Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1987, Page 32
32
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987.
Myndsjá
Allt á sig lagt
Ástralíumenn hafa af því þungar áhyggjur um þessar mundir að spenna
hefur mjög aukist milli frumbyggja og innflytjenda af engilsaxnesku bergi.
Vilja þeir allt til vinna að þessir tveir hópar geti lifað í sát.t og samlyndi og
í því augnamiði var fyrir skömmu efnt til hesta- og nautaats í bænum Brew-
arrina. Þar var lögreglu landsins meðal annars gert að etja kappi við nautið
Rambó sem hér kastar lögregluþjóni af sér við góðar undirtektir áhorfenda.
Ekki fylgdi sögunni á hvem hátt slíkir leikir bættu sambúð kynþáttanna
tveggja í Ástralíu en óneitanlega heíúr verið að því nokkur skemmtun að
sjá bola tuska lögguna til. Lögreglan hefur einmitt verið sökuð um að sýna
frurobyggjum yfirgang og jafhvel ofbeldi svo að vafalítið hefur þeim þótt
Rambó koma fram hefhdum.
Gervigáfur
Allt frá því að fyrstu reiknivélar komu á markað hefur manninn dreymt um
að hanna tölvu sem getur hugsað skapandi, líkt og mannsheilinn. Þótt sá draum-
ur sé enn fjarlægur hefur einn af vísindamönnum General Electric fært okkur
skrefi nær honum með rannsóknum sínum. Hann er hér með hluta af módeli
sínu en með því er skref stigið í átt til tölvu sem getur þekkt hluti sem hún sér
með sjónvarpsmyndavél.
Vísindamaðurinn, sem heitir Van-Duc Nguyen, kynnti uppfinningar sínar í
Mílanó í þessari viku á tíunda þingi þeirra sem fást við hönnun gervigáfna.
Hvalkjotsveitingahús líða undir lok
Veitingahús, sem sérhæfa sig í hvalkjötsréttum, hafa verið mjög vinsæl í Japan, en eru nú líklega að líða undir lok
vegna erfiðleika við að afla hráefnis. Ef til vill er það íslenskur hvalur sem snæddur er á þessarri mynd en hann verður
varla í boði framvegis ef hvalvemdarmenn fá sínu framgengt.
Líklega verða stúlkumar þá að snúa sér að öðrum fæðutegundum því að það er að sjálfsögðu óhæfa að menn snæði þá
fáu hvali sem eftir em.
Súper-
stjarna
eða
Drakúla?
ítalir höfðu hið mesta dálæti á for-
sætisráðherra sínum, Giovanni
Goria, fyrir skömmu þegar hann stóð
í stjómarmyndunarviðræðum. Þótti
hann hin mesta súperstjama, bjarg-
vættm- ítölsku þjóðarinnar og
verðugur leiðtogi hennar.
Nú hefur blaðið snúist heldur bet-
ur við því stjömuferill Goria hefur
fólnað ískyggilega. Jafiivel svo að
íjölmiðlar segja hann hinn versta
ódám, jafnvel brosandi skeggjaðan
Drakúla.
Ekki er gott að segja úr hveiju
forsætisráðherrann á að sjúga blóð
nema ef vera kynni efnahag ítölsku
þjóðaiinnar. Þeir sem til þekkja telja
það þó hina mestu vitleysu því eftir
áralanga óstjóm sé ekkert blóð eftir
í efnahag Ítalíu, hvorki rautt né
blátt.
Skyndi-
kona?
Það er óneitanlega meira gaman að
njóta sjávar og sólar í Suðurlöndum
ef maður er með ljúft fljóð sér við hlið.
Misjafiilega getur þó gengið að fá
kvenlegan félagsskap en þá dugir ekki
annað en að hjálpa sér sjálfur. Það
gerði hann, maðurinn hér á mynd-
inni, því að hann bjó sér til kvensu í
skyndi úr þeim byggingarefrium sem
nærtækust vom.
Þessi „skyndikona" hefur þá góðu
kosti að hún hvorki talar of mikið,
kvartar þótt gjóað sé auga á aðrar
konur né heldur gerir kröfu til þess
að borin sé á hana sólarolía í tíma og
ótíma.