Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1987, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987.
21
Veiðivon
Verð á veiðileyfum:
Er sprenging
yfirvofandi?
Núna, þegar þetta sumar meö 8%
minni veiði í laxveiðinni er liðiö og
menn búnir að leggja stangirnar á
hilluna eru margir stangaveiðimenn
í vafa um hvort þeir eiga að kaupa
eins mikið af veiðileyfum og þeir
gerðu í sumar. Er þetta ekki komið
út í vitleysu? „Ég er hættur í lax-
veiðinni og kominn alfarið í silung-
sveiðina, þar eru þetta ekki eins
mikil fjárútlát og í laxinum," sagði
mikill laxveiðimaður í vikunni og
bætti við: „Sérðu hvað er að gerast
í Kjósinni? Margir eru að bjóða í ána
og þetta þýðir að ef hún hækkar frá
í fyrra hækkar Norðuráin líka þar
sem menn fá mest tveggja, þriggja
og fjögurra punda titti. Þetta gengur
ekki lengur, skynsemin verður að
ráða ferðinni,“ sagði fyrrum laxa-
bani og hélt á braut í fússi.
Einn þeirra sem keyptu hvað flest
laxveiðileyfi i sumar var eina 60 daga
við veiðar í ýmsum veiðiám en veiddi
„aðeins" hundrað laxa. í tveimur síð-
ustu veiðitúrunum í haust veiddi
hann 40 laxa sem þýðir 60 laxa yfir
allt sumarið og var samt við veiðar
í mörgum bestu veiðiánum. Stund-
um getur veiðin verið skrítin og
enginn veit fyrr en eytt hefur í veiði-
leyfi.
Margir veiðimenn hafa gælt við þá
hugmynd síðustu daga að einhver
lækkun yrði á veiðileyfum næsta
sumar en nýjustu fréttir benda til
annars, t.d. 26,5%, 26,5% og 30%
hækkunar á veiðileyfum í Blöndu,
Laxá á Refasveit og Svartá.
Áhugi manna á þeim veiðiám, sem
núna eru til leigu, er mikill. í Anda-
kílsá, sem var boðin út um daginn,
komu 9 tilboð og í Laxá í Kjós voru
þau víst 5. Það eru kannski draumór-
ar að láta sér detta verðlækkun í hug
en hún á nú samt rétt á sér.
Eitt hefur þó vakið athygli veiði-
manna og þaö er smálækkun í
Vatnsdalsá í Húnavatnssýslu. Það er
ljós punktur þegar veiðiá lækkar
aðeins í verði en hækkar ekki, það
ber að virða.
-G. Bender
Ingimar Haraldsson kennir ungum syni sinum fyrstu handtökin i Kjósinni
en hvort hann fer í laxveiðina verður timinn að leiða i Ijós.
DV-mynd G. Bender
Veiðieyrað
>
Armenn
hnýta
FélagskapurinnÁrmenn keypti
sér félagsheimili í Dugguvogi 13
eins og við greindum frá á sínum
tíma og hafa þeir félagar komið
þarna upp hinni bestu aöstöðu.
En þetta eru dýr kaup hjá þeim
Ármönnum og til að fjármagna
kaupin meðal annars hjálpast fé-
lagsmenn að. Nú hnýta þeir
flugur nokkur kvöld í viku inni
í Dugguvogi (í Duggunni) og selja
upp í þær afborganir sem þeir
þurfa að borga af húsnæðinu
sínu. Þetta kallar maður nú að
allir leggist á eitt. Eða eins og
maðurinn sagöi „ég ætla að fá 60
rauðar franes“.
Laxa í Kjos
Spennan kringum Laxá í Kjós
er mikil þessa dagana um hver
hreppir hnossið og voru víst 6 til-
boð þegar þau voru opnuð. Það
ætti að skýrast allra næstu daga
hver fær ána næsta sumar.
Opið hús
Fyrsta opna húsið var bjá
Stangaveiðifélagi Reykjavíkur í
gærog varfjölmennt. GuðniGuð-
bergsson flutti þar skýrslu sína
um veiðina í suraar. í desember
mun verða jólaglögg og svo opið
hús, árshátið, og opið hús á nýju
ári. Stefán A. Magnússon er
formaður og með honum eru í
skemmtinefnd Ámi Jóhannesson
og Einar Sigfússon.
Dorgveiði á miklum vinsældum
að fagna hjá veiðimönnum og það
nýjasta hefst upp úr áramótum
en þá byrjar dorgveiði fýrir alla
á Geitabergsvatni í Svínadal. Þar
geta allir sem vilja keypt sér
veiöileyfi á hóflegu verði og veitt.
Ekki er aö efa að veiðimenn eiga
eftir að notfæra sér þessa nýjung.
Meira um þetta seinna.
G.Bender
„BÍLL ÁRSINS"
! Um helgina kynnum viö nyjan glæsilegan bíl fra Peugeot,
PEUGEOT 405.
PEUGEOT 405 hefur alla þa goöu eiginleika sem einkennt
hafa Peugeot bíla í gegnum tiðina, svo sem sparneytni,
þægindi, öryggi, gott rými og hina rómuðu Peugeot
fjöðrun. Nytt glæsilegt útlit, tölvuhönnun,
hágæðasamsetning framkvæmd af vélmennum, ABS
bremsukerfi og frabærir aksturseiginleikar gera hann
öðrum bilum fremri sem sest best a því að hann er
kjörinn bíil ársins í Danmörku.
Líttu inn um helgina og kynntu þér gæðin af eigin raun.|
JOFUR HF
Nýbýlavegi 2 • sími 42600
PORHILOLB'SÍA