Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1988, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1988, Blaðsíða 40
52 LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1988. Lífsstm DV Costa del Sol á Spáni: Fólk flrrnur flest sem það Ieitar að á Sólarströndinni - sem er stærsti og fjölbreyttasti sumarleyfisdvalarstaður Spánar Eitt af hinum dæmigerðu og undurfögru sveitaþorpum í fjöllunum fyrir ofan Costa del Sol sem svo sannarlega eru þess virði að heimsækja og skoða. Mannlífið þar er mjög frábrugðið þvi sem er niðri við ströndina. í meira en 20 ár hefur verið haldið uppi reglulegum sumarleyfisferðum fyrir íslendinga til Costa del Sol í Andalúsíu, syðsta héraðs Spánar. Óhætt mun að fullyrða að þangað hafi fleiri íslendingar komið en til nokkurs annars staðar erlendis ef Kaupmannahöfn er undanskilin. Aðdráttarafl Sólarstrandarinnar byggist fyrst og fremst á veðurfarinu því varla dregur ský fyrir sólu frá því í maí og fram í nóvember, í því sem kallað er venjulegt árferði. Og sólarþorsti íslendinga er mikill. Costa del Sol er lengsta baðströnd Spánar, meira en 400 kílómetra löng og nær frá borginni Almeria og niður til Algeciras við Gíbraltarsund. Á öllu þessu svæði eru margir smábæir sem byggja orðið flest sitt á ferða- mönnum. Þeirra stærstir eru Torre- molinos, þar sem eru meira en 500 þúsund gistirými, sem verið hefur dvalarstaður flestra íslendinga sem sótt hafa ströndina. Þá má nefna bæi eins og Fuengerola, Marbella, San Pedro, Estepona og Sotogrande. Stærsta borgin á Costa del Sol er Malága með rúmlega 500 þúsund íbúa en þar eru ekki baðstrendur og því lítið um að ferðamenn búi þar. Mjög víða ganga klettar í sjó fram á Costa del Sol, þannig að hún er langt frá því aö vera samfelld sandströnd. Hvað hægt er að gera Nú er það svo að margir sem ætla til Costa del Sol í sumar hafa komið þangað áður og hafa því farið í allar þær skoðunarferðir sem ferða- skrifstofurnar bjóöa upp á. Ef þeir hinir sömu vilja gera eitthvað annað en að baöa sig í sólinni, svbna til til- breytingar, þá eru möguleikamir margir og fjölbreyttir. Eitt það skemmtilegasta sem hægt er að benda fólki á, sem leigir sér bO, er að fara í heimsókn upp í litlu fjalla- þorpin fyrir ofan ströndina. Til sumra þeirra er ef til vill bara 20 til 30 mínútna keyrsla. í mörgum þeirra hefur mannlífið lítið breyst í .30 til 40 ár og flest eru þau ósnortin af ferðamannastraumnum til strandar- innar. Fyrir fólk, sem býr í Torremolinos, skal fyrst nefna þorpið Mijas sem byggt er á klettasnös beint fyrir ofan bæinn Fuengerola en þangað eru 15 kílómetrar frá Torremolinos. Þetta undurfagra þorp er frægt fyrir þrennt. I fyrsta lagi var kvikmyndin Klukkan kallar, sem byggð var á sögu Hemingways, tekin að stórum hluta í Mijas. Þar er líka heimsfrægt safn smámuna. Má þar nefna mál- verk, máluð á títuprjónshausa, sem skoða verður í lítilli smásjá. Málverk af síðustu kvöldmáltíð Jesú og læri- sveina hans, málaö á tannstöngul, og annað er eftir þessu. í þriðja lagi er Mijas þekkt fyrir vefnað sem er einstakur og mjög frægur orðinn. Og svo mætti líka benda á fegurð þorps- ins sem er einstök. Einnig mætti benda á nautaatshringinn sem er fer- kantaður og sá eini á Spáni sem þannig er byggður. Þórpin Alhaurin el Grande og Coin, eru 20 til 25 kílómetra frá strönd- Costa del Sol ströndin hjá Torremolinos þar sem hinir sólþyrstu liggja daginn út og daginn inn. * Velkomin, elskan Vegna mikillar aukningar í flutningum tökum við nýja vél í notkun nú um mánaðamótin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.