Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1988, Blaðsíða 37
LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1988.
49
landi, og Brunner, V. - Þýskalandi,
allir meö 6,5 vinninga. Blatny
(Tékkóslóvakíu), Plaskett og Con-
quest (báðir Englandi) fengu 6
vinninga og 5,5 vinninga fengu Jón
L. Árnason, Sokolov (Júgóslavíu),
Serper (Sovétríkjunum), Navrot-.
escu (Rúmeníu), Fogarasi (Ung-
verjalandi), Norwood og Sadler
(báöir Englandi). Þröstur Þórhalls-
son hlaut 5 vinninga og Hannes
Hlífar Stefánsson 4 vinninga.
Keppendur á mótinu voru 54 frá
22 löndum - flest sterkustu skák-
ungmenni heims. Mót af þessu tagi
eru erfiö mót, sjálfsagt talsvert erf-
iðari en þau sýnast vera. Tafl-
mennskan er léttari, en um leið
beinskeyttari, en þegar skákmenn-
irnir eru komnir á „skotgrafar-
hernaðaraldurinn.” Og sumir
þeasara ungu manna eru svo illa
upp aldir, að þeir bera enga virð-
ingu fyrir sér eldri og reyndari
mönnum. Stórmeistararnir 5 sem
tefldu á mótinu máttu allir gera sér
að góðu að þurfa að lúta í duftið,
oftar en einu sinni.
Okkur íslendingunum tókst ekki
að sýna nægilega heilsteypta tafl-
mennsku til að ná taki á efstu
sætunum. Satt best að segja vorum
við langt frá okkar besta - eða það
vonum við a.m.k. - Hannesi voru
mislagðar hendur í byrjun, Þröstur
hrökk í jafnteflisgír í lokin og
missti vænlegar stööur niður og ég
tapaði og vann til skiptis - gerði
aðeins eitt jafntefli í mótinu er and-
stæðingurinn náði þráskák. Mest
sé ég eftir tapinu gegn Plaskett í
næstsíðustu umferð, er ég lék mig
í mát í ímynduöu tímahraki (41.
leik) eftir að hafa átt gjörunna
stöðu.
Eftirfarandi skák mín frá mótinu,
gegn enska alþjóðameistaranum
McDonald, veitti mér mikla
ánægju:
Hvítt: Jón L. Árnason
Svart: Neil McDonald
Frönsk vörn.
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5 c5
5. a3 ,Bxc3 + 6. bxc3 Re7 7. Dg4 0-0
8. Bd3!?
Oftast er leikið 8. Rf3 í stöðunni
en ég sá Van der Wiel tefla svona
gegn Hbner í Wijk aan Zee og vildi
prófa. Skák þeirra tefldist 8. - c4
9. Bh6! Rg6 10. Bxg6 fxg6 11. Be3
De8 12. h4 Rc6 13. h5 gxh5 14. Hxh5
Re7 15. RÍ3 HÍ5 16. Bg5 Rg617.0-0-0
h618. Hdghl! og hvítur náði sterkri
sókn.
8. - Í5! 9. exf6 fr.hl. Hxf6 10. Bg5 Hf7
11. Dh4 h6 12. Bxe7 Hxe7 13. Dg3!?
Einnig kemur 13. RÍ3 til greina,
því að eftir 13. - e5 14. dxe5 Hxe5
15. Kd2 stendur hvitur eitthvað
betur. Ég bjóst nú við 13. - c4 14.
Bg6 Rc6 en þá gæti hvítur reynt 15.
f4!? Da5 16. De3 og síöan 17. RÍ3
með lipurri stöðu.
13. - cxd4!? 14. cxd4 Bd7
Svartur hefur ekki áhyggjur af
ógnunum hvíts eftir skálínunni
bl-h7, heldur hyggst hann skáka á
a5 með drottningu og leika síðan
Bb5 og skipta upp á biskupum. í
þvi tilviki ætti hann prýðileg færi,
svo hvítur verður að hafa hraðar
hendur.
15. Dg6 Da5+ 16. Kdl! Bb5
Svarið við 16. - Dc3 yrði 17. Rf3!
17. Dh7+ Kf718. Bg6+ Kf619. Bh5
Be8 20. Bxe8 Hxe8 21. Re2 Da4?!
Reynir að hindra aö hvíti riddar-
inn nái að skerast í leikinn á
kóngsvængnum. Betra var þó 21. -
Rc6, því að 22. Rf4 má svara meö
22. - KÍ7 23. Dg6+ Kg8 24. Rxe6 He7
með hæltulegum gagnfærum. Hvít-
ur leikur betur 22. h4! og síðan
Hhl-h3 og á í því tilviki betra tafl.
22. Hbl Rc6
23. Hb3! Rxd4
Eftir 23. - Re7 24. g4 Hh8 getur
hvítur valið um 25. HÍ3+ ásamt
skiptamunsfórn á f5, eða einfald-
lega 25. Dd3 meö mun betri stöðu.
24. Hb4 Dxa3
Skásta vonin var drottningar-
fómin 24. - Rxe2 25. Hxa4 Rc3+ 26.
Kel Rxa4 en eftir 27. h4 ætti hvítur
að vinna.
25. Hxd4 Dal+ 26. Kd2 Dxhl
Sígild fórn. Svarta drottningin er
úr leik á hl og á meðan nær hvítur
vinningssókn.
27. Hf4+ Ke7 28. Dxg7+ Kd6 29.
Hf7! Hab8
Engu heíði 29. - Hac8 30. Hxb7
breytt. Svartur er varnarlaus.
30. Hc7 Hg8 31. De7+ Ke5 32. f4!
- Og svartur gafst upp.
-JLÁ
4. Siguröur Sigurjónsson
Júlíus Snorrason 226
5. JacquiMcGreal
Þorlákur Jónsson 224
6. SævarÞorbjörnsson
Karl Sigurhjartarson 195
7. Matthías Þorvaldsson
RagnarHermannsson 192
8. ValurSigurðsson
HrólfurHjartarson 185
9. GuðlaugurR. Jóhannsson
Örn Amþórsson 182
10. AntonR. Gunnarsson
JörundurÞórðarson 136
Svæðamót Norðurlands
vestra
Nú nýlega fór fram á Sauðárkróki
svæðamót Noröurlands vestra í
bridge. Þátttakendur voru frá öllum
bridgefélögum á Norðurlandi vestra
sem eru innan vébanda Bridgesam-
bands íslands. Siglfirðingar geröu
góða ferð til Sauðárkróks að þessu
sinni og skipuðu siglfirskir spilarar
fjögur efstu sætin. Spiláður var baró-
meter með þátttöku 31 pars undir
öruggri stjórn liins góðkunna keppn-
isstjóra, Alberts Sigurðssonar.
Tölvuútreikning annaðist Margrét
Þórðardóttir.
Efstu pör urðu:
stig
1. Ásgrímur Sigurbjörnsson
Jón Sigurbjörnsson Sigluf. 258
2. Bogi Sigurbjörnsson -
Anton Siglurbjörns. Sigluf. 139
3. Björk Jónsdóttir -
Steinar Jónsson Sigluf. 131
4. Valtýr Jónsson -
Stefanía Sigurbjd. Sigluf. 127
5. Björn Kriðriksson -
Kristján Jónsson Blönduósi 108
6. Unnar A. Guðmundsson -
Erlingur Sverris. Hvammst. 106
7. Flemming Jessen -
Eggert Karlsson Hvammst. 90
8. Eiríkur Jónsson -
Sverrir Þórisson Blönduósi 80
9. -10. Bjarki Tryggvason -
Skúli Jónsson Sauðárkróki 64
9. 10. Reynir Pálsson -
Stefán Benediktsson Fljótum 64
Gefandi allra verðlauna á mótinu var
Búnaðarbankinn á Sauðárkróki.
Bridgedeild Skagfirðinga
Þriðjudaginn 29. mars lauk keppni
i barometer með sigri þeirra félaga
Jóns Þorvarðarsonar og Guðna Sig-
urbjarnarsonar sem voru i sérflokki.
Röð efstu para var sem hér segir:
1. Jón Þorvarðarson -
Guðni Sigurbjarnarson 229
2. Hjálmar Pálsson -
Steingrímur Jónasson 113
3. Anton R. Gunnarsson -
Hjördís Eyþórsdóttir 108
4. Baldur Ásgeirsson -
Magnús Halldórsson 97
5. Ólöf Ketilsdóttir -
J. Mc. Greal 87
6. Björn Pétursson -
Haukur Sævaldsson 58
7. Alfreð Alfreðsson -
Jóhann Gestsson 37
Þriðjudaginn 5. apríl var spilaður
tvímenningur. Efstir úröu þessir:
1. Óskar Karlsson -
Sigmar Jónsson 149
2. Hildur Helgadóttir -
Karólína Sveinsdóttir 124
3. Ólöf Ketilsdóttir -
Jacky Mc. Greal 120
4. Björn Pétursson'-
Haukur Sævaldsson 117
Næsta þriðjudag, 12. apríl, verður
spilaður tvímenningúr. Spilað er í
Drangey, Síðumúla 35.
Iþróttapistill
Að loknu
fslandsmóti
1 handbolta
Handknattleiksvertíðin hefur nú
svo til runnið sitt skeiö á enda aö
þessu sinni og áhangendur Vals
hafa getað tekið gleði sína á ný eft-
ir að liðinu tókst að innbyrða
íslandsmeistaratitilinn á •döguh-
um. Ekki gekk úrslitaleikurinn
andskotalaust fyrir sig og menn
höfðu hinar ýmsu skoðanir á þeim
málum sem upp komu samhliða
leiknum sjálfum á milli Vals og
FH.
Margir handknattleiksunnendur
voru forviða yfir þeirri ákvörðun
Valsmanna að leika úrslitaleikinn
að Hlíðarenda þar sem aöeins er
rúm fyrir um 800 áhorfendur.
Flestir hafa eflaust lifað í þeirri von
að leikurinn myndi fara fram í
Laugardalshöll en Valsmenn tóku
fljótlega þá örlagaríku ákvörðun
að halda sig við heimavöllinn. í
upphafi var mikill slagur í gangi
um aðgöngumiða og var greinilegt
á öllu að Valsmönnum var ekki
sama um það hverjir sætu á áhorf-
endabekkjunum. FH-ingum voru
skammtaðir einhverjir tugir að-
göngumiða. Og það sem vakti
kannski mesta gremju manna á
meðal var aögöngumiöaverðið en
ekki er hægt að segja að því hafi
verið stillt í hóf.
Að vísu skiljanlegt
Allt þetta brambolt Valsmanna á
sínar eðlilegu skýringar að mínu
mati. Langt er síðan meistara-
flokkshð félagsins hefur leikið
mikilvægari leik en gegn FH á dög-
unum og þegar fram líða stundir
verður spurt að því hvaða lið hafi
orðið íslandsmeistari í handknatt-
leik 1988 en ekki hversu margir
áhorfendur hafi verið á úrslita-
leiknum, hvar hann hafi farið fram
eða hvert verðið á aðgöngumiðun-
um hafi verið.
Glæsilegur endir
Úrshtaleikur Vals og FH var
glæsilegur endir á skemmtilegu ís-
landsmóti. Valsmenn voru undir
gífurlegu álagi því vissulega hefði
það flokkast undir meiriháttar slys
ef hðinu hefði ekki tekist að inn-
byrða íslandsmeistaratitilinn eftir
allt það sem á undan gekk.
Ekki bara álag á leikmenn
Vals
Á meðan á úrslitaleiknum sjálf-
um stóð mátti glögglega sjá að það
voru ekki einungis leikmenn Vals
sem voru undir miklu álagi. Gami-
ir reyndir leikmenn, sem gerðu
garðinn frægan í Valsbúningnum,
héldu ekki vatni á áhorfendabekkj-
unum í þær 60 mínútur sem leikur-
inn stóð yfir og þeir voru greinilega
undir miklu álagi. Reyndar má sjá
þessa kappa enn í dag ganga um
með bros á vör og ekki vist að það
hverfi áður en úrslitaleikurinn í
bikarkeppninni fer fram en þar
leika Valsmenn gegn Breiðabliki
sem kunnugt er. Valsmenn hafa
því möguleika á að vinna tvöfalt í
ár og kæmi það ekki á óvart þótt
af því yrði. Það yrði glæsilegur
lokapunktur á keppnistímabilinu
hjá Valsmönnum og vil ég nota
þetta tækifæri til að óska öllum
Valsmönnum til hamingju með ís-
landsmeistaratitilinn.
Ólafur og Stefán þurfa að
flauta áfram
í liðinni viku mátti sjá sorgar-
fregn úr heimi handknattleiks-
manna í DV. Þar var greint frá
þeirri ákvörðun Stefáns Arnalds-
sonar og Ólafs Haraldssonar, sem
áhtnir eru bestu dómarar okkar í
handknattleik, þess efnis aö þeir
hefðu ákveðið aö hætta aö dæma
eftir þetta keppnistímabil. Það yrði
mikið áfall fyrir handknattleikinn
hér ef þessir færu dómarar legöu
flautunni og vonandi kemur ekki
til þess. Við eigum ekki mikið til
af frambærilegum dómarapörum
og því er nauðsynlegra en ella að
halda í þá félaga frá Akureyri. Setj-
ist nú niöur, þið sem hlut eigið að
máli, og finniö lausn á þessu máli.
Til þess hafið þið sumarið og hand-
knattleiksunnendur og leikmenn
1. deildar félaganna vilja örugglega
ekki missa þá félaga.
5 stig af 6 gegn Japan
Þremur máttlausum landsleikj-
um í handknattleik gegn Japan er
nú nýlokið og eflaust margir fegnir
enda leikirnir svo til þýðingarlaus-
ir þótt auðvitað sé alltaf nauðsyn-
legt að ná fram sigri. Mikill
klaufaskapur var það að tapa stigi
í síðasta leiknum en þaö er voöa-
lega erfitt að fara að æsa sig út af
þessum leikjum og frammistöðu
okkar manna í þeim vegna þess til
dæmis að leikirnir höíðu enga þýð-
ingu og áhugi leikmanna og
handknattleiksunnenda í algeru
lágmarki. Horfum á dagatahð og
örugglega verður nægur tími til að
röfla eða gleðjast að ólympíuleik-
unum loknum.
Góður árangur ungra körfu-
knattleiksmanna
Ungir íslenskir körfuknattleiks-
menn hafa gert góöa hluti á er-
lendri grundu að undanfórnu og
kannski betri en menn gera sér
almennt grein fyrir. Nokkur félög
kepptu á Scania Cup í Svíþjóð sem
er nokkurs konar Norðurlandamót
í yngri flokkunum. íslensku liðin
náðu mjög viðunandi árangri á
þessu móÚ og tveir ungir körfu-
knattleiksmenn náðu þeim frá-
bæra árangri að vera kosnir bestu
leikmenn Norðurlanda í sínum ald-
ursflokkum. Hér er átt við þá
Márus Arnarsson úr IR og Jón
Arnar Ingvarsson í Haukum. Þetta
eru menn framtíðarinnar og það
virðist vera bjart framundan í
körfuknattleiknum
Lokaslagurinn hafinn í úr-
valsdeildinni
Nú er lokaslagurinn í úrvals-
deildinni í körfuknattleik og eftir
nokkra daga verða íslandsmeistar-
arnir krýndir. Þegar þetta er
skrifað hafa Njarövíkingar, sem
hafa titil að verja, þegar sigrað
Valsmenn með nokkrum mun í
fyrri leik liðanna en á hinum end-
anum beijast Haukar og Keflavík.
Njarðvíkingar virðast vera búnir
að tryggja sig í úrslitaleikinn þrátt
fyrir að Valsmenn hafi alla burði
til að vinna síðari leikinn en erfið-
ara er að spá fyrir um úrslit í slag
Hauka og Keflavíkur. Einhvern
veginn læðist þó að manni sá grun-
ur að það muni koma í hlut
Suðurnesjahðanna að leika til úr-
slita um íslandsmeistaratitilinn í
ár. Stefán Kristjánsson
• Stefán Kristjansson lék sína fyrstu landsleiki gegn Japan og sést hér í marktækifæri. Þess má geta að í
mánudagsblaði DV verður ítarlegt viðtal við þennan efnilega handknattleiksmann. DV-mynd Brynjar Gauti