Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1987, Qupperneq 36
36
FIMMTUDAGUR 27. ÁGtJST 1987.
Sviðsljós
Peter Holm
hinn sænskættaði, fyrrverandi
eiginmaður Joan Collins, fer
heldur hörðum orðum um sína
fyrrverandi konu. Peter segir
Joan vera taugaveiklaða í meira
lagi. Hún sé ekkert nema ytra
borðið og væri ekki neitt hefði
* hún ekki útlitið með sér. Segir
Peter Joan hreinlega láta aðra
stjórna sér, hún viti aldrei í
hvorn fótinn hún eigi að stíga
fyrr en henni hafi verið sagt fyr-
ir af öðrum. Joan þurfi eigin-
mann sem fjarstýri henni og
nenni að hlusta á innihaldslaust
nöldrið í henni alla daga.
"I_____________:---------------
Sjötugs-
afrnæli
fagnað
Brunabótafélag íslands varð sjö-
tíu ára þann fjórtánda ágúst.
Haldið var feiknarmikið afmælis-
hóf á Hótel Sögu. Þar voru
samankomnir allir starfsmenn fyr-
irtækisins, velunnarar og makar.
Eftir hátíðarkvöldverð voru flutt
ávörp og starfsmenn heiðraðir.
Kristinn Sigmundsson söng ein-
söng og loks var stiginn dans til
klukkan tvö um nóttina. Þeir sem
fluttu ávörp voru Guðmundur
Bjarnason tryggingamálaráðherra,
Jan Erik Langangen, forstjóri
Storebrand, og Bjami Þórðarson,
formaður Sambands íslenskra
tryggingafélaga. Fimm starfsmenn
Brunabótafélagsins voru heiðraðir,
þeir Ásgeir Bjarnason, Ásgarði,
Páll F. Hólm, Hnífsdal, Tore
Melgárd, Osló, Stefán Reykjalín,
Akureyri, og Magnús Kristjáns-
son, Þambárvöllum.
Ingi R. Helgason, forstjóri Brunabótafélagsins, setur afmælishófið í Súlnasal Hótel Sögu.
Við fagurlega skreytt borðið sitja Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri og kona hans, Guðrún Jónsdóttir. Við hlið þeirra eru Magnús E. Guðjónsson,
framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, og kona hans, Alda Bjarnadóttir.
Gils Guömundsson, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður, situr hér
á milli tveggja systra sem báðar starfa hjá Brunabótafélaginu. Á hægri
hönd Gils er eiginkona hans, Guðný Jóhannesdóttir, en hún hefur unn-
ið með öllum forstjórum Brunabótafélagsins frá upphafi. Á vinstri hönd
Gils er Elfn Jóhannesdóttir, ritari i skfrteinadeild.
Gaivaskir sölumenn Brunabótafélagsins. Frá vinstri er Þór Ingólfsson
og kona hans, Rannveig Sigurðardóttir, þá Guðmundur Albertsson og
kona hans, Þórdis Þórðardóttir.
Starfsfólk úr tjóna- og skírteinadeild. Frá vinstri Asgeir Ágústsson, As-
dís Hartmanns, Inga Eyjólfsdóttir og Magnús Tulinius.
Díana prinsessa
er mjög óhress með þann orð-
róm, sem gengið hefur fjöllun-
um hærra, að hún og Kalli prins
séu komin að því að skilja. Illar
tungur hafa komið þessum
kjaftagangi af stað. Talað er um
að þau fjarlægist sífellt hvort
annað, Díana hafi gert skyssu
þegar hún giftist Kalla því að
hann sé of gamall fyrir hana.
Nær hefði verið að hún hefði
gifst bróðurnum Andrew. Díana
reynir bara að láta sem hún
heyri þetta ekki en á þó oft er-
fitt með sig þegar kjaftagangur-
inn er sem mestur. Segir hún
hjónabandið vera bara í luk-
kunnar ástandi og geti vart verið
betra. Hún sé mjög hamingju-
söm með Kalla og ánægð með
hlutskipti sitt.
Victoria
Principal
eða Pamela í Dallas, er víst ekki
með öllu ánægð með lífið og
tilveruna. Segir hún kvikmynda-
bransann vera harðan og
óvæginn og ekkert þýði annað
en að sýna hörku vilji maður
komast áfram. Stúlkunni hefur
nú svo sem vegnað ágætlega
hingað til - barist með kjafti og
klóm og náð sínu fram - þannig
að hún getur ekkert kvartað.
Victoria segir kvikmyndaheim-
inn mannskemmandi og lýj-
andi. En það er nú ekki aftur
snúið og er daman svo sem
ekkert að spá í það. Að lokum
segir Victoria að hefði hún ekki
farið út í leiklistina þá væri hún
örugglegastarfandi að einhverj-
um líknarmálum í dag.
Hjónin Magnús H. Magnússon, fyrrverandi ráðherra og bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, og Marta Björnsdóttir virða fyrir sér matseðil kvölds-
ins.