Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1988, Blaðsíða 26
26
LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1988.
Popp
Rick Springfield hefur sannarlega
reynt á þolrif aödáenda sinna upp á
síðkastið. Hann lét líða þrjú ár milli
tveggja síðustu platna sinna, Tao og
Rock of Life. Sú fyrri kom út árið
1985. Hin kom í verslanir fyrir nokkr-
umvikum.
„Ég gat einfaldlega ekki meira. Ég
var gjörsamlega þurrausinn eftir
Tao. Hafði þá verið stöðugt að síðan
1979,“ sagði Rick Springfleld er
blaðamaður DV ræddi við hann á
dögunum. Springfield var þá staddur
í Stokkhólmi til að kynna nýju plöt-
una með blaða-, sjónvarps- og út-
varpsviðtölum. Frá Svíþjóð lá leiðin
síðan til annarra Evrópulanda til að
spjalla viö fleira fjölmiðlafólk. Leið-
indastarf?
„Nei, nei, ekki alltaf,“ svaraði
Springfield. „Vissulegaþarfmaður
að svara sömu spurningunum nokk-
uð oft. Kynningarviðtölin eru bara
hluti af vinnunni ef maður vill á
annað borð koma plötunum sínum
frá sér.“
En nánar um árin þrjú sem liðu
milli platnanna tveggja. Var bara
legiðíleti?
„í og meö,“ svaraði Rick Spring-
field. „Ég veitti mér þann munað að
slappa almennilega af og ná áttum
að nýju. Það stóð líka á endum að
þegar hljómleikaferðalögum vegna
Tao-plötunnar lauk var kona mín að
því komin að eiga barn. Eftir að son-
ur okkar fæddist gaf ég honum allan
minn tíma, stjanaði við hann, lék við
hann...
Það var alveg ótrúleg tilfmning að
vera faðir, áreiðanlega það besta sem
fyrir mig hefur komið.“
Þess má geta utan dagskrár að
lengi vel var því haldið leyndu að
Rick Springfleld væri kvæntur. Slíkt
gat skaða vinsældir hans meðal
kvenfólks!
Ólík fyrri plötu
Svo fór að lokum að jafnvel sonur-
inn, Liam, hélt Springfield ekki
lengur heima. Hann hóaði í upptöku-
stjóra og nokkra hljóðfæraleikara og
snaraöi af plötúnni Rock of Life.
•Hver skyldi nú vera helsti munurinn
áhenni ogTao?
„í stuttu máh; Tao var innhverf og
persónuleg, Rock of Life er yfirborðs-
kenndari. Það er meiri bjarsýnisblær
yfir henni en hinni," svaraði Rick
Springfield. „Hvað hljóminn varðar
eru plöturnar gjörólíkar," hélt hann
áfram. „Tao bar öll merki þess að
legið var yfir henni í hljóöveri. Ég
var með henni að prófa mig áfram
með hluti sem ég haföi ekki fengist
við áður. Á Rock of Life langaði mig
til að hafa hlutina einfalda - láta lög-
in hljóma sem líkast því sem þau
koma til með að gera þegar ég kynni
plötuna á hljómleikum. Mig langaði
líka til að nota raddir meira en áður
og réð því Keith Olsen til að stjórna
upptökum með mér. Hann hefur gott
vald á raddsetningum."
Sem fyrr semur Rick Springfield
öll sín lög og texta sjálfur. Þó er á
plötunni eitt lag sem hljómar kunn-
uglega frá því í gamla daga.
„ Já, ég ák vað á síðustu stundu að
hafa gamalt Small Faces-lag, (IfYou
Think You’re) Groovy, með á plöt-
unni,“ sagði Springfield. „Ég hef
alltaf haft gaman af tónlist Small
Faces og þegar við vorum að vinna
við plötuna datt mér í hug að útsetja
Groovy upp á nýtt. Einhvern tíma
þegar við höfðum ekkert betra að
gera tókum við lagið upp og eftir því
sem ég hlustaöi oftar á þessa upptöku
varð ég sannfærðari og sannfærðari
um að ég ætti að hafa lagið með á
plötunni til að gefa henni ögn glað-
værari tón.“
Hljómleikaferð framundan
Þegar rokkstjama á borð viö Rick
Springfield lætur frá sér fara hljóm-
plötu dugir ekki einungis að fylgja
útgáfunni eftir með kynningarferð
eins og þeirri sem hann var á á dög-
unum er DV náði af honum tah.
Hljómleikaferð þarf helst að fylgja í
kjölfarið.
„Við veröum á ferðinni um Banda-
ríkin, Evrópu og væntanlega einnig
Japan frá júní til september," sagði
Springfield. „Aðrir hlutar heimsins
verða að bíða að sinni.“ Hann kvaðst
væntanlega hafa með sér fimm
manna hljómsveit í ferðina. „Ég vona
að ég geti mannað hana að mestu
leyti meö hljóðfæraleikurum sem
unnu meö mér við Rock of Life plöt-
una. Tim Pierce gítarleikari er nú
þegar búinn að lofa því að ve’rða með
og þegar ég kem til Þýskalands eftir
nokkra daga ætla ég að tala við Curt
Cress trommuleikara og heyra ofan
í hann. - Ég hef ekki unnið með Cress
fyrr en á Rock of Life plötunni en
hefði ekkert á móti því að halda því
áfram.“
Margar sögur fara af hljómleika-
ferðum stjamanna. Þær standa oft
lengi yfir og þykja líflegar í meira
lagi og ekki síður utan sviðs en inn-
an. Rick Springfield var spurður að
því hvort hann kynni vel við lífiö á
þessumferðum.
„Bæði já og nei,“ svaraöi hann og
hló. ,-Þessar ferðir geta verið alveg
stórkostlegar en jafnframt ótrúlega
leiðinlegar. Ef ferðirnar eru langar
verður maður mjög þreyttur og læt-
ur allt mögulegt fara í taugarnar á
sér. Við eyðum í rauninni stystum
tíma á sviðinu á þessum ferðalögum
en hljómleikarnir sjálfir og spenn-
ingurinn f kringum þá fær mann til
að umberá alla þreytuna og leiðind-
in.“
Þessu næst beindist talið að leik-
ferli Ricks Springfield. Hann kvaðst
hafa tekið sér frí frá allri leikhst í
nokkur ár en ætlaði jafnvel aö gefa
sér tima til aö líta á handrit eftir að
allri vinnu viö nýju plötuna lyki.
Hann sagðist vera opinn fyrir öllu,
sjónvarpsþáttum sem kvikmyndum,
enda væru skihn milli þessara
tveggja miðla sífellt að verða ógreini-
legri frá bæjardyrum leikarans séð.
Viðtalið við Rick Springfield fór
fram á sunnudagsmorgni. DV var
fyrst fjölmiðla til að ná tali af honum
þann daginn. Klukkan nálgaðist óð-
fluga tíu. Dagurinn var vandlega
skipulagður með sænsku fjölmiðla-
fólki og einungis var tími til að spyrja
hvort aðdáendumir þyrftu að bíða
til ársins 1991 eftir næstu plötu á eft-
irRock ofLife.
„Nei, áreiðanlega ekki,“ svaraði
stjarnan og hló. „Ég er harðákveðinn
í að láta næstu plötu fæðast á eðlileg-
um tíma. Það gengur ekki til lengdar
að láta of langan tíma líða á milh
platna."
Ásgeir Tómasson