Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1987, Page 38
-38
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987.
Kvikmyndahús
Bíóborgin
Tveir á toppnum
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Sérsveitin
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bláa Bettý
Sýnd kl. 5, 7.10 og 9.20.
Bíóhúsið
Um miðnætti
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Bíóhöllin
Tveir á toppnum
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
The Living Daylights
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Angel Heart
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Lögregluskólinn 4.
Sýnd kl. 5 og 7.
Innbrotsþjófurinn
Sýnd kl. 9 og 11.
Blátt flauel
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Háskólabió
Ginan
Sýnd kl. 7, 9 og 11.
Laugarásbíó
Rugl i Hollywood
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Valhöll
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Foli
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Regnboginn
Vildi að þú værir hér
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15.
Kvennabúrið
Sýnd kl. 9 og 11.15.
Villtir dagar
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15.
Herdeildin
Sýnd kl. 3, 5.20, 9 og 11.15.
Þrír vinir
Sýnd kl. 3, 5 og 7.
Otto
Sýnd kl. 3.05, 5.05, 9.06 og 11.15.
Herbergi með útsýni
Sýnd kl. 7.
Stjömubíó
Óvænt stefnumót
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Neðanjarðarstöðin
Sýnd kl. 7 og 11.
Wisdom
Sýnd kl. 5 og 9.
LUKKUDAGAR
27. ágúst
73027
Hljómplata frá
FÁLKANUM
að verðmæti
kr. 800.-
Vinningshafar hringi í sima
91-82580.
Urval
, vid allra hœfi
Kvikmyndir__________________________________ dv
Laugarásbíó/Valhöll:
Piýðileg bama- ogfjölskyldumynd
Valhalla (teiknimynd)
Dönsk frá Swan Film Production
Leikstjóri: Peter Madsen
Helstu raddir: Þór = Jóhann Sigurðar-
son, Loki = Þórhallur Sigurðsson (Laddi),
Útgarða-Loki = Kristinn Sigmundsson,
Sögumaður = Flosi Ólafsson.
Einn umtalaðasti listamaður þjóð-
arinnar, Hrafn Gunnlaugsson,
sagði í sjónvarpsþætti nýlega að
erfitt væri að gera kvikmynd eftir
Islendingasögunum, þeir sem hefðu
lesið sögurnar væru þegar búnir
að skapa þær í huganum. Við þann
leikstjóra keppir enginn. Sama er
uppi á teningnum þegar horft er á
kvikmyndinaValhöll.Þeim sem les-
ið hafa goðafræðina finnst sjálfsagt
ýmislegt framandi og öðru ofaukið.
Hins vegar er myndin alger perla
fyrir þá sem ekki hafa lesið um efni
hennar.
Sagt er frá systkinunum Þjálfa
og Röskvu sem ganga í þjónustu
þrumuguðsins Þórs eftir að Þjálfi
hefur óhlýðnast fyrirmælum hans.
I þjónustu guðsins er í mörgu að
snúast og þar kynnast þau jötna
Þjálfi „beljubani" slæst við húsdýrin sem eru ímyndaðir jötnar en hann
leikur sjálfan þrumuguðinn Þór. Hann á þó eftir að kynnast bæði Þór
og jötnum.
barninu Kverki sem er hrekkjusvín
frá náttúrunnar hendi en þó besta
skinn. Með þeim tekst þó hin besta
vinátta.
Þór er þó lítið hrifinn af Kverki
og þau fara ásamt Loka Laufeyjar-
syni að skila pilti í Jötunheima. I
þeirri för koma þau í höll Útgarða-
Loka sem er jötunn allógurlegur.
í höllinni há gestir einvígi og
leika við heimamenn og fá hina
háðulegustu útreið. Ekki er þó
allt sem sýnist og að mörgu skal
hyggja í heimi fláræðis, galdra og
tröllskapar.
Eins og áður sagði er hér um
prýðilega barna- og fjölskyldu-
mynd að ræða. Framtak Laugarás-
bíós að setja íslenskt tal við
myndina gerir hana enn aðgengi-
legri fyrir þennan hóp. Það er
tilvalið að sýna krökkunum þessa
mynd, aðrir sem lesið hafa goða-
fræðina eru litlu nær.
-JFJ
Á ferðálagi
Hvert á að fara í berjamó?
Nú er sá tími þegar heilu fjölskyld-
umar hoppa inn í fjölskyldubílinn
og halda út í sveit upp um allar
brekkur í berjaleit. Þetta sumar hef-
ur verið með afbrigðum gott berja-
sumar og stór ber er bókstaflega alls
staðar að finna. Krækiber og bláber
finnast um allt land en aðalbláberin
vinsælu halda sig mest á Vestfjörð-
um, á Norðurlandi við Húsavík og
á Austurlandi. n
„Næsta helgi verður alveg toppur-
inn í þroskun bexja þetta árið -
ákjósanlegasta helgin í berjatínsl-
unni,“ sagði Þórunn Þórðardóttir
hjá Ferðafélagi Islands. „Eftir næstu
helgi fer að verða hætta á nætur-
frosti. Þá verða berin svo viðkvæm
að ekki er hægt að npta beijatínur
vegna hættu á því að kremja berin.
Berin verða einnig bragðminni ef
frostið kemst í tæri við þau,“ bætti
Þórunn við.
Reykvíkingar þurfa ekki að fara
langt til að komast í afbragðs blá-
og krækiberjalönd. Heiðmörk er
alltaf gott svæði en þar er tínt svo
mikið og svo snemma að nú er búið
að hreinsa flestöll ber þar. Á Þing-
völlum og í Grafhingnum eru ágætis
lönd og svæðið býður jafnframt upp
á skemmtilega útivist og gönguleið-
ir. Það er alltaf gaman að tjaldútileg-
um og alveg er tilvalið að tjalda á
Þingvöllum þó að stutt sé í bæinn.
Náttúrufegurðin er þar einstök og
alltaf er eitthvað nýtt að sjá í ná-
grenninu.
Mjög vinsæll beijastaður Reykvík-
inga er uppi í Hvalfirði en þar inni
í Botnsdal og Brynjudal eru af-
bragðsberjasvæði. Fyrir þá sem ekki
nenna að tína ber er nóg við að vera
í Hvalfirðinum. Brynjudalsá er fín
veiðiá og þar er hægt að gleyma sér
við veiðar á meðan aðrir fjölskyldu-
meðlimir bogra yfir beijum uppi í
brekkunum. Kræklingafjörur Hval-
fjarðarins eru einnig margrómaðar
og gömul sögn segir að höfuðdagur-
inn sé einn besti kræklingatínslu-
dagur ársins. Þá er stórstreymt og
þarafleiðandi góðar fjörur. Nú vill
svo skemmtilega til að höfuðdaginn
ber einmitt upp á nk. laugardag, 29.
ágúst. Það er því ekki amalegt að
skreppa í Hvalíjörðinn, fá sér ber,
kræklinga og eitthvað gott í soðið.
Dálagleg búbót það á einni helgi.
Fyrir göngugarpana er Botnsdal-
urinn meira spennandi en Brynju-
dalurinn. Þar er tilvalið að bregða
sér að tínslu lokinni upp að Glym,
hæsta fossi landsins, en hann er um
200 metra hár og fellur ofan í mikið
og stórbrotið gljúfur. Til að sjá foss-
inn verður að fara yfir ána og ganga
upp með henni hægra megin. Fyrir
ofan fossinn á bak við Hvalfellið er
Hvalvatn sem er dýpsta stöðuvatn
landsins, eða um 160 metra djúpt.
Þeir sem ekki h'ta við öðrum beij-
um en aðalbláberjum ættu að finna
sitt gósenland á Barðaströndinni.
Króksfjarðamesið og fjörðurinn em
geysivinsælir staðir auk Þorska-
fjarðarins. Þangað er t.d. hægt að
taka Vestfjarðaleið. Að Hótel Bjark-
arlundi er tjaldstæði og hægt er að
komast í gott svefnpokapláss með
eldunaraðstöðu að Bæ í Króksfirði,
auk þess sem þar er búð og hesta-
leiga.
Það hafa flestir gaman af berjatinslu, ekki síst bömin. Góð hreyfing og
útivera stendur alltaf fyrir sínu, jafnvel þótt berin villist flest upp í munn.
MH
MEIRI
HÁTTAR
SMÁ-
AUGLÝSINGA-
BLAÐ
Auglýsingasíminn
er
27022
Útvaip - Sjónvaip
Þorsteinn Thorarensen bregður á leik með Gosa og Nínu Björk Jónsdóttur
i Morgunstund bamanna.
RÚV, rás 1, kl. 9.05:
Óstytt þýðing á
spýtustráknum
Gosa
Þorsteinn Thorarensen hóf í
morgun að lesa nýja sögu í Morgun-
stund bamanna, hina heimsfrægu
ítölsku sögu Gosa eftir Carlo Col-
lodi. Spýtustrákinn Gosa þekkja
allir, hrekkjalóminn og pörupiltinn
sem gengur í gegnum fjölmargar
þrautir þangað til hann verður að
almennilegum strák. Ef hann skrö-
kvar fer nefið á honum að vaxa eða
hann breytist í asna eða hvalur
gleypir hann. Sagan af Gosa er fúll
af gríni og gamni og er oft nefhd
þjóðardýrgripur ítala.
Þorsteinn les nýja þýðingu sína
og er það fyrsta óstytta þýðingin á
Gosa á íslensku.