Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1988, Side 4
4
FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1988.
Fréttir
Aðalsteinn Jónsson, utgeröarmaöur frá Eskifirði, ásamt dóttursyni sínum, Daða Þorsteinssyni, fyrir framan Eld-
borgina, sem bráðum verður Hólmaborg, áður en hún lagði af stað til nýrrar heimahafnar. DV-mynd BG
Eldborgin til EskHjarðar:
Almenningur lánar
mér fyrir skipinu
segir Aðalsteinn Jónsson útgerðarmaður
Aðalsteinn Jónsson, útgerðarmað-
ur á Eskifirði, hefur keypt aflaskipið
Eldborgu HF 13 frá Hafnarfirði til
Eskiíjarðar en nú gerir hann út fjög-
ur skip þaðan. Eldborgin er mjög
glæsilegt loðnuveiðiskip, 937 lestir
að stærð. Hún er smiðuð í Svíþjóð
1978.
Aðalsteinn undirritaði kaupsamn-
inginn í fyrradag og lagöi skipið af
stað til Eskifiaröar í dag þar sem þaö
fer fljótlega á rækjuveiðar.
Fyrir á Hraðfrystihús Eskifiaröar,
en Aðalsteinn er einn af aöaleigend-
um þess, skuttogarann Hólmatind og
helming í skuttogaranum Hólma-
nesi. Auk þess sem tvö skipa fyrir-
tækisins bera nöfn foreldra Aðal-
steins, Guðrún Þorkelsdóttir og Jón
Kjartansson. Nýja skipið ætlar hann
að skíra Hólmabörg. Kaupverð henn-
ar var 207 milljónir með veiðarfær-
um.
- Hvernig geturðu keypt þetta dýrt
skip, Aðalsteinn?
„Væri ekki réttara að orða það
þannig að ég hafi verið að fá hana
lánaða. Ég þekki engan útgerðar-
mann sem getur raunverulega keypt
eitt eða neitt eins og staðan er í sjáv-
arútveginum í dag. Miklar skuldir
hafa hvílt á skipinu en til að gera
kaupin möguleg hefur verið tekið lán
af opinberu fé. Það er meöal annars
þú og almenningur sem lánar mér
fyrir skipinu."
- Eru næg verkefni fyrir skipið á
Eskifirði?
„Verkefnin eru ekki nógu mörg
eins og er. Þetta er loðnuveiðiskip
sem hefur einnig leyfi til að veiða
rækju. Á Eskifirði höfum við góða
loðnubræðslu og glænýja rækju-
verksmiðju. Höfuðmarkmiðið með
kaupunum er að tryggja verksmiðj-
unum nóg hráefni. En það er mín
reynsla gegnum árin að eini mögu-
leikinn til að útgerö geti gengið sé
að sami aöilinn geri út skipið og hafi
nýtingu aflans með höndum. Það er
grundvallarforsendan fyrir því að
hægt sé að ná endum saman,“ segir
Aðalsteinn.
-JBj
Húsnæðismálin tekin til
heildarendurskoðunar
Félagsmálaráðherra hefur skipað
nefnd til að ganga frá tillögum að
skipan hins almenna húsnæðislána-
keríis. Hlutverk nefndarinnar er að
semja lagafrumvarp um framkvæmd
ráðstafana og leiða í breyttri skipan
hins almenna húsnæðislánakerfis.
í nefndinni eiga sæti fulltrúar
stjórnar og stjórnarandstöðu ásamt
aðilum vinnumarkaðarins. Formað-
ur nefndarinnar er Kjartan Jóhanns-
son alþingismaður. Aðrir nefndar-
menn eru Ásmundur Stefánsson,
forseti ASÍ, Gunnar J. Friðriksson,
formaður VSÍ, Júlíus Sólnes alþing-
ismaður, Kristín Ástgeirsdóttir sagn-
fræðingur, María Ingvadóttir við-
skiptafræðingur, Steingrímur J.
Sigfússon alþingismaður og Þráinn
Valdimarsson framkvæmdastjóri.
Gert er ráð fyrir að nefndin ljúki
störfum það tímanlega að hægt verði
að leggja fram lagafrumvarp um end-
urskipulagningu almenna húsnæðis-
lánakerfisins í byijun næsta þings.
-SMJ
Selfoss:
Blómin kíkja á sólina
Regína Thorarensen, DV, Selfossi:
Hér hefur verið Mallorcaveður
undanfarna daga. Fólk er taka til í
göröum sínum og undirbúa kartöflu-
garðana, einhveijir eru búnir að
setja niður. Fjölær blóm eru víða
sprungin út, einkum þó páskaliljan,
sem þó var í seinna lagi núna. Önnur
eru aö kíkja út eins og til að athuga
veðráttuna og fara varlega.
Þess má þó geta að páskaliljurnar
hennar Þóru Þóroddsdóttur að Víði-
völlum 20 voru sprungnar út um
miðjan apríl, langt á undan örðum.
Ég spurði Þóru hvað hún gerði til
þess og hún svaraði. „Ég fer út í garð-
inn oft á dag og hef svo gaman af
blómunum, fylgjast með þeim og tala
við þau. Einnig að gera moldina létt-
ari í kringum þau. Svo gef ég þeim
svolítinn áburð en læt karlinn minn
ekkert vita um það - áburð inniblóm-
anna.“
Hundur brtur fólk í Hrísey
-þótt hundahald sé bannað
Valdis Þorsteinsdóttir, DV, Hrísey:
Fyrir nokkru var blaðberinn DV í
Hrísey bitinn af hundi og í gær, 16.
maí, var sár hans ekki enn farið aö
gróa. Hundahald er alveg bannað í
Hrísey samkvæmt sýslusamþykkt
30. júní 1943 og hún hefur verið í
fullu gildi. Samt sem áður vaða hér
uppi hundar. Beinlínis orðnir plága
þó svo að í sýslusamþykktinni standi
orðrétt, 77. grein.
„Hundar, sem ráðast á menn eða
elta skepnur, eru réttdræpir. Hundar
mega ekki vera lausir um nætur."
Nú er ég búin aö tala við fulltrúa
sýslumanns hér en ekkert hefur ver-
iö gert. Hundurinn, sem beit blað-
berann, hefur komið við sögu áður
því í ljós hefur komið að hann hefur
bitið fleiri manns. Enginn segir neitt
og hundurinn gengur laus. Það er
eins og allir séu hræddir að gera eitt-
hvað í málinu.
Egilsstaðir:
Kvenfélagið á móti áfengisútsöiu
Airna Ingólfedóttir, DV, Egilsstöðum:
Fundur í kvenfélaginu Bláklukku,
haldinn 9. maí 1988, sem var eindreg-
ið á móti opnun áfengisútsölu á Eg-
ilsstöðum, skorar á íbúa bæjarins að
íhuga hættuna sem opnun áfengisút-
sölu hefur í fór með sér.
Enn fremur skorar fundurinn á
bæjarbúa að nýta kosningarétt sinn
en sitja ekki heima 28. maí.
í dag mælir Dagfari
Hengjum bakarann
Ríkisstjórnin hefur nú fyrirskipað
leit að þeim aðilum sem hömstruðu
gjaldeyri í síðustu viku. Það hamst-
ur varð til þess að ríkisstjórnin
neyddist til að loka gjaldeyrisdeild-
um og fella gengið miklu mun fyrr
en til stóð. Sagt er að gjaldeyrir
fyrir tvo og hálfan milljarö króna
hafi verið keyptur á einum eftir-
miðdegi. Bróðurparturinn af inn-
stæðum þjóðarbúsins fauk sem
sagt burt í góðviðrinu og enginn
veit hvert. Ríkisstjórnin nær ekki
upp í nefið á sér vegna vonsku,
Þorsteinn þurfti að aflýsa heim-
sókn til Reagans, Denni þurfti að
koma heim frá útlöndum og helgin
var eyðilögð fyrir ráðherrunum
með stöðugum fundahöldum. Það
er von að mennimir séu reiöir.
En út í hveija eru þeir reiðir? Það
er vandamáliö vegna þess að ein-
hver hulduher hefur safnast inn í
bankana þennan alræmda eftir-
miðdag og tæmt allar fiárhirslur.
Þeir komu eins og þjófar að nóttu.
Úr því ríkisstjómin er reið þá verð-
ur hún aö vita út í hvern hún er
reið og þess vegna hefur Jón Bald-
vin fyrir hönd ríkisstjórnarinnar
heimtað skýrslu um þá sem keyptu
gjaldeyrinn. Hveijir vom það sem
eyðilögðu utanferðirnar hjá ráö-
herrunum, hverjir voru það sem
spilltu helgarfríinu, hverjir voru
það sem grófu undan ríkisstjóm-
inni með því að hafa vit á því að
kaupa gjaldeyri meðan hann var á
útsölu? Þetta eru brennandi spurn-
ingar og nú þarf aö fá skýrslumar
til að ná sér niðri á skúrkunum.
Það nær auövitað ekki nokkurri
átt aö einhverjir aðilar í þjóðfélag-
inu séu það vel með á nótunum að
þeir notfæri sér gengisfellingarnar
fyrirfram.
Denni sagði strax aö fólk væri
ekki eins vitlaust og menn héldu.
Alltaf hittir hann naglann á höfuð-
ið hann Denni en hann viðurkenn-
ir um leið að þessi skynsemi fólks-
ins hafi komið ríkisstjórninni á
óvart. Ríkisstjómin hefur haldið
að fólkið væri vitlausara en það er.
Og þar sem það er ekki eins vit-
laust og ríkisstjórnin hélt að ís-
lendingar væru þá verður að refsa
þessu sama fólki. Það verður aö fá
skýrslur yfir nöfn þess til að ná sér
niðri á því. Það má ekki gerast aft-
ur að skynsamt fólk nýti sér skyn-
semina til að taka ríkisstjórnina í
bólinu.
Ef gengið er fallið en ríkisstjómin
ekki búin að fella gengið þá er það
lágmarkskrafa íslenskra stjóm-
valda að fólk átti sig ekki á þessu.
Sumir í stjórnarandstööunni og
sumir fiölmiðlanna hafa verið að
benda fólki á þá staðreynd að geng-
ið hafi verið fyrir löngu fallið.
Frystihúsamenn og útflytjendur
hafa tekið undir þennan söng og
Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra
hefur kennt þessum kjaftagangi
um ótímabæra gengisfelhngu og
útsölu á gjaldeyri. Það verður aö
taka fyrir svona kjaftagang og það
verður að stöðva það fólk og þá fiöl-
miðla með öllum ráöum sem leyfa
sér þann dónaskap að segja sann-
leikann og nýta sér hann. Þess
vegna er ríkisstjórnin aö krefiast
upplýsinga úr bankakerfinu um þá
dóna sem em ekki eins vitlausir
og ríkisstjórnin hélt að þeir væru.
Nú er það vitaskuld á hvers mann
vitorði að ríkisstjórnin ætlaði að
fella gengið. Hún ætlaði að gera þaö
eftir að Þorsteinn væri kominn
heim og eftir að Denni væri kominn
heim og hún ætlaði að gera það
eftir hélgina. Fólkið tók bara
stjórnina í bólinu. Smiðurinn í
þessu smíöaverki er ríkisstjórnin
sjálf. Það er hún sem stjórnar efna-
hagsmálunum, það er hún sem
hefur haldið sér fast í fastgengis-
stefnuna, það er ríkisstjórnin sem
er smiðurinn. En eins og venjulega
má ekki hengja smiðinn. Það verð-
ur að hengja bakara fyrir smið og
þess vegna skal nú gengið miUi
bols og höfuðs á þeim óþjóðalýö
sem ruddist inn í bankana til að
kaupa gjaldeyri á útsöluverði áður
en hann var hækkaður.-
Ráðherrarnir eru bæði sárir og
reiðir. Þeir em reiöir út í fólk sem
er ekki eins vitlaust og það lítur
út fyrir aö vera. Það verður að fá
skýrslur yfir þetta fólk og taka það
úr umferö næst þegar gengisstefn-
an er sprungin. Þeir einir mega
fara frjálsir ferða sinna hér á landi
sem eru nógu vitlausir til að láta
það eiga sig að kaupa gjaldeyri fyr-
ir slikk. Þeir vitlausu em banda-
menn ríkisstjórnarinnar. Hina á að
hengja.
Dagfari