Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1988, Side 24
24
LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1988.
Veröld vísindarina
DV
Ný von fyrir sykursjúka?
Til þessa hefur reynst ómögulegt
að lækna sykursýki. Einkennunum
er haldið niðri með því að gefa sjúkl-
ingunum insúlín en sykursýkin
stafar af þvi að líkaminn framleiðir
ekki nægilegt insúlín til að hafa
stjórn á blóðsykri.
Nú er verið að gera tilraunir meö
lækningu á sykursýki, bæði í Evrópu
og Bandaríkjunum, og lofa þær góðu
þótt læknar vari við of mikiili bjart-
sýni.
Nú er talið að stundum stafi sykur-
sýki af því að ónæmiskerfi líkamans
ræðst gegn þeim frumum í brisinu
sem framleiða insúlin. Af einhverj-
um ókunnum orsökum þá bregst
ónæmiskerfið í sumum mönnum viö
þessum ifrumum eins og þær væru
aðskotahlutir í líkamanum og drepur
þær.
Þetta gerist yfirleitt á unglings-
árum og smátt og smátt koma
einkenni sykursýkinnar í ljós þvi lík-
aminn glatan hæfileikanum til að
hafa stjórn á blóðsykrinum.
Það sem læknar hafa nú komið
auga á er að gefa sykursjúkum lyfið
cyclosporine sem annars er notað til
að koma í veg fyrir að líkaminn hafni
lífiærum sem grædd eru í hann.
Þetta lyf slævir ónæmiskerfiö og
gæti þess vegna komið í veg fyrir að
ónæmiskerfið eyddi frumunum sem
framleiða insúlín.
Lyfið hefur verið gefið sykursjúk-
um með þeim árangri að sykursýkin
hverfur en aðeins á meðan það er
tekið. Árangurinn er bestur hjá þeim
sem hafa fyrstu einkenni sykursýk-
innar. í þessu felst þó ekki varanleg
lækhing og aukaverkanir lyfsins eru
verulegar. Það þykir því ekki réttlæt-
anlegt að gefa sj úklingum það nema
í skamman tíma.
Læknar telja þetta þó verulegan
áfanga því nú er vitað hvernig lyf
geta læknað sykursýki. Cyclosporin
hefur áhrif á ónæmiskerfi alls líkam-
ans en nú er hafin leit að lyfi sem
aðeins hefur áhrif á þann hluta
ónæmiskerfisins sem eyðir frumun-
um sem framleiða insúlín.
Enn er þetta lyf ekki fundið en
læknar telja sig nú vita hvar á að
leita að því. Þetta er fyrsta skrefið í
átt að lækningu á sykursýkinni því
fram til þessa hefur ekki verið vitað
hvemig lyf gætu komið í veg fyrir
að sykursýki nái að grafa um sig.
Búnaðurinn er einfaldur í notkun og léttur í meðförum.
Nýtt
björgunartæki
Fátt þykir mönnum jafnógnvæn-
legtog að lokast á efstu hæð í
brennandi húsi og sjá enga von um
björgun. Fyrirtæki í Pennsylvaníu í
Bandaríkjunum hefur nú hannað
björgunarbúnað sem er færanlegur
og notast til sigs á milli hæða. Hann
ætti að koma að notum við þessar
aðstæður.
Þessi búnaður er settur saman úr
stálkrók, stálkapli, sjálfvirkum
vindubúnaði og lykkju sem smeygt
er undjr hendur þeirra sem nota
hann. Ef eldur brýst út og allar út-
gönguleiðir lokast, er krækt í næsta
fasta hlut, lykkjunni brugðið undir
hendurnar og sigið út um næsta
glugga. Engar tilfæringar þarf til að
stjórna siginu því stálkapallinn vind-
ur ofan af sér sj álfkrafa. Hann er
nógu langur til að síga milli 12 hæöa.
Hægt er að ráða sighraðanum með
taugum þannig að enginn þarf að
síga hraðar en aðstæður leyfa. Með
þessum búnaði er hægt aö síga af
tólffu hæð og niður á jörð á rúmri
mínútu. Einnig er hægt að fá sigtæki
fyrir fjögurra og sjö hæða hús.
Þá geta tveir notað tækið í einu ef
þarf, en þó má þunginn ekki vera
meiri en 150 kíló. Þetta verkfæri er
einnota og ekki hægt að vinda það
upp eftir notkun. Þær aðstæður geta
því komið upp að tveir verði að nota
þaðíeinu.
Sigtækin eru mjög létt og auðvelt
að færa þau til eftir þörfum. Þá hafa
verið framleidd sigtæki af sömu gerö
fyrir allt að 100 hæða hús. Þau eru
mun þungri og verða að vera föst á
sínumstaö.
í Bandaríkjunum kosta tæki af
minni gerðinni sem svarar til 15 þús-
unda íslenskra króna. Það er R.A.W.
Rescue Products of Ambler í Penn-
sylvaniu sem selur búnaðinn.
Lausn fundin á alda-
gömlu reikningsdæmi
Fyrir 350 árum rissaði franskur
áhugamaður um stærðfræði, Pierre
de Fermat að nafni, dæmi inn á
spássíuna í grískri stærðfræðibók.
Þetta dæmi er svo djöfullega erfitt
að þeir stærðfræðingar sem uppi
hafa verið eftir daga de Fermats
þekkja enga lausn á því. Sjálfur skrif-
aði de Fermat á spássíuna: „Ég hef
fundið stórkostlega lausn á dæminu
en hér er ekki pláss til að sýna hana.“
Stærðfræðingar hafa mjög efast um
að de Fermat hafi í raun og veru
fundið láusnina. Þeir hafa margir
glímt við dæmið og sagan um de Fer-
mat og síðustu formúlu hans er orðin
að eilífum hausabrjót meðal stærð-
fræðinga.
Nú berast hins vegar þau tíðindi
að japanskur stærðfræðingur hafi
leyst dæmið. Hann heitir Yoichi
Miyaoka og er aðstoðarprófessor í
stærðfræði við háskólann í Tokyo.
Nokkru eftir áramótin var hann
staddur í Max Plank stofnuninni í
Bonn í Þýskalandi og segir sagan að
hann hafi rissað lausnina upp á töflu
fyrir kollega sína sem horfðu agn-
dofaáaðfarirnar.
Dæmið er á þá leið að ef A og B eru
heilar tölur í jöfnunni A3 + B3 = C3
þá getur C ekki verið heil tala. Það
sama á við ef veldið er hærra en
ekki ef tölurnar eru í öðru veldi.
Engin stærðfræðileg skýring hefur
fundist á af hverju þetta er svo nema
ef lausn Japanans reynist rétt. Hún
hefur enn ekki verið gefin út og bíða
stæröfræðingar víða um lönd nú í
ofvæni eftir að fá að sjá hana.
JMolar
Ljósið
fraVenusi
Sovéskir stjarnfræðingar hafa
fundið skýringuna á ljósglampan-
um sem af og til berst frá Venusi.
Þetta furðuljós hefur lengi heillað
höfunda vísindaskáldsagna sem
hafa lesið úr því skeytasendingar
frá geimverum í vanda og annað
eitir því.
Eftir að Sovétmenn sendu geim-
fórin Vegu 1 og Vegu 2 til Venusar
hafa verið tekin af öll tvímæli um
aö ljósglampar berast frá reiki-
stjömunni þegar göt myndast á
skýjahulu hennar.
Yfirborð Venusar er mjög heitt. í
30 til 60 kílómetra hæð yfir því er
þétt skýjalag sem þó rofnar á blett-
tun af og til. Við það berst sterkur
bjarmi frá stjömunni.
Kaetomúsin var talin útdauð fyrir 30 árum.
Sjónvarpiðhefur
viiminginn
Að jafnaði horfa Bandaríkja-
menn á sjónvarp í 15 til 16 þúsund
klukkustundir frá því að þeir era
sex ára og til 18 ára aldurs. Á þessu
árabili sitja þeir í 13 þúsund
klukkustundir á skólabekk.
Kaetomúsin fundin á ný
Fágætt afbrigði af broddgelti, sem talið var að heföi dáið út fyrir meira
en 30 árum, hefur fundist á ný í regnskógum Brasilíu. Þetta aíbrigði kall-
ast Kaetomús og heldur að mestu til neðanjaröar.
Kaetomúsin fannst fyrst fyrir 170 áram. Vísindamenn hafa aðeins náð
að rannsaka nokkur dýr og mjög fáar myndir eru til af því. Það var fyrst
myndað áriö 1952 og svo aftur nú.
Broddar kaetomúsarinnar era styttri en á flestum öðram afbrigöum
broddgalta. Þaö var meira aö segja hald manna lengi vel að kaetomúsin
væri ekki boddgöltur heldur músa- eða rottuafbrigði og þvi er hann kennd-
ur við mýs.
Sjúkleg löngun
í rjómaís
Pagofagi er heiti á sjúkdómi sem
lýsir sér sem óstjómleg fýkn í
ijómaís. Ástæðan fyrir lönguninni
í ísinn er skortur á jámi sem í sum-
um mönnum er ólæknandi.
Ástæðan fyrir því er óþekkt.
Hroturnar voru veíkleiki
leons.
Nú er komin fram kenning um
að herfór Napóleons til Rússlands
árið 1812 hafi farið út um þúfur
vegna þess að stríðshetjan hraut
ákaflega. Fyrir vikið svaf hann illa
um nætur og var í óstuði á daginn
þegar hann vildi herja.
Þessi hugmynd er komin frá
frönskum lækni sem heldur því
líka fram að hann geti læknað hrot-
ur meö 80% árangri.