Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1988, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1988.
47
r
Handknattleikur unglinga
• íslands- og Reykjavikurmeistarar KR i 2. flokki karla.
ARKITEKT
Hafnarfjarðarbær óskar að ráða arkitekt vanan skipu-
lagsvinnu til starfa á skipulagsdeild bæjarins.
Umsóknir berist fyrir 20. apríl.
Upplýsingar veita skipulagsstjóri bæjarins og bæjar-
ritari í síma 53444.
% Til sölu
Óskað er eftir tilboðum í eftirfarandi:
1. Körfubíl, Ford D-600, árg. 1970. Lyftibúnaður af
gerð SIMON. Vinnulyftuhæð er um 15 m.
2. Brotamálma: Jarðstrengsbúta ýmiss konar.
Tilboðum skal skilað eigi síðar en 14. apríl til raf-
veitustjóra sem veitir nánari upplýsingar.
Rafveita Hafnarfjarðar
Létt hjá KR
- vann 2. flokk örugglega
Fram í miðjan fyrri hálíleik var
hörkubarátta aðalsmerki beggja liða
en þá var eins og úthaldið væri á
þrotum hjá Stjörnunni og KR náði
yfirhöndinni sem þeir létu ekki af
hendi út leikinn.
í hálfleik leiddu KR-ingar leikinn
með þremur mörkum, 11-8, en létu
ekki þar við sitja og unnu einn
stærsta sigur- í úrslitaleik í vetur,
27-16.
Bestur í liði KR var hinn öflugi leik- • Þorsteinn Guðjónsson, besti maður KR, skorar i úrslitaleiknum gegn
maður, Þorsteinn Guðjónsson, sem Stjörnunni.
var allt í öllu hjá KR. Aðrir í liði KR
áttu einnig góðan dag óg voru þeir
Sigurður Sveinsson og Guðmundur
Pálmason atkvæðamiklir.
Hjá Stjörnunni bar mest á Sigurði
Bjarn'asyni að venju en aðrir leik-
menn virtust gefast upp er KR náði
yfirhöndinni í fyrri hálfleik.
Mörk KR: Þorsteinn Guðjónsson
7, Sigurður Sveinsson 7, Guðmundur
Pálmason 6, Páll Ólafsson 4 og Kon-
ráð Olavsson 3.
Mörk Stjörnunnar: Sigurður
Bjarnason 6, Hilmar Hjaltason 4,
Birgir Sigfússon 3, Heimir Erlings-
son 2, Magnús Ellertsson og Bjarni
Benediktsson 1 mark hvor.
Það var eins og svart og hvítt að
fylgjast með baráttunni í riðlunum
tveim sem kepptu um íslandsmeist-
aratitilinn í 2. flokki karla. í A-riðli
sigraði hið sterka lið KR alla and-
stæðinga sína létt og tryggði sér þar
með sæti í úrslitaleiknum gegn efsta
liði B-riðils.
í B-riðli var keppnin einstaklega
jöfn og spennandi og börðust lið
Stjörnunnar, Gróttu og ÍBV um efsta
sætið í riðlinum. Oftast skildu ekki
nema eitt til tvö mörk í lokin milli
þessara liða en með mikilli baráttu
og ákveðni tókst Stjörnunni að sigra
riðilinn og mættu þeir því KR í úr-
slitaleik.
Fyrirfram var búist við jöfnum og
spennandi leik þar sem þarna mætt-
ust lið sem hafa á að skipa meistara-
flokksleikmönnum í flestum stöðum.
með að sætta sig við að vera ekki í
leiknum um gullið. Þeir virkuðu
áhugalausir og nýttu sprækir HK-
ingar sér það út í yrstu æsar og unnu
sannfærandi sigur, 19-15.
ÍBV hlaut 5. sætið eftir hörkuleik
gegn Fram sem þurfti að framlengja..
IBV var síðan sterkara á endasprett-
inum og náði að innbyrða sigur.
yíkingur varð í 7. sæti eftir sigur
á ÍR, FH lenti í 9. sæti eftir sigur á
ÍBK.
Röð liðanna var því þessi: 1. KR,
2. Stjarnan, 3. HK, 4. Grótta, 5. ÍBV,
6. Fram, 7. Víkingur, 8. ÍR, 9. FH og
10. ÍBK.
HK hlaut bronsið
Um þriðja sætið léku lið HK og
Gróttu og htu þar óvænt úrsht dags-
ins ljós. Flestir bjuggust viö því að
Uð Gróttu, sem hafði orðið deildar-
meistari tvisvar í vetur, myndi vinna
næsta öruggan sigur á liði HK. Sú
varð ekki raunin á og var eins og
Gróttupiltarnir ættu í eríiðleikum
• Leifur Dagfinnsson, fyrirliði KR, tekur við íslandsbikarnum úr hendi Jóns
Hjaltalíns Magnússonar, formanns HSÍ.
ísspor gefur verðlaunin
Undanfarin ár hefur HSÍ haft þá Hafa þá fyrirtæki styrkt HSÍ með því um gefin af ísspori og á fyrirtækiö
reglu að verðlaun fyrir íslandsmeist- að gefa verðlaunin eitt ár í senn. í þakkir skildar fyrir stuðninginn við
arartitihnn hafa verið til eignar. ár eru öU verðlaun í yngri flokkun- yngsta handboltafólkið.
___________________________________________t________________:___________
Umsjón Heimir Rikarðsson og Brynjar Stefánsson.
aulostar
ÁKLÆÐI0G GÓLFMOTTUR
í FLESTAR GERÐIR BIFREIÐA
Áklæðin eru hlý og teygjanleg.
Fjölbreytt litaúrval.
Motturnar fást í rauðum, bláum, brúnum og gráum litum.
Kynnið ykkur verð og gæði.
vL FÁST Á NÆSTU
SHELL BENSÍNSTÖD
SJÚKRAÞJÁLFARI
I Grindavík búa um 2000 manns sem núna eru án
sjúkraþjálfara.
SJÁLFSTÆÐUR
ATVINNUREKSTUR
Höfum mjög góða aðstöðu með fullkomnum nýjum
tækjum, sem leigjast út til þeirra sem hefja vilja sjálf-
stæðan atvinnurekstur, gegn sanngjörnu gjaldi.
GÓÐIR TEKJUMÖGULEIKAR
Það tekur 40 mínútur að aka frá miðbæ Reykjavíkur
til Grindavíkur.
VINNA EINS OG HVER VILL
Upplýsingar eru gefnar á Heilsugæslustöðinni, sími
92-68021 og hjá heilsugæslulækni, sími 92-68766.
GRINDAVÍKURBÆR.
/
$