Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1988, Page 7
LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1988.
7
dv_______________________________________Stjómmál
Frumvarp um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds:
Ekki einkamál mitt
né Alþýðuflokksins
- segir Jón Sigurðsson dómsmálaráðherra
af færustu lögfræðingum landsins,
m.a. úr Sjálfstæðis- og Framsóknar-
flokki. Frumvarpið er samið af nefnd
manna úr öllum flokkum. Þetta er
því ekki okkar flokksmál þó að við
viljum auðvitað greiða framgöngu
málsins.
í fimmta lagi vil ég taka það fram
að þó að Páll Pétursson tefli fram
ályktun Sýslumannafélags íslands
gegn frumvarpinu þá hafa Lög-
mannafélag íslands, Réttarfarsnefnd
og Dómarafélagið ályktað með því.“
Jón sagði að það gæti varla leikið
neinn vafi á því að hér væri um ákaf-
lega mikilvægt mál að ræða. Réttar-
kerfi okkar væri undir smásjá
mannréttindadómstólsins í Strass-
bourg en ekki mætti leika neinn vafi
á því að íslenskt réttarfar fullnægi
mannréttindakröfum í Evrópu. En
hversu langt er Jón tUbúinn að ganga
til að ná samkomulagi um frum-
varpið?
„Eg legg mikla áherslu á þetta
mál. Þetta er framfaramál sem dreg-
ist hefur úr hömlu að Uytja. Um
meginregluna verður ekki deUt, en
um hitt er ég tilbúinn að ræða, þar
með talinn kostnaðinn, þannig að
framsóknarmenn geti sætt sig við
hann. Það er þó ljóst að réttarríkið
kostar sitt.“ -SMJ
Dómsmálaráðherra, Jón Sigurðs-
son, telur að ummæli þau sem höfð
voru eftir PáU Péturssyni í DV lýsi
ekki afstööu annarra framsóknar-
manna til frumvarps hans um
aðskilnað dómsvalds og umboðs-
valds. Segir ráðherra að hinir stjórn-
arflokkamir séu síður en svo búnir
að hafna frumvarpinu og verði það
lagt fram á þingi, sem stjórnarfrum-
varp, svo fljótt sem kostur er.
Um ummæli Páls sagði dómsmála-
ráðherra:
„í fyrsta lagi vil ég taka það fram
að frumvarp um aðskilnað dóms-
valds og umboðsvalds í héraði er
ekki einkamál mitt né Alþýðuflokks-
ins. Það vab samkomulag um þetta í
stjórnarsáttmálanum, enda tel ég að
hér sé um heiðursmál að ræða.
í öðru lagi þá er ekki rétt að þing-
flokkar framsóknarmanna og sjálf-
stæðismanna hafi hafnað frumvarp-
inu. - Hið rétta er að það er enn í
athugun enda skiptar skoðanir um
margt í frumvarpinu.
í þriðja lagi þá er það fullkomlega
órökstudd fullyrðing hjá Páli Péturs-
syni að það fylgi gífurlegur kostnað-
ur þessu frumvarpi. í raun þyrfti
ekki að vera neinn kostnaðarauki
fylgjandi frumvarpinu ef embættum
yrði fækkað, eins og stóð til í upp-
Jón Sigurðsson: Samkomulag um
þetta í stjórnarsáttmálanum.
hafi. Hætt var við það vegna land-
fræðilegra ástæðna sem framsóknar-
menn þekkja vel.
í fjórða lagi vil ég mótmæla þeirri
fullyrðingu Páls að ekki sé sjáanleg-
ur ávinningur af frumvarpinu. í
frumvarpinu er loksins gert það sem
þarf að gera til að tryggja réttláta
málsmeðferð alls staðar á landinu.
Að frumvarpinu hafa unnið margir
Páll Pétursson, formaður þingflokks framsóknarmanna:
Píp í
„Við framsóknarmenn erum alveg
tilbúnir að fallast á að frumvarp
dómsmálaráðherra verði lagt fram
ef hann vill gera þær breytingar á
því sem við viljum. Annars verð ég
að segja að mín vegna má þetta mál
vel bíða til haustsins. Þetta píp í
Strasbourg þarf ekki að taka alvar-
lega enda nota stuðningsmenn
þessara hugmynda það aðeins til að
Strasbourg
ýta sínu máli áfram,“ sagði Páll Pét-
ursson um „sýslumannafrumvarp"
Jóns Sigurðssonar dómsmálaráð-
herra. Páll, sem var staddur á búi
sínu á Höllustöðum, sagði að varla
yrði rætt um málið fyrr en eftir helgi.
Páll sagði að þeir framsóknarmenn
vildu heldur fara þá leið að gera lög-
regluna sjálfstæöari og taka lög-
regluembætti undan sýslumönnum.
Með því væri unnt að gera lögregl-
una að sjálfstæðum rannsóknar-
aðila.
„Þá er dómsmálaráðherra frjálst
að koma með nýtt frumvarp og þá
þarf bara að taka afstöðu til þess
þegar þar að kemur,“ sagði Páll.
-SMJ
„Sýslumannafrumvarp“ dómsmálaráðherra:
Frumvarpið lagt fram
en síðan svæft í nefnd
Líklegast er talið að dómsmálaráð-
herra, Jón Sigurösson, fái samþykki
framsóknar- og sjálfstæðismanna til
að leggja fram frumvarp sitt um að-
skilnað dómsvalds og umboðsvalds í
næstu viku. Talið er þó öruggt að
málið verði síöan svæft í nefnd og fái
ekki afgreiðslu á þessu þingi.
„Það eru ýmsar efasemdir um þetta
mál í okkar flokki enda fer skoðun í
þessu máli ekki eftir flokkum. Okkur
þykir ljóst að þessu fylgir mikill
kostnaður og þá eru skiptar skoðanir
um ýmis efnisatriði. Afgreiðslu máls-
ins hefur verið frestaö hjá okkur en
það stendur til að ræða það yfir helg-
ina,“ sagði Halldór Ásgrímsson,
varaformaður Framsóknarflokks-
ins. Halldór sagði að ef frumvarpið
yrði lagt fram þá kæmi það til meö
að verða með miklum fyrirvörum og
það þyrfti án efa mikla vinnu viö það
í nefndum og útilokað væri að ljúka
því á yfirstandandi þingi.
En samþykkja framsóknarmenn að
frumvarið verði lagt fram sem
stjórnarfrumvarp?
„Þaö er ekki ljóst ennþá en því
hefur heldur ekki verið hafnað,"
sagði varaformaður Framsóknar-
flokksins.
-SMJ
Eiga bjórandstæðingar mótleik í efri deild?
Breytingartillaga getur tafið málið
Bjórfrumvarpið ætti að vera
komið til efri deildar um miðjan
april en þriðja umræða er eftir í
neðri deild. Almemit er talið aö
frumvarpið fái greiða afgreiðslu
þar, en þó hefur heyrst að bjórand-
stæðingar eigi hugsanlegan mót-
leik í efri deild. Sá leikur felst í því
að bera upp breytingatillögu sem
myndi kosta aðra umferð í neðri
deild ef hún væri samþykkt. Þessi
leikur var leikinn síöast þegar bjór-
inn komst til efri deildar og er mál
manna að það hafi stuðlað aö því
að það var ekki samþykkt þá.
í samtali við Guðna Ágústsson,
einn flutningsmanna tillögunnar,
kom fram að þeir flutningsmenn
hefðu ekki miklar áhyggjur af því
að málið fengi ekki afgreiðslu nú.
Sagöi Guðni að í efri deild væru
menn hreinskiftari í afstöðu sinni
til bjórsins og þá væri allsherjar-
nefnd efri deildar ekki líkleg til að
teíja málið. Þá verður minna af
varamömium inni það sem eftir
þings, en afstaða þeirra hefur oft
hleypt óvissu í atkvæðagreiðslu
um bjórinn. Guöni sagði að það
væri sín skoðun að bjóttnn yröi
samþykktur á þessu þingi.
SMJ
Beint frá Ítalíu
Litil rókókósófasett
3 + 1+1. Verð kr. 57.600,-
Yfir 20 gerðir af speglum
í römmum frá kr. 2.200,-
Hornskápar
28.900,- 19.635,- 12.800,-
Lítil kommóða símaborð innskotsborð
kr. 5.900,- kr. 5.400,- kr. 7.900,-
Rókókósófasett. Verð frá kr. 88.800,-
Opið alla daga kl. 10-19
SNýja
<BólsturgGrðin
Garðshorni við Fossvogskirkjugarð, simi 16541