Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1988, Blaðsíða 38
.38
FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1988.
Lífsstfll
■■■
Gaseldavélar að ná
yinsældum
Mikll aukning hefur orðiö á sölu
gaseldavéla hér á landi. Að sögn
sölumanna hefur aukningin orðið
aðallega á þessu ári.
Fólk, sem stendur í húsbyggingum
og fer að skoða innréttingar hjá inn-
réttingafyrirtækjum, rekur strax
augun í óvenjulega eldavél, nefnilega
gaseldavél. Matarsíðan kynnti sér
slíkar vélar, kosti þeirra og galla.
Það eru ekki margar heimilis-
tækjaverslanir sem selja gaseldavél-
ar. í Reykjavík eru þær aðallega
þrjár. Veiyulega eru eldavélarnar
seldar í lausum einingum og tekur
þá fólk eina rafmagnseiningu og aðra
með gasi.
Auðvelt er að auka og
minnka gasstrauminn á
vélinni.
„Elda eingöngu á gasi"
- segir Kristín Hálfdánardóttir í Hnífsdal
„Við kynntumst þessu fyrst um
borð í skútunni, þá var ekki um
neitt annað að ræða en gaseldun,"
sagði Kristín. En þau hjónin hafa átt
skútu í nokkur ár og siglt henni víöa.
Hjónin Gunnar Þórðarson og Krist-
ín Hálfdánardóttir búa í Hnífsdal
ásamt tveimur bömum. Fyrir rúm-
um tveimur árum fluttust þau frá
ísafiröi í nokkurra ára gamalt ein-
býlishús sem þau hafa veriö að
gera upp. Að sögn Kristínar höföu
þau ákveðið fyrir nokkrum árum
að ef þau flyttu í nýtt hús myndu
þau hafa gaseldavél
Gasið er ekki hættulegra en
rafmagn
„Það er eins og fólk telji gas vera
eitthvað hættulegra en rafmagn.
Það ímyndar sér alls konar hættur
í sambandi við gas og böm. Það er
þannig gengið frá þessum tækjum
að hættan er engin. Það verður að
ýta rofanum niður og snúa og halda
í þijár sekúndur tíl' að fá loga. í
eldavéhnni er innbyggð magneta
sem kveikir eldinn."
Kristín sagðist elda allt á gasinu
en ætti því miður ekki heppilega
potta.
„Ég nota enn gömlu pottana og
pönnumar en það er of þykkur
botninn til að nýta gasið eins og
æskilegt væri. Þaö stendur til að
eignast betri áhöld fyrir gasið. Sem
dæmi um tímaspamað má nefna að
fljótlegra er að hita súpu í potti yflr
gasinu, heldur en í örbylgjuofhi.“
Óháð dyntóttri raforku
Ástandið í rafmagnsmálum hefur
löngum verið bágboriö á Vestfjörð-
um, sérstaklega yfir vetrarmánuð-
ina.
„Þaö hefur verið óvenjuhtið um
rafmagnsleysi hér í vetur. En um
jólin, þegar mikið álag er síðdegis
á aðfangadag, er mikih kostur aö
hafa gasið. Þá er maður alveg óháð-
ur rafmagninu og finnur ekki fyrir
því þótt það detti út.
Mikil umræða hefur verið um
orkukostnaö á landbyggðinni og
ekki síst raforkuverðið.
„Við notum gas af þremur kútum
á ári og áfylhngin kostar um 800
krónur. Hehdarkostnaðurinn við
eldun er þá um 2400 krónur á ári
sem er margfaldur sparnaður borið
sartian við rafmagn. Reyndar höf-
um við lent í því að standa uppi
gaslaus. Við emm orðin svo vön
gasinu að ef það vantar er þaö
fyrsta sem okkur dettur í hug: Nú
er ekkert hægt að elda.
Af því við höfum bara tvær hehur
með gasi eru rafmagnshellurnar
notaðar sem aukahellur ef við er-
um að elda mikið. Maöur hefur
stundum velt fyrir sér hvort þetta
sé ein af þessum tilbúnu þörfum
en þegar maöur skoðar alla kostina
Kristín segir rækjurnar sérstaklega góðar steiktar á gasi. DV-myndir BB, ísafirði
Gaskútnum er komið fyrir í skápn
um við hliðina á vélinni.
kemst niiaður að raun um að svo
er ekki.“
- En er maturinn betri eldaður á
gasi?
„ Núna flnnst manni það. Með
hráefni eins og fisk, sem ekki má
ofelda, er stórkostlega þægilegt að
hafa gas. Mun einfaldara er að
stjórna hitanum á gasinu. Þegar
maður dregur niður í því minnkar
hitinn strax. Öfugt er það með raf-
magn, þá er hellan að smáminnka
hitann. Til dæmis útheimtir kín-
verskur matur eldun á gasi. Við
erum að láta útbúa fyrir okkur kín-
verskan pott, sérstaklega fyrir ga-
sið.
Aðspurð sagðist Kristín hiklaust
geta mælt með gaseldavélum.
„Viö lentum í smáerfiðleikum
fyrst en þaö var bara klaufaskapur
í okkur. Nú dytti okkur ekki í hug
að elda á ööru. Reyndar hefur kom-
ið til tals að kaupa gasofn hka en
það er ekki hægt að fá þá hér. Við
sjáum mest eftir því að hafa ekki
gas eingöngu,“ sagði Kristín að lok-
um. -JJ