Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1987, Page 22
22
LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987.
Handknattleikur uiíglinga
Spurt
Hvaða lið telur þú vera sigur-
stranglegast í Reykjavíkurmóti
í 3. flokki kvenna?
Sigrún Erla Valdimarsdóttir,
Fylki: Ég held að Fram eða Víking-
ur vinni mótið en ég hef ekki séð
öll liðin.
Jónína Kristinsdóttir, KR: Fram
eða KR vinna mótið.
<r •
1
Nína Dögg Filippusdóttir, ÍR: Fram
vinnur þetta mót, það er með besta
liðið.
Diana Guðjónsdóttir, Fram: Fram
eða Víkingur eru með sterkustu
liðin og ég tel að annað hvort þess-
ara liða vinni mótið.
Úrslitaleikir í Reykjavíkuimóti:
Víkingar með fimm
flokka í úrslitum
> Jason Ólafsson, Fram, skorar eitt marka sinna gegn KR í 3. flokki karla um siðustu helgi.
Úrshtaleikir í Reykjavíkurmóti
fara fram í Laugardalshöll sunnu-
daginn 15. nóvember og hefjast kl.
13,00.
Úrsht eru þegar ráðin í 4. flokki
kvenna og 6. flokki karla þar sem
Fram og KR báru sigur úr býtum en
þar var aðeins spilað í einum riðh
eins og fram kemur annars staðar á
síðunni.
Víkingar spila til úrslita í fimm
flokkum, KR á möguleika á fjórum
titlum, Fram á tveimur titlum og
Valsmenn eru í úrslitum í einum
flokki. Kl. 13.00 er úrshtaleikur í 3.
flokki kvenna mhli KR og Víkings.
Kl. 14.00 eigast við sömu lið í 2.
flokki kvenna.
Kl. 15.00 spila KR og Víkingur einn-
ig til úrslita í 5. flokki karla.
Að þessum leik loknum er verð-
launaafhending til handa 6. flokki
karla og 4. flokki kvenna.
Kl. 16.00 hefst síðan keppni í 4.
flokki karla og eigast þar við hð Vals
og Víkings.
Kl. 16.50 leiða saman hesta sína hð
Fram og Víkings í 3. flokki karla.
Unglingasíðan hvetur alla til að
leggja leið sína í Laugardalshöh og
sjá spennandi úrslitaleiki hjá hand-
boltafólki framtíðarinnar.
KR og Víkingur í úrslitum:
Leikið var í tveimur riðlum í 3.
flokki kvenna þrátt fyrir að aðeins
sex hð mættu til keppni en Valur og
Ármann sendu ekki lið frekar en í
4. flokki kvenna.
í B-riðli voru því aöeins tvö hð sem
áttust við en í A-riðli voru fjögur.
Eins og flestir gera sér ljóst er
Reykjavíkurmót æfmgamót fyrir
Reykjavíkurfélögin fyrir íslandsmót
en vegna framkomu Ármanns og
Vals að mæta ekki til keppni eða
gera HKRR það ljóst að þau mættu
ekki, þannig að hægt hefði verið að
draga í riðla að nýju, fá hðin í B-
riðli, Víkingur og Þróttur, htla
æfingu fyrir íslandsmót með því að
spila einn leik í hvorri umferð.
Víkingur, sem sigraði Þrótt örugg-
lega, 16-12, í fyrri umferð, endurtók
leikinn í seinni umferð með sigri, 13
- í 3. flokki kvenna
-7, og tryggði sér þar með sæti í úr-
slitum .
í A-riðli var um meiri keppni að
ræða þrátt fyrir að KR naeði að vinna
alla andstæðinga sína. í fyrri um-
ferðinni sigraði KR hð Fylkis, 21-10,
Fram, 18-9, og ÍR, 26-7. Fram sigraði
síðan Fylki, 16-12, og ÍR, 17-4, og var
í öðru sæti eftir fyrstu umferð. Fylk-
ir sigraði síðan ÍR örugglega, 15-5.
í seinni umferðinni veittu lið Fylk-
is og Fram liði KR meiri keppni þótt
þeim tækist ekki að sigra hið sterka
lið þeirra. KR sigraði Fylki, 18-13, en
í leiknum gegn Fram réðust úrsht
ekki fyrr en á síðustu sekúndunum
er KR-ingar skoruðu síðasta mark
leiksins í eins marks sigri, 10-9, yfir
Fram.
KR sigraði síðan ÍR örugglega, 27-7,
og tryggði sér þar með sæti í úrslitum
gegn Víkingi eins og áður sagði.
Fram sigraði Fylki, 11-6, og ÍR með
30 mörkum gegn 9. Fylkir sigraði síð-
an ÍR, eins og í fyrri umferð, örugg-
lega, 25-10.
KR-stúlkumar eru vel að sigri í
A-riðli komnar en þær eru með
sterkt lið og jafnt sem örugglega á
eftir að bíta frá sér í vetur í barátt-
unni um íslandsmeistaratitilinn.
Þrátt fyrir að Fram næði ekki að
vinna KR í Reykjavíkurmótinu þá
er ljóst að þar er á ferðinni eitt af
sterkari liðum í 3. flokki kvenna.
Ekki er hægt að spá fyrir um úrsht
í leik KR og Víkings því bæði liðin
eru svipuð að styrkleika og verður
leikurinn ömgglega jafn og spenn-
andi.
Framarar Reykjavíkur-
meistarar annað árið í röð
Linda Arnardóttir, Þrótti: KR eða
Víkingur vinna þetta mót en Fram
getur hugsanlega unnið það líka.
Keppni í 4. flokki kvenna er lokið
en þar var aðeins leikið í einum riðli
þar sem Vaiur og Ármann mættu
ekki til keppni. Mjög jöfn og spenn-
andi keppni var í fyrri umferð og
voru KR-stúlkurnar í efsta sæti
vegna hagstæðari úrslita í innbyrðis-
leik gegn Fram sem þær unnu, 13-12.
KR tapaði síöan í hörkuleik gegn
Víkingi, 6-8, en vann Fylki ömgg-
lega, 10-5. Fram vann Víking með
miklum markamun, 14—4, og Fylki,
10-0, þar sem Fylkir mætti ekki
vegna rangrar boðunar. Víkingar,
sem gátu blandað sér í baráttuna um
efstu sætin, töpuðu í leiknum gegn
Fylki, 3-6. Fyrir seinni umferðina
vora því KR og Fram með fjögur stig
en Víkingur og Fylkir með tvö stig.
- í 4. flokki kvenna
Fyrsti leikur seinni umferðar var
milh Víkings og Fylkis og hefndu nú
Víkingsstúlkur tapsins í fyrri umferð
með sigri, 6-4.
í næsta leik áttust við KR og Fram
í hreinum úrslitaleik þar sem efstu
liðin öttu kappi saman. Framstúlk-
umar komu mjög ákveðnar til leiks,
staðráðnar í að vinna upp forskot
KR-inga. Tóku þær strax fomstuna
í sínar hendur og unnu stórsigur, 19-
10, með Ingu Kristinsdóttur í farar-
broddi sem skoraði hvert markið á
fætur öðm.
Fram vann síðan Fylki, 11-6, og
Víking, 10-4, og tryggði sér þar með
Reykjavíkurmeistaratitihnn annað
árið í röð.
KR-stúlkumar unnu Fylki stórt,
14-6, en lentu í miklu bash meö ört
vaxandi hð Víkings. Sá leikur var
nyög jafn og spennandi og mátti ekki
á milli sjá hvomm megin sigurinn
lenti en leiknum lauk með sigri KR,
11-10.
Fram og KR voru með áberandi
sterkustu liðin í Reykjavíkurmóti í
4. flokki kvenna en Víkingshðið hef-
ur tekið miklum framfómm og gæti
það hæglega unnið sér sæti í úrslit-
um íslandsmóts með sömu fram-
fórum og eljusemi og þær hafa sýnt
til þessa.
Verðlaunaafhending til handa
ReyKjavíkurmeistumm Fram og hði
KR, er lenti í öðm sæti, fer fram í
Laugardalshöll 15. nóv. nk.
- í 6. flokki karia
Aðeins KR, Víkingur og Fram
tóku þátt í Reykjavíkurmótinu í
6. flokki karla í ár og má ömgg-
lega rekja lélega þátttöku til þess
hve snemma er fariö af stað með
keppni hjá þessum ungu byrjend-
um i handknattleik. Sum félög
em rétt að byrja starfsemina þeg-
ar mót hefst og er það slæmt því
að það er þannig með flesta hluti
aö oft er gott að bytja að kenna
viökomandi íþrótt áður en lagt
er í keppni. Hasglega hefði verið
hægt að gefa félögunum aðlögun-
artíma og hefja síðan keppni, t.
d. í desember, og fá þannig jafn-
ari og stærri keppni.
Keppni í 6. flokki hófst 3. okt.
sl. og var þá spiluö heil umferö.
KR-ingar tóku strax forustuna
með góðum sigram á Fram, 21-3,
og Víkingi, 10-7. Vikingur sigraði
síðan Fram örugglega með 16
mörkum gegn 3.
í seinni umferöinni, sem fór
fram 31. okt. sl., héldu KR-ingar
uppteknum hætti og unnu báða
leiki sína stórt. Þeir em mjög vel
að sigri sínum komnir í Reykja-
víkurmótinu en þeir em með
mjög jafna einstaklinga sem spila
vel fyrir hver annan. Einnig er
vöm og markvarsla góö. Víking-
ar lentu í öðru sæti með sigri á
Fram, 16-4. Atkvæöamestur í liöi
Víkings var leikmaöur að nafhi
Þorbjöm Ath Sveinsson og er þar
mikið eftti á ferðinni sem örugg-
lega á eftir að bera mikiö á í
leikjum Víkings í vetur. Framhö-
ið á örugglega eftir að koma
mikið til en þar er áberandi mest
um drengi á fýrsta ári að ræða
sem em að hefja handboltaferil
sinn.
Verðlaunaafhending verður í
Laugardalshöh 15. nóv. nk. kl.
15.40.