Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1987, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1987, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987. 23 Námskeið Námskeið eru haldin í þrónunarheimspeki, sál- arheimspeki og stjörnu- kortagerð (Esoteric Astrology). Leshringur um dulfræði. Sími 79763. Samkeppni um gerð Umhverfis-listaverks Á torgi við Borgarleikhús Menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar minnir á að skila ber tillögum í samkeppninni til trúnaðarmanns dómnefndar, Ólafs Jenssonar, Byggingaþjón- ustunni, Hallveigarstíg 1, í síðasta lagi mánudaginn 16. nóv. nk. kl. 18.00. Fjórði flokkur karia: Valur ogVíkingur spila til úrslita Keppni í 4. flokki karla fór einnig fram í Álftamýrarskóla samhliöa keppni í 3. flokki karla. Eftir fyrri umferð er fór fram 3 - 4. okt. sl. voru Valsmenn með forustu í A-riðli en þeir höfðu unnið Ármann, ÍR og Fram í fyrstu umferð. ÍR vann Fram og Ármann og var því aðeins tveimur stigum á eftir Val. Framarar tóku af alla spennu í fyrsta leik A;riðils í seinni umferð er þeir unnu ÍR með 9 mörkum gegn 7 í miklum baráttuleik. Valsmenn unnu síöan bæði Ár- menninga og Framara nokkuð örugglega en í leiknum gegn ÍR- ingum lentu þeir í miklum vandræð- um. ÍR-ingar mættu mjög ákveðnir til leiks gegn Val. og voru ákveðnir að sigra þá í síðasta leik riðilsins. í fyrri hálfleik skiptust liðin á um að KR og Víkingur spila til úrslita - unnu alla leiki sína í 5. flokki KR og Víkingur urðu nokkuð ör- uggir sigurvegarar í sínum riðlum í Reykjavíkurmóti í 5. flokki karla. KR-ingar spiluðu í A-riðli ásamt Val og ÍR. Fyrirfram var búist við nokkuð jafnri keppni þar sem KR og ÍR voru bæði í 1. deild eftir forkeppni íslandsmótsins og Valsmenn höfðu náð nokkuð góðum úrslitum þar þótt þeim hefði ekki tekist að næla sé í 1. deildar sæti. Strákamir í KR komu mjög ákveðnir til leiks í fyrri umferð og unnu Val, 12-9, og ÍR, 19-4. Vals- menn voru síðan í öðru sæti eftir sigur á ÍR, 16-7. I B-riðli spiluðu Víkingar eins og sá sem valdið hefur og unnu aila leiki sína í fyrri umferð örugglega, Fylki, 14-7, Fram, 13-11, og Þrótt, 16-3. Framarar, sem töpuðu sem fyrr segir fyrir Víkingi, unnu Þrótt, 11-6, og geröu jafntefli við Fylki, 10-10. Fylkir vann síðan Þrótt, 14-7. í seinni umferð héldu Víkingum engin bönd og unnu þeir stóra sigra á Þrótti, 22-10, Fylki, 19-7, og Fram, 16-10. Fylkisstrákamir mættu síðan ekki til leiks gegn Þrótti en komu síðan ákveðnir til leiks gegn Fram og sigruðu í jöfnum leik, 19-18, þar sem varnir beggja liða voru slakar. Fram vann síðan Þrótt stórt, 23-8. í úrslitum Reykjavíkurmóts eigast því \dð lið KR og Víkings sem hafa ekki ennþá tapaö leik í vetur. Það er því ljóst að eitthvað verður að láta undan í leik þessara sterku liða og annað liðið mun hampa bikarnum að leik loknum. skora og höfðu Valsmenn eins marks forastu í hálfleik, 877. Um miðjan seinni hálfleik náðu ÍR-ingar góðum leikkafla og virtist sem þeir væra að innbyrða sigurinn stuttu fyrir leiks- lok. Valsmenn voru þó ekki á því og náðu að tryggja sér sigur, 15-12, með því að skora hvert markið á fætur öðru í lok leiksins ár þess að ÍR- ingar næðu að svara fyrir sig. I B-riðli virtist allt stefna í öruggan sigur KR-inga en þeir höfðu unnið alla leiki sína í fyrri umferö með miklum markamun. Víkingar töp- uðu aðeins fyrir KR i fyrri umferð en með 5 mörkum gegn 12. Fæstir bjuggust því við að þeir næðu að vinna upp þennan markamun og bæta um betur til að tryggja sér sigur í riðlinum. Ákveðnir Víkingar náðu strax ör- uggri forustu í leiknum gegn KR og í seinni hálfleik var munurinn mest- allan tímann 6-7 mörk. Mikill darraðardans var stiginn síðustu sekúndur leiksins og fógnuður Vík- inga var mikill er flautað var til leiksloka og ljóst var að þeir höfðu unnið KR með átta mörkum, 16-8. Víkingar og KR-ingar unnu síðan leiki sína gegn Fylki og Þrótti. Það er því 3. deildar lið Víkings er mætir Val í úrslitaleik í Laugardalshöll um næstu helgi. Fyrirfram má búast við Valsmönnum sterkari en óþarfi er að vanmeta Víkinga sem hafa tekið miklum framforum sl. vikur og er allt annað að sjá til þeirra nú en í fyrri umferð Reykjavíkurmótsins og í forkeppninni þar sem Valur sigraði þá, 21-14. flokkur karla: Fram og Víkingur spila til úrslita Seinni umferð Reykjavikurmóts í 3. flokki karla fór fram um sl. helgi í Álftamýrarskóla og sá Fram um umsjónina. Eftir fyrri umferö vora Valsmenn meö forystu í A-riðli þar sem þeir höfðu unnið alla leiki sína. Fast á hæla þeim komu Framarar en þeir höfðu aðeins tapað fyrir Val í í'yrri umferð meö einu marki og þurftu því að sigra þá núna meö minnst tveimur mörkum. KR og Ármann voru einnig í A-riðli en blönduðu sér ekki í baráttuna um sæti í úr- slitum. í seinni umferðinni unnu Valur og Fram bæði KR og Ármann stórt og var því hreinn úrslltaleikur mfili þessara tveggja félaga. í byijun skiptust þau á um for- ystu en í lok fyrri hálfleiks náðu Valsmenn góðum endaspretti og var staöan í hálfleik, 9-7, þeim í vil. í seinni háifleik brugöu Fram- arar á það ráð að taka einn af leikraönnum Vais úr umferð og riðlaðist leikur þeirra við það. Framarar náðu að nýta sér mistök Valsara í sókninni, skoruðu þeir hvert markið á fætur öðra og breyttu stööunni í 20-14, sér í vfi, er Útiö var til Mksloka. Valsarar náðu að laga stöðima í 20-18 í lok leiksins og var mikil spenna síð- ustu sekúndurnar en Frömuram tókst aö verjast harðri sókn þeirra til ioka leiksins. Fögnuöur Fram- ara var mikill í leikslok enda í fyrsta skipti sem Valsmenn tapa leik í Reykjavíkurmóti í þessum aidurshópi. í B-riðh var um minni keppni að ræða en þar vann Víkingur alla andstæöinga sína í fyrri umferð. Þróttur, ÍR og Fylkir unnu öli einn leik í innbyröis viðureign og var því forysta Víkinga íjögur stig eftir fyrri umferð. Víkingar héldu uppteknum hætti í seinni umferð og voru það heist Þróttarar sem veittu þeim ein- hverja keppni en þeir unnu nú bæöi ÍR-inga og Fylkismenn. Víkingar náðu fijótlega yflrhönd- inni í leiknura gegn Þrótturum og héldu henni þrátt fyrir mikla og góða baráttu Þróttara. Leiknum lauk meö öruggum sigri Víkinga, 19-14, og spila þeir því til úrslita við Fram. Ljóst má vera að úrslitaleikurinn milli Fram og Víkings mun veröa mjög jafn og spennandi og era þama tvö af þeim liðum sem marg- ir spá aö muni verða nálægt meistarasæti í vor. Allar nánari upplýsingar veitir trúnaðarmaður í síma 29266. HUNDAHREINSUN í REYKJAVÍK Samkvæmt 5 gr. reglugerðar nr. 201 /1957 um varn- ir gegn sullaveiki skulu allir hundar eldri en 6 mánaða hreinsaðir af bandormum í október eða nóvember- mánuði. Eigendum hundanna er bent á að snúa sér til starf- andi dýralækna í Reykjavík með hreinsun. Við greiðslu árlegra leyfisgjalda (gjalddagi 1. mars) þarf að framvísa gildu hundahreinsunarvottorði. Eldri vottorð en frá 1. september verða ekki tekin gild. Heilbrigðiseftirlit Reykjavikur. ÚTGERÐAR- MENN! SKIPSTJÓRAR! ★ Togvír sf. er nýtt fyrirtæki sem sérhæfir sig í alhliða vírþjónustu við báta og togara. ★ Togvír sf. tekur að sér að mæla upp víra og merkja þá. ★ Togvír sf. þrýstismyr vírana með nýrri tækni sem lengir endingu þeirra um 50%. ★ Togvír sf. tekur að sér að vinda vírana upp á kefli og smyrja þá fyrir geymslu milli vertíða. Togvír sf. býður upp á sérhannaðan bíl til þessara verka. ★ Það sparar bæði fé og fyrirhöfn að láta Togvír sf. sjá um vírana. Hólabergi 4, Reykjavík, sími 72316 og 985-25768.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.