Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1987, Qupperneq 39

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1987, Qupperneq 39
LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987. 51 Iþróttapistill ykkur tak íslandsmótið í handknattleik er nú komið vel af stað. Nú er lokið sjö umferðum af átján og allt bendir til þess að mótið verði í jafnasta lagi að þessu sinni. Sjöunda um- ferðin var leikin á miðvikudagmn og gekk mikið á. Leikimir voru flestir mjög spennandi en óvænt- ustu úrslitin voru án efa í leik ÍR og Fram í „Ljónagryf]u“ ÍR-inga í íþróttahúsi Seljaskóla. Skömmu áður en íslandsmótið hófst voru þeir margir sem sögðu að ÍR myndi ekki hijóta stig í deild- inni. Þeir menn’voru þó til er sögðu að liöið myndi spjara sig og þeir hinir sömu viröast ætla aö hafa á réttu að standa. ÍR-ingar hafa nú hlotið sjö stig í deildinni og Guð- mundur Þórðarson, þjálfari liðsins, hefúr þegar gert ótrúlega hluti með liöiö. Og hann hefur í raun gert engu minni hluti inni á leikvellin- um. í leik ÍR og Stjörnunnar á dögunum tryggði Guðmundur liði sínu jafntefli með stórglæsilegu marki úr aukakasti eftir að leik- tíminn var útrunninn og í leik ÍR og Fram á miðvikudag tryggði hann ÍR sigur gegn Fram með marki úr vítakasti eftir aö leik- tíminn var úti. Er þetta hreint ótrúlegur árangur hjá þessum unga þjálfara og eftir umferðirnar sjö hafa ÍR-ingar hlotiö jafnmörg stig og íslandsmeistarar Vikings. Stefnir í einvigi FH og Vals FH-ingar og Valsmenn skipa nú efsta sætið í 1. deild og þaö má mikið gerast ef þessi lið verða ekki í tveimur efstu sætunum þegar upp verður staðið. Þó hljóta lið eins og Víkingu'r og Stjaman að rótta úr kútnum í næstu leikjum. Þau hafa bæði yfir að ráða mannskap til að standa í allra fremstu röð og án efa eiga bæði þessi lið eftir að ógna FH og Val á toppnum. Auövitað er mikið efUr af íslandsmótinu og of snemmt að fara að einskorða FH og Val á toppnum en því verður ekki á móti mælt að þessi liö hafa sýnt besta handknattleikinn það sem af er íslandsmótinu. Gífurlegur áhugi Aðsóknin á leiki 1. deildar í ár hefur verið injög góð og hjá sumum liðum er fullt hús leik eftir leik. í handboltabæmnn Hafnarfirði leik- ur allt í lyndi þessa dagana og færri komast fyrir á áhorfendabekkjun- um á leikjum FH-liðsins en viija. Stuðningur sem þessi er FH-íngum ómetanlegur og þeir veröa ekki margir, leikimir, sem FH tapar á heimavelli sínum ef liðið tapar á annað borð leik þar. Hvað aösókn varðar er sömu Umsjón: Stefán Kristjánsson sögu aö segja af öörum hðum l. deildar. Meiri áhugi virðist vera á Akureyri en verið hefur og í Digra- nesi laða Breiöablik og Stjaman til sín feikilegan fjölda áhorfenda. ÍR- ingar virðast hafa á að skipa öflugu liöi stuðningsmanna f Breiðholtinu og svona mætti lengi telja. Hver er ástæðan? Heimkoma margra leikmanna, sem leikið hafa erlendis í áraraðir, á eflaust stærstan þátt í uppsveifl- unni sem nú dynur yflr í liand- knattleiknum hér á landi. Þeir seija skemmtilegan svip á mótið og það er staðreynd aö ef spjallir leikmenn og góð lið em í boði láta fslenskir íþróttaáhugamenn sig ekki vanta. Svo viröist sem félagsliðin hafi undirbúið sig gífurlega vel fyrir íslandsmótið að þessu sinni. Það er líka staðreynd að handknattleik- urinn í vetur er nokkram gæða- flokkum ofar en i fyrra. Vonandi verður framhald á jöfnum og góð- um leikjum liðanna í 1. deild en eins og staðan er í dag virðist ekk- ert geta komið í veg fyrir að ís- landsmótið í ár verði eitt hið skemmtilegasta í áraraðir. Karfan situr eftir með sártennið Sú var tíð að áhorfendur flykkt- ust á leiki í úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Þegar erlendir leik- menn léku með liðunum fyrir nokkrum árum, einn í hveiju liði, var gífurlega mikili áhugi á körf- unni hér á landi en nú er svo komið að örfáir áhorfendur fylgjast með leikjum liðanna. Á sínum tima voru erlendir leikmenn bannaðir og ástæöan fyrir banninu var fyrst og fremst sú aö illa var staðið að málum hjá félögunum. Erlendu leikmönnunum vora greidd laun sem væra þeir í ffemstu röð í heim- inum og afleiðingin varð sú að félögin höfðu ekki fjártnagn til að standa undir greiöslunum þrátt fyrir að áhorfendur fjölmenntu á leikina. íslandsmótið sorgarsaga Að mínu mati er Islandsmótið í körfuknattleik að breytast í sorgar- sögu. Þeir menn, sem komu því til leiðar að erlendu leikmennimir voru bannaðir, geta nú glaöst yfir því að vinsældir körfúknattleiksins hér á landi eru í algera lágmarki. Og til að bæta gráu ofan á svart virðist ekki mega hrófla viö þvi fáránlega keppnisfyrirkomulagi sem viögengst í úrvalsdeildinni. Þegar ákveðiö var að taka upp úr- slitakeppni fjögurra efstu liöanna að deildakeppninni lokinni var íþróttinni í raun greitt rothöggið. Leikir liðanna fram aö úrslita- keppninni skipta afar litlu máli og í vetur er það til dæmis 99% öruggt hvaöa lið komast í úrslitakeppnina í vor. Er það skrítið að fólk nennir ekki að fjölmenna á leikina fram að úrslitakeppninni þegar það ligg- ur á borðinu hvaða hð komast áfram? Ástandið kallar ekki á mikla umfjöllun fjölmiðla Þeir menn era til sem eru þeirrar skoðunar að körfuknattleikurinn eigi að fá álíka mikla umfjölhm í fjölmiðlum og til dæmis handknatt- leikurinn. Þetta er að mínu raati ekki rétt. Áhuginn á handknatt- leiknura er svo miklu meiri og fjölmiðlai- reyna jú alltaf að sinna því sem lesendur hafa áhuga á hverju sinni, Staða handknatt- leiksins og körfuknattleiksins er raunar eins og svart og hvitt. Forr- áðamenn körfuknattleiksins ættu aö taka sér tak, breyta keppnis- fyrirkomulaginu og leyfa erlendu leikmennina á ný en umfram allt að fara skynsamlegar í hlutina en áður. Afleiðingin yrði án efa sú að fjölmiðlar íjölmenntu á leikina í úrvalsdeildinni og áhorfendur fylltu iþróttahúsin. Þeir sem ekki vilja gera þessar breytingar vifja körfúknattleiknum ekki vel. Stefán Kristjánsson Fréttir Stjórn LÍN ræðir hér um tillögu námsmanna sem felur i sér hækkun námsl- ána um 15%. Tillögunni var vísað frá. DV-mynd KAE Lánasjóður íslenskra námsmanna: Tillögur námsmanna kosta 200 milljónir „Það alvarlega viö þessar málalyktir er að stjórn Lánasjóðsins telur það ekki hlutverk sitt að taka ákvörðun í þessu máli,“ sagði Theódór Guö- mundsson, fulltrúi stúdentaráös í Lánasjóði íslenskra námsmanna, vegna þeirra ákvörðunar LÍN að vísa frá tillögu frá fulitrúum námsmanna um að framfærsluvísitala, sem námslán byggjast á, verði leiðrétt. Byggir sú leiðrétting á 15% hækkun námslána sem kosta myndi ríkissjóð 200 milljónir. „Enn alvarlegra var kannski aö á fundinum var lögð á borðið sú skoö- un að námsmenn byggju þegar við það góð lífskjör að þeir þyrftu ekki á hækkun að halda. Annars virðist málið vera komið í sjálfheldu, ráð- herra og stjóm Lánasjóðsins vísa hvort á annað og ekkert er að gert.“ Um frekari ráðstafanir stúdenta vildi Theódór lítið segja, máli yrði skoðað á fundi Stúdentaráðs í næstu viku: „Við höfum ekki sagt okkar síðasta orð í þessu máli.“ _• Þarf erlend lán? Þrátt fyrir aö stjórn LÍN hafi svo gott sem vísað framfærslumálinu til menntamálaráöuneytis kannast menn þar á bæ ekki við aö hafa feng- ið það formlega í hendur. „Ráðherra hefur verið spuröur um þessi atriði og hefur sagt að hann sjái ekki að hann þurfi að hafa frumkvæði í þessu máli,“ sagði Guðmundur Magnússon, aöstoðarmaður mennta- málaráðherra. Hann bætti viö aö nefnd væri starfandi sem ætti að taká*" afstöðu til framfærsluþarfar og á meðan nefndin starfaði héldu menn að sér höndum. Þá bætti Guðmundur við aö þessar 200 milijónir, sem um væri að ræða, væra viðbót sem þyrfti aö taka erlend lán fyrir ef af yrði. Hafði hann ekki mikla trú á að svo myndi fara. -SMJ Fjármögnunarleiga: Höftin gagnslaus en gastu hækkað vextina „Það var komið a jafnvægi á fjár- mögnunarmarkaðnum þegar ríkis- stjómin setti reglur um 30% innlent fé 1 hvern samning í staðinn fyrir heimild til 100% erlendrar fjármögn- unar áður. Þannig séð skipta þessi höft ekki máli en við óttumst enn að aukinn þrýstingur á innlenda láns- fjármarkaðinn hækki vextina sem era háir fyrir,“ segir Kristján Óskarsson, framkvæmdastjóri Glitn- is hf. Eins og áður snýst fjármögnunar- leiga um kaup á tækjum fyrir at- vinnulífið. Fjármögnunarleigufyrir- tækið tryggir þá atvinnufyrirtækinu vél eða tæki og leigir því það til langs tíma. Kaupleigusamningur er annað fyrirbæri í sama tilgangi, en í því til- felli færist eignarrétturinn á at- vinnufyrirtækið við samningsgerð. Tækjaleiga með þessum hætti þykir dýr en getur samt í mörgum tilfellum borgaö sig þegar fyrirtæki era að byggja sig upp án nægilegs eigin fjár. Þegar fjármögnunarleigan hófst að einhveiju marki á síðasta ári kom í Ijós mikil þörf í þessum dúr en að sögn framkvæmdastjóra GUtnis var aldan að ganga yfir um mitt þetta ár og eftirspum orðin eðlileg. Fyrirtæk- in selja skuldabréf á innlendum markaði til þess að standa undir fjár- mögnunarleigunni og fá kaupendur þeirra nú 11,1% ávöxtun rnnfram verðbólgu. Kostnaður viö bréfin er þó alls um 12%. Þetta sýnir að fjár- mögnunin þarf að skila nijög hárri leigu þótt erlenda lánsféð sé nokkra ódýrara. Áð sögn Kristjáns Óskarssonar var innlend fjármögnun fyrir nýju regl- umar um 30% af heildarfé leigm' samninga í fjármögnunar- og kaupleigu. Nú er þaö um 50% og svo hátt hlutfall skýrist af því að sumt af fjármögnuninni er óheimilt með öllu að sækja til útlanda. Það gildir til dæmis um bíla sem eru léttari en þrjú tonn. -HERB Akranes: Lögreglan upplýsir innbrot i Lögreglan á Akranesi hefur upp- lýst innbrot í tvær verslanir. Brotist var inn í verslanimar Grundarbúð og Skútuna -um síðustu helgi. Nokkra af vamingi var stolið og verslamr skemmdir unnar. Þrír menn um tvítugt hafa játaö að hafa framið innbrotin. Þegar þeir frömdu innbrotin vom þeir undir áhrifum áfengis. -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.