Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1987, Síða 33
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987.
33
dv Fólk í fréttum
Jónas Jónsson
Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri
hefiir verið í íréttum DV vegna um-
ræðna um smyglaða skinku á
landbúnaðarsýningunni.
Jónas er fæddur 9. mars 1930 og
lauk búfræðiprófi frá Hólum 1953
og kandidatsprófi frá Búnaðarhá-
skólnum að Ási í Noregi 1957. Hann
var kennari við Bændaskólann á
Hvanneyri 1957-1963 og sérfræðing-
ur í jarðrækt við Rannsóknastofnun
landbúnaðarins 1963-1966. Jónas
var ráðunautur í jarðrækt hjá Bún-
aðarfélagi íslands 1966-1971. Hann
var aðstoðarmaður landbúaðarráð-
'herra 1971-1974. Hann var starfs-
maður Búnaðarfélags íslands og
ritsfjóri Freys 1974-1980. Jónas varð
búnaðarmálastjóri 1980. Hann var
fyrsti varaþingmaður Framsóknar-
flokksins í Norðurlandskjördæmi
eystra 1969-1973 og alþingismaður
þess kjördæmis 1973-1974. Jónas
hefur setið í stjóm BHM, Skógrækt-
arfélagsins og Félags Þingeyinga í
Rvík.
Kona Jónasar er Sigurveig Erl-
ingsdóttir, b. og skógarvarðar í
Ásbyrgi í N-Þing., síðar bankaritara
í Rvík, Jóhannssonar og konu hans,
Sigrúnar Baldvinsdóttur. Böm
þeirra em Sigrún, Helga, Jón Erling-
ur og Úlfhildur.
Systkini Jónasar em: Kristbjörg,
gift Ingólfi Kristjánssyni, vélamanni
á Ystafelli, Hólmfríður, gift Áma
Kristjánssyni, menntaskólakennara
á Akureyri, Sigurður, dó ungur, Sig-
urður, b. og hreppstjóri á Ystafelli,
giftur Kolbrúnu Bjamadóttur, Frið-
geir, b. á Ystafelli og Hildur gift
Sigurbimi Sörenssyni, sjómanni á
Húsavík.
Foreldrar þeirra em Jón Sigurðs-
son, b. og rithöfundur á Ystafelli í
Köldukinn í S-Þingeyjarsýslu og
kona hans, Sigfríður Helga Frið-
geirsdóttir.
Faðir Jónasar, Jón, er sonur Sig-
urðar, b. og ráðherra á Ystafelli,
Jónssonar, b. á Litluströnd við Mý-
vatn. Jónas er þremenningur við
hæstaréttardómarana Þór Vil-
hjálmsson og Magnús Torfason og
Hjálmar Ragnarsson tónskáld, frá
Jóni Ámasyni á Litluströnd.
Móðir Kristbjargar, ömmu Jónas-
ar, var Kristín Jónsdóttir, þjóðfúnd-
armanns á Lundarbrekku í
Bárðardal, Jónssonar, prests í
Reykjahlíð við Mývatn, Þorsteins-
sonar, forfoður Reykjahlíðarættar-
innar. Móðir Kristínar var
Kristbjörg Kristjánsdóttir, b. og
dbrm. á Illugastöðum í Fnjóskadal,
Jónssonar, sem Illugastaðaættin er
kennd við. Bróðir Kristjáns á Illuga-
stöðum var Bjöm á Lundi sem er
forfaðir Inga Tryggvasonar, for-
manns Stéttarsambands bænda.
Móðir Jónasar var Sigfríður Helga
Friðgeirsdóttir, b. á Þóroddsstöðum
í Köldukinn, Kristjánssonar og konu
hans, Bóthildar Grímsdóttur, b. á
Krossi í Ljósavatnshreppi, Einars-
sonar.
Jónas Jónsson búnaöarmálastjóri.
Afrnæli
Jarþrúður Pétursdóttir
Jarþrúður Pétursdóttir, Efsta-
sundi 70, Reykjavík, verður sextug
í dag.
Jarþrúður Sigurveig hefur fengist
við ættfræðirannsóknir og hafa ver-
ið gefin út eftir hana tvö niðjatöl,
Péturs Zophoníassonar og drög að
niðjatali Jóns Sigurðssonar frá
Skinnalóni. Jarþrúður er gift Antoni
Líndal Friðrikssyni, bryta hjá Eim-
skipafélaginu, og em böm þeirra
Guðrún, gift Guðna Jónssyni, Ey-
rún, gift Halldóri Kristinssyni,
Bergrún, og Arnrún, gift Ingva Þór
Sigfússyni.
Systkini Jarþrúðar: Hildur, lést
ung, Viðar, tannlæknir í Rvík, giftur
Ellen Knudsen, Zophonías, deildar-
stjóri hjá Tryggingastofnun ríkisins,
sem er látinn, var giftur Stellu Sig-
urðardóttur, Hrafnhildur, sem er
látin, var gift Sigurði Sigurðssyni,
Áki, deildarstjóri á Hagstofunni, sem
er látinn, var giftur Kristínu Gríms-
dóttur, Jakobína Sigurveig, skrif-
stofúmaður í Rvík, Sturla,
verkamaður í Rvík, giftur Steinunni
Hermannsdóttur, Skarphéðinn, pró-
fastur í Bjamamesi, sem er látinn,
giftur Sigurlaugu Guðjónsdóttur,
Friðrik Gunngeir, skriífstofustjóri
byggingafulltrúa Rvík, giftur Sigur-
rós Eyjólfsdóttur, Pétur Vatnar, dó
ungur, Helga Guðrún, gift Helga
Thorvaldsson, skrifstofumanni í
Rvík, Jóhanna So býr með Ingólfi
Ámasyni, Ingólfúr, giftur Sæbjörgu
Jónasdóttur, og Svanlaug Thorlac-
ius, gift Hannesi Guðjónssyni.
Foreldrar þeirra Jarþrúðar vom,
Pétur Zophoníasson, ættfræðingur
og fulltrúi á Hagstofúnni, og Guðrún
Jónsdóttir.
Faðir Jarþrúðar, Pétur, var sonur
Zophoníasar, prófasts í Viðvík í
Skagafirði, Halldórssonar, b. á
Jarþrúður Pétursdóttir.
Brekku í Svarfaðardal, Rögnvalds-
sonar. Móðir Péturs var Jóhanna
Sofifía Jónsdóttir, dómstjóra í Rvík,
Péturssonar, og Jóhönnu Sofifíu
Bogadóttur, b. og fræðimanns á
Staðarfelli, Benediktssonar.
Móðir Jarþrúðar var Guðrún
Jónsdóttir, b. og hreppstjóra á Ás-
mundarstöðum á Sléttu, Ámasonar,
og konu hans, Hildar Jónsdóttur, b.
á Skinnalóni á Sléttu, Sigurðssonar.
Hinrik Einarsson og
Ingibjöig Gísladóttir
Hinrik Einarsson og Ingibjörg Gisladóttir.
Hinrik Kristinn Einarsson frá
Hömrum í Þverárhlíð er sjötugur í
dag. Kona Hinriks er Ingibjörg
Gísladóttir, f. í Papey, en hún verður
áttræð 2. september nk.
Hinrik er fæddur að Hömrum, ólst
þar upp í foreldrahúsum og hefur
búið þar alla sína tíð, fyrst hjá for-
eldrum sínum sem starfsmaður á
bænum en síðan b. þar frá 1950 eftir
að foreldrar hans hættu búskap.
Hinrik, sem stundar enn búskap, er
kunnur fyrir atorkusemi enda hefur
hann unnið mikið að jarðarbótum
að Hömrum.
Hinrik og Ingibjörg kynntust í
Reykjavík og giftu sig þar árið 1950.
Ingibjörg átti sex alsystkini og þijú
hálfsystkini. Alsystkini hennar,
samfeðra, vom Gunnar, skipstjóri
hjá Landhelgisgæslunni, en hann er
látinn, Þorvarður, sem einnig var
skipstjóri á varðskipum, en hann er
einnig látinn, Ingólfúr læknfr, sem
einnig er látinn, Gústaf, b. í Papey,
sem nú býr á Djúpavogi hjá Sigríði
alsystur sinni, og Margrét sem bjó í
Reykjavík en er látin. Hálfsyskini
Ingibjargar em Snorri, Kristín, sem
býr í Kaupmannahöfh, og Gunnþóra
sem er hjúkmnarkona í Winnipeg.
Foreldrar Ingibjargar vom Gísli,
b. í Papey, Þorvarðsson, b. á Fagur-
hólsmýri í Öræfiun, Gíslasonar, og
kona hans Margrét frá Flögu í Skaft-
ártungu Gunnarsdóttir.
Systkini Hinriks urðu sjö talsins
og náðu þau öll fullorðinsárum. Nú
em þó tvær systur hans látnar. Elst-
ur þeirra systkinna er Jónmundur,
b. í Ömólfsdal í Þverárhlíð, f. 1898,
en hans kona var Guðrún Magnús-
dóttir úr Reykjavík sem nú er látin.
Málfríður Einarsdóttir er næstelst,
f. 1901. Hún var gift Sigurði Jóns-
syni frá Þorgautsstöðum í Hvítár-
síðu en þau hafa búið í Reykjavík.
Þá er Guðrún Ingibjörg, f. 1904, en
hún bjó að Hömrum alla sína tíð og
er látin fyrir nokkrum árum. Eyrún,
f. 1906, er einnig látin en hún var
gift Jónmundi Olafesyni frá Eyri í
Svínadal sem til skamms tíma hefur
verið kjötmatsmaður í Reykjavík.
Ágúst, f. 1910, hefur verið húsasmið-
ur í Reykjavík. Ragnhildur f. 1913
hefur verið starfemaður hjá Sláturfé-
lagi Suðurlands í Reykjavík. Sigur-
steinn, f. 1914, hefúr verið smiður
og verkamaður að Hömrum en vinn-
ur nú við Andakílsárvirkjun. Hinrik
er svo yngstur systkinanna.
Foreldrar Hinriks vom Einar, b. á
Hömrum í Þverárhlíð, Ásmundsson,
b. á Höfða í Þverárhlíð Einarssonar,
og Guðrún Davíðsdóttir, b. í Ömólfe-
dal í Þverárhlíð, Davíðssonar. Móðir
Guðrúnar var Guðrún Magnúsdótt-
ir, prests á Gilsbakka, Sigurðssonar.
Jóhann I. Gíslason
Jóhann I. Gíslason, Byggðarholti
15, Mosfellsbæ, er sjötugur í dag.
Jóhann fæddist í Vestmannaeyjum
og ólst þar upp í foreldrahúsum.
Hann var fjórtán ára þegar hann réð
sig til verslunarstarfa í Vöruhúsi
Vestmannaeyja hjá Einari ríka Sig-
urðssyni. Síðan þá hefur hann unnið
hin margvíslegustu störf til sjós og
lands. Hann hefur m.a. unnið við
lifrarbræðslu, starfað í kjötverslun
Sláturfélags Suðurlands, verið í
kaupavinnu í Flóanum og Þykkva-
bænum, farið á síld, verið útgerðar-
maður og verið vömbílstjóri hjá
Vestmannaeyj abæ.
Árið 1958 fór Jóhann að læra húsa-
smíði og vann hann við húsasmíðar
í Vestmannaeyjum þar til hann flutti
til Reykjavíkur 1963. Hann vann
einnig við trésmíðar í höfuðborginni
en árið 1972 byggðu þau sér hús í
Mosfellsbæ og þá fór Jóhann að
vinna sem smiður á Reykjalundi.
Hann gerðist svo fljótlega húsvörður
við Varmárskóla og er það enn.
Jóhann gifti sig árið 1939, Hrefnu
Elíasdóttur, f. 1920. Foreldrar
80 ára______________________
Jónína Jóhannesdóttir, Flókagötu
61, Reykjavík, er 80 ára í dag.
60 ára_________________________
Anna María Kristjánsdóttir, Neð-
stutröð 8, Kópavogi, er 60 ára í dag.
50 ára__________________________
Elísabet Bjarnadóttir, Mánár-
bakka, Tjörneshreppi, er 50 ára í
dag.
Njáll Þorbjarnarson, Lynghaga 18,
Reykjavík, er 50 ára í dag.
Sólberg Steindórsson, Birkihlíð,
Staðarhreppi, er 50 ára í dag.
Ásgeir Gestsson, Kaldbaki, Hruna-
mannahreppi, er 50 ára í dag.
Brynja Guðmundsdóttir, Lang-
holtsvegi U0A, Reykjavík, er 50
ára í dag.
Guðný Georgsdóttir, Laugagerðis-
skóla, Eyjahreppi, er 50 ára í dag.
Guðni Kristjánsson, bifreiðarstjóri,
Laufvangi 2, Hafnarfirði, er 50 ára
í dag.
Hrefhu em Elías Nikulásson og
Kristín Mensaldersdóttir, bæði ætf>
uð úr Rangárvallasýslu.
Böm Jóhanns og Hrefiiu em fimm:
Ásta húsmóðir, f. 1940. Hennar mað-
ur er Gísli Eiríksson verslunarmað-
ur og eiga þau fjögur böm. Jóhanna
húsmóðir, f. 1943. Sigurður Símonar-
son, bæjarstjóri á Egilsstöðum, er
hennar maður og eiga þau þijú böm.
Óskar prentari, f. 1947, er giftur
Valgerði Sigurðardóttur og eiga þau
tvö böm. Sigurður, verkstjóri í
Slippnum á ísafirði, f. 1950, er giftur
Guðrúnu Bjömsdóttur og eiga þau
tvö böm. Loks er Kristín húsmóðir,
f. 1957, en hennar maður er Jón
Borgþórsson forstjóri ístels hf.
Jóhann er ættaður undan Eyja-
fjöllum. Faðir hans er Gísli, sonur
Igvars frá Miðbælisbökkum, Gísla-
sonar, b. í Brennu undir Útfjöllun-
um. Móðir Jóhanns er Sigríður, f. á
Krókvelli, Brandsdóttir frá Raufar-
felh.
Jóhann og Hrefna verða ekki
heima á afmælisdaginn.
40 ára_________________________
Haraldur Tómasson, Spítalastíg 5,
Hvammstanga, er 40 ára í dag.
Gunnar Geir Ólafsson, Maríu-
bakka 32, Reykjavík, er 40 ára í
dag.
Sigurður Guðmundsson, Háaleitis-
braut 37, Reykjavík, er 40 ára í dag.
Gylfi Guðjónsson, Úthlíð 8,
Reykjavík, er 40 ára í dag.
Valur Andersen, Boðaslóð 7, Vest-
mannaeyjum, er 40 ára í dag.
Heimir Ingólfsson, Gimli, Grýtu-
bakkahreppi, er 40 ára í dag.
Guðbjörg Þ. Gestsdóttir, Stekk-
holti 13, Selfossi, er 40 ára í dag.
Jóhann K. Gunnarsson, Selsvöllum
5, Grindavík, er 40 ára í dag.
Þórunn Ingólfsdóttir, Breiðvangi
2, Hafnarfirði, er 40 ára í dag.
Arnar J. Magnússon, Sunnuflöt 14,
Garðabæ, er 40 ára í dag.‘
Anna Árnadóttir, Víðilundi 121,
Akureyri, er 40 ára í dag.
Þórdís Ólafsdóttir, Setbergi 20, ölf-
ushreppi, er 40 ára í dag.
Andlát
Díana Mjöll Stef-
ánsdóttir,
Hrafnagilsstræti
21, Akureyri, f.
17. 7. 1974, lést á
Barnaspítala
Hringsins að
morgni 25. ágúst.
Sigurlaug Þórólfsdóttir andaðist á
Droplaugarstöðum 23. ágúst.
Gertrud Hauth Ásgrímsdóttir,
Skriðustekk 27, Reykjavík, lést á
Landspítalanum 26. ágúst.
Sveinn Viggó Stefánsson andaðist
15. ágúst. Útförin hefur farið ffam
í kyrrþey að ósk hins látna.
Helga Olafsdóttir, Blönduhlíð 26,
Reykjavík, lést að heimili sínu 17.
ágúst. Jarðarförin hefur farið fram
að í kyrrþey að ósk hinnar látnu.