Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1987, Blaðsíða 46
$8
LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987.
Því að svo elskaði guð sauðkindina...
Þeir sem hafa mestalla visku sína
úr dagblöðunum eiga það síst á
hættu að verða taldir til mikil-
menna sögunnar en hins vegar
gæti svo farið aö þeir yrðu kosnir
á þing eða gerðir að malbikunar-
stjórum.
Samt sem áður er margt vit-
lausara en það að lesa hlöðin og
stundum er sagt frá mjög merkileg-
um hlutum í þeim eins og til dæmis
hvað eitt kíló af gulrófum kostar í
hinum og þessum verslimum og
kemur þetta sér mjög vel fyrir þá
sem eru ákveðnir í því að kaupa
ódýrustu gulrófurnar í hænum í
helgarmatinn.
Og um daginn las ég í blöðunum
frásagnir af því að á Alþingi íslend-
inga, sem er elsta þing í heimi,
langaði menn mest af öllu til að
setja lög um það hvar drepa mætti
sauðkindina og hvar ekki og menn
urðu svo æstir vegna þess að dýra-
læknar töldu ekki ráðlegt að drepa
þessi grey þar sem mikið væri um
rottugang og mannaskít að þeir
fóru að tala um mafíur, sem er af-
skaplega ljótt orð, og vildu þar að
auki, að því er manni skildist,
koma á fót nefnd til að rannsaka
gerlafíöldann í yfirdýralækni.
Um þetta héldu menn langar ræð-
ur og urðu fyrir mikilli geðshrær-
ingu og sumir urðu svo æstir að
þeir vildu gefa undanþágu til að
slátra hverri einustu rollu í
landinu og þótt það sé kannski ekki
skynsamlegt að mati bændastéttar-
innar hefði þetta leyst vanda
landbúnaðarins að hluta.
Margt fleira var skrafað og skegg-
rætt um þetta mál og auðvitað var
þessu bæði útvarpað og sjónvarpað
til að það færi nú örugglega ekki
framhjá neinum hvað menn hefðu
fyrir stafni niðri við Austurvöll
þegar vel lægi á þeim.
Annaðmál
Þótt fyrirferðarmesta efnið í blöð-
unum sé að jafnaði auglýsingar og
umfíöllun um Sylvester Stallone,
sem gæti ráðið sig á olíuskip sem
þokulúður þegar hann hættir að
gera það sem hann gerir í bíómynd-
unum sínum, er oft hægt að finna
í þeim hagnýtan fróðleik.
Um daginn lærði ég til að mynda
hvað á að gera ef tveir slordónar
koma æðandi utan úr myrkrinu
þegar maður er staddur fyrir utan
veitingastað og pota með hríð-
skotariffli í bakið á manni eins og
maður sé ijúpa og skipa manni að
keyra sig á næsta veitingastað ef
maður vilji halda lífi og limum og
konunni sinni.
Þegar þannig stendur á fyrir
manni má maður alls ekki hlýða
slordónunum, ekki einu sinni þótt
þeir stingi handsprengju upp í kon-
una manns og hóti að taka úr henni
pinnann, það er að segja hand-
sprengjunni - Og hver á þá að
vaska upp eftir matinn, segja þeir
kannski til að sýna hvað þeim er
mikil alvara og pota enn fastar í
rifbeinin á manni með hríðskotar-
anum.
Þótt ástandið sé ekki beint glæsi-
legt á maður undir þessum kring-
umstæðum að vera alveg voðalega
rólegur og harðneita að keyra slor-
dónana því að samkvæmt íslensk-
um lögum varði það ökuleyfissvipt-
ingu að aka bfl undir áhrifum
áfengis á meðan maður er á lífi.
Hins vegar skipti Hæstiréttur sér
ekki nokkurn skapaðan hlut af því
hvað menn geri eftir dauðann í
þessum efnum.
- Allt í lagi, segja slordónamir
þá, - ef við skjótum þig fyrst í tætl-
ur lofarðu þá að keyra okkur á
skemmtistaðinn?
- Ekkert sjálfsagðara, kæru vinir,
svarar maður slordónunum og
hlær með sjálfum sér að því hvað
það er auðvelt að plata þessa kjána.
Háaloft
Benedikt Axelsson
Þótt þessi aðferð við að kljást við
slordóna sé kannski ekki alveg
sársaukalaus kemur hún í öllum
tilfellum í veg fyrir að Hæstiréttur
svipti mann ökuréttindum og er þá
tilganginum náð.
En nú kann einhver að hugsa sem
svo að það svari ekki kostnaði að
láta skjóta sig í tætlur í þeim til-
gangi einum að fá að hafa ökuskír-
teinið sitt í friði fyrir Hæstarétti en
það er mesti misskilningur.
Ég þekki nefnilega mann sem á
fíóra bfla og var sviptur ökuleyfinu
um daginn fyrir að aka ölvaður,
reyndar ótilneyddur, og ég þori að
fullyrða að þessum vesahngs
manni líður jafhvel verr en mönn-
unum niðri við Austurvöll sem
vildu endilega leyfa kindunum á
Bíldudal að deyja heima hjá sér
samkvæmt lögum.
Kveðja
Ben. Ax.
Finnurðu
átta breytingar?
68
Þessar tvær myndir sýnast í fljótu bragöi eins. En á
neðri myndinni hafa fallið burt hlutar af myndinni eða
þeir breyst, alls á átta stöðum. Það er misjafnlega erfitt að
finna þessar breytingar en ef fjölskyldan sameinast um að
leysa þetta trúum við því að allt komi þetta að lokum.
Merkið með hring eða krossi þar sem breytingamar eru
og sendið okkur neðri myndina. Skilafrestur er tíu dagar.
Að þeim tíma liðnum drögum við úr réttum lausnum og
veitum þrenn verðlaun, öll frá versluninni Japis, Brautar-
holti 2. Þau eru Supertech ferðatæki (verðmæti 3.860,-), LED
útvarpsvekjari (verðmæti 2.350,-) og Supertech útvarpstæki
(verðmæti 1.365,-).
I öðru helgarblaði héðan í frá birtast nöfn hinna heppnu
en ný þraut kemur í næsta helgarblaði.
Góða skemmtun!
Merkið umslagið:
„Átta breytingar - 68, c/o DV, pósthólf5380,125 Reykjavík.
Verðlaunahafar 66. gátu reyndust vera: Hrafnhildur Guð-
björnsdóttir, Víkurtúni 15, 510 Hólmavík (ferðatæki);
Ingibjörg Þorvaldsdóttir, Jörvabyggð 6, 600 Akureyri (út-
varpsvekjari); Halla Gunnlaugsdóttir, Espilundi 18, 600
Akureyri (útvarpstæki).
Vinningamir verða sendir heim.