Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1988, Page 29
LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1988.
29
Hinhliðin
• Geir Sveinsson, fyrirllði islandsmeistara Vals og fastamaóur i islenska landsliðínu i handknattleik.
„Mestgaman
að vinna
íslandsmóf'
-segir Geir Sveinsson, fyririiði IslandsmeistaraVals í handknattleik
Yalur varð sem kunnugt
er íslandsmeistari í
handknattleik á dögun-
um og sá sem sýnir á sér
hina hliðina að þessu
sinni er fyrirliði liðsins,
Geir Sveinsson. Geir er
fastamaður í íslenska
landsliðinu og án efa einn
besti varnarmaðurinn í
íslenskum handknatt-
leik.
Geir lék í fyrsta skipti
með meistaraflokki Vals
árið 1981 og hann vann
því til íslandsmeistaratit-
ils í fyrsta skipti með
meistaraflokki á dögun-
um er Valur vann FH.
Fyrsta landsleikinn lék
Geir gegn Dönum árið
1984 en alls eru landsleik-
irnir orðnir 120. Þess má
geta að Geir varð íslands-
meistari í öllum yngri
flokkunum með Val. Svör
kappans fara hér á eftir:
Fullt nafn: Geir Sveinsson.
Fæðingardagur og ár: 27. janúar
árið 1964.
Unnusta: Guörún Helga Amars-
dóttir.
Böm: Engin.
Bifreið: Colt árgerö 1988.
Starf: Nemi i sagnfræ.öi við Háskóla
íslands.
Laun: Engin.
Helstu áhugamál: íþróttir og aftur
íþróttir.
Hvað hefur þér tekist að fá marga
rétta í Lottóinu? Ég hef náð þremur
réttum og fékk fyrir það 180 krónur
sem fóm rakleitt í annað lottó-
spjald.
Hvað finnst þér skemmtilegast?
Vinna íslandsmót.
Hvað finnst þér leiðinlegast? Ef illa
Umsjón:
Stefán Kristjánsson
fer á miðvikudag er við Valsmenn
leikum gegn UBK í úrslitaleik í bik-
arkeppninni.
Hvað er það neyðarlegasta sem fyr-
ír þig hefur komið? Það var virki-
lega neyöarlegt þegar útlit var fyrir
að ég kæmist ekki frá Moskvu eftir
friðarleikana vegna þess aö pass-
inn minn fannst ekki.
Uppáhaldsmatur: Hryggur með
öUu.
Uppáhaldsdrykkur: Mjólk.
Hvaða íslenskur íþróttamaöur
stendur fremstur í dag? Kristján
Arason.
Uppáhaldstímarit: Þjóðlíf.
Hver er fallegasti kvenmaður sem
þú hefur séð fyrir utan unnustuna:
Móðir min.
Hlynntur eða andvígur ríkisstjórn-
inni: Hlynntur henni.
í hvaða sæti haftiar íslenska lands-
liðiö í handknattleikskeppni
ólympíuleikanna? Einu af sex efstu
sætunum.
í hvaða sæti hafhar lag Sverris
Stormskers i söngvakeppni evróp-
skra sjónvarpsstöðva? Vonandi
fyrir ofan tíunda sæti.
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? Sovéska handknattleiks-
manninn Alexander Thutzkin.
Uppáhaldsleikari: Arnar Jónsson.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Þór-
hildur Þörleifsdóttir.
Fylgjandi eða andvígur bjómum:
Þetta er erfið spurning en ég er
andvígur honum.
Hlynntur eða andvígur veru vam-
arliðsins hér á landi: Hlynntiu- því
aö hafa herinn í núverandi mynd.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Bylgjan.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Páll Þor-
steinsson.
Hvort finnst þér betra Sjónvarpiö
eða Stöð 2? Sjónvarpiö.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Arnar
Björnsson/hann birtist svo sjaldan
á skjánum.
Uppáhaldsskemmtistaður: Sá sem
veröur fyrir valinu hveiju sinni.
Uppáhaldsfélag í iþróttum: Má ég
segja Valur.
Eitthvað sérstakt sem þú stefnir aö
á þesu ári: Veröa betri.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí-
inu? Æfa handbolta.
Hvaö ætlar þú að gera í því 30 daga
fWi sem landsliöiö fær fyrir undir-
búninginn fyrir OL í Seoul? Lesa
undir próf og reyna aö komast sera
snöggvast til útlanda.
-SK
AÐALFUNDUR
OLÍUFÉLAGSINS
li SKELJUNGS HF. 1988
Aðalfundur félagsins verður haldinn föstudaginn 22.
apríl nk. kl. 15.00 að Suðurlandsbraut 4, 8. hæð.
Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins og póst-
lögðu fundarboði til hluthafa.
SVR auglýsir eftir
vagnstjórum
til sumarafleysinga við akstur strætisvagna á tímabil-
inu júní-ágúst.
Umsækjendur eru beðnir að snúa sér sem fyrst til
eftirlitsmanna í stjórnstöð SVR að Hverfisgötu 115.
Strætisvagnar Reykjavíku'r
AADUM
AUTOQPHUG APS
TLF. (07) 37 61 66 • AADUM • 6880 TARM
Ein stærsta bílapartasala í Danmörku, AADUM
AUTOOPHUG APS, hefur fengið íslenskan sölu-
mann til að annast viðskipti til islands.
Hún býður notaða og nýja varahluti beint af lager i
flestar gerðir bíla.
Sendir gegn póstkröfu.
Pöntunarsími í Danmörku hjá íslenska sölumannin-
um (Jósef) er 9045-7-341998 eftir kl. 16 og um
helgar.
Pöntunarsími bílapartasölunnar
AADUM AUTOOPHUG APS er 9045-7-376166 daglega.
Aðstoðarmaður á islandi (Guðni) er í sima 99-4608.
Athugið! Það sem þeir ekki eiga af notuðum varahlut-
um geta þeir útvegað nýtt.
GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA
VERZLUNARMANNAFELAG
REYKJAVÍKUR
FÉLAGSFUNDUR
NÝR KJARASAMNINGUR
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur félagsfund að
Hótel Sögu, Súlasal, sunnudaginn 10. apríl kl. 14.00.
Fundarefni: Nýr kjarasamningur kynntur.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
ALLSHERJARATKVÆÐAGREIÐSLA UM
NÝJAN KJARASAMNING
Allsherjaratkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning
Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, sem gerður var
8. apríl sl., verður mánudag, þriðjudag og miðviku-
dag, 11., 12. og 13. apríl.
Kjörfundur stendur yfir frá kl. 9.00 til 21.00, alla
dagana, í Húsi verslunarinnar, 9. hæð.
Félagsmenn VR eru hvattir til að taka þátt í atkvæða-
greiðslunni.
Kjörskrá liggur frammi á skrifstofu VR, Húsi verslun-
arinnar, sími 687100.
Kjörstjórn