Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1988, Page 19
LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1988.
19
morgnum og sendir starfsmenn sína
í 1006 kvikmyndahús til að athuga
hvort kynningar á myndum eru rétt-
ar. Hann fær handrit í hendur á
föstudegi og er búinn að ákveða sig
á mánudegi.
Nýjasta myndin, Þrir menn og barn, þykir sönnun þess aö Disney telst á ný
til hinna stóru. Það er árangur sem Katzenberg hefur náð á tjórum árum.
Stormasöm samskipti
„Það eru ekki aihr sáttir við
ákvarðanir Katzenberg," er haft eftir
einum af undirmönnum hans. „Það
er þó víst að það þarf aldrei að bíöa
lengi eftir þeim. Kerfið hjá hinum
framleiðendunum er miklu þyngra í
vöfum. Þar tekur ein skrifstofublók-
in við af annarri og ákvarðanirnar
eru teknar eftir dúk og disk.“
Stundum kastast í kekki. Paul
Mazurski var fyrsti leikstjórinn sem
sló í gegn undir stjórn Katzenberg.
Hann leikstýrði Down and Out in
Beverley Hills og samdi handritið
einnig að hluta. Myndin var vinsæl
og Mazurski vildi næst snúa sér að
mynd eftir sögu Isaac Bashevis Sin-
ger um mann sem lifir af vist í
fangabúðum Nasista. Katzenberg
þótti hugmyndin vond og Mazurski
yflrgaf fyrirtækið. „Mér finnst að ef
leikstjóri gerir mynd sem selst vel
þá eigi að leyfa honum að gera eina
sem ekki er fyrirfram rakin sölu-
vara,“ er haft eftir Mazurski en
Katzenberg er á öðru máh.
Og þeir eru fleiri leikstjóramir sem
er lítið gefið um Katzenberg. „Hann
er ljómandi náungi ef menn eru sam-
mála honum," segir John Mihus sem
Katzenberg rak frá Paramount á sín-
um tíma. „En ég held að maðurinn
sé siðlaus og bara ánægður með
það.“ Það sem MiUus gerði af sér var
að hann réð tónskáld án þess að
ræða málið fyrst við Katzenberg.
í pólitík fjórtán ára
Katzenberg hefur það fyrir reglu
að mæta ekki á forsýningar á mynd-
um keppinautanna. Þess í stað fer
hann á laugardögum á þijár myndir
í röð. Hann vill frekar sjá myndirnar
sem hver annar áhorfandi en sem
boðsgestur meðal fólks í greininni.
Konan hans, Marilyn, fer með í þessa
kvikmyndaleiöangra. Þ'au kynntust
þegar þau voru táningar og Katzen-
berg,;segir að hjónabandið sé ekki
gott heldur fullkomið.
Katzenberg þykir fljótur að sjá út
hæfileika fólks. „Ég veit hvenær ég
á að setja mann í spennitreyju eða
gefa honum fijálsar hendur til að
hann skiU árangri,“ er haft eftir hon-
um. Katzenberg hefur líka orð á sér
fyrir að vita nákvæmlega hvað hann
vill og móðir hans segir að hann
hafi aUtaf vitað það. Á ungUngsárun-
um átti hann að vera í sumarbúðum
en var rekinn fyrir að spila póker
upp á sælgæti. Þá var hann 14 ára
og gekk til liðs við John Lindsay, sem
háði þá baráttu fyrir að vera kosinn
borgarstjóri í New York.
„Eg skildi ekkert í póUtíkinni hjá
Lindsay," segir Katzenberg. „En
þetta var miklu skemmtilegra en að
vera í sumarbúðum.“ Þeir sem unnu
með Katzenberg í kosningabarátt-
unni segja að hann hafi verið
óhemjuduglegur og ákafur. Hann
vann fyrir Lindsay á skólaárunum.
Hann hætti í skóla rúmlega tvítugur
en sá aö hann var of ungur til að
reyna fyrir sér sjálfur í stjómmálun-
um. í kvikmyndaiðnaðinum var hins
vegar alltaf þörf fyrir unga menn.
Nýjar teiknimyndir
Hann réðst til Paramount í New
York og var fljótlega sendur þaðan
til Hollywood og eftir það hefur leið-
in á toppinn verið greið. Hann hefur
mikinn hug á að blása nýju lífi í
teiknimyndagerö hjá Disney. Senn
kemur á markaðinn teiknimynd með
söngvum um Oliver Twist. Sögusvið
myndarinnar er fært til New York
nútímans og stjömur á borð við Bette
Midler og Billy Joel leggja til radd-
irnar.
Flestar af myndum frá Disney eru
framleiddar undir vörumerkinu To-
uchstone. Þar segir Katzenberg að
stefnan sé að gera annars konar
myndir en hin kvikmyndaverin. ,Við
tökum áhættu með hverri mynd og
sá dagur kemur að okkur á eftir að
mistakast," segir Katzenberg. „Ein-
hvem daginn sitjum við uppi með
mesta „flopp“ kvikmyndasögunn-
ar.“ Þýtt/-GK
aO.
Tf
SJÓNVARPIÐ
ekkert rugl.
Athyglisverð niðurstaða
fyrir auglýsendur.
Óumdeilanlega vinsælasti
fjölskyldu
faðirinn
Könnun Félagsvísinda-
stofnunar sýnir að uppalandinn,
eiginmaðurinn, sálfræðingurinn,
félaginn, prakkarinn, trúðurinn,
leikarinn og síðast en ekki síst
maðurinn, hinn óviðjafnanlegi -
Bill Cosby á fáa sína líka.
AUK/SlA k586-e