Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1988, Blaðsíða 34
46
LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1988.
BÆJARFÓGETINN
í KÓPAVOGI
Hjá lögreglunni í Kópavogi eru í óskilum reiðhjól,
létt bifhjól, úr og fleira. Munir þessir verða til sýnis
á lögreglustöðinni, Auðbrekku 10, mánudaginn 11.
maí til 15. maí nk.
Þeir munir sem ekki verður vitjað verða seldir á opin-
beru uppboði laugardaginn 7. maí r>k. kl. 13.30.
Lögreglan í Kópavogi
Útboð
Neskaupstaður óskar eftir tilboðum í byggingu 1.
áfanga mötuneytis og heimavistar verkmenntaskóla
Austurlands.
Byggingin er 3 hæðir og er stærð hennar 1268 ferm,
eða um 4006 rúmmetrar.
Verkefnið nærtil alls þess er þarf til aðfullklára húsið.
Útboðsgögn verða afhent á bæjarskrifstofu Nes-
kaupstaðar, Egilsbraut 1, Verkfræðistofu Sigurðar
Thoroddsen, Glerárgötu 30, Akureyri, og Arkitekta-
stofunni, Borgartúni 17, Reykjavík, gegn 7000 kr.
skilatryggingu.
Tilboósfrestur er til kl. 11.00 mánudaginn 2. maí og
verða tilboðin þá opnuð.á skrifstofu bæjartæknifræð-
ings, Egilsbraut 1, Neskaupstað, í viðurvist þeirra
bjóðenda er viðstaddir verða.
Bæjarstjórinn, Neskaupstað
BILEIGENDUR
BODDÍHLUTIR!
Bíltegund: Varahlutur: Verð: BiJtegund Varahlutur: Verð:
MAZDA POLSKY
929.árg. 1973-77 bretti 4.900 Polonez frambretti 5.000
929. árg. 1978-31 818,árg. 1972 - - bretti bretti 5.800 4.900 RANGE ROVER
323.árg. 1977-80 bretti 4.900 frambretli 5.800
Plckup 1977-81 bretti 4.900 afturbretti 6.800
do SUBARU svunta 2.200 GMC USA Chevrolet Blazer frambretti 7.500
1600 4WD, árg. 1977-79 bretti 4.900 1973-1982 brettakantar
1600 FWD.árg. bretti 4.900 do stærri gerð 15.000
1977-79 do skyggni 6.000
do svuntur 2.300 brettakantar
1600, árg. 1980-34 bretti 4.900 do minni geró 10.000
VOLVO Ch. Blazer Jimmy 1986 brettakantar 10.000
242-265 1980-83 bretti 5.500 Ch. Van 1973 — brettakantar 10.000
Lapplander brettakantar (sett) 10.000 AMC USA
Volvovörub. sólskyggni 6.500 AMC Concord bretti 8.000
F88 bretti 5.500 AMCEagle bretti 8.000
FORD UK FORD USA
Ford Esc. 1974 bretti 4.800 F. Econoline 1976-86 brettakantar 10.000
Ford Esc. 1975-80 bretti 4.900 skyggni
Ford Cort/Taunus bretti 5.800 F. Econoline st. geró 8.000
1976-79 skyggni
NISSAN DATSUN F. Econoline F. Bronco 196S-77 m. geró bretti 6.000 7.500
Datsun280C 1978-83 bretti 9.600 brettakantar
Datsun 220-2801976 bretti 7.800 do stærri gerð 9.900
79 brettakantar
Datsun180B 1977-30 bretti 4.900 do minni gerð 8.900
D.Cherry Pulsar bretti 4.900 Bronco I11986 brettakantar 12.000
1977-32 Bronco Rangerog brettakantar 10.000
Dats. 120Y-140Y- bretti 4.900 pickup
B3101978-31 do skyggni 6.000
Nissan Patrol brettakantar 10.000 do bretti 7.500
do silsalistasett TOYOTA 7.000 CHRYSLER Dodge Dart 1974 bretti 8.000
T. LandCruiser, I. gerd brettakantar 12.000 Dodge/Aspen
T. LandCr., minni gerö brettakantar 12.000 Pl. Volaré 1976 — bretti 8.000
1986 Chrysler Baron
Toyota Tercel 1979-32 bretti 4.900 D. Diplomat 1978 - bretti 8.000
Toyota Tercel 1977-78 bretti 4.900 brettak.
Toyota Carina bretti 4.900 Dodge Van 1978- - meðspoiler 13.000
1970-77 do skyggni 6.000
Toyota Cressída 1977-30 bretti 5.900 JEEP
ToyotaHiLux skyggni 5.500 Gj-5 bretti, styttri geró 5.900
do brettak 12.000 Gj-7 bretti, lengri gerö 6.900
do brettak 9.000 Gj-5 samstæóa framan 32.500
LADA Lada 12001972 station v bretti 3.900 do brettakantar, breióir 10.000 HONDA
Lada 1300-15001973 bretti • 4.900 Honda Accord 1981 bretti 4.900
Lada Sport frambretti do brettakantar 3.900 6.800 ISUZU
do framstykki 4.800 Isuzu Trooper bretti 7.500
DAIHATSU BENZ
Charmant 1978-79 bretti 6.000
Charrnant 1977-78 bretti 6.000 Vörubíll (huddlaus bretti 11.000
Charmant 1977-79 Charade 1979-1983 svunta bretti 2.800 6.500 SCANIA VABIS
MITSUBISHI Scania, afturbyggó bretti
Lancer1975-79 bretti 5.000 Scania brettab. f. framb.
Galant 1975-77 bretti 5.800 Scania kassif. kojubil
Galant 1977-80 bretti 6.800 Scania hlif f. aftan
Pajero brettakantar 10.000 framhjól.
Scania 80 frambretti
Scania frambretti
l Scania sólskyggni
Nýkomnir breiðir brettakantar á Lödu Sport.
Sólskyggni og gangbretti.
Póstsendum
BILAPLAST
Póstsendum
[M|i| Vagnhöfða 19,
110 Reykjavík, EE ■
sími 688233. EUROCAno
Handknattleikur unglinga________dv
Grótta íslandsmeistari
- sigraði ÍBV í úrslitaleik
Nokkuö var um óvænt úrslit í úr-
slitakeppni 2. flokks kvenna sem
fram fór helgina 18.-20. mars si. í
íþróttahúsinu í Hafnarfirði. Flestir
bjuggust við að í úrslitaleiknum
mundu eigast við lið Víkings og
Stjörnunnar sem höfðu átt góðu
gengi að fagna í mestallan vetur. Það
var þó ljóst að lið Gróttu, FH og ÍBV
gátu sett strik í reikninginn og varð
raunin sú. Til úrslita í 2. flokki
kvenna spiluðu lið Gróttu og ÍBV en
Víkingur og Stjarnan bitust um 3. -
4. sætið.
Grótta íslandsmeistari
Strax í upphafi úrslitaleiks Gróttu
og ÍBV var ljóst hvort liðið myndi
bera sigur úr býtum enda var munur
á liðunum nokkuð mikill. Stax á
fyrstu mínútunum náðu Grótt-
ustúlkurnar nokkurra marka for-
ustu þrátt fyrir að þeirra aðalleik-
maður, Þuríður Reynisdóttir, væri
tekin úr umferð allan leikinn. Grótt-
ustúlkurnar náðu strax þriggja
marka forustu sem þær létu ekki af
hendi allan leikinn og unnu þær
sannfærandi sigur, 14-11.
Lið Gróttu er vel að þessum sigri
komið, liðiö hefur á að skipa sterkum
einstaklingum en erfltt er að gera
upp á milli einstakra leikmanna liðs-
ins. Vel útfærður varnarleikur má
segja að hafi ráðið úrslitum leiksins.
Þrátt fyrir það að ÍBV næði ekki
að sigra Gróttu í þessum leik er ár-
angur liðsins mjög góður og sýnir
það best styrk liðsins að því skyldi
takast að skjótast upp fyrir önnur
sterk lið.
Mörk Gróttu:
Sigríður Snorradóttir 6, Þuríöur
Reynisdóttir 4, Laufey Sigvaldadóttir
2 og Brynhildur og Elísabet Þorgeirs-
dætur 1 mark hvor.
Mörk ÍBV:
Guðfinna Tryggvadóttir 4, Arnheið-
ur Pálsdóttir 4, Stefanía Guðjóns-
dóttir 2, og Berglind Ómarsdóttir 1.
Víkingur hirti bronsið
Framlengingu þurfti til að skera úr
um hvort liðið hlyti bronsið í hörku-
leik Víkings og Stjörnunnar um 3.
sætiö.
Stjarnan byrjaði mjög vel og náði
nokkurra marka forustu um miðbik
leiksins óg virtist allt stefna í örugg-
an sigur þeirra. Víkingsstúlkurnar
voru ekki á sama máli og náöu með
miklu harðfylgi að jafna stuttu fyrir
lok leiksins, 12-12. Framlengja þurfi
því leikinn um 2x5 mínútur, þar var
liö Víkings sterkara svo um munaði
og sigraði með fjögurra marka mun,
17- 13.
Fyrirliði Víkings, Halla María
Helgadóttir, var þeirra best en Her-
dís Sigurbergsdóttir var atkvæöa-
mest í liði Stjörnunnar að venju.
Liö FH olli nokkrum vonbrigðum
í úrslitakeppninni en náöi þó að
tryggja sér 5. sætið gegn ört vaxandi
liði IR, 15-9.
UBK varö í 7. sæti eftir sigur á
UMFA, 17-13 og í leik um 9. sætið
sigruðu Haukastúlkur lið Fram,
18- 10.
Röð liðanna var því þessi: 1. Grótta,
2. ÍBV, 3. Víkingur, 4. Stjarnan, 5.
FH, 6. ÍR, 7. UBK, 8. UMFA, 9. Hauk-
ar, 10. Fram.
• íslandsmeistarar Gróttu í 5. flokki kvenna.
Mikil barátta í
5. flokki kvenna
- Iið Gróttu hlutskarpast
{ íþróttahúsi Álftamýrarskóla fór
fram úrslitakeppni í 5. flokki kvenna
og var leikið með ööru sniði heldur
en í öðrum flokkum þar sem aðeins
voru spilaöar þrjár umferðir og réð
samanlagður stigafjöldi röð liða.
Grótta stóð best að vígi fyrir þessa
umferö en Stjarnan og Haukar veittu
þeim mikla keppni og mátti lítið út
af bera til þess aö lið skiptu ekki um
sæti fyrir lok keppninnar.
Hið stórgóða lið Gróttu gaf ekkert
eftir í þessari höröu baráttu um ís-
landsmeistaratitilinn og varð titill-
inn þeirra þrátt fyrir tap gegn
Stjörnunni, 2-4 þar sem Stjarnan
gerði jafntefli við Fram, 5-5.
Sigurganga Gróttu hefur verið ein-
stök í vetur og hefur það verið saga
til næsta bæjar ef þær hafa tapað
leik slíkur er styrkur liðsins. Þær
tóku þátt í jólamóti Hauka ásamt
nokkrum sterkum liðum og sigruðu
þaö örugglega. Lið Gróttu hefur því
sigrað tvöfalt í vetur og eiga þær
örugglega eftir aö vekja mikla at-
hygli á handboltavellinum um
komandi framtíö.
Stjarnan hafði betur í slagnum um
annað sætið við Hauka, gerði aðeins
jafntefli við Fram í síðustu umferð-
inni en unnu 'áðra leiki sína nokkuð
örugglega og í úrsltitaleiknum um
2. sætið sigruð þær lið Hauka, 15-9.
Haukastúlkurnar urðu því að gera
sér 3. sætið að góðu en geta vel við
unaö og eiga þær örugglega eftir að
blanda sér enn meir i toppbaráttuna
í þessum aldursflokk er fram líða
stundir.
Lið FHsem var í 6. sæti fyrir úrsli-
taumferðina sýndi góða takta í
síðustu leikjum sínum og þutu upp
í 4. sætið með því að sigra alla leiki
sína nema gegn Stjörnunni og
Gróttu.
UMFG sem var í 5. sæti hélt sæti
sínu og varð því ekki ógnað þar sem
lið Víkings sem var í 4. sæti fyrir
þessa umferð sigraði aðeins lið Fylk-
is. Þetta slaka gengi Víkings í úrsli-
taumferðinni varð þess valdandi að
lið Fram náöi þeim að stigum og deila
því Fram og Víkingur með sér 6.
sætinu.
Lið Fylkis varð í 8. sæti, tapaði öll-1
um leiKjum sínum í úrslitunum.
Þrátt fyrir að miklu skipti hverjir
verði íslandsmeistarar er áberandi
hversu mikil gleði og áhugi er ríkj-
andi þegar 5. ílokkur kvenna er á
ferö. Langflestir þjálfarar virðast
hafa það að leiðarljósi að efla áhuga
leikmannsins og hér fá allir að fara
inn á, hvernig sem á stendur.
Þrátt fyrir að hér séu á ferðinni
stúlkur sem eru að stíga sín fyrstu
spor á handboltavellinum eru miklar
framfarir sjáanlegar frá hausti og ef
vel er haldið á spöðunum er ljóst að
hér er tækifærið til að koma upp með
nýja og sterka kynslóð í kvenna-
handboltanum.