Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1988, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1988, Qupperneq 21
LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1988. 21 Veiðivon Dorgveiðikeppnin næstu helgi Dorgveiöimenn eru farnir aö búa sig undir dorgveiöikeppnina á Mý- vatni um næstu helgi og ætla aö fjölmenna víða af landinu. Það er laugardaginn 16. aprO sem keppnin á aö veröa og ætla nokkrir hópar af Norðmönnum aö koma. „Viö vonum aö þátttakan veröi góö, alla vega meiri en í fyrra. Við eigum von á dorgveiöimönnum víða af landinu," sagöi Björn Björnsson í Mývatns- sveit í vikunni. „Veiöin hefur verið upp og niöur héma á Mývatni síð- ustu vikur. Veðurfariö hefur verið rysjótt. Eg heyrði um dagínn um einn sem fékk 15 fiska og þeir stærstu voru fimm pund, frétti svo af öðrum sem veiddi vel og stærsti fiskurinn hjá honum var 6 pund,“ sagði Björn í lokin. Veiðidellan er rosaleg, þaö vita veiöimenn mætavel. Viö fréttum af nokkram veiðigörpum sem hugðust renna fyrir fisk í Leirá fyrsta veiöi- daginn en þegar þeir mættu var ekki komandi færi niður, áin var á ís. En veiðimenhimir dóu ekki ráðalausir og stefndu á Laxá í Leirársveit, héldu að kannski væru vakir þar á ánni. Ekki var það nú aö sjá þegar keyrt var yfir brúna á henni, áin var ísi- lögö. En veiðigarparnir létu það ekki á sig fá, tóku stefnuna á Laxfoss og viti menn, þar voru tvær vakir. Veiðimennirnir fóru á næsta bæ og fengu leyfi tO að renna, sem var auð- sótt. Fiskurinn var þó ekki til staðar í þessum smáholum í fossinum. En veiðimennirnir gátu þarna aöeins rennt fyrir fisk og svalað með því veiðiþörf sinni. Veiðiskapurinn er deOa, það fer ekki á milli mála. Birgir Guðjónsson, ungur og efnilegur veiðimaður, dorgar i Skógarvatni í Flókadal í Borgarfirði um páskana. ísinn á vatninu var um 50 sentimetra þykkur. DV-mynd SK LOFTPRESSUR 260 litra/mín. Kr. 20.325,- TÆKJABUÐIN H/ Smiðjuvegi 28 Sími 75015 Sjóbirtingsveiðin er hafin og veiðimenn eru farnir að fá fisk, hvort sem það er f Varmá, Þorleifslæk, Rangánum, Geirlandsá eða Fossálum. Þeir félagarnir Gunnar Másson á efri myndinni og Árni Baldursson á þeirri neðri renndu fyrsta veiðidaginn. Fiskurinn lét ekki á sér standa og fyrstu tvo dagana fengu þeir við fjórða mann um 70 fiska. RAFHLAÐA SEM ENDIST OG ENDIST s i < w Kodak UMBODID Silungar Þarmá, öðru nafni Varmá í Hveragerði, er ekki hreinasta veiðiá landsins. Þrátt fyrir að átak hafi ver- ið gert við hreinsun árinnar virðist þaö ekki duga hót. Veiöimenn fá oft allt annað en þeir vilja fá á færið hjá sér og einn var að veiða fyrir í timnuna skömmu. Veiðin var ágæt hjá honum og hann veiddi nokkra 2-3 punda fiska sem hann hirti með sér heim en sleppti þessum minni. Þegar heim kom vildi konan ólm elda fiskinn og fór að gera að en dýrð- in og matlöngunin var ekki lengi til staðar því að þegár blessuð konan var að gera að fyrsta silungnum kom út úr honum ýmislegt eins og dömu- bindi og smokkur. Lystin á fiskinum hvarf á augabragði. Skyldi nokkurn undra það? G.Bender glæsúegasti Emn veislu- og áðstefnusalur borearinnar Til úlieigu á hvada tima sóiarhrings sem er: Allar veitingar ailt eftir óskum hrers i'lltS Hafid samband vió veitingastjöra Kristján Ðanielsson sem gejur . aliar nánari j upplýsingar j i Iullhomiu adstada og udladanJi um- hrerfi fyrir hrcrs konar rtisbtr, rádstefh- m, of; fundi. GlæsUex utaná/igfóandi "lerlyfta flytur gesti ifpp i Sorðurijósm. VEISLU- OG RAÐSTEFNUSALUR í Þórshöll, Brautarholti 20. s. Símar: 29099 og 23335.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.