Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1987, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1987, Page 24
24 LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987. Ungfrú heimur Þorsteinn J. Vilhjálmsson á línunni til Lundúna Anna Margrét hefur lagt út i óvissuna í Lundúnaborg. Hér er hún ásamt dyraverðinum á Tara hótelinu. Símamynd VAJ Skot í myrkri Þaö er miðvikudagskvöld í Lundún- um. Klukkan er rúmlega tíu. í herbergi 174 á London Tara hótelinu í Kensington situr ungfrú ísland. Hún er nýbúin aö kveikja á sjón- varpinu. Clint Eastwood er aö salla niöur kúreka með svarta hatta. Á meöan fer ungfrú Ítalía í sturtu. Hún heitir Barbara. Síminn hringir. Anna Margrét Jónsdóttir tekur upp símann án þess að hafa augun af sjónvarpinu. Á hin- um endanum er blaðamaður sem með klókindum sneri á stelpuna á skiptiborðinu. Það má ekki hver sem er hringia í fegurstu stúlkur í heimi, bara sisona. Allra síst blaðamenn. „Nei, ég er svo sem ekkert að horfa á þessa mynd,“ segir Anna Margét og skrúfar niöur í skothríðinni. Chnt er örugglega búinn að kála fjórum. „Ég var annarr rétt að koma inn úr dyrunum. Hópurinn fór saman til Nottingham í dag í eins konar skoð- unarferð." Hvað gerðuð þið ykkur til skemmt- unar? „Við skiptum okkur niður í htla hópa. Ég fór ásamt nokkrum stelpum í stórmarkað í Mansfield og gaf eigin- handaráritanir í allan dag. Það er hður í víðtækri góðgerðarstarfsemi sem er í kringum keppnina. Fólk kaupir sér blað og fær áritanir. Pen- ingunum er svo varið th hjálpar bágstöddum börnum. Svipað var upp á teningnum í hádeginu. Þá voru seldar af okkur myndir.“ Peysuföt í sól Stúlkurnar komu til London á mánudaginn. Þær voru á Möltu í tíu daga. „Það var verið aö taka upp kynningarmyndir fyrir keppnina," segir Anna Margrét og lofar sólina og sandinn. Háttvísir stjómendur keppninnar bönnuðu stúlkunum hins vegar að vera á sundbolum. „Við þurftum ahar að vera í æfinga- göhum sem voru örugglega saumaðir eftir sniði frá 1965. Hólkvíðar skálm- ar og svoleiðis. Annars var þetta skemmthegur tími og stemningin í hópnum var góð. Óþæghegast var þegar við klæddumst þjóðbúningun- um og dönsuðum allar saman í hóp. íslensku peysufötin henta ekki sem best í sól.“ Ullin er vissulega óhentug í hita. Hefði skautbúningur ekki verið hepphegri? „Ég kærði mig ekki um að klæðast öðru en peysufötum," svarar Anna, „þó ekki væri nema til að breyta út af heföinni.“ Peysufötin voru reyndar fengin að láni úr Ár- bæjarsafninu. Það var dæmigert fyrir ahan undirbúning ferðarinnar. „Þetta er búið að setja mig alger- lega á hausinn. Ég væri illa sett ef ég hefði ekki átt góða að,“ segir Anna Margrét. Hún fær farið greitt svo og dagpeninga. Auk þess fékk hún kjól- inn, sem hún klæðist á úrslitakvöld- inu, í verðlaun fyrir sigurinn hér heima. Annað þurfti hún að útvega sjálf, kaupa eða fá lánað. „Ég kvarta samt ekki. Ég er ágætlega sett með það sem ég hef. “ Líka hæfileikakeppni Barabara er enn í baði. Chnt ku vera rétt hálfnaður í að gera upp sakimar við svarna andstæðinga sína í sjónvarpinu. „Ég nenni hvort eð er ekki að horfa á þessi mynd,“ svarar Anna, aðspurð hvort hún sé leið á að hanga í símanum. „Við fór- um annars í leikhús í gær,“ segir hún í óspurðum fréttum. „Við sáum söng- leikinn Time. Ágæt sýning.“ Æfingar fyrir keppnina sjálfa byija ekki fyrr en eftir helgina. Þangað th er bryddað upp á ýmsu th að stytta stúlkunum stundir. „Á morgun á til dæmis að halda hæfileikakeppni inn- an hópsins. Það hafa þegar nokkrar skráð sig th leiks. Flestar ætla held ég að syngja eða dansa. Ungfrú Júgó- slavía sker sig þó úr. Hún ætlar að sýna karate.“ Það hlýtur að vera stólpakven- maður? „Já, hún er býsna kraftaleg. Þetta er skemmtileg týpa.“ Sjálf segist Anna Margrét ekki hafa áhuga á að taka þátt í þessari upphitun fyrir aðalkeppnina. En þessa uppákom- una segir hún vera nokkuð dæmi- gerða fyrir andann í hópnum. „Það er mjög góður mórall í keþpn- inni, bæði meðal keppenda og eins þeirra sem að þessu standa. Mér finnst það og gefa keppninni töluvert ghdi að ágóðinn af þessu öllu skuli renna til góðgerðarstarfsemi. Það eru Morley hjónin sem sjá um skipu- lagningu og framkvæmd keppninn- ar. Þau eru mjög indæl.“ Verndað umhverfi Það er mikið hægt að gera í London á miðvikudagskvöldi eins og alla aðra daga. Stúlkurnar mega hins vegar ekki fara út af hótelinu. Þær þurfa meira að segja að fá sérstakt leyfi th að skreppa niður í anddyri. „Oryggisgæslan er svona ströng vegna ágengni blaðamanna. Útsend- arar blaða eins og Sun og Dahy Express, sitja um að taka af okkur myndir og segja krassandi sögur af keppendum. Þeir eru ahtaf á hælun- um á okkur." Keppnisstjórnin þarf ennfremur að samþykkja öll símtöl sem stúlkurnar fá. Þá gildir að segjast ekki vera blaðamaður, heldur til dæmis föður- bróðir, eða afi. „Það er mjög skrýtið að vera passaður svona og erfitt að venjast því að geta ekki farið ahra sinna ferða. Þegar við komum úr leikhúsinu í gær þá hitti ég nokkra íslendinga. Þeir voru á leið heim af fótboltaleik og komu auga á mig fyr- ir utan hótelið. Landarnir hehsuðu mér og öryggisverðirnir ætluðu gjör- samlega að sleppa sér.“ Hólmfríður Karls staldraði lengur við í Lundúnum en sem nemur einni helgarferð. Muna menn ennþá eftir henni? „Já, það eru margir sem muna eft- ir henni,“ segir Anna Margrét. „Það er greinilegt. að hún vakti mikla at- hygli hér á sínum tíma. Það gengur enda allt út á það. Þá fyrst fer að fara fiðringur um hópinn þegar ljós- myndarar eru nálægt,“ bætir hún við. „Og þegar 83 fallegustu konur í heimi eru samankomnar þá er keppnin hörð.“ í bíó Klukkan er að verða ellefu og nótt- in að leggjast yfir Lundúnaborg. Anna og Barbara mega sofa út dag- inn eftir. Það er gáski í ungfrú Indlandi sem lemur veggina í næsta herbergi. Hlátur. Alvaran byrjar ekki fyrr en á mánudaginn. Þá byrja líka veðmálabankar að kortleggja úrslitin. „Ég býst ekki við miklu," segir Anna Margrét um möguleika sína á sigri. „Maður verður þá ekki fyrir vonbrigðum." Slagurinn um titihnn er snarpur. Sú sem hefur mest af „Eastwood" í sér á líklega mesta möguleika á sigri. Þetta er harður heimur. Stúlkan sem að lokum sigrar fær ekki stúlkuna, eins og í bíómyndinni, heldur kórónu og veldissprota th eins árs. Anna Margrét Jónsdóttir leggur símtóliö á og segist ætla að slökkva á sjónvarpinu. Allra keppenda er stranglega gætt og myndir fást ekki nema fyrir náð og miskunn keppnisstjórnainnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.