Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1987, Qupperneq 40
RETTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500
krónur. Fyrir besta fréttaskotió í hverri viku greið-
ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstlórn - Auglýsingar - Askrift - Dreifing: Sími 27022
FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987.
Svefneyjamálið:
Til sak-
sóknara
fyrir helgi
Samkvæmt upplýsingum frá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins er rannsókn
á svokölluðu Svefheyjamáli á loka-
stigi. Verið að vinna við frágang
málsins og er von til þess að það
fari til ríkissaksóknara fyrir helgi.
„Það verður ekkert fjallað um
málið opinberlega," sagði rannsókn-
arlögreglumaður þegar spurt var
vegna hve margra bama hefði verið
kært í málinu.
Hallvarður Einvarðsson ríkissak-
sóknari sagði við DV í gær að á
þeim hvíldi sú skylda að hraða með-
—'ferð opinberra mála. Svefneyjamálið
fengi meðferð samkvæmt því þegar
það kæmi til þeirra.
-sme
Kartoflumar:
Verðið á eftir
að lækka
meira
„Það er nokkuð víst að verðið á
kartöflum á eftir að lækka enn meira
vegna mikillar sprettu og spennu á
markaðnum," sagði Páll Guðbrands-
son í Hávarðarkoti, formaður
Landssambands kartöflubænda, í
samtali við DV.
„Það er ekkert skrýtið þótt fram-
leiðendur, sem urðu að henda
hundrað tonnum af framleiðslu síð-
asta árs, séu með einhverjar rósir
núna þegar þeir sjá fram á að þurfa
kannski að henda tvö hundruð tonn-
um í ár vegna mikillar sprettu.
Svona útsala kemur bara mönnum
líjhsjálfúm í koll því lækkað verð eykur
ekki neysluna. En Tryggvi Skjaldar-
son á örugglega ekki eftir að sitja
einn að torgsölunni,“ sagði Páll.
-ATA
LOKI
Kratar þurfa ekki að kaupa
banka - þeir taka hann bara
yfir!
Umfangsmikil uppskipti eru fram-
undan á bankastjórastöðum í ríkis-
bönkunum.
Fyrirsjáanlegt er að þrjár banka-
stjórastöður muni losna á næstunni,
ein í Búnaðarbanka íslands og tvær
í Landsbanka íslands. Bankastjóra-
stöður hjá þessum bönkum, sem eru
tveir langstærstu bankar þjóðarinn-
ar, eru með allra eftirsóttustu
embættum.
Venjulega blandast stjómmál inn
í þessar ráðningar og svo mun einn*
ig vera nú enda bankaráðin skipuð
af Alþingi.
Samkvæmt heimOdum DV er fyrir-
hugað að Kjartan Jóhannsson,
aiþingismaður Alþýðuflokksins, taki
við starfi Stefáns Hilmarssonar,
bankasijóra Búnaðarbankans, en
Stefán lætur bráðlega af störfúm
vcgna aldurs.
Þá hefur Matthías Bjamason, fyrr-
verandi ráðherra, skýrt frá því að
áformað sé að Valur Amþórsson,
stjómarformaður SlS og kaupfélags-
síjóri KEA, muni taka við banka-
stjórastöðu í Landsbankanum í stað
Helga Bergs. Ekki er þó búist við
að Helgi láti af störfum vegna ald-
urs fyrr en eftir 2-3 ár.
„Það er rétt að slíkt hefúr borist
í tal. Engin ákvörðun hefúr hins
vegar verið tekin enda er málið alls
ekki á dagskrá að ég best veit," sagði
Valur í samtali við DV í morgun.
Loks er afráðið að Jónas H. Har-
alz muni flyfjast til Washington
bráðlega og láta þar með af störfúm
sem bankastjóri Landsbankans.
Óstaðfestar fregnir herma að hann
muni taka við stöðu hjá Alþjóða
gjaldeyrissjóðnum. Ekki er ljóst hver
verður eftirmaður hans en helst hef-
ur verið rætt um menn innan
bankans.
-ES
Stórhýsi óhreyft í tvö ár
- hefur þegar kostað 20-25 milljónir króna
Iþróttabandalag Reykjavíkur hóf
á árinu 1981 byggingu stórhýsis í
Grímsnesi. Byggingin er nú tæplega
fokheld og hefur kostað að núvirði
20 til 25 milljónir króna. Samkvæmt
upplýsingum sem DV fékk hjá Sigur-
geiri Guðmannssyni, framkvæmda-
stjóra Í.B.R., hefur ekkert verið
unnið við bygginguna síðastliðin tvö
sumur.
Húsið er 500 fermetrar að grunn-
fleti. Samtals er húsið á milli tólf og
þrettán hundruð fermetrar.
Sigurgeir segir að menn deili um
hvað gera skuli við húsið. í fyrstu
var ætlunin að húsið yrði notað fyr-
ir æfingabúðir og fleira. Hvers vegna
ráðist hefði verið í bygginguna svo
skammt frá Laugarvatni þar sem
fyrir er aðstaða fyrir æfingabúðir,
sagði Sigurgeir að á þeim tíma sem
byrjað var að byggja húsið hefði
verið meiri stemning fyrir þessu en
nú er.
Sigurgeir sagði að kannaðir hefðu
verið möguleikar á sölu hússins en
án árangurs.
-sme
Veðrið á morgun:
Þurrt, bjart
oghlýttfyrir
austan
Það verður fremur hæg vestan-
og suðvestanátt um land allt. Búist
er við skúrum vestanlands en þurrt
og bjart verður fyrir austan. Hiti
verður á bilinu 9 til 15 stig, kald-
ast á Vestfjörðum en hlýjast við
Eyjafjörðinn og austanlands.
Hús Í.B.R. í Grímsnesi. Ekkert hefur verið unniö við bygginguna í tvö ár. Ágreiningur er uppi um hvað gera
eigi við húsið. DV-mynd Brynjar Gauti
Hvað verður gert við hús ÍBR í Grímsnesi?
V
10
Jón Baldvin vill selja:
15fyrirtæki
á sölulista
Listi yfir ríkisfyrirtæki, sem stendur
til að selja, er til umræðu í ríkisstjóm-
inni. Þetta er „sölugóss“ sem Jón
Baldvin Hannibalsson fjármálaráð-
herra hefur lagt til að selt verði sem
fyrst.
Fyrri ríkisstjóm haíði mörg þessara
fyrirtækja á sölulista sínum en marg-
víslegar hindranir urðu til þess að
ekki var ráðist í sölu þeirra. Nú er að
sjá hvort nýrri ríkisstjóm gengur bet-
ur.
9 fyrirtæki, alfarið í eigu ríkisins, eru
á listanum: Búnaðarbanki íslands,
Lyfjaverslun ríkisins, Áburðarverk-
smiðjan í Guíúnesi, Ríkisprentsmiðjan
Gutenberg, Útvegsbankinn hf„ Ferða-
skrifstofa ríkisins, ákveðnir óskil-
greindir hlutar af starfsemi Pósts og
síma, Laxeldisstöðin í Kollafirði og
Síldarverksmiðjur ríkisins.
Þá er einnig lagt til að seld verði
hlutabréf ríkisins í: Þróunarfélaginu,
Sjóefiiavinnslunni á Reykjanesi, Jarð-
borunum, Steinullarverksmiðjunni,
Þormóði ramma og Hólalaxi.
Ekki virðist þegar hafa verið tekin
um það ákvörðun í ríkisstjóminni að
selja þessi fyrirtæki heldur eru þau
einungis til umræðu nema Útvegs-
bankinn að sjálfsögðu. Fljótlega má
þó búast við að ákvarðanir verði tekn-
ar og einhver þessara fyrirtækja fari
að birtast á sölulistum. Ekki veitir af
í galtóman ríkiskassann. -ES
Hannes Hlrfar
vann
Hannes Hlífar Stefansson og Amþór
Einarsson unnu á Lloyds skákmótinu
í gær og Þröstur Þórhallsson er með
unna biðskák gegn skákmanni frá
Bangladesh.
Skák Þrastar fór i bið í gær eftir um
100 leiki. Þröstur er með tvo hróka
og peð á móti tveimur hrókum and-
stæðingsins og taldi í morgun að
skákin væri unnin.
Vinni Þröstur í dag, eins og flest
bendir til, verður hann með 3,5 vinn-
inga ásamt Hannesi, Amþór er með 3
vinninga en Jón G. Viðarsson 2,5,
hann tapaði skák sinni í gær.
í dag teflir Hannes Hlífar við Banda-
ríkjamanninn Dlugy en Þröstur teflir
við Zuger frá Sviss. Efstir á mótinu
eru Chandler, Kudrin, Nunn og Benj-
amin með 4,5 vinninga eftir fimm
umferðir. 6. umferðin á mótinu verður
tefld í dag. -ój