Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1988, Side 21
FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1988.
21
Lífsstfll
Verðkönnun
gamla bænum
Laugavegurinn er ein elsta versl-
unargata í Reykjavík. Þar hafa mat-
vöruverslanir staðið höllum fæti
undanfarin ár þegar stórmarkaðir í
úthverfum tóku til sín helstu við-
skipti.
Nokkrar verslanirnar eru enn með
gamla laginu að hluta. Kaupmaður-
inn stendur fyrir innan búðarborðið
og réttir viðskiptavininum umbeöna
vöru.
í þessari verðkönnun voru teknar
með tvær verslanir í annari gamalli
götu, Hverfisgötunni. Einnig voru í
verðkönnuninni SS í Hafnarstræti
og Víðir í Austurstræti.
Eins og sjá má á meöfylgjandi töflu
er vöruúrval mjög misjafnt milli
verslana. Helgast það af því hve þess-
ar tíu verslanir eru mismunandi
búnar. Sumar af verslununum hafa
ekki frystiborð og geta þar af leið-
andi ekki boöið vöru eins og kjúkl-
inga.
Algengustu vörurnar eru egg, tóm-
atar og agúrkur. Ekki er mikill mun-
ur á eggjaverðinu. Meðalverðið er
258 kr., hæst kr. 265 og lægst kr. 245.
Aðeins í tveimur verslunum er verö-
ið kr. 245, í Víði og Lúliabúð, Hverfis-
götu. Helmingur verslananna, eða
fimm, eru meö hæsta verð, kr. 265.
Athygli vekur hinn mikh munur á
tekexi. í Hagkaup kostar pakkinn 36
kr. en í Kjötbúri Péturs 64,50 kr.
Verðmunurinn er um 60% sem verö-
ur að teljast töluvert.
Kjúklingaverðið er einnig mjög
mismunandi, lægst*483 kr. 1 Hagkaup
og hæst í Víði í Austurstræti, kr.
569. í Nóatúni á Hlemmi rákumst við
á 3 kjúklinga í poka á 399 kr„ merkt
vikutilboð. Góð kaup það.'
Aö öðru leyti skýrir taflan sig sjálf.
-JJ
Ekkí er mikill verðmunur á eggjum á milli verslana.
Verðkönnun í miðbænum
Knorr aromat Kjúkl- ingar Hersheys Jaccbs tekex Juvel hveiti Nezo salt Lion bar súkkul. Tómatar Agúrkur Egg
Nóatún/Hlemmi 85 550 323 68 47 29 599 204 265
Hagkaup 75 483 311 36 45 425 195 265
Vínberið 89 41 55 35 499 256 249
Lúllabúð 68,30 490 50 71,85 27 590 230 245
Hverfiskjötb. 68 44 49 721' 256
Kjötbær 318,50 44 599 252 265
Kjötbúr Péturs 84,50 548 64,50 560 263 265
Vísir 82 48 32 249 259
Víðir 81 569 36 590 195 245
SS/Hafnarstr. 76,50 498 37 57 56,50 31 450 230 265
78,80 523 317,50 45,80 60,15 48,13 31,66 559 233 258
í
- 1..........I
verðkönnun DV kom i Ijós að allt að 296 krónum munar á kilóverði af tómötum á milli verslana
MikiII verð-
munur á tómöt-
um í verslunum
í verðkönnun DV kom í ljós að
mestur verömunur er á tómötum
milli verslana. Meðalverð var 559
krónur fyrir kílóiö. Lægst var kíló-
verðið í Hagkaupi, 425 kr„ eða 134
kr. undir meöalverði og í SS í Austur-
stræti, 450 kr„ sem er 109 kr. undir
meðalverði.
Tómatar eru langdýrastir í Hverf-
iskjötbúðinni. Þar kostar kílóið af
tómötum 721 krónu! Það verð er 162
krónum yfir meðaltali könnunarinn-
ar. Þannig er munur á hæsta og
lægsta verði 296 krónur fyrir kílóið.
Einnig var talsverður munur á kíló-
verði af agúrkum á milli verslana.
Lægst var verðið í Víði og Hagkaupi,
kr. 195 kg, en hæst í Kjötbúri Péturs
263 kr. Þar munar 69 krónum.
Verðkönmm
á bílaleigum
Á þriðjudag birtist hér í blaðinu
verðkönnun sem gerð var á bílaleig-
um. Þau mistök áttu sér stað að tafl-
an fylgdi ekki með.
Verðkönnun þessi var gerð á sjö
bílaleigum á höfuðborgarsvæðinu.
Neytendur
Ódýrasti bíllinn býðst hjá Bónus
bílaleigu. Þar eru daggjöld af ótiltek-
inni eldri bifreið kr. 1.112 og kíló-
metragjaldiö kr. 11,12. Tekið skal
fram að þessir bílar eru í langleigu
hjá fyrirtæki þannig aö þessi kjör eru
ekki í boði þessa stundina. Ódýrasti
kosturinn er því bílaleiga Flugleiða
en þar má leigja Opel Corsa eða Ford
Fiesta á kr. 1.437,50 á dag og auk
þess verður að greiða kr. 14,40 fyrir
hvern ekinn kílómetra.
Dýrasti kosturinn er Bluebird bif-
reið hjá Bílaleigunni Vík. Daggjöldin
af honum nema kr. 3.700 og kílómetr-
inn kostar kr. 37.
Þáð ber að athuga aö allar verð-
tölur í töílunni eru án söluskatts. Það
vekur athygh að hver einasta bíla-
leiga gaf upp verð án söluskatts og
voru sumar tregar til að viðurkenna
það. Það er brot á rétti neytandans
sem á heimtingu á að vita nákvæm-
lega hvað hlutur kostar áður en kaup
eru gerð.
-JJ
Daggjald Kilómetragj. Sölusk.
Bllaleiga Flugleiða
Opel Corsa, Ford Fiesta 1.150 11,50 + 25%
Bílaleigan Ás.
Datsun Cherry 1.280 12,80 + 25%
Datsun Pulsar
Mazda 323 1.580 15,80 + 25%
Subaru 1.900 19,00 + 25%
Bónus bílaleiga
Mazda 323 1.350 13,50 + 25%
Geysir bilaleiga
Lada 1.380 13,80 + 25%
Nissan Micra 1.680 16,80 + 25%
Toyota Corolla, Nissan Sunny 1.880 18,80 + 25%
Bílaleigan ós
Daihatsu Charmant 1.300 13,00 + 25%
Nissan Sunny 1.500 15,00 + 25%
Subarustation 2.000 20,00 + 25%
Sh. bllaleiga
Nissan Micra, Mazda 323 1.700 17,00 + 25%
Subaru 1.950 19,50 + 25%
Bílaleigan Vlk
Nissan Micra 1.700 17,00 + 25%
Nissan Sunny 2.100 21,00 + 25%
Bluebird 2.960 29,60 + 25%