Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1987, Page 13
LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987.
13
DV
Veitingahús
Jónas Kristjánsson skrifar um veitingahús:
Ondvegis-
staðurinn
Oðinsvé
Matreiðslan getur bilað
Óöinsvé eru sannkallaöur önd-
vegisstaöur. Þau eru einn af nota-
legustu veitingasölum landsins og
búa í sal yfir starfsliði, sem bæði
er elskulegt og kann betur til verka
en við höfum séð víðast annars
staðar. Þar á ofan er verðlag stað-
arins neðan við meðallag. Ekkert
vantar raunar upp á fullkomnun-
ina, nema bara matreiðsluna, sem
oftast er mjög góð eða bara góð, en
getur þó bilað stundum.
í hádegi fékk ég kálfakjöt, sem
var fallega rósrautt að innan og
bragðgott eftir því, með hæfilega
léttsoðnu grænmeti í kring, en ekki
lerkisveppunum, sem boðaðir
voru. Réttinum var svo spillt af
samkeppni hveitisósu og bráðins
smjörs, sem yfirgnæfðu diskinn og
runnu saman í fjölbreytilega leðju.
Og að kvöldi var þykkur og girni-
legur nautahryggvöðvi, að vísu
með góðri og hveitilausri ijómapip-
arsósu, grænmeti og bakaðri
kartöflu, en þó rétt sæmilegur mat-
ur, af því að kjötið var of seigt.
Rjómalöguð blaðlaukssúpa var til
fyrirmyndar öðrum slíkum súpum.
Gæsakæfa var gróf, en samt mjúk
og mild á bragðið, borin fram með
bláberjasósu og trönuberjum, en
boðað kiwi gleymdist. Kjúklinga-
kæfa var líka mjúk og mild, en
fínlegri aö sjá, í fylgd með trönu-
beijum og sýrðum graslauksrjóma.
Báðar kæfurnar voru afar góðar.
Andalifur var hins vegar ekkert
sérstakur forréttur, sem fólst aðal-
lega í linum skógarsveppum og
góðri rauðvínssósu, en minna í litlu
magni af góðri andalifur, er var á
þunnri, stökkri og góðri smjör-
deigsköku, svo og títtnefndum
trönuberjum, sem greinilega voru
í hátízku eða of miklu upplagi á
staðnum.
Frábærir fiskréttir
Fiskréttir reyndust allir vel og
sumir frábærlega vel. Smjörsteikt
lúðukótiletta var ótrúlega létt eld-
uð og meyr, borin fram með
rækjum og ostasósu. Smjörsteikt
rauðspretta með allt of fjölbreyttu
meðlæti var ekki minna nærfærn-
islega elduð og eftir því góð.
Gufusoðið karfaflak féll í skugga
þessara tveggja fiskrétta, en var
eigi að síður gott, hvítlaukskrydd-
að og sérkennilega fram sett með
afar góðri rauðvínssósu brúnni.
Léttsteiktur lambageiri var meyr
og góður, en dálítið yfirkeyrður af
kryddi, borinn fram með hæfílega
léttsoðnu grænmeti og þungsteikt-
um sveppum, en ekki bökuðu
kartöflunni, sem boðuð var. Með
hliðsjón af því, sem áður hefur ver-
ið sagt hér um nauta- og kálfarétti
staðarins, mætti ætla, að kjöt væri
veikari hlekkur en fiskur í mat-
reiðslunni.
Allir réttir, sem hér hafa verið
nefndir, voru boðnir á töflu, sem
komið var fyrir á trönum, er born-
ar voru milli borða. Komið hefur
fram hér að framan, að ósamræmi
var stundum milh hinna tiltölulega
löngu, handskrifuðu lýsinga á rétt-
unum á töflunni og á raunveruleik-
anum, sem kom á borðið. Þetta er
einkennilegt, því að tæpast er
ástæða til langra lýsinga, ef ekki
er ætlunin að taka neitt mark á
þeim.
Réttirnir, sem sagt var frá á töfl-
unni, voru yfirleitt á lægra verölagi
en réttirnir á fastaseðhnum og th
í nógu úrvali, svo að gestir þurfa
ekki að fletta seölinum, fyrr en
kemur að eftirréttum. Djöflaterta
reyndist sæmilega, en heit epla-
kaka var sérkennileg, eins konar
rúlluterta, sem fól í sér meira af
Kokkahúfur eru fyrir matreiðslu og
blóm fyrir umhverfi og þjónustu, en
krónupeningarnir tákna verðlagið.
rúsínum en eplum og hafði í för
með sér ískúlu og þeyttan rjóma.
Annars er fasti matseðillinn at-
hyglisverður fyrir þá sök, aö þar
er sérstaklega mælt með hvalkjöti,
pönnusteiktri langreyði í rauðvíns-
sósu og Madeira og vegna þess að
þar er boðin matarveizla eftir höfði
kokksins, það er að segja röð leynd-
ardómsfullra rétta. Hún er afgreidd
fyrir minnst fjóra og kostar 2.450
krónur á mann. Shkar veizlur tíðk-
ast víöa í frönskum veitingahúsum,
en ég hef ekki prófað veizluna í
Óðinsvéum.
Fyrirmyndar vínlisti
Enn merkilegri er raunar vínlist-
inn. Hann nær yfir flest hið bezta,
sem fáanlegt er borðvína í Ríkinu,
þar á meðal vín, sem sjaldséð eru
í veitingasölum, svo sem Siglo, Ris-
erva Ducale og Saint Emihon Luze.
Til viðbótar er svo langur hsti vína,
sem sérstaklega eru flutt inn fyrir
Óðinsvé og eru hvergi annars stað-
ar fáanleg. Þeim lista, sem og
venjulega listanum, fylgja lær-
dómsríkar útlistanir á eðli og
eiginleikum vínanna.
Þetta eru um tuttugu vín, öll frá
Bordeaux. Flest eru þau lítt þekkt
og sumpart frá afskekktum héruð-
um. Sum eru til dæmis frá svæðinu
milli fljótanna Garonne og
Dordogne, sem fáir vínþekkjendur
kunna til hlítar. Nokkur eru nær
óþekkt vín frá Graves. Verðlagið
er frá 1.180 krónum upp í 1.760
krónur fyrir flöskuna af flestum
þessara vína.
Svo eru líka á boðstólum dýrari
Bordeaux-vín. Hæst ber þar Chate-
au Léoville-Poyferré frá St.Julien
af hinum góða árgangi 1979 á 4.593
krónur. Ennfremur Chateau La-
grange frá St.Julien af hinum enn
betri árgangi 1978 og loks Chateau
Duhart-Milon frá Pauihac af hinum
heldur lakari árgangi 1980. Betri
kaup kunna að vera í hinu van-
metna Chateau Troplong-Mondot
frá St.Emihon af árganginum 1979
á 2.960 krónur.
Ljúfleg og fagleg
Starfsliðið í Oöinsvéum var svo
þægilegt, að viðbrigðin við að koma
úr hádegisverði í Sjanghæ í kvöld-
verð í Öðinsvéum var eins og að
koma í himnaríki úr hreinsunar-
eldinum. Þjónustan í Óðinsvéum
reyndist ekki aðeins ljúfmannleg,
heldur einnig fagmannleg. Sex
gestir við sama borð fengu hver
sinn rétt, án þess að þjónustuliðiö
þyrfti að spyija, hver heíði pantað
hvað. Slíkt er sjaldgæft hér á landi,
jafnvel á dýrustu stöðum.
Óðinsvé eru notaleg, einkum
meginsalurinn. Garðstofan er hins
vegar kuldaleg marga daga ársins.
Hún er hka löng og mjó og þétt-
skipuð ljósleitum límviðarborðum
og eins konar garðstólum. Þar eru
viftur í lofti og steinflísar á gólfi.
í aðalsalnum eru naktar perur
og reitaskreyting í lofti, riffluð súla
með speglum á miðju gólfi, mál-
verk, speglar og smámyndir á
ljósum veggjum, mikið af potta-
blómum í gluggum og teppi á gólfi.
Til hótelanddyris sést í gegnum
vínskápinn. Gestir sitja í vönduð-
um, dökkbrúnum armstólum við
samlit og gljáandi viðarborð. Á
borðum eru plattar, afskorin blóm
og vandaður borðbúnaður, tau-
þurrkur á kvöldin og úr pappír í
hádeginu. í kjallara er fordrykkja-
og kaffistofa í sama stíl.
Þriggja rétta máltíð með kafíi,
valin af seðh dagsins, sem býður
fullnægjandi úrval, kostar að með-
altali 1.555 krónur að kvöldi og
1.387 krónur í hádegi. Það er tiltölu-
lega lágt verð miðað við gæði. Val
af fastaseðh kostar heldur meira,
1.809 krónur.
Jónas Kristjánsson
Dæmigerður matseðill
210 Rjómalöguð blaðlaukssúpa
480 Gæsakæfa með ávaxtasósu, kiwi og ristuöu brauði
480 Kjúklingakæfa með rjómasoðnum graslauk
420 Steikt andalifur með skógarsveppum og vínsósu
620 Gufusoðið karfaflak með lauk og lerkisveppum
650 Smjörsteikt rauðspretta með ristuðum banana
690 Smjörsteikt lúðukótiletta með rækjum og ostasósu
890 Léttsteiktur lambageiri með Cafe-de-Paris sósu
1090 Nautafllet með ijómapiparsósu og bakaðri kartöflu
780 Snitzel Gordon bleu, fyllt með osti og skinku
350 Ferskt ávaxtasalat með eggjasósu og þeyttum rjóma
AKUREYRI
Blaðberi óskast
á YTRI-BREKKUNA. Uppl. í síma 25013.
Tilvalin gönguferð fyrir eldra fólk.
VERKFRÆÐINGAR
TÆKNIFRÆÐINGAR
Rafmagnsveita Reykjavíkur óskar eftir að ráða raf-
magnsverkfræðing eða tæknifræðing til starfa við
áætlanagerð við raforkuvirki. Kunnátta í Fortran-
forritun æskileg.
Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu og m.a. aðgang
að stóru tölvukerfi sem nota má við áætlanagerð.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri í síma 686222.
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
Auglýsing
Staða framkvæmdastjóra við Greiningar- og ráðgjaf-
arstöð ríkisins er hér með auglýst laus til umsóknar.
Framkvæmdastjóri skal sjá um fjárhagslegan rekstur
stofnunarinnar og hafa umsjón með daglegum
rekstri.
Áskilið er að umsækjandi hafi menntun og starfs-
reynslu á rekstrarsviði. Laun samkv. kjarasamningi
opinberra starfsmanna.
Umsóknir um stöðuna, ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf, sendist félagsmálaráðuneyt-
inu deild fyrir málefni fatlaðra, fyrir 1. desember nk.
Staðan veitist frá 1. janúar 1988 eða eftir samkomu-
lagi.
Félagsmálaráðuneytið 3. nóvember 1987
Fáðu þér þá brúsa af Fermitex og málið er
leyst. Fermltex losar stíflur í frárennslispíp-
um, safemum og vöskum. Skaölaust fyrir
gler, postulín, plast og flestar tegundir
málma. Fljótvirkt og sótthreinsandi.
VATNS VIRKINN HF.
Ármúla 21, s. 685966 Lynghálsi 3, s. 673415