Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1987, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1987, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987. 45 Popp/Smælki Sæl nú!... Hún Gróa á Leiti er víðar á ferðinni en hér á íslandi. í Bretlandi ganga stöðugt sög- ur manna á meðal og í tónlist- arblöðum um að þessi eða hin hljómsveitin sé að hætta; liðsmennimir komnir í hár saman og þar fram eftir götun- um. Það nýjasta i þessum efnum em sögusagnir um að New Order og Curiosity Killed The Cat væm að hætta en í báðum tilvikum hefur fréttun- um verið neitað einarðlega. Ekki er vitað hvernig rógurinn um New Order komst á kreik en hvað Curiosity Killed The Cat varðar þá spmttu sögum- ar upp þegar trommuleikari hljómsveitarinnar stmnsaði af sviði á tónleikum í Japan fyrir nokkm. Þar mun aðeins hafa verið um að ræða stund- argeðvonsku og segja tals- menn hljómsveitarinnar að allt séfallið í Ijúfa löð innan hennar á ný.. .En hvað sem öllum gróusögum líður er það staðreynd að menn koma og fara i popphljómsveitum eins og í hverri annarri atvinnu. Þannig upplýsist það hér með að Phil Gould, trommuleikari Level 42, hefur yfirgefið sveit- ina og ástæðan sögð hin hefðbundna eða „tónlistarleg- ur ágreiningur". Sæti hans hefur þegar verið skipað á ný og enginn aukvisi þar á ferð eða fyrmm trommari Prefab Sprout, Neil Conti.. .Og fleiri em hættir, bassaleikarinn Billy Sheehan, sem plokkað hefur strengina i hljómsveit Davids Lee Roth, tók bassann sinn ogfór um daginn vegna .. .jú einmitt.tón- listarlegs ágreinings" .. .Þær stöllur og stjömur Pepsi og Shirlie em nú að nema land i Ameriku og gengur bara vel að minnsta kosti hvað tónlist- ina varðar. Hins vegar hefur Ameríka ekki tekið vel á móti þeim persónulega því þær voru ekki fyrr komnar i heimsborgina New York en þær vom rændar svo til aleig- unni. Ekki gerðist þetta á götu úti heldur inni á hótel- herbergi og höfðu þjófamir um 300 þúsund i krónum upp úr krafsinu auk eðalsteina ýmiss konar... Gamli gitarguðinn Jimmy Page er loksins að verða bú- inn að koma fyrstu sólóplötu sinni í útgáfuhæft ástand. Meðal gesta á plötunni em Robert Plant, John Miles og Jason Bonham, sonur hins framliðna Zeppelin trommara, John Bonham .. .allt búið... -SþS- Nýjar plötur Hörður Torfason - Hugflæði Myndir í tónum og ljóðum Hörður Torfason leikari, vísna- söngvari og fyrst og fremst trúbador hefur sent frá sér nýja plötu, Hug- flæði, sem verðskuldað hefur slegið í gegn. Þótt aðalstarf Harðar sé leiklistin þá er hann þekktastur fyrir vísna- söng sinn. Fyrsta plata hans, þar sem hann söng lög við texta þekktra skálda á borö við Halldór Laxness og Stein Steinarr, hefur lifað góðu lífi og er sjálfsagt ein mest spilaða íslenska hljómplatan á öldum ljós- vakans. Hörður hefur búiö í Danmörku í nokkuð langan tíma en hefur oft skotist heim til tónleikahalds og plötukynningar. Er skemmst að minnast plötunnar Tahú sem fór fyr- ir ofan garð og neðan hjá flestum, meðal annars undirrituöum, og tón- leika er hann hélt ásamt fleiri fyrir tveimur árum í tilefni tuttugu ára trúbadorafmælis síns. Með Hugflæði tel ég þó að Hörður hafi fest sig í sessi sem einn allra besti vísnasöngvari og trúbador sem við getum státað af. Það sem vekur fyrst athygli við hlustun á Hugflæði eru geysivönduð og fagmannleg vinnubrögð við gerð plötunnar. Sándið er mjög gott og hin fallegu lög Harðar njóta sín vel í lát- lausum útsetningum. Það er svo þegar maður hlustar betur á lögin að maður fer aö hlusta nánar á textana, enda eru framfarir Harðar í ljóðagerð að mínu mati miklar. Boðskapur textanna verður skýr og afmarkaður í lifandi flutn- ingi hans. Hugflæði er í heild mjög jöfn plata þótt vissulega hafi ég hrifist meir af einstaka lögum fram yfir önnur, ekki kannski vegna þess að þau séu betri heldur höfða útsetningar og fram- setning ljóða meira til mín. Vil ég sérstaklega nefna Línudansarann, Veiöisögu og Ættjarðarraul ’81. Þessi þrjú lög eru lítil meistaraverk sem unun er að hlusta á. Þá verð ég að minnast tveggja laga, þ.e. Litli vík- ingurinn, þar sem ungur drengur, Hans Orri Kristjánsson, tekur lagið meö Herði svo barnslegt sakleysið lýsir í gegn, og Lítill fugl sem verður betra með hverri hlustun. Textar Harðar eru virkilega góðir og lýsa mannlegum tilfmningum hvort sem er í sorg eða gleði. Kveðið er til látins vinar í Frostnótt. Glettinn húmor einkennir Veiðisögu og per- sónulegt uppgjör er í Ættjarðarrauli ’81, svo eitthvað sé talið upp. Hugflæði er vel heppnuð heild ljóða og laga, plata sem enginn sem á ann- að borð byijar að hlusta lætur auðveldlega frá sér. HK. Sammy Hagar - Sammy Hagar Ovæntenánægjuleg Allt frá því Sammy Hagar sló í gegn með Mont- rose árið 1974 hefur hann verið í miklum metum hjá undirrituðum - ekki aðeins sem söngvari heldur einnig sem afbragðs lagasmiöur. Hann virtist þó um tíma kominn í hálfgerða sjálfheldu, a.m.k. hvað sólóferilinn áhrærði, og þeyttist fram og til baka eftir sömu hillunni án þess að ná í „mega“-hópinn eftirsótta vestra. Þótt sumum kæmi á óvart er hann gekk til hðs við Van Halen í kjölfar brotthlaups David Lee Roth virðist svo sem sú tilbreyting hafi gert Sammy gott eitt. Reyndar stóð til að hann gengi til liðs við Van Halen 1977 en ekkert varð úr vegna erfiðleika við að fá sig lausan frá plötusamningi. Sá samningur virðist ekkert hafa gleymst þótt Sammy gengi í raðir Van Halen og nú er komin - allsendis óvænt en þrælskemmtileg - ný sóló- plata frá kappanum. Sammy er einkar melódískur rokkari - enda af gamla skólanum, þar sem menn einblíndu ekki á rythmann. Þessi hlið hans fær vel að njóta sín á þessari plötu, hvergi þó betur en í Give to Live, stórsmelli þessarar skífu. Þetta lag er gull- fahegt og minnir reyndar heilmikið á Alone þeirra Ann og Nancy WilSon í Heart á köflum. Þótt Sammy sé liðtækur ballöðusmiður er hann sennilega enn betri rokkari. Stutt er í blúsinn hjá honum á köflum og upphaf B-hliðarinnar er stórglæsilegt sem og Eagles Fly. When the Ham- mer Falls Down er enn eitt þrusugóða lagið á plötunni og í heildina er hún æði áheyrileg. Fé- lagsskapurinn er enda ekki slæmur; Eddie Van Halen á bassa (já, á bassa!) David Lauser á trommur, Sammy sjálfur á gítar (og fer létt með) og Jesse Harms á bassa. Einfaldur kjarni en skot- heldur - rétt eins og platan sjálf. Þrusurokk en þó laust við allan djöfulgang í orðsins fyllstu merkingu. Sigurður Sverrisson Strax orðin betri Stundum getur komið sér vel að verk dragist úr hömlu og vissulega hefði gagnrýni á þessa fyrstu plötu nýrrar hljómsveitar, Dödu, átt að hta dagsins ljós fyrir nokkru. En það hefur dregist og það kemur sér ágætlega fyrir hljómsveitina nú því á henni hafa orðið breytingar frá því platan kom út. í hóp þeirra þriggja sem að þessari plötu standa hafa bæst hljómboðsleikari, trommuleikari og söngkona. Og undirritaður átti þess kost að heyra í nýrri og end- urbættri Dödu á dögunum og leist giska vel á það sem þar var á boðstólum. Þó svo að hljómsveitin njóti á þessari plötu aðstoðar ýmissa manna og kvenna er útkoman allt önnur þegar fastir menn hafa æft upp prógrammið. Þannig hljómar Dada miklum mun betur í dag en hún gerir á plötunni. Tóniist Dödu er frumsamin, eft- ir þá þrjá sem að plötunni standa. Þetta er melódískt popp í bresk- um anda, hreint ekki sem verst. Tvö laganna (þau eru fjögur) 'skera sig úr, Out Of Order og Crying Over You, það síðar- nefnda aö mínu mati það besta á plötunni. Þetta eru lipulega sam- in lög, melódíurnar sterkar og grípandi og allur flutningur til sóma. Textar við lögin fjögur eru á ensku, sem mér þykir miður. Ég held að lögin myndu njóta sín enn betur með íslenskum textum; ís- lenskir textar eru jú þaö sém helst skilur íslenska dægurlaga- tónlist frá erlendri. Og mér segir svo hugur um að íslensk ung- menni kjósi.það heldur núorðið að íslenskar hljómsveitir syngi á íslensku frekar en ensku. Það kemur að vísu fram á fylgi- blaði að Dada hyggst reyna fyrir sér erlendis með þessa plötu en ég held að það sé ekkert mál fyr- ir hljómsveitir að taka upp enska útgáfu af einhverjum lögum til kynningar erlendis, þó svo að stefnan sé sú að syngja á íslensku fyrir íslendinga. Hvað um það, ef sá hópur, sem nú stendur að Dödu, nær að stilla saman strengi sína í friði er ég þess fullviss aö hljómsveitin á eftir að spjara sig vel á markaön- um hérlendis því þessi frumraun sýnir glöggt að þangað á hún fullt erindi. -SþS- Loverboy - Wildlife endurheimt? segi það hér og riú að ég skal báru- járnsblesi heita ef Wildhfe færir Loverboy ekki forna frægö: frægð sem byggðist á lögum á borð við Turn Me Loose (1980) og Working for the Weekend (1981). Það eru sjö ár frá því Loverboy, þessi kanadíski kvintett, setti svip sinn á rokkheiminn vestra. Lög sveitarinnar þóttu þá í senn grípandi og vel flutt og ekki skipti síður máli að sveitinni lét einkar vel að blanda saman áhrifum úr þungu rokki og hefðbundinni popptónlist. Úr varð metsölukokkteill. Eftir tvær fyrstu plöturnar missti ég alfarið sjónar á Loverboy og hygg að svo hafi verið um fleiri. Hins vegar munu tvö ár frá síðustu skífu piltunganna (heyrði lag af henni í „Kananum" fyrir stuttu, einu stöðinni sem hlustandi er á á næturnar nema þegar Gulli Sigfúss er á næturvaktrásar 2). Síðustu skíf- ur Loverboy hafa hins vegar vakið takmarkaða hrifningu en ég held að breyting hljóti að verða á með þess- ari. Fyrri hliðin hefst á laginu Notor- ius, sem reyndar hefur þegar náð vinsældum. Sjálfur Jon Bon Jovi lagði Loverboy-piltunum lið þar en þeir þurfa enga hjálp í lögum á borð við Break it to Me Gently, Walking on Fire o.fl. Hins vegar fá þeir aðstoð Brian McLeod (úr Headpins) í besta lagi síðari hliðarinnar, Don’t let go, og þeir Todd Cemey og Taylor Rhod- es leggja Loverboy til frábært lag, Love Will Rise Again. Brian Adams kemur einnig við sögu á plötunni en hefur oftlega skilið meira eftir sig. Loverboy-kvintettinn hefur staöið saman án mannabreytinga í gegnum þykkt og þunnt. Síöustu ár hafa ver- ið mögur en ég fullyrði að betri tíð er framundan. Sigurður Sverrisson Fyrri frægð Ég kem bara beint að kjarna máls- ins: Þessi nýjasta plata Loverboy hefur upp á að bjóða þrusugóða fyrri hlið en nokkuð köflótta bakhlið. Kostir þeirrar fyrrnefndu vega þó margfalt þyngra en gallar þeirrar síðarnefndu og úr veröur hörku rokkplata á vestanhafsvísu. Og ég
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.