupmannahöfn hef-
ur undanfarið staðið fyrir herferð
gegn amfetamíni. Hefur veitinga-
húsaeigendum, þar sem verslað
hefur verið með amfetamín, verið
bent á að rekstrarleyfi þein-a sé í
hættu. Nefnd sú er ætlað er að fyrir-
byggja afbrot hefur staðið fyrir
fræðslu í skólum og loks hefur lög-
reglan í huga að framleiða vegg-
spjöld til aðvörunar gegn amfetam-
íni.
Fyrmefndur lögreglumaður segir
að margir haldi amfetamín saklaust
efni en í raun sé það jafnhættulegt
og kókaín og heróín þar sem afleið-
ingar langvarandi misnotkunar geta
verið ofsóknarbijálæði og önnur sál-
ræn mein.