Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1987, Blaðsíða 34
34
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987.
Jarðarfarir
Aðalbjörg Halldórsdóttir , Vörðu-
stíg 5, Hafnarfirði, sem lést í Borg-
arspítalanum 16. ágúst, verður
jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju
-fimmtudaginn 27. ágúst kl. 15.
Ýmislegt
Hjúkrunarfélag íslands
flýtur í ný húsakynni
í tilefni þess að Hjúkrunarfélag Islands
hefur flutt starfsemi sína í ný húsakynni
verður móttaka fyrir félagsmenn og gesti
að Suðurlandsbraut 22 föstudaginn 28.
ágúst nk.
Við það tækifæri verður vígt bókasafn
og lesstofa félagsins, sem tileinkað er frú
Sigríði Eiríksdóttur, móður Vigdísar for-
seta, en frú Sigríður var formaður Hjúk-
runarfélagsins í 36 ár.
Stjóm Hjúkrunarfélagsins býður því hér
með félagsmenn sína og gesti velkomna
kl. 16.
Epal hf. flytur
í nýtt húsnæði
Epal hf. hefur flutt starfsemi sína í nýtt
húsnæði að Faxafeni 7, 108 Reykjavík.
Nýja húsið, sem er um 1240 fermetrar, er
teiknað af Manfreð Vilhjálmssyni arkitekt
en allt innandyra skipulagði danski arki-
tektinn Erik Ole Jörgensen
1 seinni tíð hefur Epal reynt eftir föngum
að fá íslenska hönnuði til starfa og verður
lögð aukin áhersla á það í framtíðinni.
En Epal hugar einnig að erlendri hönn-
un og við opnun Epalhússins verður
kynntur nýr sóíi, eftir einn kunnasta
hönnuð Dana, Ole Kortzau, en hann hefur
. teiknað fyrir Epal. Sófinn er framleiddur
hér á landi en ætlaður til sölu bæði hér-
lendis sem erlendis. Sala á sófanum er
þegar hafin í Danmörku, V-Þýskalandi og
Færeyjum, enda hefur hann verið kynntur
Hjá Illums Bolighus og í hinu virta hönn-
unartímariti Design of Scandinavia.
Hönnuður sófans er nú hér á landi ásamt •
tugum erlendra gesta úr röðum húsbúnað-
arframleiðenda og hönnuða í Danmörku.
Ný Regnbogabók:
Refurinn rauði
Regnbogabækur hafa nú sent frá sér fjórðu
kiljuna en hún heitir Refurinn rauði og
er eftir Kanadamanninn Anthony Hyde.
Þetta er fyrsta bók höfundarins en ekki
verður annað sagt en að hann hafi með
bókinni slegið í gegn svo um muni.
Bókin var lengi á metsölulistum víða
um heim og hefur nú verið þýdd á sautján
tungumál. Hún er 320 blaðsíður að lengd
og fæst eins og aðrar Regnbogabækur í
bóka- og smásöluverslunum um land allt.
Einnig má gerast áskrifandi að Regn-
bogabókum.
Prestafélag Suðurlands
fimmtugt um þessar mundir
Prestafélag Suðurlands er fimmtugt um
þessar mundir en í tilefni af því hefur ve-
rið gefið út sérstakt afmælisrit félagsins.
í ritinu er að finna margar athyglisverðar
greinar um trúmál og kirkjumál en meðal
greinahöfunda má nefha sr. Hannes Guð-
mundsson, sr. Heimi Steinsson, dr. Jakob
Jónsson og sr. Amgrím Jónsson.
Samkvæmt lögum félagsins er tilgangur
þess í því fólginn „að glæða áhuga félags-
manna á öllu því er að starfi þeirra lýtur,
auka samvinnu þeirra og gæta réttar
þeirra".
Á þessum tímamótum verður aðalfundur
Prestafélags Suðurlands haldinn að Laug-
arvatni sunnudaginn 6. september og
verður þá sérstök hátíðardagsskrá í tilefni
afmælisins. Núverandi formaður félagsins
er Frank M. Halldórsson.
Ferðalög
Helgarferðir Ferðafélagsins
28.-30. ágúst:
1) Óvissuferð.
Gist í húsum.
2) Nýidalur - Laugafell/nágrenni.
Gist í sæluhúsi Ferðafélagsins v/Nýjadal.
í ási norðvestur af Laugafelli eru laugarn-
ar sem það er kennt við. Þær eru um 40°
-50" C. Við laugamar sjálfar em vallendis-
brekkur með ýmsu túngresi þótt í um 700
m hæð sé.
3) Landmannalaugar - Eldgjá.
Gist í sæluhúsi Ferðafélagsins í Laugum.
Ekið til Eldgjár á laugardeginum, en á
sunnudag er gengið um á Laugasvæðinu.
4) Þórsmörk.
Gist í Skagafjörðsskála/Langadal. Göngu-
ferðir við allra hæfi. Ratleikurinn í
Tindfjallagili er afar vinsæll hjá gestum
Ferðafélagsins.
Brottfor í allar ferðirnar er kl. 20.00 föstu-
dag. Upplýsingar og farmiðasala á skrif-
stofunni, Öldugötu 3.
ov
AKUREYRI
Blaðberi óskast á Ytri-Brekkuna.
Upplýsingar í síma 96-25013.
REYKJKMÍKURBORG
Aaudtf/i Stadun,
FÓSTRUR - STARFSFÓLK
Okkur í Ægisborg vantar FÓSTRUR og
STARFSFÓLK til starfa nú þegar.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
14810.
FilöLBRAinASKÓLINN
BREI0H0LTI
FRÁ FJÖLBRAUTASKÓLANUM í BREIÐHOLTI
Dagskóli FB verðursettur í Bústaðakirkju mánudaginn
31. ágúst kl. 10.00 árdegis. Nýnemar eiga að koma
á skólasetninguna.
Allir nemendur dagskólans fá afhentar stundaskrár
þriðjudaginn 1. september kl. 13.00-16.00 og eiga
þá að greiða skólagjöld, sem eru á haustönn 1987,
kr. 2.000, auk efnisgjalda í verklegum áföngum.
Kennarar FB eru boðaðir á almennan kennarafund
þriðjudaginn 1. september kl. 9.00 árdegis.
Kennsla hefstfimmtudaginn 3. september skv. stunda-
skrá.
Skólameistari.
I gærkvöldi
Ásgeir Eggertsson nemi:
Via Mala hápunktur kvöldsins
Nýi framhaldsþátturinn í ríkis-
sjónvarpinu, Via Mala, var hápunkt-
ur kvöldsins í gærkvöldi. Þessi
þáttur er fjölþjóðaframleiðsla og ger-
ist í Ölpunum.
Mario þessi, sem leikur í þáttun-
um, er sérdeilis góður leikari að
mati Þjóðverja en hann hefur m.a.
fengið verðlaun í Múnchen, gullskó
sem er eftirlíking á skóm Chaplins.
Áður en þátturinn hófst tók ég
mér bók í hönd. Það var ferðalýsing
nokkurra Þjóðverja sem ferðuðust
um ísland 1933 og endurspeglast vel
þjóðernishyggja þýskra nasista en í
bókinni lýstu Þjóverjamir aðdáun
sinni á hversu hreinn hinn aríski
kynstoíh varðveittist hér á landi.
Það minnti mig aftur á fréttatíma
Stöðvar 2 en þar var fólk tekið tali
í Kringlunni og spurt um innflutning
erlends vinnuafls. Þar komu fram
miklir fordómar gagnvart fólki af
Ásgeir Eggertsson
suðrænum uppruna sem leiddi aftur
hugann að hugmyndum nasista um
hreinan arískan kynstofii.
Ég horfði annars á báða fréttatíma
sjónvarpstöðvanna og fannst mér
sem Ríkissjónvarpið hefði upp á að-
eins meira að bjóða í sínum tíma
heldur en Stöð 2.
Annað sem ég sá í sjónvarpi var
heimildamynd um íslenska silfur-
smíði fyrr og nú. Þátturinn var
fróðlegur en fulllangdreginn, það
mætti að ósekju hafa aðeins meiri
hraða í slíkum þætti.
Ég hlustaði ekkert á útvarp í gær.
Ég er annars svo nýkominn til lands-
ins að ég hef ekki enn myndað mér
skoðun á nýju stöðvunum en mér
sýnist svona fljótt á litið að þær
höfði ekkert sérstaklega til mín. Mér
finnst að þær mættu að ósekju bjóða
upp á meira tafað mál, þætti með
fréttatengdu efni og þætti um menn-
ingu og listir.
Dagsferðir Feröafélagsins:
Sunnudagur 30. ágúst:
1) kl. 08 - Þórsmörk - dagsferð.
Verð kr.' 1.000.
2) kl. 09 - Kóranes á Mýrum (strandstað-
ur Porqu’a pas).
Ekið í Straumfjörð. Staðkunnugir farar-
stjórar. Verð kr. 1.000.
3) kl. 13 - Eyrarfjall í Kjós (415 m).
Verð kr. 600.
Brottfor frá Umferðarmiðstöðinni, austan-
megin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir börn í
fylgd fullorðinna.
Útivistarferðir
Simar: 14606 og 23732.
Helgarferðir 28.-30. ágúst.
1. Þórsmörk.
Góð gisting í Utivistarskálunum, Básum.
Gönguferðir við allra hæfi.
2. Eldgjá - Langisjór - Sveinstindur.
Gist í húsi sunnan Eldgjár. Á laugardegin-
um er farið að Langasjó og gengið verður
á Sveinstind. Komið við í Laugum á
sunnudegi. Frábær óbyggðaferð. Uppl. og
farm. og skrifstofunni, Grófinni 1.
Sunnudagur 30. ágúst.
Kl. 8.00 Þórsmörk.
Dagsferð. Verð kr. 1.000.
Kl. 10.30 Línuvegurinn - Skjaldbreiður.
Ekinn Línuvegurinn norður fyrir fjallið
og gengið á það. Ekið heim um Hlöðu-
velli. Verð kr. 1.000.
KI. 13.00 Botnsdalur.
Berjatínsla og ganga. Gengið að Glym,
hæsta fossi landsins. Verð kr. 600.
Ath. frítt fyrir böm í fylgd fullorðinna. f
dagsferðir þarf ekki að panta. Brottför er
frá BSf, bensínsölu.
Eldur í
rúmfötum
Slökkvilið og lögregla voru köll-
uð að Gistiheimilinu Snorrabraut 61
í nótt. Þar hafði kviknað eldur í
rúmfötum. Sá sem var í rúminu var
fluttur til öryggis á slysadeild. Fékk
hann að fara heim eftir skoðun.
Ekki er ljóst hvernig eldurinn kvikn-
aði, þó er talið líklegt að sígaretta
eigi hlut að máfi. -sme
Mertillinn í Þoriákshöfh:
„Sjómenn ekki verið
snuðaðir um krónu/‘
segir Guðmundur Sigurðsson skrifstofustjóri
„Við erum margbúnir að segja sjó-
mönnunum og fulltrúum samtaka
þeirra frá því að við vorum ekki að
flytja þennan fisk út í gámum. Það sem
við gerðum var að við fengum fisk hjá
íslenskum nýfiski og greiddum hann
í sama. Þann fisk ffutti svo íslenskur
nýfiskur út í gámum en það kom okk-
ur ekkert við. Því hafa sjómennimir
á Jóni Vídafín ekki verið snuðaðir um
krónu,“ sagði Guðmundur Sigurðsson,
skrifstofustjóri Meitilsins í Þorláks-
höfn, í samtali við DV.
Guðmundur sagði að frystihús Meit-
ifsins hefði fengið þorsk hjá Islenskum
nýfiski í maí í fyrra en endurgreitt
hann með grálúðu sem síðan hefði
verið flutt út af íslenskum nýfiski.
Skýrslan sem DV birti sýndi að 40 lest-
ir af grálúðu úr afla Jóns Vídalíns 22.
maí í fyrra var einmitt þessi fiskur,
að sögn Guðmundar.
Hann sagði að í hvert sinn sem
Meitillinn flytti út fisk í gámum fengju
sjómennimir greitt samkvæmt því
verði sem fengist erlendis.
Guðmundur var spurður hvers
vegna þessi mikla óánægja væri hjá
áhöfn Jóns Vídalín og hvers vegna
menn væm að hætta á góðu aflaskipi,
þar á meðal skipstjórinn?
„Skipstjórinn hefur gefið mér þá
skýringu að hann langi að breyta til.
Varðandi hina þá var einn maður um
borð sem æsti alla hina upp, slíkt er
afþekkt í litlum hópi,“ sagði Guð-
mundur.
Þá var honum bent á að sá maður
hafi verið rekinn fyrir ári síðan en
samt héldi óánægjan áfram og nokkr-
ir af áhöfhinni biðu eftir því að fá pláss
annars staðar.
Guðmundur svaraði því tif að senni-
lega hefði bara einhver annar tekið
við að ala á óánægjunni meðal áhafn-
arinnar, önnur gæti skýringin ekki
verið. Hann spurði á móti hvers vegna
afdrei heföi heyrst í áhöfii hins togar-
ans, Þorláks ÁR? -S.dór
Það hafi því ekki verið Meitillinn sem flutti fiskinn út heldur þau fyrirtæki sem
tilnefnd eru i skýrslunni.