Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1987, Qupperneq 37
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987.
DV
Svona getur
fólk breytt sér...
Alveg er það ótakmarkað hve fólk getur breytt sér, til hins betra
eða verra, með hjálp ýmissa hluta, svo sem með snyrtivörum,
hárgreiðslu, hárlitun, megrun, klæðaburði og fleira.
Fína, fræga fólkið er sérstaklega iðið við að „breyta sér", skipta
um stíl, kalla fram þann sem hentar í hvert skipti. Það er ekki svo
lítið atriði að útlitið sé við hæfi þegar starf viðkomandi felst í því
að koma sér og sínu á framfæri og vera sífellt að koma fram fyr-
irfjölda fólks. Hérfyrirneðan másjádæmi umgífurlegarbreyting-
ará útliti frægsfólks.
Diane Keaton er orðin „skvísu-
legri“ en hún var hérna áður -
hugsar orðið meira um tískuföt sem
og allt úlitið.
ElisabethTaylor hefur nú heldur
betur breyst á síðustu árum. Hún
átti um tíma við offituvandamál að
stríða en eins og sjá má hefur hún
lagt heil ósköp af. Einnig hefur hún
breytt um hárgreiðslu og virkar
mörgum árum yngri í dag. Sannar-
lega allt önnur Ella...
Madonna skiptir nú svo oft um stil
að menn verða að hafa sig allan við
til að fylgjast með henni. Á efri
myndinni er hún „pönkuð" en í dag
er hún orðin fínasta dama - Marilyn
Monroe númer tvö eins og sagt er.
Boy George er dæmi um mann
sem hefur gjörbreytt um „karakter"
á stuttum tíma. Langa, dökka hárið
man sinn fífil fegri sem og auga-
brýrnar, þær hafa fengið að fjúka.
Nú er hárið snöggklippt og Ijóst á
litinn.
Alison Moyet hefur grennst
heilmikið og breytt um hárgreiðslu
og snyrtingu, er öllu huggulegri í
dag eftir breytinguna. Eða hvað... ?
Pönkuð
brúð-
Umtöluðustu brúðhjón poppheims-
ins um þessar mundir eru án efa
Nina Hagen og maður hennar, Lor-
enz. Þau eru í meira lagi sérstakt
par. Hún er þrjátíu og tveggja ára
en Lorenz er aðeins átján ára gam-
all. En ekki nóg með það heldur er
hann algjör pönkari með hárið úfið
í allar áttir eins og sjá má á mynd-
inni. Nina hefur nú hingað til svo
sem ekki kallað allt ömmu sína í
klæðaburði og framkomu þannig að
eflaust eiga þau ágætlega saman
þrátt fyrir aldursmuninn.
hjón
Hinn nýi eiginmaður Ninu er frá
Suður-Afríku og leikur á bassagítar
í þarlendri hljómsveit. Hjúin létu
pússa sig saman á eyjunni Ibiza að
viðstöddum fjölda fólks og fór allt
saman mjög vel fram. Nina lætur
hafa eftir sér að hún sé sérlega á-
nægð með mannsefnið en viðurkenn-
ir þó að hann sé nú talsvert ungur.
„Hann er góður þrátt fyrir það,“ seg-
ir hún hæstánægð. Lorenz fær hins
vegar ekki að segja aukatekið orð
um málið.
Nina Hagen og eiginmaðurinn, Lorenz.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
\
David Bowie
hefur orðið miklar áhyggjur af
aldri sínum. Eins og allir aðrir
horfir hann upp á það að aldur-
inn færist hratt og örugglega
yfir hann. Segir David að nú
orðið séu stelpurnar miklu ró-
legri á tónleikum hans og
annars staðar þar sem hann
kemur. Það eitt sé líklega besta
dæmið. Hann segir að það sé
skárra að hafa of margarskrækj-
andi stelpur í kringum sig heldur
en of fáar. David verður nú víst
bara að sætta sig við þetta hlut-
skipti rétt eins og annað fólk
og kannski taka orð margra'til
athugunar: „Að það sé eitthvað
heillandi við hvern aldur".
Tina Turner
lenti í heilmiklum vandræðum í
sumarfríi sínu á dögunum. Hún
var stödd á afskekktum stað á
Spáni og hugðist eitt kvöldið fá
sér góðan kvöldverð. Það er nú
svo sem ekkert stórmerkilegt en
þegar kom að því að greiða var
ekki hægt að nota greiðslukort
en það var það eina sem hún
hafði meðferðis. Tinu var auð-
vitað brugðið en reikningurinn
var hár og bað hún um leyfi að
fá að koma aftur daginn eftir
og greiða þá. Það var ekki tekið
í mál. Söngkonan þrást nú frek-
ar illa við og spurði hvort þeir
treystu virkilega ekki svona
þekktri manneskju. En þjónarnir
þekktu Tinu alls ekkert og höfðu
aldrei heyrt á hana minnst. „Tina
Turner, hver er nú það?" Þá var
Tinu nú alveg nóg boðið og
rauk út og kallaði starfsfólkið
öllum illum nöfnum.
Annie Lennox,
söngkonan í Eurythmics, langar
til að reyna fyrir sér í kvikmynd-
um eins og margir sem ná því
að verða dálítið þekktir. Það er
eins og kvikmyndaleikur sé
toppurinn hjá fólki sem er frægt
fyrir eitthvað annað. Annie reyn-
ir nú af öllum mætti að koma
sér á framfæri en eitthvað geng-
ur treglega. Kvikmyndaframleið-
endur hafa ekki sýnt henni
nokkurn áhuga. Annie dreymir
um að leika aðalhlutverk í mynd
með þekktum leikstjóra sem
kann sitt fag, eins og hún segir.