Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1988, Blaðsíða 12
12
LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1988.
Erlend bóksjá
Reisubréf frá
ímyndaðri borg
LAST LETTERS FROM HAV
Höfundur: Jan Morris.
Penguin Books, 1986.
Ensk-vélski rithöfundurinn
Jan Morris er þekktust fyrir
skrif um ferðir sínar, einkum
til menningarsögulega séð for-
vitnilegra staða. Og svo auövit-
að frásögnina í bókinni
‘Conundrum af því hvers vegna
og hvernig hún lét breyta sér
úr karlmanni i konu.
Þessi bók er af öðru tagi en
sver sig þó vissulega í ætt við
fyrri frásagnir Jan Morris af
heimsóknum til merkra borga.
Hún hefur skrifað skáldsögu
um ímyndaða borg sem nefnist
Hav. Borginni, og því sérstæða
samfélagi sem þar er aö finna,
lýsir hún mjög nákvæmlega og
af mikilli hugvitssemi. Það er
eiginlega borgin sjálf sem fer
með aöalhlutverk í skáldsög-
unni fremur en einstakar
persónur. Fyrir bragðið er sag-
an stundum líkari góðri ferða-
lýsingu en eiginlegri skáldsögu.
„Síðustu bréf frá Hav“ vakti
umtalsverða athygli í Bretlandi
er hún kom þar út og var ein
þeirra bóka sem komu til álita
við úthlutun Booker-bók-
menntaverðlaunannaárið 1985.
KfiSfí i'KWI !N -
R O B I R T S O N
D A V. I E s
WÍÍAT’S BRRÐ
I N T H 1 B O N r
listavinur og
málverkafalsari
WHAT’S BRED IN THE BONE.
Höfundur: Robertson Davies.
Penguin Books, 1987.
Cornish-stofnunin felur öðr-
um forstjóra sinna, séra Simon
Darcourt, að semja • huggulega
ævisögu Francis sáluga Corn-
ish en við hann er stofnunin
kennd. Presturinn hefur í upp-
hafi þessarar skáldsögu verið
að kanna æviferil Cornish í nær
tvö ár og er orðið næsta órótt
vegna þess sem komið hefur í
ljós við athuganir hans. Þannig
bendir allt til þess að þessi virti
listavinur hafi verið viðriðinn
ýmislegt skuggalegt. Þannig
hafi framlag hans til lista eink-
um falist í viðamikilli mál-
verkafolsun.
Kanadíski rithöfundurinn
Robertson Davies rekur i þess-
ari skáldsögu sinni tilurð
Francis Cornish og fjölbreyti-
legt lífshlaup hans á bráð-
skemmtilegan hátt. Skáldsagan
er ánægjulegt sambland af
heföbundinnar frásögn, hug-
myndaríkum spuna og áhuga-
verðum táknmyndum.
Robertson Davies er kunnur
í heimalandi sínu, og viðar, fyr-
ir skáldsögur sínar, leikrit og
bókmenntagagnrýni, en þessi
saga var tilnefnd til bresku Boo-
ker-verðlaunanna árið 1986.
Heimsveldi í mótun
EMPIRE.
Höfundur: Gore Vidal.
Grafton Books, 1987.
Bandaríski rithöfundurinn Gore
Vidal hefur á undanfórnum árum
samiö röð sögulegra skáldsagna um
bandarískt stjórnmálalíf frá fyrstu
dögum lýðveldisins fram á vora daga.
Með þessum sögum hefur hann skip-
að sér í fremstu röð þeirra höfunda
sem fást viö sögulegan skáldskap.
Fyrri sögurnar í þessari ritröð eru
Burr, Lincoln, 1876 og Washington
D.C. Persónulega tel ég þær tvær
fyrstnefndu langbestar: Burr, þar
sem sá sérstæði og kappsfulli stjórn-
málamaður, Aron Burr, einn þeirra
sem aldrei náði því langþráða marki
bandarískra stjórnmálamanna að
verða forseti landsins, er í aðalhlut-
verki, og Lincoln sem að sjálfsögðu
fjallar um valdatíma þess ástsæla
foringja og borgarastyrjöldina sem
háð var í forsetatíö hans til þess öðru
fremur að halda Bandaríkjunum
.saman sem einu sambandslýðveldi.
Roosevelt og Hearst
Þessi nýjasta skáldsaga, Empire,
gerist á árunum um og eftir síðustu
aldamót þegar Bandaríkin voru að
stíga fyrstu skrefin sem heimsveldi.
Þetta er tími stríðsátaka bandarískra
stjórnvalda við Spánverja. Banda-
rískt herlið átti þá meðal annars í
átökum á Kúbu og Filippseyjum.
í veigamiklum hlutverkum eru að
sjálfsögðu áhrifamestu stjórnmála-
menn þessa tímaskeiðs, ekki síst
forsetarnir McKinley og Teddy. Ro-
osevelt, William Jennings Bryan,
þrefaldur vonbiðill um forsetaemb-
ættiö sem sumir minnast þó fremur
fyrir vitnisburði við „aparéttarhöld-
in“ svokölluðu, og blaðakóngurinn
William Randolph Hearst sem náði
heldur aldrei þeim pólitísku metorð-
um sem hann stefndi aö. Þá koma
margir fleiri mikið viö sögu, svo sem
John Hays utanríkisráðherra, fjöl-
skyldur áðurnefndra heiðursmanna
og svo þær sögupersónur sem Vidal
hefur sjálfur skapað og tengja skáld-
sögurnar saman.
Hér er fjallað úm forvitnilegt tíma-
bil í sögu bandarísku þjóðarinnar
þótt það sé að sjálfsögðu átakaminna
en þau miklu hildarár fyrir rúmri
öld sem voru sögutími skáldsögunn-
ar Lincoln. Bandafíkin voru að
styrkja stöðu sína út á við og teygja
arma sína til annarra heimsálfa.
Vidal tekst hér sem í fyrri sögunum
ágætlega að draga upp lifandi mynd
af stjórnmálamönnum, samskiptum
þeirra innbyrðis og viðbrögðum við
helstu atburðum samtíma síns. Hann
tengir einnig raunverulegar og
ímyndaðar persónur saman á mjög
sannfærandi hátt í áhugaverðri og
læsileg frásögn.
Samsæri
leyniþjónustumanna
BROTHERS.
Höfundur: Wllllam Goldman.
Warner Books, 1988.
Tveir drengir, bræður, koma inn í
sælgætisverslun um sama leyti og
hún springur í loft upp í svo öflugri
sprengingu að hvorki finnst af þeim
tangur né tetur. Harðgerður leigubíl-
stjóri og vinkona hans gerast allt í
einu auðsveip og undirgefm við ógeð-
felldan mann sem þau þekkja ekkert
og leyfa honum að misnota sig að
vild. Ungir elskendur, sem eiga fram-
tíðina fyrir sér, fá allt í einu óviðráð-
anlega löngun til að deyja og fremja
því sjálfsmorð.
Þessir að því er viröast óskyldu
atburðir gerast í upphafi nýrrar
spennusögu eftir William Goldman,
Brothers. Þeir gefa tóninn um það
sem á eftir kemur: hörkuspennandi
og hröð atburðarás um vélabrögð
leyniþjónustumanna og glímu at-
vinnumorðingja þeirra. Það kemur í
ljós aö óhugnanleg öfl eru að verki
að baki þessum atburðum öllum og
manndrápum sem fylgja í kjölfarið.
Goldman hefur'samið margan góð-
an reyfarann um dagana og fjölda
kvikmyndahandrita. Þessi nýjasta
skáldsaga hans er reyndar eins kon-
ar framhald einnar fyrri bóka hans
- spennusögunnar Maraþonmaður-
inn - en eftir henni var gerð vinsæl
kvikmynd. í Bræðrunum er Gold-
man tvímælalaust í sínu besta formi.
Metsölubækur
Bretland A WALK WITH A WHITE THIS’N THAT.
Söluhæstu klljurnar: BUSHMAN. 4. Dorls K. Goodwin:
1. Catherine Cookson: (Bygg! á The Sunday Times) THE FITZGERALDS AND THE
THE PARSON’S DAUGHTER. Bandaríkin KENNEDYS.
2. Phillppa Gregory: 5. Robert Hughes:
WIDEACRE. Metsölukiljur: THE FATAL SHORE.
3. Sldney Sheldon: 1. Danlelle Steel: 6. Sam Donaldson:
WiNDMILLS OF THE GODS. FINE THINGS. HOLD ON, MR. PRESIDENT!
4. Colleen McCullough: 2. Rosemary Rogers: 7. Judlth Vioret:
THE LADIES OF MISSOLONGHI. BOUND BY DESIRE. NECESSARY LOSSES.
5. Elvl Rhodes: 3. Jonathan Kellerman: 8. Beryl Markham:
THE GOLDEN GIRLS. OVER THE EDGE. WEST WÍTH THE NIGHT.
6. Bernard Cornwell: 4. Sally Beauman: 9. Richard Bach:
SHARPE’S SIEGE. DESTINY. THE BRIDGE ACROSS FOREVER.
7. Tom Clancy. 5. Larry McMurtry: 10. Priscllla Prestley/S. Harmon:
REO STORM RISING. TEXASVILLE. ELVIS AND ME.
8. Barbara Vine: 6. Dlck Francls: (Byggt á New York Tlmes Book
A FATAL INVERSION. BOLT. Revíew)
9. Stephen Klng: 7. Alistalr MacLean: Danmörk:
THE EYES OF THE DRAG- SANTORINI.
ON. 8. Pat Conroy: Metsöiukiljur:
10. Noel Barber: THE PRINCE OF TIOES. 1. Suskind:
THE OTHER SIDE OF PARADISE. 9. Dana Fuller Ross: PARFUMEN. (-).
Rit almenns eðlfs: ARIZONA! 2. Jean M. Auel:
10. William Goldman: HULEBJ0RNENS KLAN. (2).
1. Rosemary Conley: BROTHERS. 3. Isabel Allende:
THE HIP AND THIGH DIET. 11. Robln Cook: ANDERNES HUS. (4).
2. Robert Hughes: OUTBREAK. 4. Jean M. Auei:
THE FATAL SHORE. 12. Davld Eddlngs: HESTENES DAL. (4).
3. James Fox: GUARDIANS OF THE WEST. 5. Andersen-Nexö:
WHITE MISCHIEF. 13. Milan Kundera: PELLE EROBREREN Nl. (3).
4. Whltley Strleber: THE UNBEARABLE LIGHTNESS OF 6. Godfred Hartmann:
COMMUNION. BEING. CHRISTIAN. (8).
5. P.L. Fermor: 14. Elizaboth Marshall: 7. Pu Ji:
BETWEEN THE WOODS REINDEER MOON. DEN SIDSTE KEJSER. (6).
AND THE WATER. 15. Tom Clancy: 8. Ballard:
6. Edward Behr: RED STORM RISING. SOLENS RIGE. (-).
THE LAST EMPEROR. 7. Marcus Siefl: Rít almenns eðlis: 9. Isabel Allende: KÆRLIGHED OG M0RKE.
DON’T ASK THE PRICE. 1. Whltley Strleber: (5).
8. Kenyon & Franklln: COMMUNION. 10. NUDANSK ORDBOG. (9).
GARDENER’S WORLD HANDBOOK. 2. M. Scott Peck: (Tölur Innan svlga tökna röö bókar vikuna
9. Hogg, McDougall & Morgan: THE ROAD LESS á undan. Byggt á Polltíken Sendag)
BULLtON. TRAVELED.
10. Van der Post: 3. Bette Oavis/M. Herakowitz:
Umsjón: Elías Snæland Jónsson
Böm ljóss eða
eigin myrkurs?
CHILDREN OF LIGHT.
Höfundur: Robert Stone.
Penguln Books, 1987.
Þótt nafn þessar skáldsögu
gefi til kynna að hér sé fjallað
um börn ljóssins bera söguper-
sónurnar það ekki með sér.
Þvert á móti eru þær að berjast
við myrkrið í sjálfum sér og
standa höllum fæti í þeirri bar-
áttu.
Höfuðpersónurnar eru eigin-
lega tvær og lifa báðar í heimi
bandarískrar kvikmyndafram-
leiðslu. Gordon Walker er
handritshöfundur og leikari
sem gjarnan drekkur sig þó frá
störfum þegar þau bjóöast. Lu
Anne er leikkona sem á við enn
alvarlegri vandamál að stríða -
hún er hreinlega að berjast við
að halda geðheilsu sinni.
Þegar þessar tvær persónur
lenda loks saman virðist fátt
geta orðin þeim til bjargar:
sjálfseyöingarhvötin er of sterk
hjá þeim báðum.
Margt er áhugavert í þessari
skáldsögu, ekki síst það sem
snýr að lýsingum á bandarísku
kvikmyndalífi. En satt best að
segja vekja höfuðpersónurnar
ekki sérlegan áhuga: til þess eru
þær alltof uppteknar af sjálfum
sér og af meira og minna sjálf-
sköpuðum vandamálum sínum.
Fimmti
sonurinn
THE FIFTH SON.
Höfundur: Elie Wlesel.
Penguln Books, 1987.
Fáir pennans menn hafa
skrifað af meiri skilningi og
innsæi um hörmungasögu gyð-
inga á fyrri hluta þessarar aldar
en Elie Wiesel sem heiðraður
var með friðarverðlaunum
Nóbels fyrir nokkrum árum.
í skáldsögunni um fimmta
soninn er Wiesel enn sem fyrr
aö fjalla um harmsögu gyðinga
á tímum þriðja ríkisins og af-
leiðingar þeirrar reynslu fyrir
afkomendur þeirra. Höfuðper-
sónurnar eru Tamiroff-feð-
garnir. Faöirinn mátti þola
smán og kúgun af hálfu SS-
foringja sem kallaöur var
„Engillinn“, en hefur allt frá
stríðslokum þjáðst af sektar-
kennd vegna þess aö hann og
félagar hans réðu „Engilinn"
af dögum. Þegar sonurinn tekst
loks að nálgast þessi leyndar-
mál fóðurs síns og fer að kanna
málið kemst hann að því að
„Engillinn" er alls ekki dauður
og sálarkvalir fóðursins því á
misskilningi byggðar.
Wiesel rekur bæði reynslu
fóðursins og viðbrögö sonarins
í þessari áhrifamiklu skáld-
sögu.